Þjóðviljinn - 24.12.1955, Page 20
20
Afbrýðissemi. Steinprent. 1896
Kerið. Stein-prent. 1898
Edvard Munch lezt háaldraður
maður, 81 árs, í janúarmánuði
árið 1944. Hann arfleiddi listasafn
Oslóar að öllum listaverkum sínum
sem þá voru í hans eigu, 1008 mál-
verkum og meira en 10.000 svartlist-
ai’blöðum. Þegar við öll þessi lista-
verk er bætt þeim fjölmörgu mál-
verkum, steinprentum, tréstungum
og pennateikningum, sem hann
hafði látið af hendi meðan hann
lifði, sést glögglega hve gífurlegt
lífsstarf hans var og munu fáir lista-
menn hafa verið jafnokar hans að
elju. Og ekki má gleyma því að
Munch ruddi nýjar brautir í öllum
þeim greinum myndlistar sem hann
fékkst við.
Munch hafði snemma fullkomið
vald á dráttlistinni. Svartlistarmynd-
ir hans voru gerðar af sjaldgæfri
hnitmiðun og hver dráttur þeirra
var gæddur lífi. Engum kom til hug-
ar að efast um teiknihæfileika hans,
Stúlka með hjarta. Koparstunga 1909
i
Veik stidka. Lítað steinprent. 1896
oq siM/itiisl hcms
jafnvel þótt miklar deilur risu um
efnisval hans og margir teldu að
hann sóaði dýrmætum hæfileikum
sínum 1 útlistun þeirra hluta, sem
helzt ættu að lig'gja kyrrir í skúma-
skotum.
En teikningar geymast yfirleitt
ekki lengi- Pappírinn grotnar sund-
ur og gufnar af Ijósi sólar og penna-
strik og blýantsdrættir dofna og
mást út. Einn þeirra manna sem
bezt þekkja hið mikla ævistarf
Munchs, landi bans Pola Gauguin,
hefur sjálfsagf í'ptt fyrir sér þegar
hann segir, að (Munch hafi farið
að leggja stund a svartlistina m. a.
vegna þess að með því móti tókst
honum að tryggja varðveizlu teikn-
inga sinna. En augu hans opnuðust
þá fyrir hinum miklu tækifærum til
listsköpunar sem svartlistin býr yf-
ir.
Reykvíkingar áttu kost á að kynn-
ast örlítið svartlist Munchs á sýn-
ingu sem haldin var á nokkrum
myndum hans í Listasafni ríkisins
um páskaleytið 1952. Myndirnar hér
á opnunni geta bætt nokkru við þau
kynni.
Tækni Munchs er fullkomin, en
myndirnar eru allmikið mótaðar af
þeim bölsýnisviðhorfum sem þá
gerðu mjög vart við sig þegar þær
voru gerðar. Tómleiki og tilgangs-
leysi borgaralegrar tilveru setja
mark á listaverkin.
Vonleysið og einveran, sem ein-
kennir tilveru þess fólks sem Munch
sýnir okkur, örvæntingarfull lífsþrá
þess og ráðþrota hatur, skapa þann
blæ þunglyndis sem hvílir yfir þess-
um myndum.
Að sjálfsögðu segja myndirnar
hér á opnunni okkur ekki mikið um
snilld Munchs, en hér er þó mynd
af einu víðfrægasta steinprenti hans,
Veik stúlka, en það mótíf hefur
hann einnig notað í olíumálverki.
Þetta fallega mótaða höfuð, þetta
viðkvæma föla stúlkuandlit á kodd-
anum ber ást Munchs á manninum
fagurt vitni-
Úr viðjum. Steinprent. 1896
Flagarinn. Koparstunga. 1912
Frummaður. Tréstunga. 1905
Maður og hestur. Koparstunga. 1913
Sjálfsmynd. Tréstunga. 1919