Þjóðviljinn - 24.12.1955, Blaðsíða 39

Þjóðviljinn - 24.12.1955, Blaðsíða 39
BOK3FLOKKUR MáIs og meooiogor 1955 Fjórði bókaflokkur Máls og menningar með fjölbreyttu vali 1. Sagan af Tiíst- an og ísól, eftir Joseph Bédier Einar Ól. Sveinsson próf. islenzkaði Frönsk nútímasaga. Eitt af þeim fágætu verkum í heims- bókmenntunum sem býr yfir svo ævintýraiegri fegurð að hver sem söguna les verður hugfanginn af henni. Á íslenzku er einnig unaður að lesa hana vegna málsins. 4. Hinn foidæmdi skáldsaga eftir Kristján Bender Þetta er biblíusaga sem ger- ist öll á fimm dægrum fyrir krossfestinguna, og bregð- ur upp athyglisverðum nýj- um viðhorfum. Eftir sama höfund hafa áður komið smásagnasöfnin Lif- endur og dauðir og Undir Skuggabjörgum og fengu beztu viðtökur, og eru báðar bækurnar uppseldar. Hinn fordæmdi ber af því sem höf- undur hefur áður gert. 7. Vestlendingar, eftir Lúðvík Kristjánsson Þetta er annað bindi af hinu stórmerka riti Lúðvíks um sögu Vestlendinga á 19. öld Hann leiðir fram í dagsljós- ið merkustu heimildir um menn og atburði og vinnur ómetanlegt starf með þessum rannsóknum sínum. Fyrra bindið gerðist aðallega í Flatey og við Breiðafjörð. í þessu bindi lýsir hann einkum kringum þá menn sem stóðu að baki Jóni Sigurðssyni heima á Vestfjörðum, og kemur margt nýtt í ljós, áður ókannað, sem varpar birtu á alla sjálfstæðisbaráttuna. 2. Sjödægia, Ijóðabók eftir Jóhannes úr Kötlum Skáldið hefur lítið birt eftir sig í heilan áratug, og er Sjödægra í rauninni tíu ára safn af ljóðum þess. Á þvi tímabili hefur kveðskapur Jóhannesar tekið miklum breytingum og kem- ur með ferskum blæ. Sjödægra mun af mörg- um talin bezta bók höfundar. 5. Nýjai menntabiautii, eftir dr. Matthías Jónasson Höfundur er þjóðkunnur fyrir rannsóknir sínar á sál- arfræði barna og fyrir rit sín um uppeldismál. í þess- ari bók gerir hann grein fyrir nútíma vanda- málum í uppeldis- og kennslufræði, gagnrýnir margt í skólamálum og bendir á nýjar leiðir. Bókin er orð í tíma töluð, og hún á jafn brýnt erindi til foreldra sem kennara. 8. Biött spoi, eftir Edmund Hillary Þýðing- eftir Magnús Kjartansson ritstjóra í þessari bók segir Edmund Hillary, sem frægur varð fyrir að klífa hátind Ever- est, sjálfur frá fjallgöngum sínum, en hann var tvítugur þegar hann lagði upp í fyrstu för sína á hátinda Suðureyju Nýjasjálands. Þetta er ævintýrarík spennandi saga sem endar með sigrinum mikla þegar Hillary stóð á hæsta tindi jarðar. Bókin er skreytt fjölmörgum glæsilegum myndum. Uppskera öttans leikrit eftii Siguið Róbeitsson Leikritið gerist erlendis, fjallar um verksmiðju- stjóra og dóttur hans í sambandi við verkfall. Dótt- irin styður verkfallsmenn, en verksmiðjustjórinn sem gjarnan vill sættast á harða húsbændur yfir sér. Leikritið er vel gert og spennandi og hefur erindi til dagsins í dag. Allar þessar bækur eru til sölu í bókaverzlunum. Af þessum tíu bókum geta félagsmenn Máls og menningar valið hverjar þrjár sem er fyrir 150 krónur, en eftir það kostar hver bók aðeins 40 krónur. Verð- ið er miðað við óbundnar bcekur, en bandið kostar frá 14 til 20 krónur eftir stterð bókanna. BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR Skólavörðustíg 21. — Sími 5055. 3. Á hnotskógi, Ijóðaþýðingar eftir Helga Hálfdanarson Fyrir tveim árum birtist Handan um höf, fyrstu ljóðaþýðingar eftir Helga, og fékk lof hjá öllum og var bókinni tekið með slík- um fögnuði að hún hvarf úr bókaverzlunum á tveim þrem vikum og fengu hana færri en vildu. Nú er Helgi kominn með nýjar ljóða- þýðingar, enn fjölskrúðugri að efnisvali og betur gerðar en áður, og er þá mikið sagt. Hann þýðir meira en áður eftir 20. aldar skáld Evrópu, m. a. frönsk og þýzk, og fjölmörg kvæði eftir japanska og kínverska höfunda fyrr á öldum. 6. Saga af sönnum manni, eftir Boris Polevoj Þýðing eftir Jóhannes úr Kötlum Þetta er rússnesk hetjusaga úr síðari heimsstyrjöldinni af flugmanni sem missir báða fætur i stríðinu, en tekst að sigrast á örkumlum sínum og verða fullgildur flug- maður á nýjan leik. Halldór Laxness segir í formála að höfundurinn sé svo fjörugur og léttur í máli að menn „örvist við ævintýralega frásögn hans, og þó ekki síður við bjartsýni þá sem höfundinum er gefin og þá trú hans að mannlegur græðimáttur sé hverju sári meiri“. 9. Stiandið, skáldsaga eftir Hannes Sigfússon Þetta er fyrsta skáldsaga eins af fremstu ljóðskáldum ungu kynslóðarinnar. Sag- an segir frá strandi olíu- skipsins Atlantis, sem rekur stjórnlaust undan veðri og straumum að hrikalegri klettaströnd — og frá vitaverðinum sem bíður þess sem verða vill. Sagan er nýstárleg og spennandi, mjög listræn og með djúpum undirtónum. 10. Biotasilfm, eftir Björn Th. Björnsson Þetta er safn af greinum eða þáttum um sögu ís- lenzkrar listar á miðöldum. Fjölbreyttni mikil er í bók- íiuu. x »cu t>æi.ti r eru um forna listamenn, tveir um hannyrðir, einn um útskurðarverk og fornan skála, einn um silfursmíði og aðrir sögulegs eða öllu fremur menningarsögulegs efnis. Höfundur gerir marga nýstárlega upp- götvun og söguleg efni verða í meðferð hans fersk og lifandi. Útgáfa Björns á Teiknibók- inni í Árnasafni í fyrra vakti verðskuldaða athygli, en áður vissu fæstir að íslendingar hefðu á miðöldum átt þroskaða myndlist.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.