Þjóðviljinn - 24.12.1955, Qupperneq 39
BOK3FLOKKUR
MáIs og meooiogor 1955
Fjórði bókaflokkur Máls og menningar með fjölbreyttu vali
1. Sagan af Tiíst-
an og ísól,
eftir Joseph Bédier
Einar Ól. Sveinsson próf.
islenzkaði
Frönsk nútímasaga. Eitt af
þeim fágætu verkum í heims-
bókmenntunum sem býr yfir
svo ævintýraiegri fegurð að hver sem söguna
les verður hugfanginn af henni. Á íslenzku
er einnig unaður að lesa hana vegna málsins.
4. Hinn foidæmdi
skáldsaga eftir
Kristján Bender
Þetta er biblíusaga sem ger-
ist öll á fimm dægrum fyrir
krossfestinguna, og bregð-
ur upp athyglisverðum nýj-
um viðhorfum. Eftir sama
höfund hafa áður komið smásagnasöfnin Lif-
endur og dauðir og Undir Skuggabjörgum og
fengu beztu viðtökur, og eru báðar bækurnar
uppseldar. Hinn fordæmdi ber af því sem höf-
undur hefur áður gert.
7. Vestlendingar,
eftir
Lúðvík Kristjánsson
Þetta er annað bindi af hinu
stórmerka riti Lúðvíks um
sögu Vestlendinga á 19. öld
Hann leiðir fram í dagsljós-
ið merkustu heimildir um
menn og atburði og vinnur ómetanlegt starf
með þessum rannsóknum sínum. Fyrra bindið
gerðist aðallega í Flatey og við Breiðafjörð. í
þessu bindi lýsir hann einkum kringum þá
menn sem stóðu að baki Jóni Sigurðssyni
heima á Vestfjörðum, og kemur margt nýtt í
ljós, áður ókannað, sem varpar birtu á alla
sjálfstæðisbaráttuna.
2. Sjödægia,
Ijóðabók eftir
Jóhannes úr Kötlum
Skáldið hefur lítið birt eftir
sig í heilan áratug, og er
Sjödægra í rauninni tíu ára
safn af ljóðum þess. Á þvi
tímabili hefur kveðskapur
Jóhannesar tekið miklum breytingum og kem-
ur með ferskum blæ. Sjödægra mun af mörg-
um talin bezta bók höfundar.
5. Nýjai
menntabiautii,
eftir
dr. Matthías Jónasson
Höfundur er þjóðkunnur
fyrir rannsóknir sínar á sál-
arfræði barna og fyrir rit
sín um uppeldismál. í þess-
ari bók gerir hann grein fyrir nútíma vanda-
málum í uppeldis- og kennslufræði, gagnrýnir
margt í skólamálum og bendir á nýjar leiðir.
Bókin er orð í tíma töluð, og hún á jafn brýnt
erindi til foreldra sem kennara.
8. Biött spoi,
eftir Edmund Hillary
Þýðing- eftir
Magnús Kjartansson
ritstjóra
í þessari bók segir Edmund
Hillary, sem frægur varð
fyrir að klífa hátind Ever-
est, sjálfur frá fjallgöngum sínum, en hann
var tvítugur þegar hann lagði upp í fyrstu för
sína á hátinda Suðureyju Nýjasjálands. Þetta
er ævintýrarík spennandi saga sem endar með
sigrinum mikla þegar Hillary stóð á hæsta
tindi jarðar. Bókin er skreytt fjölmörgum
glæsilegum myndum.
Uppskera öttans
leikrit
eftii Siguið Róbeitsson
Leikritið gerist erlendis, fjallar um verksmiðju-
stjóra og dóttur hans í sambandi við verkfall. Dótt-
irin styður verkfallsmenn, en verksmiðjustjórinn
sem gjarnan vill sættast á harða húsbændur yfir
sér. Leikritið er vel gert og spennandi og hefur
erindi til dagsins í dag.
Allar þessar bækur eru til sölu
í bókaverzlunum.
Af þessum tíu bókum geta félagsmenn
Máls og menningar valið hverjar þrjár
sem er fyrir 150 krónur, en eftir það
kostar hver bók aðeins 40 krónur. Verð-
ið er miðað við óbundnar bcekur, en
bandið kostar frá 14 til 20 krónur eftir
stterð bókanna.
BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR
Skólavörðustíg 21. — Sími 5055.
3. Á hnotskógi,
Ijóðaþýðingar eftir
Helga Hálfdanarson
Fyrir tveim árum birtist
Handan um höf, fyrstu
ljóðaþýðingar eftir Helga,
og fékk lof hjá öllum og
var bókinni tekið með slík-
um fögnuði að hún hvarf úr bókaverzlunum
á tveim þrem vikum og fengu hana færri
en vildu. Nú er Helgi kominn með nýjar ljóða-
þýðingar, enn fjölskrúðugri að efnisvali og
betur gerðar en áður, og er þá mikið sagt.
Hann þýðir meira en áður eftir 20. aldar skáld
Evrópu, m. a. frönsk og þýzk, og fjölmörg
kvæði eftir japanska og kínverska höfunda
fyrr á öldum.
6. Saga af
sönnum manni,
eftir Boris Polevoj
Þýðing eftir
Jóhannes úr Kötlum
Þetta er rússnesk hetjusaga
úr síðari heimsstyrjöldinni
af flugmanni sem missir
báða fætur i stríðinu, en tekst að sigrast á
örkumlum sínum og verða fullgildur flug-
maður á nýjan leik. Halldór Laxness segir í
formála að höfundurinn sé svo fjörugur og
léttur í máli að menn „örvist við ævintýralega
frásögn hans, og þó ekki síður við bjartsýni þá
sem höfundinum er gefin og þá trú hans að
mannlegur græðimáttur sé hverju sári meiri“.
9. Stiandið,
skáldsaga eftir
Hannes Sigfússon
Þetta er fyrsta skáldsaga
eins af fremstu ljóðskáldum
ungu kynslóðarinnar. Sag-
an segir frá strandi olíu-
skipsins Atlantis, sem rekur stjórnlaust undan
veðri og straumum að hrikalegri klettaströnd
— og frá vitaverðinum sem bíður þess sem
verða vill. Sagan er nýstárleg og spennandi,
mjög listræn og með djúpum undirtónum.
10. Biotasilfm,
eftir
Björn Th. Björnsson
Þetta er safn af greinum
eða þáttum um sögu ís-
lenzkrar listar á miðöldum.
Fjölbreyttni mikil er í bók-
íiuu. x »cu t>æi.ti r eru um forna listamenn,
tveir um hannyrðir, einn um útskurðarverk
og fornan skála, einn um silfursmíði og aðrir
sögulegs eða öllu fremur menningarsögulegs
efnis. Höfundur gerir marga nýstárlega upp-
götvun og söguleg efni verða í meðferð hans
fersk og lifandi. Útgáfa Björns á Teiknibók-
inni í Árnasafni í fyrra vakti verðskuldaða
athygli, en áður vissu fæstir að íslendingar
hefðu á miðöldum átt þroskaða myndlist.