Þjóðviljinn - 24.12.1960, Blaðsíða 43
JÓLABLAÐ ÞJÓ8VIL JANS (43
■ tMp * l|»*
Jaro i aloqum
í’rp,n'.-:ald a£ bls. 17.
IX.
Aineríkanar lcomu hér rúmu ári
seinna en Bretar. Þeir voru hér eins-
konai. gestir í boði okkar, þó sam-
kvæmt eigin luöfu. Það varð því
að gera vel til þeirra, enda menn
stórir uppá sig, byggðu t d. ekki
bragga nema í grónu túni, helzt ný-
xækí. Þó þetta væri sjóher, þurfti
hann að hafa fótfestu á landi, og
meðni annarra ítaka sem þeim voru
veitl, fengu þeir allar landsnytjar
af Litiasandi. enda Bretinn flosnaður
upp þar, eftir að hafa beðið lægri
hlut fyrir landvættum.
Ekti var þó eigandi jarðarinnar,
Stefán Eyjólfsson, virtur þess að
neitt væri borið undir hann, ekkert
mat eða úttekt fór frain við komu
þessaxa nýju herra. Þeir drifu hafur-
task ritt á land hvar sem þeim sýnd-
ist, þessi fjárbeitarjörð var vist fram-
lag okkar til styrjaldarinnar, og rík-
isstjórnin átti að svara til saka. Á
Flatanum, undir Álagabrekkunni
reistu þeir b:rgðaskemmur sínar,
stórar og ferlegar, en íbúðarbragga
þar sem sléttast var tún bóndans.
Aldrei hafði þvilíkur húsakostur sézt
á þessu koti, ekki heldur svo ljótur.
Þarna voru semsé staðsettar birgða-
skemmur ameríska sjóhersins, en her-
skipalægi var þá í Hvalfirði. Og
fleira þurfti að gera en byggja mó-
rauð hús y.fir dátana og draslið. Það
spruttu upp olíu- og benzíngeymar
útum holt og' hjalla, flestir voru þeir
á Klifmelnum austurundir Bláskeggsá,
en- í hliðinni austur frá túninu, var
tvöföld geymaröð, sá neðsti og vest-
asti sat alveg á brekkubrúninni.
iÞetta voru stærstu og vönduðustu
geymarnir, allir stálsoðnir og þóttu
engin hrákasmiði.
Nú sem þessum mannvirkjum var
lokið, kom í jljós einn hættulegur
galli á verkinu. Það halláði ffá- geym-i
unum bæði niður að skemmunum,
fullum af sprengjum og öðru dýrindi,
og einnig að íbúðum yfirmanna hers-
ins á túni bóndans. Að vísu var bær
bóndans næst háskanum, en olli
kannski minnstum áhyggjum, hafði
svo litla hernaðarlega þýðingu.
Hefðu þýzkir ómakað sig hingað
á þessum tíma, þá var eitt vísasta
skotmark þeirra olían í .hlíðum Litla-
sands. Þetta komu amerískir flota-
foringjar auga á af fádæma her-
kænsku sinni, þó seint væri, og vildu
íyrir hvern mun forða sér frá þeim
geigvænlegu örlögum, að olían flæddi
yfir þá einhverja skammdegisnóttina,
eða brynni þeim á baki óvörum. Þeir
lögðu því sína skárstu heila í bleyti
og frömdu mikið ráðabrugg, ef tak-
ast mætti að forða því að þeirra eig-
in verk kæmu þeim sjálíum í koll.
Niðurstaðan varð sú að grafa skurð
eftir túninu éndilöngu frá norðri til
suðurs, sem tæki við olíunni, ef til
kæmi, og flytti hana til sjávar. Til
þeirra framkvæmda þurftu þeir að
rista sundur Álagabrekkuna vestan-
til og sáu engin tormerki á. Þó munu
íslendingar haía ymprað á þvi að hún
væri ekki öll þar sem hún er séð, ráð-
lögðu þeim að fara aðra leið og
bentu þeim á mannvirki Breta og
hvernig því lauk.
Læmí, sögðu kanar og jórtruðu,
þeir eru aumingjar upptil hópa og
geta ekki neitt. Við höfum allt sem
þarf til hlutanna og þetta verður ekki
langrar stundar verk. Hjátrú höfðu
þeir aldrei heyrt nefnda, Álög, hvað
er það? Og héldu áfram að jórtra.
Þeir grófu og grófu. Þaðj varð
nokkurra metra breiður skurður eft-
ir túninu endilöngu. Allt unnið þarna
með fyrsta flokks nýtízku verkfær-
um. Aðeins einn þröskuldur varð á
v'egi hinnar amerísku verktækni: Á-
lagabrekkan. Hin m,argauglýstú og
heimsfrægu verkfæri þeirra, skurð-
gröfur og jarðýtur beztu tegundar
unnu ekki á henni, Ýmist stóðu verk-
færin fösit, eða brotnuðu. Loks eft-
ir mikið tjón á vinnuvélum og ótrú-
legustu tafir og mótlæti gátu þeir
mulið dálíið skarð í brekkuna og
létu þar við sitja. Þetta er heldur
lýgileg saga, fullkomnustu ameriskar
vinnuvélar unnu ekki á einu ís-
lenzku móabarði. Af hverju er jörðin
þarna samansett? Eru þetta galdrar?
Og næst er þá að spyrja: Kom svo
nokkuð fyrir þá? Var þeim kannski
refsað eins og öllum sem hreyfðu
við þessari óheillamold?
Það var óttalegt vandræðaástand á
Könum þarna um þetta leyti, er
svarið. En hvort það var nú beinlínis
þessu að kenna, þá vildi svo undar-
lega til, að það hvessti ansi illa á þá
rétt á eftir, eitthvert allra versta
veður sem fólk man eftir, (janúar-
veðrið fræga, 15. jan. 1942).
Og kom það nokkuð að sök? Það
hefur aldrei heyrzt að hús fykju á
Litlasandi -hjá íslendingurm Voru
ekki traustar byggingar hjá þeim
amrísku?
Ja. það er nú það. Þetta var eins
og skæðadrífa jái'nið og brakið úr
helv. bröggunum þeirra, mikið að
nokkur skyldi sleppa l fandi úr þeim.
Og skjölin úr bragga yfirmannanna
fuku útum ailar Miðsandsgrundir,
nokkrir sneplar tíndir upp eftir rokið,
bragginn snerist heilan hring í loft-
inu og yfiroffisérinn flýði grátandi
inní litla torfbæinn til bóndans, hinir
séramir r ghéldu sér í bæjarkampinn
og ýmist grétu eða h’ógu yfir ósköp-
unum. Já, og svo var það skipalestin
sem lagði af stað úr Hvalfirði um
sama leyti og ýturnar stóðu fastar,
' á annað hundrað skip á leið til Múr-
mansk, en spurðist aldrei framar til
nema þrettán skipa úr þeirri lest. Og
tvö olíuskip rak þarna uppá sandana
í sama veðri.
Þetta sýnist nú vera orðið allt
nokkuð. Var kannski eitthvað fleira?
Já, það var víst sitthvað fleira, eins
og þetta með olíugeyminn, þennan.
sem stóð vestast og neðst, niðri á
brekkubrúnipni, hann hafði lagzt * al-
ifig saman, nóttina eftir að þeir
gerðu hervirkið í brekkunni. Kannski
var það furðulegast af því öllu, rok-
ið bögglaði hann tvöfaldan eins og
hann væri úr pappa, þó var það e'nn
af þeim stálsoðnu.
Ekkert okkar vill taka það á sig að
fullyrða að allt sé þetta göldrum
brekkunnar að kenria, en það hittist
svona á.
Frægastir urðu Kanar þó áreiðan-
lega fyrir skotfimi sina og lengst
mun hún halda nafni þeirra á loít
við Hvalfjörð. Þeir skutu nefnilega á
draug. Það hefur ekki heyrzt að
neinar aðrar þjóðir gerðu, að
minnsta kosti óþekkt hér á landi.
Það var heldur lítið brúk fyrir
skotvopn í þessari afskekktu herstöð,
þó var aldrei farið spönn frá rassi
án þess að bera með sér byssu hlaðna.
Fyrsf í stað var stundum skotin ein
og ein rolla, eða þá æðarfugl, oft var
byssunni líkað otað að fóthvötum
smala sem þurfti að leita að fé sínu,
eða víkja því frá húsum, því byssur
þessar voru fyrst og fremst gerðar
til þess að nota þær gegn mönnum.
Alltaf sluppu þó smalarnir, en óþæg’’-
legt gat það verið fyrir unglinga að
heyra kúlurnar hvína í urðinni við
hlið sér, en gæti hann sýnt vega-
bréf sitt um skriður fjallanna við
Hvalfjörð, mátti hann halda áfram
að smala, með byssumann þó í hum-
átt á eftir sér.
Einusinni hittu þó vopnaberar
þessir náunga sem ekki virtist
smeykur við það sem þeir höfðu í
höndunum, þetta var sauðþrátt
kvikndi, lét sér ekki segjast við
neitt. Varðmenn tveir voru á rölti
um lágnættið að vorlagi innvið Blá-
skeggsá. Sjá þeir þá mannrolu koma
Framhald á bls. 45.
( J
Ný húsgögn
BOKÐSTOFUHÚSGÖGN, teak, eik, mahony — DAGSTOFUHÚSGÖGN, nýjar gerðir — SVEFN-
HERBERGISHÚSGÖGN, teak, mahony — SVEFNSÓFAR, mikið úrvál — SVEFNBEKKIR o. m. fl.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar, — 10% afsláttur við staðgreiðslu. — Sendum gegn
póstkröfu um land allt.
HúsgagnaverzEun Axels Ey|óEfssonar
Skipholti 7. — Símar 10117 — 18742.