Þjóðviljinn - 24.12.1960, Page 47
JÓLABLAÐ ÞJÓÐVILJANS («
veðrið er gott, en varla íarið útaf yf-
irbyggðri stéttinni, því allir , haf^ '
hraðan á og hér er ekkert sem vekuí
auganu áhuga. Ferðamaður kveikir séf
í vindlingi og hysjar myndavélinnf,
stolti sinu og prýði, ofar á öxlinái
Það gæti virzt axlayppting yfir urri-
hverfinu. Því hvað er hér merkilegt
að sjá? Geirhólmur, þúfa úti í sjóri-
um, Þyriliinn, höfuðlaus síings, liggj-
andi fram á lappir sér. , ■
Og þó. eitt fegurst fjall á fslandi. *
Kannski eru fjöllin ennþá eins og
þau voru. Þau koma okkur ekki við
á sama hátt og áður, nú þarf enginn
að skjótast yfir þau lengur með
klyfjahesta í aðdráttarferð, varla, að
smala þau. Síldarmannagötur gróa.
Vorlestirnár hlykkjast ekki framar
upp Litlasandsdal. Brekkuskarð
treðst ekki hestahófum. Enginn vrkir
sér nú til hita níð um Svartahryg^',
Það er ekið úr Miðsandshlaði aftur,
án þess nokkuð bendi til að hér á
næsta leiti hafi hvað eftir annað síá-
ustu hundrað árin gerzt svona kyn>
legir atbiirðir.
Litlisandur er horfinn af þessarí
jörð, afmáður. Allt oi'gert hefnir síþ.
Engan skyldi undra þótt sú jörð sem
svo er hlaðin kynngi, verði einhverju
að kos.ta til af sjálfu sér. Líknsöm
hönd hefur strokið yfir svöðusárin í
litla hvamminum, þar sem bæriml
stóð og þurrkað út öll sýnileg merki
um byggð á þessum stað, sem hlaut
svo undarJeg örlög.
Jörð í álögum
—BBaiii 11 !■> ■ii'Piiniii
Franihald af bls. 45.
ur þess í skuggann. Þegar hér er
komið tíma og sögu, er hið forna
bæjarstæði Litlasands orðið einn
yndisminnstur staður á ísiandi, öllu er
spillt, jarðvættir kropnar að skjóli.
En það eru komnir nýir timar.
Hverju máli skiptir það nú þó eitt
örreytiskot fari í eyði? Enginn ungur
heimilisfaðir er nú svo illa á vegi
staddur að hann sé tilneyddur að sjá
sér og sínum farborða með því að
erja rýra grasnyt þessarar jarðar. Það
má því einu' giJda þótt töðuvöllurinn
hafi harðnað svo undir fæti við asna-
spörk útlendra, að þar er varla sauð-
kroþp Iengur, enginn fæst um þó ekki
verði áð vegmóðum langferðahestum,
fyrr en komið er útfyrir þessa land-
areign: nú ríða ekki lengur hetjur né
aðrir um þessi héruð, mörvaðir stríðs-
gróðamenn sitja í hægu sæti og aka
sér fyrir Hvalíjörð, finnst þó þeir ættu
skilið að fá brú yfir hann sér til hag-
ræðis. Það eltist enginn við rollu-
skjátur lengur, jafnvel Sigurður á
Þyrli hefur næstum vanið sig af því
að gá að kindum, svo oft hefur hann
verið eltur uppum fjöll af verndurum
með hlaðnar byssur og heimtað að
hann- sýndi vegabréf sitt um Botns-
heiði og Þyril, æskuleikvang sinn,
flestir sveitaprestar og stærri bændur
aka nú nýsköpunarjeppum um allar
trissur, en síðasta stóðið sunnanlands
undrast reiðskapinn, setur upp rass-
inn, fretar og fælist útí buskann. Við
skrifum ártalið 1947.
En þótt LitJisandur verði varla bú-
jörð framar, er hann ekki með öllu
gleymdur. Þetta ár kemst hann í eigu
íslenzka Jýðveldisins. Enn er hann líka
alþakinn stríðsdjásnum sínum, olíu- og
benzíngeymarnir (á fimmta tug, þeg-
ar ílestir voru) glampa við sólinni
uppum allar brekltur, Þeir fá varla
að standa svona geldir til Jengdar,
þegar allt flóir í stríðsgróða og pen-
ingaumsvifum. Þeir voru Játnir falir.
Það voru víst margir um boðið, en
einn aðili va.rð hlutskarpastur. Það
var Olíufélagið h.f., sem hreppti
hnossið.
Olíufélagið h.f. tólc við landsnytj-
um á Litlasandi árið 1947, með öllum
sköttum og skyldum. Það var JandseU
íslenzka ríkisins og fékkst Jítt um þó
tún væri í órækt og bæjarhús fyrir-
irfyndust engin. Og Olíufélagið naut
náðaráranna eins og aðrir ábúendur
LitJasands. í tíu ár er víst óhætt að
segja að því hafi búnazt alJvel og ekki
Jakar en öðrum. Nú draup oJía af
stráum.
En svo rann upp ellefta árið. það
ár sem ábúendur Litlasands eru
krafðir um hina duldu Jandskuld jarð-
arinnar. (Svo virðist sem þessi Jand-
skuld sé innheimt eftir öruggum leiðunl
og fari hækkandi eftir því sem jarð-
arskiki Ingunnar stígur í verði og á-
búendur hafa meira um sig). Og' það
varð ár mikilla reikningsskila fyrir
Olíufélagið. Sú saga verður ekki skráð
hér, en óhætt mun að fullyrða að
síðasta ábúandann hafi hent verri
slysni og hann hlotið þyngri búsifjar
en nokkur hinna, enda hafði af mestu
að má.
Enginn mun heldur hala varaci það
við viðsjálni staðarins, engum dottið
í hug að voldugasti óbúandi Litla-
sands, frá því sögur hófust, væri
undir sömu sök seldur og fátækir
fjölskyldumenn, er þar hokruðu lengst-
um og enda þótt einhver kunni að
hafa orðað slíkt, þá mundi varla
svona frábær jeiguliði haía gefið gaum
viðvörunarrödd aftan úr forneskju. né
verið skyggn á þá hönd, e.r enn reit
á fjallvegginn yfir LitJasandi ájaga-
dóm og áhrínsorð ekkjunnar.
XI.
Við. sem í dag ökum veginn 'fyrir
Hvalfjörð, þurfum ekki að vera nein-
. ir sérstakir ratar, til þess að komast
leiðar okkar án þess að veita því at-
hygli að nokkurntíma hafi verið byggt
ból á Litlasandi. Svo rækilega er jörð-
- in komin í eyði á tæpum tveim áratug-
um. Þar örlar ekki á vegghleðslu leng-
ur og túnið er eins og það hafi aldrei
tún verið. Það grænkar ekki meirá en
útjörðin.
Ferðafólk hefur lika öðru að sinna.
Það ekur hratt framhjá Litlasandi að
næsta eyðibýli fyrir utan: Miðsandi,
sem tvívegis heíur verið hersetinn á
þessu árabili. Þar er ekið í hlað og'
stanzað, vatnað úlföldunum (í benz-
íni) og' setzt við barinn í ESSO-skál-
anum, meðan drukkið er úr kaffibolla
eða ölflösku.
Svo rýma þeir fyrstu sætin fyrir
öðrum, sem biðu afgreiðslu, eða eru
nýkomnir. Það er gengið út á hlaðið
og staðnæmzt nokkrar mínútur, ef
(Helztu heimildir: Harðarsaga óg
Hólmverja. AnnáJar, Kirkjubækur
Saurbæjar- Reynivalla- og Stóru-
vallasókna, hreppsbækur Strandar-
hrepps, Virkið í Norðri og munn-
mæli eldra íólks af þessum slóðum)'.
A-flokkur. — Létt skákdæmi.
ABCDEFGH
tpi m m pí?
mm ISs m» Wm.\
8.8: '
&M. jm£.
m m w\
m ^
ABCDEFGH
I
Nr. 1 — Mát í 4. leik.
Nr. 2 — Mát í 7. leik.
B-flokkur. — Vandameiri skákdæmi.
ABCDEFGH
ABCDEFGH
i§ 1 00 M ÍL ’’
ggj Þ- Wf íú. 2L zí •u)y-
■ U> | 4| |
1 ■ in P P B P
• 'zfcr': -r. •11 - ' ^ 8
n ro fff / | | t,
■ CN Wí '& 4
§M H )s .2) %
Nr. 3 — Mát í 3. leik.
Nr. 4 — Mát í 3. leik.
C-flokkur. — Lé'ttar stöðurannsóknir.
ABCDEFGH
ABCDEFGH
00 #í I 'É' 00 f;. /: 'py-.i
N 4 4 4
4D ■mW'- * t t o W,y ÍfÍ WM W$-
in §§ 18 11 fM in ' - - , fy %
pM Wr S Í W: tJ', ', < ■ w
co m V ÍÚ 4 co :W\ fw, # in iíii
N /8 w • r 4 4
H Pflfi % * -
Nr. 5. Á hvítur unnið taí‘1? Nr. 6. Á hvítur unnið tafl?
D-flokkur. — Vandameiri stöðurannsóknir.
ABCDEFGH
ABCDEFGH
00 ffá $2 00 #2-8 Íl'/'f'
4 4 4 4 Wk n [
<x> 4 ’;■ 4 f to m ' M ff
tn il lis $0 in i 91 §| ws.
n f§á Wfy pi v M
ro Sf M Wí ^ fMí WP ro M m Wh w*. ■ má w.
CN & 0 /' ■■■: n CN my #1 fi
H w* ¥ m w - m m
Nr. í'." Á hvítur unnið tafl? Nr. 8. Nær hvítur jáfntefli?
y.'ir .aaííáí ■■■-{ .uo:to
Skákgetraun Þjódviljans
Átta skákstöður — Hvítt á leik í þeim öllum.
Að þessu sinni eru 4 flokkar (A til
D) og verða veitt jafn há verðlaun fyr-
ir lausn hvers flokks eða 200 kr. fyrir
hvern og þá alls 800 kr. Hver sem hef-
ur leyst dæmi eins flokks rétt, hefur
þar með unnið til verðlauna, nema fleiri
hafi sent réttar lausnir sama flokks,
þá verður dregið á milli þeirra, sem
sendu réttar lausnir á flokknum — al-
veg óháð því hvernig lausnir hlutaðeig-
enda eru í sambandi við hina flokkana.
Lausnir þurfa að berast Þjóðviljanum
fyrir 15. janúar. Nægir að skýra frá
fyrsta leik aðeins, einnig í sambandi við
dæmi nr. 5—8. Sé ákveðinn leikur skrif-
aður þar, verður það skilið svo að
spurningunni sé svarað játandi og við-
komandi leikur sé eini rétti leikur hvíts
í stöðunni, til þess að ná þeim árangri.
,,Já“ eitt nægir ekki, hinsvegar nægir
,,Nei“ (í leikjar stað) sem rétt og full-
nægjandi svar við dæmum 5—8, ef það
er efnislega rétt.
Það er sjálfgefið, að sá, sem leysir
alla flokka rétt, keppir til verðlauna í
þeim öllum, og getur því hlotið alls kr.
800,00, en 'hann gæti lika misst af
þeim öllum jafnvel til manna, sem hver
fyrir sig sendu aðeins lausn á einum
flokki, en skiluðu hinu í eyðu. Þegar af
þeirri ástæðu væri fróðlegt að fá bréf
frá leysendum með lausnum þeirra, og
heyra hvort þeir óskuðu eftir breyttu
keppnisfyrirkomulagi, ef framhald
verður hér á. Þá væri og æskilegt að
fá athugasemdir og fyllri lausnir en
krafizt er til verðlauna, sem vel gætu
orðið til þess að breyta niourstöðu í
keppninni. því komi rökstudd lausn
fram, sem ekki er samhljóða lausn
þeirri, sem hér liggur fyrir, þá verður
að gera eitt af tvennu, að taka liana
gilda, eða hrekja hana með rökum, þeg-
ar úrslit birtast. Auk þess gætu ýmsar
athugasemdir orðið leysendum til fróð-
leiks og skemmtunar, ef þær yrðu tekn-
ar upp við birtingu lausnanna.
Þeir sem senda lausnir eru beðnir
að útfylla þær á þennan seðil (með
mjúkum blýant og blokkstöfum, eða á
annan hátt greinilega) klippa hann út
og senda til Þjóðviljans merkt:
Skákgetraun Þjóðviljans,
Skólavörðustíg 19, Reyltjavik.
LAUSN Á SKÁKGETRAUN ÞJÓÐVILJANS:
A-flokkur. Nr. 1
B-flokkur. Nr. 3
C-flokkur. Nr. 5
D-flokkur. Nr. 7
1. leikur ............... Nr. 2
1. leikur ................Nr. 4
1. leikur ............... Nr. 6
1. leikur ............... Nr. 8
1. leiltur
1. leikur
1. leikur
1. leikur
NAFN
HEIMILISFANG
• •• * U
. lC • j .tífu .xMálh • j'.” ■■ i .(ÍLÍÁ&'.'.1 c ó á'íát )V''
..............—"l-l • .... 1 1 ........ .1 1 .....