Þjóðviljinn - 24.12.1963, Blaðsíða 72
Helgimyndir h.f.
H/f Helgimyndir
auglýsa í útvarpi og blöðum:
Hafið þér athugað, að vér höfum
úrval af hentugum jólagjöfum,
og til þess að auðvelda yður valið
skal örlítið talið:
— guðsmæður
í gylltum römmum,
(tilvalin gjöf
handa guðhræddum ömmum)',
Kristar úr eir,
Kristar úr brenndum leir,
ódýrir Kristar, ofnir úr basti,
einkar smekklegir Kristar
úr lituðu plasti;
fjölbreytt úrval af englum
með hvítan væng,
kjörnum til að hanga
yfir kristinna barna sæng,
merkisenglarnir Mikkjáll og Gabríel,
(báðir úr krómuðum kopar,
en ódýrir samt, og seljast fádæma vel)';
postularnir
með passíuhár og skegg,
í síðkufli eða buru
úr sýrubrenndri furu,
og geta bæði
staðið á harðviðarhillu
og hangið á vegg;
(vér höfum þá einnig
ellefu saman
úr forláta eik
á fæti úr tekki,
ellefu? — já, því að Júdas seljum vér ekki)\
Margt fleira er hér við hæfi
bæði fullorðinna og barna:
postulínsmaría, pappajósep
og pjátur jólastjarna;
þá höfum vér einnig
hundruð mynda úr tini
af Hallgrími sálmaskáldi Péturssyni.
(Hallgrímsmyndin er haglega steypt,
hundódýr og mikið keypt)'.
«11 n i
72 — JÓLABLAÐ