Þjóðviljinn - 19.12.1972, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur I!). desember 1972
Lúðvík
Framhald af bls. 1.
bóta almannatrygginga; þá var
ákveðið að framlengja verð-
stöðvun til áramóta og gera varð
ráðstafanir til þess að tryggja
fjármuni til að standa undir
launahækkunum til opinberra
starfsmanna. Gat ráðherrann
þess að aðeins hækkun launa
opinberra starfsmanna á næsta
ári — 1973 — muni nema um 100
miljónum króna:
Lúðvik spurði hvort stjórnar-
andstæðingar væru andvigir ein-
hverjum þeim ráðstöfunum sem
hér voru nefndar — vissulega
væri það heiöarlegra að koma
fram úr skúmaskotunum en að
vera með sifellt fjas um að allt
væri að fara á höfuðið. Lúðvik
fjallaði nokkuð um viðskipta-
hallann og minnti á, að á móti
neikvæðum viðskiptajöfnuði væri
til eignir upp á þúsundir miljóna,
þar sem væru skip og flugvélar,
sem keypt hefðu verið til landsins
i fyrra og i ár.
Verðlagsþróunin
Lúðvik Jósepsson sagði að
framfærsluvisitalan hefði i valda-
tið núverandi rikisstjórn hækkað
úr 155 i 170 stig, eða um sem
svaraði 9,7% á timabilinu; 4,9% á
ári. Á sama tima liggur fyrir að
verðlag erlendis hefur hækkað
verulega. Þannig er upplýst af
hálfu hagrannsóknardeildar að
verðlag innflutnings okkar hafi á
timabilinu frá 1971-72 hækkað að
meðaltali um 9,25%. Verðlag i
Bretlandi hækkaði i fyrra um 11%
og á þessu ári um 10-11%. Þannig
er ljóst, sagði ráðherrann, að
rikisstjórnin verður ekki dæmd
fyrir þær hækkanir sem
Akiireyri
Iljólbaröaviftgeröir.
Iljólbarðasala.
Snjóneglum notaða og nýja hjólbarða.
(r íuriirií vi n n ustc > ( an BÓTI ÍN
lljalteyrargötu I Akureyri.
Simi 12025.
Japönsku NYLON hjólbarðarnir.
Allar vörubílastærðir.
825x20, — 900x20, — 1000x20 og 1100x20
seldar á Tollvörulagersverði gegn staðgreiðslu
Verkstæðið opið alla daga
fró kl. 7.30 til kl. 22.00.
SKIPHOLTI 35, REYKJAVÍK, SÍMI 31055
JÓN SKAGAN
JÖN SliAQAN
AxLASkipd
ATXINQLÍNU
MÍNNÍNQAROQ MýNÖÍK
AXLASKIPTI
*
A
TUNGLINU
Ævi manna er samslunginn vefur atvika, orsaka og afleiðinga. Ráðgáta lífsins
verður því oftast torskilin og yfir henni hvílir hula óræðis og óskiljanleika.
Oft verður manni ljóst hvernig lítil atvik verða aflgjafi
stórra atburða í lífi einstaklinga og stórra hópa manna.
Við lestur þessarar bókar séra Jóns Skagans verður manni þetta ljósara
en áður. Frásögnin er ö!l lifandi og skemmtileg í einfaldleik
hins frásagnarglaða sögumanns.
Þessi bók er skemmtileg myndasýning úr hinu daglega lífi.
ÞJÓÐSAGA
BYGGGARÐI SELTJARNARNESI - SÍMAR 13510, 26155 OG 17059
óhjákvæmilegar rey'ndust og
leyföar hafa verið. Miklu heldur
væri hægt að áfellast hana fyrir
aö hafa haldið of stift á verðlags-
málunum. Við hækkanir erlendis
bættust ennfremur hækkanir sem
höfðu verið geymdar hér innan-
lands úr tið fyrri stjórnar og auð-
vitaö hlaut að koma til þess að
þær launahækkanir, sem samið
var um i des. 1971 hefðu einnig
áhrif á verðlag i landinu.
Núverandi rikisstjórn er ekki
unnt að saka um þann vanda sem
nú er viö að etja, nema menn vilji
afnema þær launahækkanir, sem
samiö var um i fyrra.
Horfur í sjávarútvegi
Lúðvik Jósepsson fjallaði enn-
fremur um afkomuhorfur sjávar-
útvegsins i ræðu sinni. Hann sagði
að „valkostanefndin” hefði gert
ráð fyrir að útflutningsverðlag
sjávarafurða hækkaði á næsta ári
um 4%. 1 fyrra varð verðmætis-
aukning útfluttra fiskafurða 8-9%
og i hitteð fyrra varð aukningin
25%. Frosinn fiskur hefur þegar
hækkað um 6% eftir að nefndin
gerði spá sina — og þó er árið sem
spáð er um enn ekki upprunnið.
Skreiðarframleiðendur hafa látið
þess getið að þeir geri ráð fyrir
30-40% verðlagshækkunum á sin-
um framleiðsluvörum á næsta
ári. Þannig eru ýmsir bjartir
þættir i myndinni, en ekkert þó
unnt að fullyrða enn sem komið
er.
Vandinn er tvíþættur
Sá vandi sem nú er við að etja i
efnahagsálum er tviþættur. 1
fyrsta lagi sá vandi að tryggja
verður rikissjóði tekjur til þess að
unnt verði að halda áfram niðri
verðlagi og i öðru lagi sá vandi að
tryggja útflutningsatvinnuvegun-
um um 1000 miljónir króna. Þetta
er vandinn — allur vandinn.
Lúövik Jósepsson sagði siöan
um ákvarðanir rikisstjórnarinnar
nú:
Grundvallarmunur
Tillögur rikisstjórnarinnar eru
mjög miðaðar við það hóf, sem á
að vera á ráðstöfununum til eðli-
legrar millifærslu. Við Alþýðu-
bandalagsmenn erum ekki hrifnir
af gengisfellingu. Þær hafa verið
framkv. þannig til þessa, að
visitalan hefur um leið verið tekin
úr sambandi þannig, að hækkanir
vegna gengisfellingarinnar hafa
ekki fengið að koma fram i verð-
laginu. Þess vegna hefur verka-
lýðshreyfingin verið á móti
gengisfellingum, en nú er gert ráð
fyrir þvi að visitalan mæli áfram
uppbætur á laun. Á þessu tvennu
er auðvitað alger grundvallar-
munur. Við Alþýðubandalags-
menn hefðum fremur kosið al-
menna millifærsluleið, en við
stöndum að þeirri leið sem valin
hefur verið, alveg eins og aðrir
flokkar rikisstjórnarinnar.
En þvi er ekki að neita að
gengislækkun leiðir af sér
hækkandi verðlag. Þá minntist
LUðvik á nokkur atriði sem sér-
staklega verða framkvæmd nú
samhliða lækkun gengis islenzku
krónunnar.
í fyrsta lagi sagði ráðherrann
að gera yrði ráðstafanir til þess
að bæta kjör þeirra sem hafa
lægstu launin með einhverjum
viðbótargreiðslum.
i öðru lagi verður tryggt að
námsmenn okkar erlendis skaðist
ekki vegna gengisfellingarinnar.
i þriðja lagi er lagt til að sam-
þykkt verði heimild til að lækka
um 10-15% útgjöld fjárlaga til
verkefna scm ekki eru beinlinis
lögbundin og þýðir þetta um 500
milj. kr. lækkun fyrir rikissjóð.
Stjórnarandstaðan mun hafa
um það mörg orð, sagði Lúðvik
Jósepsson, að Alþýðubandalagið
hafi nú freklcga gengið á bak
fyrri yfirlýsinga um gengis-
fellingar. En það sem hér skiptir
máli er framar öðru það, að
stjórnarandstaðan segi þá um
leið hvcrjar leiðir hún iiefði viljaö
fara.
Bankamál
Sá vandi sem nú er við að
glima er minni háttar og allar
likur til að við komust yfir þann
vanda fljótlega. En okkur
Alþýðubandalagsmönnum er vel
ljóst að til þess að unnt sé að
koma i veg fyrir að framvegis
verði að gripa til hliðstæðra ráð-
stafana verður að gera miklu
meira en að færa til ýmiss konar
fjármuni. Það er ekki minnsti
vafi á þvi að þjóðfélagsbygging
okkar er alltof dýr og á ýmsum
sviðum er allt of miklu eytt. Til
þess að draga úr kostnaði við
yfirbygginguna er ákveðið að
leggja fram á þessu þingi frum-
varp um sameiningu banka og
hagræðingu i bankakerfinu. Þá
minnti Lúðvik á tillöguflutninga
Alþýðubandalagsmanna um oliu-
dreifingarkerfið og einföldun
þess.
Voru farnir aö taka
sig til í tauinu
Þeim i stjórnarandstöðunni
liður ósköp illa núna, sagði Lúð-
vik. Þeir héldu að rikisstjórnin
væri að falla og að þeirra stund
rynni senn upp. Sumir þeirra
munu hafa verið farnir að taka
sig til i tauinu. Við getum sýnt
þeim samúð — en þeir verða að
biða lengi enn.
Lófaklapp á pöllunum
Mikill mannfjöldi fylgdist með
umfæðunum á þingpöllum i
gærdag meðan rætt var um
gengismálin. Þegar Lúðvik lauk
máli sinu hlaut hann dynjandi
lófaklapp af pöllunum.
Nánar er sagt frá umræðum um
þessi mál i þingsjá Þjóðviljans á
3. siðu blaðsins i dag.
Kínverjar ekki lengur
bláir
Nú hefur sú dagskipan gengið
út frá æðstu stöðum i Kina að það
séekki lengur til marks um gagn-
by ltingarsinnað hugarfar og
borgaralegt atferli að skarta i lit-
klæöum.
Eins og kunnugt er hafa Kin-
verjar allir upp til hópa gengið i
einföldum bláum einkennisfatn-
aið undanfarin ár, og hefur
ýmsum Utlendingum þótt það
heldur tilbreytingarsnautt að
horfa upp á hinar iðnu þúsundir
að starfi og i leik, alla eins
klædda. Menn hafa talaö um hinn
bláa mauraher Kinverja.
Fyrir svo sem 6 mánuðum varð
stefnubreyting i þessu efni.
Flokkurinn lét i ljós það álit að lit-
skrúð og hæfileg sundurgerð i
fatnaði væri ekki af hinu illa, og
framgangur byltingarinnar væri
ekki kominn undir aðskornum
bláum fatnaði. Er nú komið mikið
af alla vega litu fataefni og
klæðisdúkum i verzlanir i Kina,
og stefnubreytingin sést glöggt ef
litið er yfir götulifið i kinverskri
borg, að þvi er vestrænir frétta-
menn herma.
Hátíðahöld í Sovétríkjum
MOSKVU 18/12. — Erlendir
gestir flykkjast nú til Moskvu i
sambandi við hátiðahöld vegna 50
ára afmælis Sovétrikj.Afmæl-
ið er 30. des. , en aðalhátiðahöldin
verða á fimmtudag, ,,til að lands-
menn geti haldið upp á nýárið i
friði og ró”, eins og talsmaður
sóvétstjórnarinnar komst að orði
i dag.
Sósialisk riki senda stjórnar-
formenn sina, nema Kina og
Albania. Meðal annarra rikja
sem senda stjórnarfulltrúa eru
Trykland, lran, Indland, Bangla-
desh og Finnland.
Verkfall gegn flugránum
KITTY HAWK 18/12. — allsherjarverkfalls á flugleiðum
Formaður samtaka bandariskra heimsins, ef ekki verður fyrir lok
flugmanna lýsti þvi yfir i dag, að næsta mánaðar samið um virkar
samtökin myndu reyna að efna til aðgerðir gegn flugránum.