Þjóðviljinn - 19.12.1972, Blaðsíða 24
UOmiUINH
Þriðjudagur 19. desember 1972
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavíkur,
simi 18888.
Vesturbæjarapótek og
Háaleitisapótek annast
helgar, kvöld og nætur-
þjónustu lyfjabúða þessa
vikuna til 22. desember.
Slystcvarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Samningaviðrœður í París hafa strandað:
Tundurduflum lagt og loftárásir
gerðar á N-Víetnam á ný
WASIIINGTON, SAIGON, HANOI 18/12 Banda-
rikjamenn haf aftur byrjað ótakmarkaðan
lofthernað gegn Norður—Vietnam, köstuðu i dag
sprengjum m.a. á úthverfi Hanoi og tundurdulflum
við hafnarmynnið i Haiphong. Segir talsmaður
Bandarikjastjórnar að þetta sé gert til að þvinga
Norður-Vietnama til nýrra samninga, en um
helgina var tilkynnt að samningaviðræður i Paris
hefðu siglt i strand.
Nixon og Kissinger með fulltrúa Thieus: við sama heygarðshorn....
Mótmœlendur á N-Irlandi:
BÚA TIL
MORÐLISTA
Ziegler, blaðafulltrúi Nixons,
skýrði frá þessu i dag og sagði
m.a. að loftárásum myndi haldið
áfram, þar til andstæðingarnir
féllust ,,á sanngjarnan og rétt-
látan frið”, eins og hann komst að
orði.
Það var þegar á laugardag að
Henry Kissinger, aðalfulltrúi
Bandarikjanna á Parisarfundun-
um, lýsti þvi fyrir, að ,,enn hefði
ekki náðst samkomulag, sem
Nixon forseti gæti samþykkt”.
Auk þess ásakaði hann Norður-
HOUSTON 18/12
Geimfararnrir þrir i
Apollo-17 eru nú á leið til
jarðar og á farkostur
þeirra að lenda i Kyrra-
hafinu ca 650 km. fyrir
norðvestan Samoaeyjar
á morgun um hálf átta-
leytið.
t gær fór geimfarinn Ronald
Evans i gönguför úti i geimnum
til að taka filmuspólur úr þrem
myndavélum sem festar eru utan
á geimskipið. Pessaro-mynda-
vélar þrjár hafa tekið alls 2.600
metra af filmum.
Vietnama fyrir að hafa tekið upp
aftur deiluatriði sem þegar hefði
verið um samið. Ekki sagði
Kissingar frá þvi, á hvaða atrið-
um hefði strandað. Kissinger lét
þó að þvi liggja, að einna erfiðast
væri að semja um styrk þeirrar
•alþjóðlegu vopnahlésnefndar,
sem fylgjast ætti með fram-
kvæmd saminganna, og sagði að
Norður-Vietnamar vildu þá nefnd
sem fámennasta.
Talsmenn stjórnar Norður-
Vietnam mótmæltu þessum
Evans var mjög hrifinn af þvi,
sem fyrir augu bar, og þótti félög-
um hans jafnvel nóg um. Göngu-
ferð hans var sjónvarpað úr 295
þús. km. fjarlægð frá jörðu, og
sendi Evans beztu kveðjur heim
til fjölskyldu sinnar.
Ferðin hefur gengið vel nema
hvað allir tunglfararnir hafa
þjáðst af magaverkjum. Þeir
hafa meðferðis um 120 kg. af
tunglgrjóti, og munu þar sýni
bæði af elzta og yngsta tunglgrjóti
sem til þessa hefur fundizt. Eink-
um leikur mönnum forvitni á að
kanna þaö rauðleita ryk, ryði
likast, sem þeir Cernan og
Sclimitt fundu á Taurus-Littrow
svæðinu.
ummælum Kissingers harðlega,
og skýrðu frá þvi, að það væru
einmitt Handarikjamenn sem
héldu fast við að fá breyttum
þeim drögum að samkomulagi
um vopnalilc, sem aðilar gerðu
mcð scr þann 20. október s.l.
Þá segir i yfirlýsingu stjórnar
Norður-Vietnams, að hún harmi,
að Bandarikjamenn hafi i annað
sinn rofið samkomulag um að
skýra ekki frá gangi einkavið-
ræðna þeirra Kissingers og Le
Duc Tho
Le Duc Tho, aðalsamninga-
maður Norður-Vietnams, flaug á
sunnudag heim og kom við bæði i
Moskvu og Peking og ræddi þar
um stöðu mála. Sjú En-læ,
forsætisráðherra Kina, er sagður
hafa heitið honum fullum
stuðningi Kinverja.
I lernaðaraðgerðir.
Eins og fyrr segir hafa Banda-
rikjamenn aftur byrjað ioftárásir
á Norður-Vietnam og á tundur-
duflalagningu við hafnarborgir —
en þeir höfðu um hrið ekki reynt
að koma i veg fyrir að Vietnamar
eyddu þeim tundurduflum sém
fyrir voru. Norður-'D’etnamar
höfðu þegar i gær ásakað Banda-
rikjamenn um slikar aógerðir, en
sjálfir könnuðust Bandarikja-
menn ekki við þær fyrr en i dag.
Loftárásir norðan 23. breiddar-
baugs hafa að mestu legið niðri
siðan i október
Barizt hefur verið af hörku i
Framhald á bls. 23
BKLFAST 18/12.
Kaþólskur stjórnmála-
maður skýrði frá þvi i
dag, að öfgasinnaðir
mótmælendur i Norður-
irlandi hafi gert lista
yfir kaþólska kaup-
menn, sem þeir ætli sér
að myrða, og hafi þeir
þegar drepið nokkra
þeirra.
O’Kane, sem hefur setið i
borgarstjórn i Belfast fyrir
Verkamannaflokkinn, kvaðst
hafa þessar upplýsingar frá með-
limi i einum af samtökum mót-
mælenda. Visaði hann m.a. i
þessu sambandi til moröa á
kaþólskum slátrara og vinsala
fyrir skemmstu.
Alls hafa 111 manns verið
myrtir á Norður-lrlandi á þessu
ári, og 70 þeirra hafa verið
kaþólskir.
Brezkur hermaður særðist i dag
i Belfast og sprengja sprakk fyrir
utan klúbb kaþólskra manna.
☆
Nýr foringi IRA.
Gerry Adams, fyrrum bar-
maður, 24 ára að aldri,hefur verið
valinn formaður hins herskáa
arms Irska lýðveldishersins,
IRA. Hefur hann um skeið verið
yfirmaður sveita IRA i Belfast,
og beint skæruhernaði frá óbreytt
um borgurum að hernaðarmann-
virkjum. Kemur hann i stað
MacStiofain, sem nú er i fangelsi i
Irska lýðveldinu.
Kona MacStiofain lýsti þvi yfir
i dag, að maður hennar mundi
ekki hætta hungurverkfalli þvi
sem hann lýsti yfir fyrir 30 dög-
um. En eitthvað. hlé mun hafa
orðið á verkfalli þessu.
Apollo á að
lenda í dag
Stórsigur íslands á þingi Sþ
Á Allsherjarþingi Sam-
einuöu þjóöanna i gær var
//auðlinda-tillagan" svo-
nefnda, þ.e.a.s. tillaga is-
lands, Perú og fleiri þjóöa
um rétt strandríkja til
auöæfa hafsins, sam-
þykkt með 102 atkvæðum
gegn engu, en 22 ríki sátu
hjá. Sú tillaga sem þó réði
úrslitum um málið, og
sem jafnframt var hættu-
legust málstað is-
lendinga, var tillaga sem
flutt var af Afganistan og
fól í sér yfirlýsingu þess
efnis að málið heyrði und-
ir Hafréttarráðstefnuna.
Þessi tillaga sem i reynd
var frávísunartillaga var
felld með 50 atkvæðum
gegn 45, eða aðeins 5 at-
kvæða mun, en 28 riki
sátu hjá.
Þessar upplýsingar komu
fram i viðtali sem blaðið átti við
Jónas Arnason, i gærkvöld. Jón-
as sagði að það hefði ekki leynt
sér á Allsherjarþinginu i gær að
stórmál var á ferðinni, þvi full-
trúar stórveldanna tóku allir
þátt i þessum umræðum, og það
voru gerðar tilraunir til að
flækja málið og koma okkur og
þeim þjóðum, sem að tillögunni
stóðu, i vanda. — Verður siðar
greint frá breytingartillögum,
sem fram komu. —
Jónas sagði, að aðaltalsmað-
ur okkar og þeirra þjóða ann-
arra sem að tillögunni stóðu
hefði verið Haraldur Kröyer og
hefði hann orðið að koma upp i
stólinn aftur og aftur til að
skýra okkar málstað. Og þetta
tókst semsagt með þessum
ágætum, sagði Jónas.
Norðurlöndin, önnur en ís-
land, voru i hópi þeirra rikja,
sem sátu hjá við aðalatkvæða-
greiðsluna, en öll riki Vestur-
Evrópu nema írland
sátu hjá, og einnig öll Austur-
Evrópurikin nema Júgóslavia
og Rúmenia. Þau riki, sem
meðal annarra bættust i hóp
þeirra er tillöguna studdu frá
þvi hún var afgreidd i nefnd,
voru Kanada, Ástralia, Nýja-
Sjáland og Spánn.
Afgreiðsla þessa máls er stór-
sigur fyrir málstað lslands. Á
morgun munum við greina frá
ýmsu, i sambandi við afgreiðslu
málsins, og fram kom i viðtal-
inu við Jónas.
Happdrætti Þjóðviljans - Dregið eftir
5 daga - Gerið skil - Opið til kl. 6.