Þjóðviljinn - 19.12.1972, Side 5

Þjóðviljinn - 19.12.1972, Side 5
Þriðjudagur 19. desember 1972 ÞJÓDVILJINN — StÐA 5 m Beztu barnabœkurnar eftir íslenzka rithöfunda Fjölbreytt efni til fróöleiks og skemmtunar FLUGFERÐIN TIL ENGLANDS eftir Ármann Kr. Einarsson. Hér kemur þriðja bókin í bókaflokknum um Árna og Rúnu i Hraunkoti. Ný og falleg útgáfa. — Bókhlöðuverð kr. 390.00. SUMAR í SVEIT eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson. Þetta er tilvalin bók handa krökkum, sem eru að byrja að lesa sínar fyrstu bækur. Teikningar eftir Baltasar. — Bókhlöðu- verð kr. 333.00. HANNA MARÍA OG PABBl eftir Magneu frá Kleifum. Bækurnar um hana Hönnu Maríu hafa að vonum náð miklum vinsældum hjá yngri kynslóðinni. Þetta er þriðja bókin um hana Hönnu Maríu. — Bókhlöðuverð kr. 390.00. STRÁKUR Á KÚSKINNSSKÓM eftir Gest Hannson. Teikningar eftir Odd Björnsson. Kom fyrst út 1958 og seldist þá upp á skömmum tlma. Óvenjulega fyndin og skemmtileg bók fyrir börn á öllum aldri. — Bókhlöðuverð kr. 390.00. ÖRT RENNUR ÆSKUBLÓÐ eftir Guðjón Sveinsson. Hér segir frá llfi íslenzkra sjó- manna, ævintýrum þeirra í söluferð erlendis, skip- broti og svaðilförum. Sérlega spennandi frásögn. — J Bókhlöðuverð kr. 390.00. l! t! © ÍSLANDSFERÐ 1862 eftir C. W. Shepherd. Óvenju forvitnileg og skemmtileg ferðasaga. Steindór Steindórsson frá Hlöðum þýddi. — Bókhlöðuverð kr. 444.00. VESTUR-ÍSLENZKAR ÆVISKRÁR IV eftir séra Benjamín Kristjánsson. Með 600 mannamyndum. Þetta verður að líkindum loka- bindi ritverksins, sem talið hefur verð langstærsta framlag I þjóðræknismálum af hálfu ís- lendinga. — Bókhlöðuverð kr. 988.00. SÍÐASTA AUGNABLIKIÐ eftir Frank G. Slaughter, höfund hinna vinsælu skáldsagna „Eiginkonur læknanna" og „Hættuleg aðgerð". Þessi nýja saga gerist á Kennedy-höfða f borg geimfaranna — en geimfaralæknirinn, dr. Barnes, verður fljótt var við villt geim upp um alla veggi . . . og síðasta augnablikið nálgast . . . Bókhlöðuverð kr. 695.00. Á MIÐUM OG MÝRI eftir Rögnvald S. Möller. Hér er ástríðuþrungin og berorð ástarsaga eftir nýjan, íslenzkan rithöfund. — Bókhlöðuverð kr. 488.00. SCOTLAND YARD eftir J. W. Brown. Þetta er gamáldags, spennandi leynilögreglusaga, tilvalinn lestur til af- þreyingar frá dagsins önn. — Bókhlöðuverð kr. 275.00. ÞRÍLÆKIR eftir Kristján frá Djúpalæk. Hér er fögur bók fyrir alla þá, sem unna íslenzkri Ijóðlist. „ . . . Kristján er skemmtilegt skáld." — Bókhlöðuverð kr. 444.00. DAGAR MAGNÚSAR Á GRUND eftir Gunnar M. Magnúss. Um síðustu aldamót var Magnús Sigurðsson á Grund í Eyjafirði einn af mestu athafnamönnum landsins. Um hann spunnust þjóðsögur, eins og gjarnt er um þá menn, sem skara langt fram úr öðrum. — Gunnar M. Magnúss hefur hér skráð góða bók um hlýjan og óvenjulegan persónuleika. Bókin er prýdd fjölda mynda og í bókarlok er mannanafnaskrá. — Bókhlöðuverð kr. 795.00. Já, Bókaforlagsbœkurnar eru ódýrar BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR HAFNARSTRÆTI 88 AKUREYRI

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.