Þjóðviljinn - 18.05.1974, Qupperneq 1
Laugard. 18. mai 1974 — 39. árg. — 78. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐVERZLA í KRON
k .. á
Auknar niðurgreiðsl-
ur um 8 vísitölustig
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka verð á land-
búnaðarvörum um meira en þriðjung með niður-
greiðslum, sem eru i gildi 8 stiga hækkunar kaup-
gjaldsvisitölu.
26 — 70% lœkkun
landbúnaðarvara
t samræmi við stefnu rikisstjórnarinnar um viðnám gegn verðbólgu
hcfur hún ákveðið að lækka verð á brýnustu nauðsynjavörum með
niðurgreiðslum sem á mánuði munu kosta rikissjóð um 172 miljónir
króna. Þessar niðurgreiðslur eru igildi 8 stiga hækkun á kaupgjalds-
visitölu. Lækkun á þessum nauðsynjavörum tekur gildi n.k. mánudag
20. mai. Þá lækkar fernan af mjólk úr kr. 66.70 i 41.60 og kartöflur úr
29.60 kr. i 9 kr. Kilógramm af smjöri lækkar og kostar þá 200 kr. er það
56,9% lækkun.
Hér fer á eftir yfirlit yfir lækkun landbúnaðarvaranna eins og blaðið
fékk upplýst um verð hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins. Rétt er að
geta þess, að niðurgreiðslur eru aðeins á vörum, sem fram að þessu
hafa notið niðurgreiðslna úr ríkissjóði.
áður nú mism. % lækkun
Mjólk 2 lítra fernu 66,50 41,60 24,90 37,4%
1/4 litri rjóma 66,70 49,00 17,70 26,5%
Skyr 73,00 48,40 24,60 33,7%
Smjör 1 kg. 464,00 200,00 264,00 56,9%
45% ostur 376,00 246,00 130,00 34,6%
Súpukjöt 300,00 183,00 117,00 39%
Kartöflur 2. fl. 29,60 9,00 20,60 69,6%
Hiðlækkaða verð á landbúnaðarvörum tekur gildi á mánudag, segir i
fréttatilkynningu frá landbúnaðarráðuneytinu.
Kaup aldrei hærra mið-
að við dollar en þetta ár
Var langlœgst á viðreisnarárunum þegar tímakaup
hafnarverkamanna á íslandi jafngilti um
hálfum dollar. Er ná um 2 og 1/2 dollari á tímann
Þjóðviljinn kannaði í gær
hversu hátt verkamanna-
kaup í hafnarvinnu væri i
dag miðaðvið Bandarikja-
dollar í tilefni þess að
gengi krónunnar var lækk-
að í gær eins og sagt er f rá
annars staðar í blaðinu.
Við athugun Þjóðviljans kom
fram að verkamannakaup hefur
aldrei verið hærra á timann mið-
að við dollar en nú siðustu mán-
uðina. Komst kaupið miðað við
dollar hæst i marslok sl., en lægst
fór kaupið miðað við dollar á við-
reisnarárunum, þegar hafnar-
verkamenn höfðu sem svaraði
um hálfum dollar á timann.
Kaup islensks hafnarverka-
manns hefur verið sem hér grein-
ir á timann, reiknað i dollurum,
frá 1947:
1947 1,46 $
1949 1,03 $
1950 0,68 $
1960 0,58
1961 0,57
1967
1968
1971
1972
1973
(kaup
ins)
1974,
Frá
0,99
0,71
1,24
1,39
2,04
i árslok, meðalgengi árs-
maí 2,46 $
siðustu áramótum hefur
kaupi hafnarverkamanns reiknað
i dollurum verið sem hér segir:
Janúar 2,10 J
Febrúar 2,52$
Mars 2,64 $
April 2,59 $
Eins og af þessu sést hefur kaup
hafnarverkamanna miðað við
dollar aldrei verið hærra en á
þessu ári. Ennfremur sést að
kaupið hefur aldrei farið lægra en
á viðreisnarárunum miðað við
dollar.
Þórður Tyrfingsson
tæknifræðingur, Snæ-
björn Jónasson verk-
fræðingur og Jón B.
Jónsson tæknifræðingur
skoða kort afXíjabakka-
veginum á hlaðinu á
Gjábakka í gær. (Ljósm.
S.dór.).
Sjá baksíöu
GENGIS-
BREYTING
Seðlabankinn hefur
gefið út tilkynningu um
4% gengislækkun gagn-
vart dollar.
Mesta gengislækkun
islensku krónunnar var
gerð árið 1960. Þá hækk-
aði dollarinn í verði um
133,5% — sjá grein á 6.
siðu.
Stykkishólmur — 9-13