Þjóðviljinn - 18.05.1974, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 18.05.1974, Blaðsíða 5
Laugardagur 18. mal 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Ellefu hundruð ára afmæli Islandsbyggðar • 10.000 króna gullpeningur 500 króna silfurpeningur 27,75 mm að þvermáli 35 mm að þvermáli 1.000 króna silfurpeningur 39 mm að þvermáli Bakhlið peninganna Seólabanki íslands gefur út gull- og silfurmynt í tilefni af 1100 ára afmæli byggðar á íslandi. Peningarnir eru þrír og þannig gerðir: 10.000 króna gullpeningur, 27,75 mm að þver- máli og 15,5 gr aó þyngd. Á framhlið er mynd af Ingólfi Arnarsyni er hann varpar öndvegissúlum sínum fyrir borð. 1.000 króna silfurpeningur, 39 mm að þvermáli og 30 gr að þyngd. Á framhlið er sýnt, hversu karl- menn helguðu sér land. Skyldu þeir kveikja eld, er sól var í austri að morgni, og síðan aðra elda, svo að hvern sæi frá öðrum, uns sól væri í vestri. Svæðið milli eldanna markaði stærð landnámsins. 500 króna silfurpeningur, 35 mm að þvermáli og 20 gr að þyngd. Á framhlið er mynd af konu, sem leiðir kú sér við hlið. Landnám kvenna skyldi ekki vera víóara en svo, að kona gæti leitt um það tvævetra kvígu vorlangan dag sólsetra millum. Á bakhlið peninganna allra eru landvættirnar fjórar, naut, fugl, dreki og bergrisi. Gullpeningarnir eru 900/1000 að skírleika, sem samsvarar nálægt 22 karötum, en silfurpeningarnir eru 925/1000 að skírleika (sterling silfur). Þröstur Magnússon teiknaði peningana, sem slegnir eru hjá Royal Mint í London. SÉRUNNIN SLÁTTA. Hluti uppiags myntarinnar er sérlega vönduö, sérunnin slátta (proof coins). Þessir peningar verða með mattri áferð mynda og leturs, en sléttir fletir gljáfægðir. Verða þeir seldir yfir nafnverði, enda dýrari að gerð og ætlaðir fyrst og fremst til söfn- unar. Þeir eru í vönduðum öskjum og fást ýmist allir þrír eða silfurpeningarnir saman. VENJULEG SLÁTTA Meiri hluti myntarinnar verður hins vegar sleginn eins og gerist um gjaldmiðil. Þessi slátta er einnig fáanieg í öskjum, gullpeningurinn sér og silfurpeningarnir saman. PÖNTUN TIL SEÐLABANKA ÍSLANDS Vinsamlega sendið mér neðangreinda þjóðhátíðarmynt 1974 að andvirði kr.................., og fylgir greiðsla með þessari pöntun. ......öskjur (hámark3), sérunnin slátta, 1 gull-og 2 silfurpeningar á kr. 23.000.- = kr.......'............ ......öskjur (hámark 5), sérunnin slátta, 2 silfurpeningar......á kr. 3.200.- = kr. ......öskjur (hámark 3), venjuleg siátta, 1 gullpeningur........á kr. 10.200- = kr. ......öskjur (hámark 5), venjuleg slátta, 2 silfurpeningar......á kr. 1.700- = kr. Samtals kr. NAFN:............................................................ HEIMILI:......................................................... Scðlabankinn afgreiöir pantanir í þeirri röð, sem þær berast, þar til upplag þrýtur. AÐ EIGNAST MYNTINA. Þjóðhátíðarmyntina skal panta á þar tíl gerð- um eyðublöðum hjá bönkum, sparisjóðum og helstu myntsölum eða beint frá Seðlabanka íslands. Staðgreiðsla fylgi pöntun. Dreifíng fer fram frá pöntunarstað og verður auglýst sérstaklega. TAKMARKAÐ UPPLAG. Þeim, sem vilja tryggja sér myntina til eignar eða gjafa, skal bent á, að bæði er upplag takmarkað og jafnframt er búist við verulegri erlendri eftir- spurn. Því er ráðlegt að gera pöntun strax. Til þess að sem flestir geti eignast myntina, er nauðsynlegt að setja hámark þess, sem hver getur pantað, við þrjá gullpeninga af hvorri sláttu, en fímm af hvorri samstæðu silfurpeninga, eins og nánar er skýrt á pöntunarseðli. Hámarksupplag myntarinnar er eftirfarandi: SÉRUNNIN SLÁTTA 10.000 króna gullpeningur 8.000 stk. 1.000 króna silfurpeningur 58.000 stk. 500 króna silfurpeningur 58.000 stk. VENJULEG SLÁTTA 10.000 króna gullpeningur 12.000 stk. 1.000 króna silfurpeningur 70.000 stk. 500 króna silfurpeningur 70.000 stk. VERÐMÆT EIGN. Vonast ertil, að þjóðhátíðarmyntin verði safngripir, sem verða eigendum sínum til ánægju og minja um merkan atburð í sögu þjóóarinnar. Jafnframt eru peningarnir gjaldgeng íslensk mynt, slegin úr gulli og silfri. fÆA SEÐLABANKI ISLANDS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.