Þjóðviljinn - 18.05.1974, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. mai 1974.
Lundi (Ijósm. Grétar Eiríksson).
Fugla-
skoðunar-
ferð til
Suður-
nesja
A morgun, sunnudaginn 19.
mai, efnir Fuglaverndunarfélag
islands til fyrstu ferðar sinnar á
árinu til Suðurnesja. Verður fyrst
ekið að Garðskagavita og gengið
þaðan suður með ströndinni. Eftir
nokkra dvöl þar verður haldið til
Sandgerðis.
A ströndinni milli Garðskaga
og Sandgerðis er venjulega mikið
fuglalif um þessar mundir, og oft
má búast þar við sjaldgæfum
fuglum, sem flækst hafa hingað
til lands. Frá Sandgerði verður
ekið til Hafna og staldrað þar við
nokkra stund, skyggnst eftir
straumönd, sem heldur sig þar i
brimrótinu. Siðan verður haldið á
Hafnaberg, sem er aðgengi-
legasta fuglabjarg fyrir ibúa
höfuðborgarsvæðisins. íbúar
þessa fallega bjargs eru nú allir
sestir þar að og undirbúningur
hafinn að vorverkunum.
t Hafnabergi má sjá allar
bjargfuglategundir landsins
nema haftyrðilinn. Af bjarg-
brúninni má sjá til Eldeyjar, þar
sem þusundir súlna halda sig.
Þær sjást einnig fljúgandi nálægt
bjarginu. Þá má einnig sjá
skrofuna og fleiri fugla, sem for-
vitnilegir eru. Frá Hafnabergi
verður haldið að Reykjanesvita
og skoðaður þar silfurmáfur.
Siðan verður ekið heim um
Grindavik og hugað að fugli á
þeirri leið.
Lagt verður af stað frá
Búnaðarfélagshúsinu við
Tjörnina (við hliðina á Iðnó) kl. 10
árdegis. Aætlaður komutimi til
Reykjavikur er kl. 7 siðdegis.
Farseðlar verða seldir við bilana
og kosta 700 kr. fyrir fullorðna og
350 kr. fyrir börn á skólaskyldu-
aldri. Gott er að hafa með sér
kiki, og þeir sem eiga Fuglabók
Almenna bókafélagsins, ættu að
hafa hana meðferðiS.
Leiðsögumenn verða tveir,
mjög vel kunnugir fuglalifi
Suðurnesja.
Forseta«
hjónin til
Danmerkur
Forseti lslands, dr. Kristján
Eldjárn, og kona hans héldu
til Danmerkur föstudaginn
17. þ.m. og koma heim aftur
þriðjudag 21. Er förinni heitið til
Odense, þar sem forsetinn mun
verða sæmdur heiðursdoktors-
nafnbót á hátið Odense-háskóla.
Á þessari samkomu verða Mar-
grét Danadrottning og Henrik
prins, ennfremur Ingrid drottn-
ing. Forseti Islands mun flytja
stuttan fræðilegan fyrirlestur um
efni sögulegs eðlis, og verður
þetta liður i dagskrá hátiðarinn-
ar.
Mynd: Francisco Goya y Lucientes
KENJAR
Mál: Guðbergur Bergsson
42.
Þú sem
ert vanmegnugur
Á frumteikningunni, sem dregin er
með rauðum vatnslit, virðist maður-
inn, burðarjálkurinn til vinstri, stynja
annað hvort af þreytu eða unaði yfir
þeim heiðri, að hann skuli fá að burð-
ast með asna á bakinu. Hins vegar
bera mennirnir á koparstungunni asn-
ana sina blindandi. Það eru þess vegna
asnarnir, en ekki mennirnir, sem ráða
ferðinni. Þannig eiga þjóðfélögin að
vera!
„Vinnandi stéttir þjóðfélagsins bera
allan þunga þess. Þær bera hina sönnu
asna á herðum sér”, segir A-handritið.
Og L-handritið er þessu sammála, og
svo mun vera um fleiri.
Athyglisvert er, að maðurinn, sem
stendur framar á myndinni, ber á
herðum sér miklu virðulegri asna en
hinn maðurinn. Hann er auðsýnilega
lika miklu fátækari, en á andliti hans
er þó minni þjáning, þótt asninn keyri
hann sporum. Sá betur búni, sem ber
öllu smávaxnari asna, virðist stynja
undir þunganum. Asnarnir eru hinir
reisulegustu og sperra eyrun og hlusta
eftir hverju hljóði. Hlustunarstöðvar
þeirra eru efalaust einstaklega næm-
ar, liklega eins næmar og radarkerfin.
Svo eru asnarnir svo stroknir og
spengilegir, að þeir gætu verið eitt-
hvað kynbættir. Þeir minna á veð-
hlaupahesta. Og annar þeirra ber um
hálsinn blómfléttu, kannski nýkominn
úr kappreiðum. Það er ekkert lubba-
legt við þessa asna, eins og við asna
yfirleitt.
Hvaða asnar tröllriða alþýðunni?
Finnska Tila-leikhúsið sýnir á íslandi:
Heldur syng ég en græt
Leikrit byggt á
fangelsisdagbók
Hó Sí Míns
í næstu viku kemur til Is-
lands finnski leikflokkur-
inn Tilateatteri
(Tila -leikhúsið). Flokkur-
inn sýnir í samkomusal
Norræna hússins mánudag
20. mai kl. 20:00. Síðan
verður farið til Isafjarðar/
Akureyrar, Húsavíkur og
ef til vill viðar. Gefist ráð-
rúm til, verður síðasta sýn-
ing flokksins hér að þessu
sinni í Norræna húsinu, og
verður það á laugardaginn
25. maí kl. 16:00.
Verkið, sem sýnt verður, er
byggt á skáldskap Hó Sji Mins,
dagbók i ljóðformi, sem hann
skrifaði i fangelsisvist sinni i
Kina á fimmta tug aldarinnar.
Nefnist verkið „Heldur syng ég
en græt” og lýsir lifi fangans,
hinu tilbreytingarlausa og vana-
bundna, og einstökum áhrifa-
miklum viðburðum.
Tilateatteri var stofnað árið
1967, hefur notið rikisstyrks (rá
1968. Leikflokkurinn hefur ver\ð
atvinnuleikflokkur frá 1971 og et
aðili að samstarfsstofnun at-
vinnuleikara i Finnlandi. —
Æfingasalir og skrifstofa flokks-
ins eru i Helsinki, en hann efnir til
sýninga um allt Finnland, i skól-
um, bókasöfnum, iistasöfnum, á
sjúkrahúsum og barnaheimilum.
„Heldur syng ég en græt” var
frumsýnt 1973 og hefur verið sýnt
viða i Finnlandi, Sviþjóð, á al-
þjóðalistahátiðinni i York á Eng-
landi og þættir úr þvi voru sýndir
i Monaeo á IATA-ráðstefnu. Nor-
ræni menningarsjóðurinn veitti
Atriöi úr sýningu Tíla-leikhussins
flokknum ferðastyrk nú á þessu
ári til að fara leikför til Danmjfrk-
ur, Færeyja og tslands, og þaBhig
var kleift að koma hingsð.
Sýningin byggir á heild-
artjáningu, þ.e. atvikunum
er lýst með likamshreyfingum,
tali, söng og látbragðslist. Textar
ljóðanna eru fluttir á finnsku, en
sögumaður, litil vietnömsk
stúlka, talar á sænsku. Leikstjóri
er Katri Nironen, leikendur eru
fjórir,og flutningur verksins tekur
um eina klukkustund
Aðgöngumiðar að sýningunni i
Norræna húsinu verða seldir i
kaffistofunni eftir hádegi
samdægurs.
Frá Sjálfsbjörgu
Æskulýðsmót bandalags fatlaðra á
Norðurlöndum verður haldið að Flúðum
Hrunamannahreppi dagana 6.til 14.júni
n.k.
Nánari upplýsingar um mótið eru veittar á skrifstofu
Sjálfsbjargar Laugavegi 120, simi 25388.
Sjálfsbjörg,
landssamband fatlaðra.