Þjóðviljinn - 18.05.1974, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. mal 1974.
UOBVIUINN
MALGAGN SÓSIALISMA
VERKALYÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
(Jtgcfandi: (Jtgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: .Gióur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson (áb)
Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson,
Ritstjórn, afgreiósia, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur)
rPrentun: Blaóaprent h.f.
JREYKVÍKINGAR ERU LÝÐRÆÐISSINNAR
Fyrir siðustu borgarstjórnarkosningar
stærðu ihaldsmenn sig mjög af þvi.að þeir
hefðu malbikað allar götur borgarinnar.
Var það helsta kosningablómið, kallað
svört bylting i Morgunblaðinu. Svarti
byltingarmaðurinn var Geir Hallgrims-
son. Nú hefur komið fram hvers eðlis
svarta byltingin hefur verið. 1 skýrslu
gatnamálastjóra um skemmdir á götum
borgarinnar 1973 segir m.a. orðrétt: „en
burðarþolsvandamálið er aðkallandi,
enda ekki látið sitja i fyrirrúmi meðan
verið var að rykbinda bæinn sl. áratug.”
Það er sjálfur gatnamálastjóri sem segir
þarna fullum fetum að svarta byltingin
hafi verið rykbinding; eftir sé að fram-
kvæma varanlega gatnagerð i borginni.
Þarna viðurkennir einn af trúnaðarmönn-
um Sjálfstæðisflokksins að hér hafi aðeins
verið um kosningablæju að ræða.
Það mun kosta borgarbúa hundruð
miljóna að gera við göturnar. Svarta bylt-
ingin var plat.
Fyrir þessar borgarstjórnarkosningar
stæra ihaldsmenn sig af þvi.að þeir vilji
gera allt grænt. Hefur verið gengið svo
langt að Landspitalinn hefur verið jafnað-
ur við jörðu samkvæmt kortum byltingar-
mannanna. Með þessari grænu kosninga-
blæju gerir Sjálfstæðisflokkurinn tilraun
til þess að breiða yfir raunverulegt andlit
sitt. Hann reynir að fá borgarbúa til þess
að halda að hann vilji i rauninni það eitt i
borgarstjórn Reykjavikur að þjóna hags-
munum allra Reykvikinga. En þegar til
verkanna kemur er Sjálfstæðisflokkurinn
i borgarstjórn fyrst og fremst að þjóna
eigin flokkshagsmunum. Græni byltingar-
maðurinn Birgir ísleifur er að reyna að
breiða yfir feysknar spillingarrætur
valdakerfis Sjálfstæðisflokksins.
Rétt fyrir kosningar reynir Sjálfstæðis-
flokkurinn að gera sig dýrlegan með þvi
að mála yfir ásjónu sina með svörtum lit-
um og grænum. Hann reynir að láta lita
svo út að hann hafi allt i einu áhuga á
heilsugæslustöðvum i borginni; — en allir
sem vita vilja mega muna að borgarfull-
- trúar Alþýðubandalagsins hafa áratugum
Alþýðubandalagið hefur lagt til að
stofnaðar verði hverfastjórnir sem kosnar
verði með beinni kosningu; semsé að
valdið verði fært út til fólksins. 1 sambandi
við þetta er fróðlegt að rifja upp hvaða
fólk það er sem Sjálfstæðisflokkurinn læt-
ur ráða ferðinni i sambandi við skipulags-
mál, sem vissulega snerta alla borgarbúa.
Kosin er skipulagsnefnd i borgarstjórn, en
siðan hafa kaupmenn einir verið kvaddir
saman flutt tillögur um heilsugæslustöðv-
ar i borginni, en það hefur ekki borið ár-
angur, þar til nú 8 dögum fyrir kosningar,
að ihaldið tekur við sér!
Borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins
hafa flutt fjöldann allan af tillögum um
bættan aðbúnað aldraðra. Núna loksins
tekur ihaldið við sér og þá rétt fyrir kosn-
ingar. Og þannig mætti lengi telja. Fyrir
kosningar er öllu lofað, eftir kosningar er
svikið jafnharðan.
Valdaskák ihaldsins á grænum reitum
og svörtum hefur staðið í hálfa öld. Reyk-
víkingar eru orðnir þreyttir á þeirri skák.
Reykvikingar eru lýðræðissinnar; þeir
skilja nauðsyn þess að skipt verði um i
valdastöðum i þjóðfélaginu og eru reiðu-
búnir að taka hlutina til endurmats.
til samráðs um skipulagsmál. Þegar
Austurstræti allt var gert að göngugötu
fögnuðu þvi 94% aðspurðra vegfarenda, —
en kaupmenn voru á móti, og þess vegna
var hluti Austurstrætis lokaður á ný.
Þannig eru það kaupmenn sem fá að
ráðskast með atkvæði Reykvikinga milli
kosninga, sem aðeins er efnt til á fjögurra
ára fresti.
KAUPMENN RÁÐA SKIPULAGINU
Gengisbreyting um 4% til
lækkunar gagnvart dollar
Mesta gengislœkkun islensku krónunnar var gerð 1960. Þá
hœkkaði dollarinn í verði um 133,5%
Fréttatilkynning Seðlabanka
Islands um gengisbreytinguna fer
hér á eftir:
„Skráð gengi á Bandaríkjadollar
hækkaði i dag gagnvart islenskri
krónu um 3,70 kr. og er kaupgengi
nú 92,80 kr. hver dollar. Samsvar-
ar þetta þvi, að gengi islensku
krónunnar hafi lækkað um sem
næst 4% gagnvart dollar, en
minna gagnvart ýmsum öðrum
myntum, sem hafa verið hækk-
andi að undanförnu. Ástæðan fyr-
ir þessari breytingu er fyrst og
fremst sú, að afkoma ýmissa
greina sjávarútvegs og útflutn-
ingsiðnaðar hefur farið versnandi
að undanförnu, bæði vegna hækk-
andi tilkostnaðar og verðbreyt-
inga erlendis. í opinberum um-
ræðum að undanförnu hefur það
komið fram hvað eftir annað, að
einn liður i nauðsynlegum að-
gerðum til að leysa þennan vanda
ætti að vera að láta gengi krón-
unnar siga niður á við. Hefur
þetta skapað óvissuástand um
gengi krónunnar, sem virðist
hafa ýtt undir spákaupmennsku
og aukna gjaldeyrissölu. Af hálfu
Seðlabankans hefur þvi verið tal-
ið heppilegra að láta gengið nú
breytast i einum áfanga um það,
sem talið er hæfilegt við núver-
andi aðstæður með tilliti til hags-
muna útflutningsframleiðslunn-
ar. Ætti þessi breyting að gera
kleift að halda meðalgengi krón-
unnar nokkurn veginn stöðugu á
næstunni að öllu óbreyttu.
Þessi gengisbreyting hefur i för
með sér hækkun hvers banda-
rikjadollars i islenskum krónum
um 5% miðað við siðustu skrán-
ingu dollarans i aprílmánuði sl.,
en þá var sölugengi dollarans
88,70 kr. Þjóðviljinn hefur tekið
saman yfirlit um gengisbreyting-
ar krónunnar gagnvart dollara
allt frá árinu 1947 og er breytingin
sem hér segir — hlutfallstalan
sýnir prósentuhækkun i islensk-
um krónum frá siðasta sölugengi:
1947 6,50 kr. hver dollar.
1948 9,36 hver dollar. Hækkun
dollarans i krónum
um 44%
17. mai 1974.
BÍLA TR YGGINGAR:
1950 16,32. Hækkun 74%.
1960 38,10. Hækkun 133,5%.
1961 43,06. Hækkun 13%.
1967 57,07. Hækkun 33%.
1971 87,42. Lækkun dollarans um
um 0,8%.
1972 97,90. Ilækkun um 12%
(gengislækkun knúin
fram af Hannibal-
istum
1973 92,02. Lækkun doliarans
um 8% (meðalgengi
ársins).
1974 87,40. (Janúarlok). Lækkun
um 2,9%.
1974 85,80 Febrúarlok). Lækk-
un doilara um 1,8%.
1974 86,90. (Marsiok) Hækkun
dollara um 1,3%.
1974 88,70 (Aprillok). Hækkun
um 2,1%
1974 93,20 17. maí. Hækkun
um 5%.
GLISTRUP
BORINN
ÞUNGUM
SÖKUM
KAUPMANNAHöFN 17/5 — P.
Lindegárd, málaflutningsmaður
danska rikisins, sagðist I dag ætla
að fara þess á leit við dómstól að
Mogens Glistrup, leiðtogi Fram-
sóknarflokksins danska, verði
sviptur þinghelgi, svo að hægt sé
að höföa mál gegn honum fyrir
skattþjófnað, svik og fleira álika.
Meðal annars er Glistrup sakaður
um að hafa logið til um hlutafé-
lög, sem hann er aðili að. Rikis-
málaflutningsmaðurinn krefst
þess auk annars að Glistrup verði
ævilangt sviptur réttinum til þess
að starfa sem málaflutningsmað-
ur.
37% hækkun leyfð
Blaðinu barst á dögunum
fréttatilkynning frá heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytinu þar sem
skýrt var frá þvi að Trygginga-
eftirlitið hefði „sent Samstarfs-
nefnd bifreiðatryggingafélag-
anna bréf, þar sem tilkynnt er, að
Tryggingaeftirlitið muni ekki að
svo stöddu gera athugasemdir við
allt aö 30% hækkun iðgjaida húf-
trygginga bifreiða auk hækkunar
sjálfsábyrgðar um 50%.”
Af þessu tilefni hafði blaðið tal
af Erlendi Lárussyni hjá Trygg-
ingaeftirlitinu. Hann kvað málin
hafa breyst i millitiðinni á þá lund
að eftir að athuguð hefðu verið
nýjar upplýsingar varðandi þetta
mál hefði eftirlitið samþykkt að
gera ekki athugasemdir við allt
að 37% hækkun iðgjaldanna og
væru félögin nú óðum að breyta
verðskrám slnum til samræmis
við það.
Ekki kvað hann liggja fyrir
hvort öll félögin notfærðu sér alla
þessa hækkun en eins og komið
hefur fram I fréttum fóru þau i
upphafi fram á 64% hækkun
iðgjalda af bifreiðatryggingum.
Þar af leiðandi gat hann ekki
sagt með neinni vissu um það,
hve mikið þau myndu hækka.
Hins vegar nefndi hann dæmi af
þvi hver hækkunin yrði ef hún
yrði I hámarki. Samkvæmt þvi
hækkar iðgjald af bifreið i 1.
flokki D úr 26.300 kr. á ári I 36 þús-
und ef tekin er lágmarkssjálfs-
ábyrgð sem var 7.500 kr. Ef hins
vegar er tekin 30 þúsund króna
sjálfsábyrgð verður iðgjaldið
14.400 kr. en var fyrir hækkun
10.520 kr. 1 þessum flokki eru bil-
ar af tegundunum Saab 99.
Citroen 19 og Taunus.
Iðgjald af tegundinni Volks-
wagen 1200 og öðrum svipuðum
bilum var fyrir hækkun 15.200 kr.
ef tekin var lágmarkssjálfs-
ábyrgð sem var 5 þúsund kr. en
verður 20.800 kr. og sjálfsábyrgð-
in 7.500 kr. Ef tekin er sjálfs-
ábyrgð að upphæð 30 þúsund kr.
verður iðgjaldið 8.300 kr. en var
fyrir hækkun 6.080 kr. Allt gildir
þetta fyrir bila þriggja ára og
yngri.
Hækkunin tók gildi ýmist 1.
mars eða 1. mai eftir þvi hvenær
gjalddagi tryggingafélaganna er.
—ÞH