Þjóðviljinn - 18.05.1974, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. mai 1974.
STYKKISHÓLMUR
jr~ •-
v
fiskvinnsla, og rækju-
vinnsla þótt í litlum
mæli sé.
Það er því ekki að
undra þótt viðhorf fólks
sé með nokkuð öðrum
hætti þar en í öðrum
þorpum á nesinu. Þar er
til að mynda að öllu
jöfnu styttri vinnutimi
hjá almenningi yfir ver-
tíðina, og þeir sem ekki
Stykkishólmur hefur
mikla sérstöðu meðal
þorpa á Snæf ellsnesi.
Ekki einungis vegna
þess að þar er bæjar-
stæði fegurra en í öðrum
þorpum á nesinu, já,
kannski á öllu landinu,
heldur fyrst og fremst
af tvennu. Þar skal
fyrst telja sögufrægð
staðarins, vegna þess að
Stykkishólmur var á
einni tíð einn af stærri
verslunarstöðum á land-
inu, en þó ekki síður
vegna þess að í dag er
atvinnulíf í Stykkis-
hólmi mun f jölbreyttara
en í nokkru öðru þorpi á
Snæfellsnesi. Enda þótt
sjávarútvegur sé uppi-
staða atvinnulíf sins þar,
eru þar bæði trésmíða-
Þaft er óvifta fegurra bæjarstæfti en i Stykkishóimi.
verkstæði, húsgagna-
vinnustofa, skipasmíða-
stöð og, já, prentsmiðja,
að vísu dálítið óvenju-
leg, hún er rekin af
nunnunum i klaustrinu.
Þá er og í Stykkishólmi
bílaverkstæði, hótel, af-
greiðsla flóabátsins
Baldurs, og þá erum við
komin að því sem í
framtíðinni á kannski
eftir að verða stór þátt-
ur í atvinnulíf inu, ferða-
mannastrauminum,
sem er mjög mikill orð-
inn og fer sífellt vax-
andi.
Þá er útgerð og fisk-
vinnsla fjölbreyttari i
Stykkishólmi en á öðr-
um stöðum á Snæfells-
nesi. Þar er frystihús,
saltf iskvinnsla, skel-
vinna að fiskvinnslu
vinnaaldrei jafn langan
vinnutíma og sjálfsagt
þykir í hinum þorpunum
á nesinu.
Það var þvi með a11-
mikilli forvitni að við
tókum fólk tali i
Stykkishólmi, eftir að
hafa áður heimsótt öll
hin þorpin á Snæfells-
nesi.
Skipasmíöar eru rótgróin
atvinnugrein í Stykkishólmi
sagöi Hafsteinn Einarsson
framkvæmdastjóri Skipavíkur hf,
Skipasmíðastöðin Skipa-
vík h/f í Stykkishólmi hef-
ur nýverið flutt í nýtt hús-
næði til nýskipasmíða í
samnefndri vík rétt utan
við þorpið sjálft, en allar
slippviðgerðir fara enn
fram í eldra athafnasvæði
fyrirtækisins niðri við
höfnina. Til að fræðast
nánar um þetta fyrirtæki
heimsóttum við Hafstein
Einarsson framkvæmda-
stjóra þess út i Skipavik.
— Skipasmiðar eru rótgróin at-
vinnugrein hér i Stykkishólmi,
sagði Hafsteinn. Þær hafa verið
stundaðar hér i áratugi, en til
þess að stofna mætti þetta fyrir-
tæki, Skipavik h/f, þurfti að sam-
eina nokkra aðila sem unnið
höfðu að skipaviðgei;ðum og ný-
smiði, og útkoman varð þetta
fyrirtæki. Allt tók þetta langan
tima, en Skipavik tók til starfa
árið 1969 og var þá með alla
starfsemina niðri við höfnina i
gamla slippnum. Fljótlega var
farið i að koma upp betri aðstöðu
fyrir nýsmiðina, og varð þá þetta
athafnasvæði hér fyrir valinu og
þetta hús hér byggt. bað var svo
tekið i notkun áriö 1973. En þang-
að til var starfsemin á mörgum
stöðum i þorpinu.
— Það er þá sjálfsagt allt önnur
og betri aðstaða sem þið hafið
núna eftir að þið fluttuð nýsmið-
ina hingað?
— Já, mikil ósköp, þetta er
auðvitað allt önnur aðstaða. Hér
fer öll nýsmiðin fram, en viðgerð-
ir, sem við erum einnig með fara
fram i slippnum við höfnina.
Þetta nýja hús er svo stórt, að við
getum lokið smiði þeirra báta
sem við erum með algerlega inni
húsinu, að segja auðvitað utan
þess að reisa möstrin. Svo er það
auðvitað mikill munur að hafa
allt á einum stað undir einu þaki
eins og nú er, en áður var þetta á
mörgum stöðum.
— Og er alltaf nóg eftirspurn
eftir nýjum bátum hjá ykkur?
— Nei, þvi miður virðist eftir-
spurn eftir nýjum bátum af þeirri
stærð sem viðsmiðum, (49 tonna
tréskip) hafa dregist saman.
— Hver hyggur þú, að ástæðan
fyrir þvi sé?
— Þær eru fleiri en ein. Nú er i
tisku að kaupa skuttogara, það
dregur eflaust eitthvað úr, þá
vilja menn halda þvi fram að
rekstur svona skipa eins og við
smiðum sé óhagkvæmur um
þessar mundir og siðast en ekki
sist er afar erfitt að manna þessa
báta og jafnvel þótt þeir væru
nokkuð stærri. bað virðist þvi
vera stefnan nú að kaupa annað
hvort mun stærri báta, þetta 100
til 400 tonna skip, eða þá mun
minni báta til rækjuveiða eða
skelfiskveiða.
Það er þvi alveg ljóst að við
verðum innan skamms að taka
ákvörðun um hvort heldur við
tökum fyrir smiði þessara litlu
báta eða þá að smiða 100 tonna
báta sem er vel hægt hér hjá okk-
ur. Ég er ekkert hræddur um, að
verkefnin verði ekki næg á kom-
andi timum, það er aðeins spurn-
ingin um, hvaða bátastærð er
hagkvæmast að smiða og selja.
— Hvað hafið þið smiðað marga
báta hér?
— Við erum nú með 14. bátinn i
smiðum og þessir bátar hafa ver-
Hafsteinn Einarsson
ið þetta frá 14 tonna og uppi 50
tonna.
— Hvað getið þið verið með
marga báta i smiðum i einu inni
húsinu?
— Ef við miðum við 50 tonna
báta, getum við verið með 3 i
einu, en auðvitað nokkuð fleiri ef
um minni skip er að ræða. Annars
er stóra vandamálið hjá okkur
vinnuaflsskorturinn. Til þess að
stöðin sé rekin með fullum afköst-
um þurfum við 60 menn, en höfum
aðeins 30 um þessar mundir, en
það er eins og áö leita að gulli að
ætla sér að fá mannskap, svo ég
tali nú ekki um fagmenn. Að visu
lagast þetta eitthvað i sumar
þegar skólastrákarnir koma til
vinnui en það er bara engin lausn
á málinu, þeir standa ekki við
nema 3 i mesta lagi 4 mánuði.
— Er ekki einnig mikið að gera i
viðgerðunum, þar sem þetta er
eina skipasmiðastöðin á Snæfells-
nesinu?
— Jú, það er meira en nóg að
gera i viðgerðunum, og sá hluti
starfseminnar hefur aukist mjög
verulega undanfarið, sem er að
sjálfsögðu eðlilegt með vaxandi
útgerð frá Snæfellsnesi.
— Hvað getið þið tekið stór skip
upp til viðgerðar?
— Við getum tekið 300 tonna
skip uppi sleða og 100 tonna skip i
hús.
— Hver er aðaleigandi Skipa-
vikur h/f?
— Hreppurinn á langmest i
fyrirtækinu, en svo eru einnig ein-
staklingar sem eiga hluta.
— 1 sambandi við nýsmiðina,
smiðið þið eftir pöntunum eða á
lager ef við getum orðað það svo?
— Við smiðum eingöngu eftir
pöntunum, um annað getur varla
orðið að ræða, þetta eru það dýrar
framkvæmdir.
— Gengur þetta fyrirtæki þá
ekki vel?
— Við höfum átt við mikla
rekstursörðugleika að etja, en
þetta er slikt fyrirtæki að ekki er
hægt að leggja það niður, þótt
ekki væri nema vegna viðgerð-
anna. Þess vegna höfum við leit-
að hófanna með fyrirgreiðslu frá
opinberum aðilum, og ég trúi þvi
ekki fyrr en ég tek á, að við þeirri
beiðni okkar verði ekki snúist á
jákvæðan hátt. Stöðinni er það
mikið nauðsynjamál að fá þessa
fyrirgreiðslu. Þá má og geta þess
að Skipavik h/f er stærsti vinnu-
veitandi i Stykkishólmi, sem hef-
ur stöðugan atvinnurekstur allt
árið.
Þá getum við ekki gert neinar
framtiðaráætlanir fyrr en þessi
fyrirgreiðsla er fengin. Við getum
ekki skipulagt neitt fyrr. En við
vitum að við þurfum ekki að
kviða verkefnaskorti. Alltaf er
meira en nóg að gera i viðgerðun-
um, og þetta stóra hús okkar hér
tryggir það að við getum unnið að
skipasmiðinni i hvernig veðri sem
er, allt árið um kring.
— Hvað kosta þessir bátar sem
þið eruð að smiða?
— Ætii það sé ekki á milli 40 og
50 milj., en það fer þó allt eftir þvi
hve vel búnir tækjum þeir eru.
Þessi nýju tæki sem sjálfsagt
þykir að hafa i hverjum báti eru
ákaflega dýr og ráða orðið mestu
um verð bátsins.
— Að lokum, Hafsteinn, ertu
bjartsýnn á að skipasmiði eigi
eftirað verða enn stærri atvinnu-
vegur hér á Stykkishólmi en verið
hefur?
— Ef við fáum þá fyrirgreiðslu
sern ég nefndi áðan, þá þarf ekki
að kviða neinu um framtið skipa-
smiða hér.
—S.dór