Þjóðviljinn - 18.05.1974, Qupperneq 20
mmi/ml Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. Helgar-, kvöld- og næturvarsla lyfjabúða i Reykjavik 17.-23. mai er i Reykjavikur- og Borgar- apóteki. f ' 1
Kvöldsími blaðamanna er 17504
Slysavaröstofa Borgarspítalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Laugardagur 18. mai 1974.
DUBLIN:
20 FORUST
DUBLIN 17/5 — Að
minnsta kosti 20 manns
fórust og yfir hundrað
særðust i þremur mikl-
um sprengingum, sem
urðu i Dublin miðri í
dag.
Sprengjurnar voru i
Franskar kosningaspár:
Frambjóðend-
ur hnifjafnir
PARtS 17/5 — Hinni opinberu
kosningabaráttu fyrir aðra um-
ferð frönsku forsetakosninganna
lauk í dag, og er óvissan um úr-
slitin meiri en nokkru sinni fyrr.
Þeir sem best þykjast til þekkja
teija að munurinn á frambjóð-
endunum tveimur verði kannski
ekki meiri en nokkur þúsund at-
kvæði.
Samkvæmt úrslitum skoðana-
könnunar, sem blaðið L’Aurore
birti i dag, fær Giscard d’Estaing
51 af hundraði atkvæða en Mitter-
rand 49 af hundraði, en sam-
kvæmt úrslitum annarrar könn-
unar, sem innanrikisráðuneytið
stóð fyrir, verða þeir svo að segja
hnifjafnir.
Mitterrand nytur stuðnihgs
allra vinstri flokkanna, og sigri
hann verður það i fyrsta sinn i
sögu fimmta lýðveldisins, sem
þeir ná völdum i Frakklandi. Sig-
urmöguleikar Mitterrands velta
einkum á tvennu: 1 fyrsta lagi þvi
hve margir gaulistar kjósa hann,
en frambjóðandi þeirra, Chab-
an-Delmas, tapaði fyrir Giscard
d’Estaing i fyrri umferð kosning-
anna, og mun talsverð ólund i
flokknum út af þvi. 1 öðru lagi
geta úrslitin oltið á kosningaþátt-
tökunni I löndum Frakka I öðrum
heimsálfum, en þar býr um 2,69%
kjósenda. Tölurnar frá þeim
svæðum liggja ekki fyrir fyrr en á
mánudaginn, en kosningarnar
fara fram nú um helgina.
Alþýðubandalagið
G-listinn Selfossi
Kosningaskrifstofa G-listans á Selfossi er opin frá kl. 17 til kl. 22 dag-
lega. Skrifstofan er i Þóristúni 1, niðri, simi (99)-1888.
G-listinn, Hafnarfirði
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins i Hafnarfirði er opin frá kl.
17—22 alla daga. Skrifstofan er að Suðurgötu 7, Góðtemplarahúsinu.
Siminn er 53640.
Kjördæmisráðið i Austurlandskjördæmi
Kjördæmisráð Albýðubandaiagsins i Austurlandskjördæmi heldur
fund á Reyðarfirði í dag 18. mai kl. 14. Dagskrá: 1) Stjórn-
málaviðhorfið. Frummælendur Lúðvik Jósepsson og Helgi Seljan. 2)
Kjör uppstillinganefndar fyrir alþingiskosningarnar.
Alþýðubandalagið á Reyðarfirði
Kosningaskemmtun G-listans á Reyðarfirði verður I kvöld, laugardag-
inn 18. mai og hefst kl. 21.
G-listinn Keflavik
Kosningaskrifstofan að Tjarnargötu 4 er opin alla daga frá kl. 13 til kl.
23. Simi 3060.
Kjördæmisráð Norðurlandi vestra
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins I Norðurlandskjördæmi vestra
heldur fund I kvöld, laugardaginn 18. mai kl. 20.00 I félagsheimilinu I
Varmahlið. A dagskrá 1. Framboð I alþingiskosningunum. 2. Stjórn-
málaviðhorfið. — Stjórnin.
Kjördæmisráð Vesturlandi
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins i Vesturlandskjör-
dæmi verður haldinn I Snorrabúð i Borgarnesi sunnudaginn 19. mai nk.
og hefst fundurinn kl. 14.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Framboð til alþingis. 3. önnur mál. —
Stjórnin.
Grundfirðingar
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins I Grundarfirði er i gamla
sparisjóðshúsinu. Simi 8731.
Borgarnes
Kosningaskrifstofan á Borgarbraut 28 er opin virka daga kl. 20—22,
um helgar kl. 14—18 og 20—22. Siminn er 7269.
þremur bilum, sem lagt
hafði verið i miðborg-
inni, og urðu sprenging-
arnar um það leyti er
umferðin var mest.
Skömmu siðar fórst einn
maður og tuttugu særð-
ust i sprengingu i landa-
mærabænum Mona-
ghan.
Ofsahræðsla greip um sig með-
al vegfarenda við sprengingarnar
i Dublin, en margir þeirra sem
fórust voru konur og börn. Mesta
sprengingin varð i Talbot Street,
en hinar urðu I O’Connel Street,
helstu umferðargötu hinnar irsku
höfuðborgar, og I South Leinster
Street. Þetta er versta hryðju-
verkið, sem framið hefur verið i
Dublin siðan ógnaröldin i írlandi
hófst fyrir fimm árum.
Gjábakkavegurinn margumræddi er hér á kortinu merktur meö svörtu
striki. Hann liggur frá Þingvallaveginum þar sem hann kemur niður í
Almannagjá og þvert yfir hraunið að Gjábakka.
Mælingar eru hafnar
fyrir Gjábakkavegi
Nú er þessi vegur innan þjóð-
garðsins og þvi má ekki hrófla við
neinu i hrauninu til þessarar
vegagerðar. Allt efni i veginn
veróur að flytja að. Verður það
tekið úr Miðfellslandi og úr
Svartagilslandi.
Danmörk:
Verkfrœðingar þar að störfum i gœr
— vegagerðin hefst á mánudag
F.tfir að Halldór E. fjármála-
ráðherra hafði sagt nei við Gjá-
bakk.avegi, sagði ólafur
Jóhannesson forsætisráðherra já,
og hann ræður og þess vegna
voru verkfræðingar Vegagerðar-
innar komnir uppi Gjábakka-
hraun I gær til að mæla þar fyrir
nýja veginum frá Gjábakka, yfir
hraunið, að Leiru. Þetta veröur 7
km iangur vegaspotti og veröur
lagningu hans að vera lokið fyrir
28. júli.
— Er það virkilega hægt?
— Okkur er fyrirskipað að ljúka
verkinu |á þessum tima og þvi
gerum við það, sagði Snæbjörn
Jónasson verkfræðingur hjá
Vegageroinni er við hittum hann
upp við Gjábakka I gær, en þar
var hann ásamt Jóni B. Jónssyni
verkfræðingi og Þórði Tyrfings-
syni tæknifræðingi við mælingar.
Byrjað verður á veginum á
mánudag og verður byrjað jafnt
frá báðum endum. Vegagerða-
flokkur frá Selfossi byrjar hjá
Gjábakka en flokkur úr Borgar-
firði byrjar hjá Leiru.
— Þetta bæði tefur verkið og
gerir það mun dýrara en ef hægt
væri að ýta undirstöðunni upp sitt
hvoru megin frájvið veginn, sagði
Snæbjörn verkfræðingur en þar
sem þetta er innan þjóðgarðsins
er vel skiljanlegt að ekki megi
hrófla við hrauninu þarna.
En án þess að manni kannski
komi það við þá verður manni á
að spyrja — til hvers er þessi veg-
arspotti? —S.dór
r
Aframhaldandi verkföll
KAUPMANNAHÖFN 17/5 —
MótmælaverkföIIin gegn hinum
nýju sköttum stjórnar Hartlings,
sem þjóðþingið hefur samþykkt,
héldu áfram i dag. Þó hefur eitt-
hvað dregið úr þeim siðan i gær,
en þá var giskað á að fjórðungur
miljónar danskra verkamanna
hefðu lagt niður vinnu. Hinsvegar
er uppi orðrómur um að verkföll-
in muni magnast á ný á mánu-
daginn.
Verkfallið hefur haft i för með
sér að póstur er sumsstaðar ekki
borinn út, sorphreinsun hefur
viða lagst niður og séð er fram á
skort á bensini og eldunaroliu
næstu dagana. Leiðtogar verka-
lýðssamtakanna og atvinnurek-
enda ræddu ástandið hvorir um
sig i dag, og hafa atvinnurekend-
ur ákveðið að krefja verkalýðsfé-
lögin bóta fyrir verkföll, sem
standa lengi.
Tveir nýir flokkar
með sama nafninu?
Lýðrœðisflokksmenn nyrðra afnelta flokksstofn-
endum syðra
Svo virðist sem unnið sé að
stofnun tveggja flokka með nafn-
inu Lýðræðisflokkurinn, bæði
norðan- og sunnanlands. í gær
var tilkynnt formlcga um stofnun
flokksins i Norðurlandskjördæmi
eystra, en Þjóðviljinn hefur
fregnað, að nú um helgina hafi átt
að ganga frá stofnun flokks með
sama nafni i Reykjavik. Norðan-
menn neita hinsvegar að vera i
Framhald á 17. siðu.
Kópavogur:
Kaffikvöld G-listans
Alþýðubandalagið i Kópavogi efnir til kaffikvölds n.k. mánu-
dag 20. mai kl. 8.30 i Þinghól. Þetta er jafnframt siðasti liðsfund-
ur stuðningsmanna G-listans i Kópavogi til undirbúnings bæjar-
stjórnarkosninganna.
G-listinn hvetur allt stuðningsfólk til að koma þetta kvöld i
Þinghól.