Þjóðviljinn - 16.03.1975, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 16.03.1975, Blaðsíða 20
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. marz 1975. Hjördís Bergsdóttir velur gítargrip við vinsæl lög Tökum lagið MINNING UM MANN Halló þiö! Ég var búin að ætla mér að taka fyrir lagið um hann „Einsa kalda úr Eyjunum” i dag, en erfiðlega hefur gengið að fú textann svo að það verður að blða um sinn. I staðinn hef ég valið lagið „Minning um mann”, ljóð og lag eftir Gylfa Ægisson. Það var hijómsveitin LOGAR frá Vestmannaeyjum, sem léku lagið inn á tveggjalaga plötu á sinum tlma. Sfðastliðinn sunnudag varð mér á sú skyssa að gleyma að setja viðlag á eftir siðasta erindi ljóðsins „Hvl ertu svona þreyttur”. Vona að það hafi ekki komið að sök. a C Nú ætla ég að syngja ykkur D F litið fallegt ljóð a C E E7 um ljúfan dreng, sem fallinn er nú frá, a C um dreng, sem átti sorgir D F en ávallt samt þó stóð a E . a styrkur þó að sitthvað gengi á. a C í kofaskrifli bjó hann D F sem litinn veitti yl a C E E7 svo andvaka á nóttum oft hann lá a C þá Portúgal hann teygaði D F það gerði ekkert til a E a það tókst með honum yl i sig að fá. G d Þið þekktuð þennan mann a þið alloft sáuð hann E a drykkjuskap til frægðar sér hann vann Börnum var hann góður en sum þó hræddust hann hæddu hann og gerðu að honum gys. Þau þekkt’ ei litlu greyin þennan mæta mann margt er það sem börnin fara á mis. Viðlag Munið þið að dæm' ei eftir útlítinu menn en ýmsum yfir þessa hluti sést, þvi til er það að flagð er undir fögru skinni enn en fegurðin að innan þykir mest. Viðlag. Nú ljóðið er á enda um þennan sóma svein sem að þráði brennivin og sæ. Nú liggur hann á kistubotni og lúin hvilir bein I kirkjugarði I Vestmannaeyjabæ. Viðlag. G d Þið þekktuð þennan mann a þið alloft sáuð hann E A drykkjuskap til frægðar sér hann vann. Vélmenni til leigu Eftirfarandi auglýsing i „Chicago Tribune” vakti at- hygli lesenda: „Róbot (árgerð 1956) til leigu. Mjög vel fallinn til garðvinnu. Greiðsla eftir samkomulagi/'' Þegar áhugasamir garðeig- endur höfðu samband við rit- stjórnina kom i ljós, að vélmennið var ungur atvinnu- leysingi, sem var að reyna að ná sér i vinnu á þennan frumlega hátt. Hann fékk nóg að gera Duttlungar viöskipta- lífsins Það gerðist i Amsterdam fyr- ir nokkru: Kl. 10 leit Pieter Hogstraaten dagsins ljós. Kl. 11 var nýi borg- arinn skráður aðaleigandi stórfyrirtækis fjölskyldunnar i viðskiptaskrá borgarinnar, þar sem faðirinn hafði dáið daginn áður. Kl. 12 var fyrirtækið lýst gjaldþrota. Og er nú ekki annað að sjá að Pieter litli verði að byrja kaupmannsferilinn frá grunni. Erfðaskrá bílhatarans Þegar opnuð var erfðaskrá rika sérvitringsins Giuseppe Pitti, sem nýlega dó 72 ára að aldri i Milanó, kom i ljós, að þessi mikli bilahatari hafði ánafnað aleigu sinni siðustu þrem hestvagnakúskum borgarinnar. Það fyrsta sem hinir þrir heppnu keyptu sér: — leigubilar! VISNA- ÞÁTTUR - S.dór. „En ef gamli Bakkus bregst 7 7 Uppistaða þessa þáttar verða vlsur eftir hinn kunna hagyrð- ing Harald Hjálmarsson frá Kambi. Ég hygg að óþarft sé að kynna hann fyrir visnavinum, svo kunnur sem hann er orðinn af visum sinum. Undarlega I mig leggst að illa reynist vinir, en ef gamli Bakkus bregst þá bregðast allir hinir. Undir þetta geta sjálfsagt margir tekið. Af tilhlökkun titrar minn barmur, ég trúi að sálinni hlýni, er hátt lyftir hægri armur heilflösku af brennivini. Og þá ekki siður þetta: Næsta visa ber þess merki að Haraldur hafi ekki tekið skáldskap sinn alvarlega: Ljóð min eru litils verð langt frá þvi að vera góð. Þau eru flest i flýti gerð fyrir þann sem næstur stóð. Næsta visa er greinilega ein af siðari visum Haraldar: Ungum gafst mér orka og vit átti visan framann Síðan hef ég látið lit, lækkað og gengið saman. Og enn um Bakkus: Ég drekk fremur fagiega og fer ekki yfir strikið. Þó ég drekki daglega og drekki stundum mikið. Þegar vinið færist fjær fer að versna liðan. Það sem virtist grænt I gær gránað hefur siðan. Og að lokum: Að segja biturt orð i eyra angri veldur. Þögnin segir mikið meira en margur heldur. Þá tökum fyrir visur sitt úr hverri áttinni. Lúðvik Kemp yrkir: • Þjófgefinni veitti vörn, vesælt löðurmenni. Með öllum syndum átti börn, en þó flest með henni. Stefán Vagnsson kveður: Striddu þrátt við strit og baks stundum máttu giima. En urðu sátt af crjum dags cftir háttatíma. Emil Petersen yrkir: Safnað hef ég aldrei auð unnið þreyttum mundum. Drottinn hefur daglegt brauð dregið við mig stundum. Þessi er eftir Eirik á Hæli: Háski er að ala á holdsins þrá hún er oft skammvinnt gaman. Margur er til sem meiddist á mýktinni einni saman. Þorbergur Þorsteinsson yrk- ir: Mér er ljúft að lifa i synd, Ijósan ber þess vottinn; þú skalt dæma þina mynd, þó með samúð, Drottinn. Dómald Ásmundsson sendi okkur þessa fyrir stuttu: Það má lengi efla óð, æsa mengi, hita blóð, lækka gengi, Ijúga að þjóð, látast drengileg og góð. Hannes Hjartarson á Akra- nesi sendi okkur nokkrar gaml- ar visur eftir ýmsa höfunda: Aðalsteinn Halldórsson frá Litlu-Skógum kvað svo: Þó að sáran sviði und sárt og hjartað blæði, lækna það á stuttri stund stuðlaföll i kvæði. Pétur Jakobsson orti um Svein frá Elivogum: Einn fær sungið ítran brag oft við slungin kynni. Sveinn með þrungið ljóðalag laust á tungu sinni. Hjalar ljóðin sögð frá sál, söngvabjóður frægi, talar óðins ágætt mál oft i góðu lagi Sagna festan hróður held hafi mestan slikur. Magnar bestan óðar eld allra gesta Vikur. Valdimar Lárusson sendi okkur þrjár eftirfarandi stökur sem hann segir eftir kunningja sina. Þessi er ort um borð i fær- eyskri skútu á Grænlandsmið- um: Grá og þrútin Grænlandsský gefur út að líta, meðan skútan æðir i ölduhnúta hvita. G.L. Eyjar stá I aftanþeynum, andar fllá við kletta og sker. Ofur smáa, upp að hleinum aldan bláa vaggar sér. R.H. Að yrkja og glettast er minn sess, orð i fléttast þungan. Brokkar létt mitt ljóða-ess, leikur á spretti tungan. Kj.Hj. Setti ég kjaftinn sóttkvi I, sem er réttur vegur, yrði ég talinn allt að þvi óaðfinnanlegur. Jón Arason. Hugurinn berst um hyggjusvið, hjartað skerst af ergi. Þegar mest ég þurfti við þá voru flestir hvergi. Tungan lostin missti mál merkin brostin sýna, þegar frostið fór um sál fann ég kosti þina. Andrés Björnsson? Satt og rétt ég segja vil um sumra manna kvæði: Þar sem engin æð er til ekki er von að blæði. A-hljómur Cx-hLjómur d-hLjómar C-hLjómur E-hljómur E7- hljómur F-Mjó ®@(3) ® T ® © omur "(jXD @ (3)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.