Þjóðviljinn - 06.04.1975, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 06.04.1975, Qupperneq 5
Sunnudagur 6. aprfl 1975. ÞJÓÐVILJINN —: SIÐA 5 Morgunblaöið í Víetnam Upphaf langrar göngu: Varnarsveit eins af þorpum Þjóöfrelsishreyf- ingarinnar um þaö leyti sem bandariski herinn var aö streyma til Indó- kína. The Times (London) sagði I leiöara 24. mars 1966: Astæöan fyrir þvi að Vietkong mun ekki bíða pólitfskan ósigur er sú, að þau samtök standa nær alþýðu, skilja betur vietnömsk vandamál, hafa sterkari vit- und fyrir þjóðlegum virðuleik og sjálfstæði en nokkur stjórn sem getur til orðið I Saigon. Sjálfsákvörðunarréttur á bandarfska vfsu. Morgunblaðsmenn virðast hafa þá sérstöðu i heiminum að hafa tekið hina einföldu og þægilegu heimsmynd kalda striðsins mun alvarlegar en aðrir menn: ljóss- ins englar, amerikanar, berjast við Satan sjáifan, heimskommún- ismann. Svo mikið er vist, að þeg- ar stóratburðir gerast sem ganga mjög þvert á slikar hugmyndir um heiminn, þá fyllast þeir firna- legri en um leið spaugilega mátt- vana heift, sem eys saklausri prentsvertunni i djöfulmóð yfir öll rök og þekkingu á málavöxt- um. Og þetta gerist enn I dag, þrátt fyrir öll þau skakkaföll sem ljóssins englar hafa orðið fyrir og nánir vinir þeirra. Gott dæmi um þetta er leiðari blaðsins á fimmtudaginn var, sem fjallaði um ósigra Saigonstjórnarinnar: héthann „Griðrof kommúnista og hvað læra má af þeim.” Fólk á flótta Eitt af þvi sem þetta meistara- verk móðursýkinnar felur í sér er hin gamla staðhæfing um að Þjóðfrelsishreyfing i Suður-Viet- nam sé ekki annað en litils meg- andi útibú frá heimskommúnism- anum og i þessu tilviki frá Norður-Vietnam. Þetta kemur fram i ummælunum um að það sé „athyglisvert” að „miljónir manna flýja undan hersveitum kommúnista”. Flóttamanna- straumur suður á bóginn á að vera röksemd gegn öðrum lýsing- um um áhrif og vinsældir þeirra sem fram sækja. Um þetta er það að segja, að i fyrsta lagi veit enginn með vissu um það hvort um „miljónir” sé að ræða. Frásagnir af flóttamanna- straumnum hafa menn hingað til séð nær eingöngu i bandariskum blööum, og útskýringar þeirra eru reyndar hvergi nærri svo ein- faldar sem Morgunblaðsins. Það er sagt sem svo, að mjög margir flýi einfaldlega vegna þess að ofboð gripur borgafólk þegar vopnaviðskipti vofa yfir. En auð- vitað eru til þeir sem eru beinir andstæðingar Þjóðfrelsisfylking- arinnar. Herald Tribune lýsir svo þeim, semmestreyndu að komast frá Danang áður en hún féll: „Þetta eru fjölskyldur liðsfor- ingja, lögreglumanna og bisness- manna og efnaðri kaupmenn, kaþólskir menn sem komu að norðan 1954 ... Flestir aðrir ibúar Danang sýnast sáttir við að vera eftir” (seem content to stay). Reyndar er það svo, að sá stuðn- ingur, sem Saigonstjórnir hafa helstan haft til þessa, er stétt- bundinn nokkuð eftir þessum lin- um — og þvi má bæta við að kaþólskir sem komu að norðan, þegar landinu var skipt með Gem farsamkomulagi (sem átti að verða til bráðabirgða) flúðu ekki fyrst og fremst af trúarástæðum, heldur af þvi að hér var um að ræða að miklu leyti hluta borg- ‘arastéttar, sem mjög hafði verið tengdur við franskt forræði 1 Indókina. Menn skulu ekki Prentsmiðjan ÞRYKK Litprentun — offsetprentun Bergstaðastræti 13 Simi 41048 gleyma þvi, að ýmsir þeir herfor- ingjar i Saigon sem Bandarikin hafa stutt á vixl börðust á sinum tima með franska nýlenduhern- um gegn sinni eigin þjóð. Einn slikra var einmitt Thieu forseti, fyrrum atvinnuhermaður hjá frökkum. Sprengjuregn En hræsnin i þessu flótta- mannatali Morgunblaðsins er þá fyrst áberandi, þegar mönnum verður hugsað til hunskrar af- stöðu þess blaðs til þess mann- flótta sem I Indókína hefur orðið til þessa. Við það að flugher Bandarikjanna dembdi miklu meira sprengjumagni á Laos, Kambodju og Suður-Víetnam en féll i allri siðari heimsstyrjöldinni flúðu margir sveitabúar byggðir sinar heldur en að farast svo i napalmeldi engla ljóssins. Enda var til þess ætlast: á herfræði- máli heitir slikur hernaður að „svipta óvininn aðgangi að mann- fólki” eða eitthvað i þá veru. Þetta fólk neyddist til að flýja undir stjórn þeirra sem Banda- rikjamenn héldu I valdastóli með firnalegu vopnamagni og helm- ingi alls bandarisks gjafakorns. Og þegar fólk flýr nú i ofboði I Suður-VIetnam þá er það m.a. vegna þessarar reynslu: þegar svæði hafa reynst á valdi Þjóð- frelsisfylkingar hefur það um leiö þýtt miklar loftárásir á öll byggð ból. Bæði meðan bandariskir sjálfir köstuðu sprengjum og eftir vopnaþléð 1973, þegar Thieu reyndi að nota firnalegan loftflota sinn (um 2000 flugvélar sem Nixon haföi gefið honum) til að hressa upp á pólitiska stöðu slna i landinu. Hlutföll Ef svo Morgunblaðið vill velta fyrir sér pólitiskum styrkleika- hlutföllum i Vietnam, þá er ekki úr vegi að það leggi út af fróðleg- um bandariskum upplýsingum um herstyrk aðila. Saigonherinn taldi fyrir skömmu 850 þúsund manna og hafði m.a. mikinn flug- vélakost. Þjóðfrelsisliðar og sveitir frá Norður-Vietnam voru taldir 300 þúsund. Það lið, sem oft hefur verið færra, hefur sigrað bæði frakka og bandarikjamenn hvað sem hertækni líður, og reka nú allt að þrefalt stærri her I sjó- inn. Sá sem ekki skilur að þetta er ekki hægt án þess að mjög mikill hluti alþýðu leggi þjóðfrelsislið- um lið með óþvinguðum hætti, honum væri sæmst að breiða upp fyrir haus og láta ekki aðra menn verða vitni að heimsku sinni. Griðrofin En samt er ótalið megininntak leiðarans. Það felst I stuttu máli I þvi, að með sókn siöustu daga hafi „kommúnistar” rofið grið, rofið friðarsamningana sem gerðir voru i Paris og þar með svipt Suður-Vietnama „óskoruð- um sjálfsákvörðunarrétti þeirra”. Þessu er svo stillt upp andspænis dyggðum bandarikja- manna sem hafi „staðið við skuldbindingar sinar”. Mikill er andskotinn. Menn þurfa ekki að vera ýkja mikið lesnir i bandariskum heim- ildum (Pentagonskjölum o.fl.) til að vita hver er helstur griðrofi i Indókina. Bandarikin neituðu að undirrita Genfarsamkomulagið um frið I Vletnam til þess að hafa óbundnar hendur að þvi aö hjálpa Diem-klikunni að koma undir sig fótum og þar með koma i veg fyrir þá sameiningu landsins sem þar var gert ráö fyrir. Siðan þá hafa bandariskir ráðamenn hver af öðrum fylgt stefnu, sem bæði hefur kostað miljónir manna lifið og i öðru lagi gert stöðu þeirfa og vina þeirra verri með ári hverju. (Það má færa rök að þvi að ef bandarikjamenn hefðu haft skiln- ing á þvi að þeir gætu ekki komið sér upp „eigin” stjórn I Saigon sæmilega snemma, þá hefðu þeir a.m.k. getað tryggt hlutleysi og „blandað” stjórnarfar i Kam- bodju og Laos. En nú er það úr sögunni: það er stuðningur þeirra við stjörnukuklarann Lon Nol sem hefur búið til það öfluga bandalag þjóðernissinna og kommúnista sem nú er að halda inn I Phnom Penh). Sjálfsákvörðun Gott og vel, meira að segja Morgunblaðið viðurkennir seint og siðarmeir að „deila megi um hernaðarafskipti bandarikja- manna I Vietnam”. Lengra nær skoðun málsins ekki. Siðan er öllum stóryrðum beitt til að skamma „kommúnista” fyrir „griðarof”. 1 þvi samhengi er að sjálfsögðu ekkert minnst á Thieu karlinn. Er þó ekkert algengara en að sjá fréttaskýringar sem þessa hér I blöðum sem taka sig sæmilega alvarlega: „Thieu hef- ur i rikum mæli skapað þá kreppu, sem hann nú er I, með þvi allt frá þvi vopnahléssamningur- inn var gerður 1973 að stefna á það, að ná með árásaraðgerðum eins miklu af landi frá Þjóðfrels- isfylkingunni og unnt væri, án þess að gjóta svo mikið sem auga á þær greinar samningsins sem kváðu á um pólitiska samninga- gerð” (Indókinafréttaritari In- formation, Poul E. Svejstrup). Thieu treysti á bandarisk vopn til sigurs og hunsaði pólitiskar lausnir (viðurkenndi t.d. aldrei þau „þriðju öfl” sem eru með I Parisardæminu) og má af þvi súpa seyðið nú. Þetta kallar Morgunblaðið að svipta þjóð sjálfsákvörðunarrétti. Bandarikin neituðu að styðja þennan sjálfsákvörðunarrétt fyrst 1945 þegar Viet Minh undir forystu Ho Chi Minh leitaði að- stoðar þeirra til að ná rétti viet- nama gegn frökkum. Siðan borg- uðu þau herkostnað franska ný- lenduhersins meðan hann reyndi að bæla niður þennan sjálfs- ákvörðunarrétt. Siðan studdu þau Diem til að koma i veg fyrir kosn- ingar 1956 skv. Parisarsamning- um. Siðan tóku þau þátt I að koma Diem þessum fyrir kattarnef. Siðan hafa þau stutt hvern þann i Saigon sem þau töldu sterkastan, hvað sem leið handtökum á póli- tiskum andstæðingum, bönnum á flokkum og blöðum o.s.frv. Samt eru það Bandarikin sem hafa staðið við skuldbindingar, en kommúnistar hafa framið griðrof — með þvi að steypa stjórn Thieus,sem Morgunblaðið verður þrátt fyrir allt að viðurkenna að sé „imynd spillingar”. Lifi Nato Og svo kemur rúsinan. Sá „lærdómur”, sem leiðari Morgunblaðsins telur að Islend- ingar eigi að draga af harmleikn- um” i Vietnam og svo Kambodju er sá, að þeir eigi að taka þátt i þvi að efla Atlanshafsbandalagiö. Það er að dómi blaðsins „harm- leikur” og „lýðræðið á i vök að verjast i heiminum” vegna þess að gjörónýtar og gjörspilltar fá- mennisstjórnir i Kambodju og Suður-VIetnam eru að falla á eig- in heimsku og glæpaverkum og jafn heimskulegum og glæpsam- legum stuðningi bandarískra hernaðarsinna. Sjaldan hefur Nató verið borðið upp á jafn aum- leg rök fyrir sinni tilveru, og er þá full ástæða til að óska blaðinu og bandalaginu til hamingju með þetta einstæða met. Hitt er svo annað mál að það er grátt gaman islendingum að eiga sér að útbreiddustu blaði svo dæmalaust útskryppi meðal blaða og málgagn þeirra Styrkon- matta er. Arni Bergmann. Byggingarfélag alþyöu Reykjavík AÐALFUNDUR verður haldinn miðvikudaginn 9. þ.m. kl. 20 að Hótel Sögu, átthagasalnum. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. önnur mál STJÓRNIN Minningarathöfn um eiginmann minn Jón Gislason fyrrv. alþingismann, fer fram frá Háteigskirkju þann 8. april kl. 10.30. Jarðsett verður laugard. 12. aprfl frá Þykkvabæjar- klausturskirkju. Athöfnin hefst frá heimili minu Noröur- hjáleigu kl. 13.30. Fyrir mina hönd og annarra vandamanna, Þórunn Pálsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.