Þjóðviljinn - 06.04.1975, Blaðsíða 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6. aprll 1975.
Skipu-
lags-
breyting
Skrif min um kvikmyndir
hér i blaðinu hafa hingað til
verið fólgin í umsögnum um
erlendar kvikmyndir, oft
tengdar ýmsum vandamálum
kvikmyndamarkaðarins.
Framvegis mun ég ekki binda
mig við umsagnir um hinar
fáu athyglisverðu kvikmynd-
ir, sem kunna að berast til
kvikmyndahúsanna hér, held-
ur leita á önnur mið. í stað
gagnrýni mun þetta verða eins
konar kompa, sem flest rúm-
ast i. T.d. munu verða birtir
kaflar um mál kvikmyndar-
innar, kaflar um tæknileg at-
riði kvikmyndagerðar, kaflar
um skipulags- og fjármál
kvikmyndagerðar, kaflar um
sjónvarp, fréttir af innlendri
kvikmyndagerð, ný-jum
myndmiðlum o.fl. Fyrir
bragðið mun þetta kannski
verða laust i reipunum, en
vonandi verður fróðleikurinn
margbreytilegri. Stefnan er
að þættir þessir verði reglu-
lega á sunnudögum.
Tillögur, óskir, spurningar,
skoðanir, fréttir-og kvartanir
frá lesendum eru velkomnar.
Nægir að skrifa:
KVIKMYNDAKOMPAN
Þjóðviljanum,
Skólavörustig 19,
Reykjavik.
Myndskeiö
Myndskeið (hefur stundum
verið kallað skot) er filmubút-
urinn, sem lýsist þegar tökuvél-
in er sett einu sinni af stað og
stöðvuð aftur. I klipptri kvik-
mynd er myndskeið filmubútur,
sem nær frá einni skeytingu til
þeirrar næstu. Myndskeið er ó-
slitin upptaka myndar og
smæsta eining kvikmyndarinn-
ar. Það þjónar sama hlutverki
og orðið i ræðu og riti.
Myndskeið er mislangt eftir
atvikum. Smæsta myndskeið er
einn myndrammi 1/24 úr sek-
úndu og er vart greinanlegt fyr-
ir augað. Samt hefur það verið
notað með árangri i auglýsinga-
myndagerð. t byrjun kvik-
myndagerðar voru kvikmyndir
gjarnan eitt myndskeið, þ.e.a.s.
söguþráðurinn var kvikmynd-
aður frá byrjun til enda án þess
að tökuvélin væri stöðvuð með-
an á upptöku stæði. Klipping var
ekki talin nauðsynleg og filman
sett beint i sýningarvélina eftir
framköllun. Meðallengd mynd-
skeiðs er um það bil tiu sekúnd-
ur. Hentug lengd er undir ýmsu
komin. Viðmynd þarf að standa
lengur en nærmynd, vegna þess
að viðmyndin er flóknari og i
henni er fleira að skoða. Við-
mynd getur verið heil gata með
fólki á gangi, bilum, húsum o.fl.
Nærmynd er til dæmis andlit
manns. Sé hreyfing i mynd-
skeiðinu, þarf það að standa
lengur til þess að áhorfandinn
hafi nægilegan tima til að átta
sig á efni þess. Séu miklar
breytingar i myndskeiðinu,
breytilegt eða flókið umhverfi,
nýjar og nýjar persónur eða si-
breytileg myndstærð, þarf það
að standa lengur. Still kvik-
myndarinnar og hrynjandi hafa
einnig áhrif á lengd mynd-
skeiða.
Að nota löng myndskeið i
kvikmynd krefst að öðru jöfnu
nákvæmari undirbúnings,
vegna þess að þá er nauðsynlegt
að klippa I upptökunni eins og
kallað er. Þá verður hrynjandi
kvikmyndarinnar til i upptök-
unni sjálfri en engu hægt að
breyta með klippingu siðar.
Með þvi að nota fleiri og styttri
myndskeið fást fleiri samsetn-
ingarmöguleikar i klippingunni.
Með hraðri klippingu og stutt-
um myndskeiðum er hægt að
skapa hraða og spennu, en með
löngum myndskeiðum og hægri
klippingu er hægt að tefja at-
burðarásina.
Heilkvöldskvikmyndir eru
allt frá átta myndskeiðum (und-
antekning) upp i eitt þúsund.
Hugsun kvikmyndar verður
til þegar raðað er saman mynd-
skeiðum f klippingunni. Konu-
andlit segir litið eitt sér i nær-
mynd. Nærmynd af likkistu seg-
ir heldur ekki mikið ein sér.
Þessi tvö myndskeið hvert á
eftir öðru gætu hins vegar gefið
til kynna að konan væri ekkja og
i likkistunni lægi látinn eigin-
maður hennar. Viðmynd af
Peter Watkins
krana að hifa bil upp úr á gæti
bent til dauðdaga mannsins i
kistunni. Þannig má halda á-
fram og fá fram hugsun og
efnisþráð, sem er ekki aðeins
samanlagt efni hinna einstöku
myndskeiða, andlit, likkista,
krani að hifa bil, heldur segir
sögu og oftast skemmtilegri en i
þessu dæmi hér.
Edward
Munch
og Peter
Watkins
Sjónvarpsáhorfendum hafa
nýlega verið sýndar nokkrar at-
hyglisverðar kvikmyndir. Fyrst
má nefna AÐ TJALDABAKI 1
VÍETNAM, sem ég var þvi
miður ekki svo lánsamur að sjá.y
Kvikmyndin mun hafa verið á-
gætt framlag um Vietnam-strið-
ið og vönduð að gerð. Liklega
hefur þar verið á ferð sá eini
með vitið i hundrað manna kór
brjálæðinga samanber þarfa
grein Þórarins Eldjárns hér i
blaðinu.
Sýnd var sviðsetning Ingmar
Bergman á TÖFRAFLAUT-
UNNI. En sú sýning hefur hlotið
mikið lof gagnrýnenda og áhorf-
enda i ýmsum löndum og er þar
engu við að bæta.
Siðast en ekki síst má nefna
kvikmyndina um EDWARD
MUNCH eftir Peter Watkins.
Watkins er fyrrverandi heim-
ildamyndamaður og er þekkt-
astur fyrir mynd, sem hann
gerði fyrir breska sjónvarpið,
THE WAR GAME. Upptökuað-
ferðin i þeirri mynd er blanda af
kvikmyndun leikinna atriða,
heimildakvikmyndun, og frétta-
kvikmyndun og lýsir þvi hvern-
ig alþjóðleg kreppa verður til
þess að kjarnorkusprengjum er
varpað á England.
Myndin vakti miklar deilur og
gagnrýni. Hægri pressan ásak-
aði Watkins fyrir að hafa ekki
trú á mannsandanum, vera of
raunsæjan og reka áróður gegn
kjarnorkuvopnum á ruddalegan
hátt. Sýning á myndinni var
ekki leyfð og fyrst eftir að þrýst-
ingi hafði verið beitt á stjórn
breska sjónvarpsins voru leyfð-
ar sýningar á kvikmyndinni en
ekki i sjónvarpinu heldur i kvik-
myndahúsum. Watkins var
hrakinn frá sjónvarpinu en
kvikmyndin er nú taiin vera ein
merkasta heimildakvikmynd
seinustu ára.
Meginhluti kvikmyndarinnar
um Edward Munch er tekin i
nærmyndum og sýnir andlit,
svipbrigði, augngotur og and-
litshreyfingar. Umhverfið
skiptir ekki máli i smáatriðum
en megináherslan er á sam-
bandi persóna og tilfinninga
eins og þær speglast i andlitun-
um. Timinn er leystur upp og
atvikum blandað saman sum-
part i timaröð en þó sifellt verið
að minna á áhrifarik atriði úr
barnæsku. Frásagnarmaðurinn
setur efnið i sögulegt samhengi
og beinir athygli áhorfandans
að aðalatriðum. Athyglisverð er
samvinna Watkins við leikar-
ana. í lok myndarinnar er tekið
fram að leikendur hafi tekið
mikinn þátt i sköpun persón-
anna á þann hátt að breyta þeim
i sina mynd. Árangurinn sýnir
réttmæti þessarar aðferðar,
þótt hún hljóti að vera á kostnað
bókstaflegra staðreynda máls-
ins. Hljóðið er mikil blanda. Há-
vaði af krá, strokur pensils,
samkvæmisblaður og gullkorn
fléttast hvað innan i annað að
þvi er virðist i ruglingslegum
graut. En útkoman er sannfær-
andi og fullnægjandi mynd af
Munch og þeim, sem hann um-
gengst.
Viðbrögð góðra borgara við
Munch og myndum hans vekja
eflaust hlátur þeirra, sem i dag
bregðast eins við heiðarleika i
listum.
Watkins hefur auk þessara
tveggja kvikmynda gert
myndaflokk um merkisatburði i
sögu Bandarikjanna og leiknar
kvikmyndir, PRIVILEGE og
THE GLADIATORS.
Tveir strákar sátu niðri á
bryggju og voru að dorga fyrir
bryggjuufsa. Annar þeirra dró
agnarpinulitinn fisk.
— Þarna varstu heppinn, sagði
hinn. — Hugsaðu þér ef maðkur-
inn hefði nú étið hann.
— Konan min er i alveg
svakalegu skapi núna.
— Svo? Varstu eitthvað að æsa
hana upp?
— Nei, nei. Við sátum bara og
vorum að borða, og ég bað hana
um tvo sósukekki til viðbótar....
Maður nokkur kom á krána
með grindhoraða og veiklulega
meri. Hann stóð og tæmdi ölglasið
sitt, þegar veitingamaðurinn
spurði:
— Hvað er að hestinum þínum,
félagi?
— Svo sem ekkert. Hún hefur
bara verið svo andskoti óheppin.
— Oheppin....? Hesturinn ó-
heppinn?
— Já, sjáðu til. Á hverjúm degi
verð ég að kasta upp á það, hvort
ég á heldur að kaupa hafra handa
Lottu eða ölglas handa mér. Og
siðasta hálfa mánuðinn hefur hún
sko alltaf tapað....
Jónatan var sölumaður og var á
ferðalögum frá mánudagsmorgn-
um til föstudagskvölds.
Þegar hann svo kom heim á
föstudögunum hafði sonur hans,
Þorkell, venjulega safnað heil-
mikilli syndaskýrslu, sem faðir-
inn varð að byrja á að hegna hon-
um fyrir.
Einu sinni var þetta sérlega
slæmt. Pjakkurinn var tekinn ær-
lega i gegn, og þegar hann náði
andanum eftir meðferðina,
hvæsti hann reiðilega:
— Þetta skal ég sko segja hon-
um pabba minum þegar hann
kemur með mjólkina i fyrramál-
ið, það getur þú bölvað þér upp á!
Liðþjálfinn: Eigið þér eldspýt-
ur, 67?
67: Já ætli það ekki.
Liðþjálfinn: Svona svarar mað-
ur ekki yfirmönnum sinum.
Reynum aftur. Eigið þér eldspýt-
ur, 67?
67: Nei.
— Þú ættir heldur að reyna að
halda i mig, Júliana min. Menn
eins og ég vaxa ekki á trjánum.
— Nei, þeir sveifla sér á milli
þeirra.