Þjóðviljinn - 27.04.1975, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 27.04.1975, Blaðsíða 13
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. apríl 1975. Lundúnabréf 13. apríl 1975 frá Silju Aðalsteins- dóttur Silja Aftalsteinsdóttir Um þessar mundir liggja fyrir breska þinginu tvö lagafrumvörp, sem bæði stefna að þvi að vernda þá sem minna mega sin i þessu samfélagi, fólk af öðrum kyn- stofni en hvitum og börn. Siöustu bresku lögin varðandi kynþáttamismunun eru frá árinu 1968. Þau banna mismunun fólks vegna húðlitar eða þjóðernis og gera kleift að berjast gegn aug- ljósri og opinberri mismunun, en vemda fólk ekki gegn dulinni mismunun til dæmis i sambandi við ráðningu i störf. Úr þessu eiga nýju lögin að bæta. „Litaðir” fluttir úr landi A Bretlandi býr geysimargt fólk af öðrum litarhætti en hvit- um. Ekki hef ég neinar tölur um fjölda þeirra, en oft virðíst veg- faranda sem einn af hverjum fimm sem hann mætir sé þel- dökkur eða austurlenskur. Það kann þó að koma til af þvi að margt þetta fólk vinnur áberandi störf. Margir negrar starfa við jámbrautirnar og neðanjarðar- lestirnar svo dæmi sé nefnt, og i strætisvögnum, bæði við akstur og miðasölu. Margt af þessu fólki hefur flust hingað á undanförnum árum, en fjöldi þeirra er fæddur hér og uppalinn. Þessar vikurnar er BBC að sýna leiknar heimildamyndir um þiá illu 18. öld, þegar þrælasalan var stunduð af sem mestu kappi — eins og til að minna fólk á, að negrarnir fóru ekki frá heima- löndum sínum af frjálsum vilja til að byrja með. Þar hefur komið fram, að fyrir árið 1800 voru komnir um 20.000 svertingjar hingað til Bretlands. Það er af- komandi þræls, sem skrifar handrit þáttanna, rithöfundur frá Jamaica. Hann leggur mikla á- herslu á meðferðina á afriku- mönnunum bæöi þegar þeim var smalað nauðugum út úr þorpum sinum og um borð i þrælaskipun- um, og einnig á þá staðreynd að þrælasalan varð undirstaða breska auösins, gerði breta rik- ustu þjóð i heimi um skeið. Grund- völlur virðulegra stofnana eins og t.d. Barclays-bankans mun vera þrælagjöld. Heim ildamynda- flokkurinn heitir Baráttan gegn þrælahaldi, og þótt sú barátta sé löngu unnin, bendir ýmislegt til þess — meðal annars endurskoð- un laganna um kynþáttamisrétti nú — að sú barátta og öll lögin yfirborði ur um og segir „þumalfingur upp ef þú hatar svertingja”. Hún seg- ir að margir gefi þá hið umbeðna merki. Fyrir nokkrum dögum var dæmt i máli manns, sem var á- kærður fyrir að hafa lamið vinnu- félaga sinn illa. Hinn ákærði er negri. Hann sagðist fyrir rétti hafa verið orðinn langleiður og þreyttur á að vera uppnefndur Sambó og öðrum álika gælunöfn- um á vinnustað, og bætti við, að þeir negrar sem með sér ynnu eyddu kaffihléum gjarnan i felum eða á klósettinu vegna linnulausr- ar striðni hvitra samverka- manna. Hann tapaði málinu. Svört fjölskylda á heimili sinu I Bretlandi. leina skiptið sem ég hef gægst undir yfirborðið var ég að kaupa brauð I. bakarii, sem bakar gott brauð. Fyrir utan var fólk að biða eftir strætisvagni, og við glugg- ann á bakariinu stóðu nokkrar unglingastúlkur, dökkar á hör- und, og göntuðust og hlógu. Með- an ég gerði kaup min kom vagn- inn og hópurinn fór upp i hann. „Ósköp er gott að þetta er farið”, sagði afgreiðslukonan, gömul og bogin, illa farin af erfiðisvinnu, á illskiljanlegri lágstéttarmállýsku sinni. „Þetta er ungt og leikur sér”, sagði ég, umburðarlynd miðaldra kona, „svona vorum við lika!” „Ung var ég einu sinni, já,” sagði kerling þá, ,,en ég var aldrei svört”. Það skiptir sjálf- sagt litlu máli þótt ég versli siðan I öðru bakarii, sem ekki bakareins góð brauð. Konan þar hugsar kannski alveg eins, þótt hún hafí ekki fengið tækifæri til að láta það uppi * A sumum sjúkrahúsum er meirihluti hjúkrunarkvenna „litaður” Undir fáguðu Og ef náið er gáð má viða sjá misrétti. Enginn fréttamannanna hjá BBC sjónvarpinu er dökkur á hörund. Raunar sést þar á skermi helst aldrei annað fólk en hvitt, nema sagt sé frá óeirðum svartra unglinga einhvers staðar i bænum — og i poppþáttum þar sem negr- ar eru alltaf meðal helstu skemmtikrafta. Negrum mun ganga afar illa að fá störf i sam- ræmi við menntun sina. Jafnvel háskólamenntaðir negrar fá margir engin störf við sitt hæfi og taka við miðum á brautarstöðv- um til að hafa i sig og á. Bretar gætu gert margt til að uppræta þá fyrirlitningu, sem kemur fram i uppnefnum á vinnustað og stefnu- skrá National Front, með þvi að margt Negrar f Bretlandi sinna allskyns þjónustustörfum, td. við járn- brautarlestir og strætisvagna. HBHBHI sem fylgdu i kjölfar hennar, hafi ekki upprætt fordómana i hugum fólks ennþá. Bretar stæra sig af þvi að þeir séu umburðarlyndir og frjáls- lyndir i kynþáttamálum. Einkum nota þeir hvert tækifæri til að minna bandarikjamenn á það hvað sambúð kynþáttanna sé friðsamlegri hér en þar. í daglegu lifi i þessari borg verður heldur ekki vart við annað yfirleitt en full virðing riki á báða bóga. Þó eru hér opinber stjórnmálasam- tök sem kalla sig National Front og hafa þaö helst á stefnuskrá sinni að hreinsa Bretland af öllu fólki sem ekki er hvitt. Aðalfor- sprakki þess málefnis er að sjálf- sögðu þingmaðurinn Enoch Pow- ell, sem sfðast hélt ræðu málstað sinum til stuðnings fyrir nokkrum vikum hér I grennd viðokkur. Þar lagði hann m.a. ti! að allir „litað- ir” bretar yrðu fluttir nauðungar- flutningum úr landi. Powell braut núgildandi lög i ræðu sinni, en þó mun ekki eiga að höfða mál gegn honum. Ræðan vakti mikla reiði meðai þingmanna og almennings, einkum vegna þess að margir ótt- ast að til óeirða kunni að draga, ef þessum hluta þjóðarinnar er ögr- að i sifellu. Af sömu ástæðu hafa nokkur borgarhverfi bannað National Front að halda útifundi innan sinna hverfasamtaka. ,,En aldrei var ég svört” Undir fáguðu yfirborði býr lika margt, sem aðkomandi fólk sér ekki strax. 1 barnaskólanum á horninu, að sögn heimasætunnar, er það leikur barna að einn geng- sýna það ekki einungis lagalega heldur einnig i verki að þetta fólk sé lika breskir þegnar. Að vernda börn gegn íoreldrum Það er augljóst mál hvers vegna setja þarf lög til verndar minnihlutahópum eins og negr- um. En fyrir hverju eða hverjum þarf að vernda börnin? Viljum við ekki öll vera þeim góð? Það er skemmst frá að segja að þetta nýja lagafrumvarp stefnir að þvi að vernda börn gegn foreldrum sinum og gefa fósturforeldrum meiri rétt yfir börnunum en þeir hafa áður notið, en tugir eða jafn- vel hundruð þúsunda barna eru hér i gæslu eða fóstri hjá öðrum en foreldrum sinum. Einnig munu nýju lögin setja ákveðinn aðila sem sérstakan fulltrúa bamsins, aðila sem eingöngu á þá að hugsa um hag þess og verja málstað þess. Sunnudagur 27. april 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Mér skilst að eitt mál hafi um- fram önnur haft áhrif á tilurð þessa frumvarps. Maria litla Col- well hafði verið i gæslu meiri hluta ævi sinnar og var komin á skólaaldur þegar mamma hennar gifti sig aftur og vildi fá hana til sin. María vildi ekki til hennar fara, en móðirin hafði réttinn sin megin og Maria hlaut að verða undir. Sambúðin við nýjan stjúp- föður og möður sem auðvitað var lika ný var mjög erfið. Maria reyndi að strjúka en fannst og var flutt heim aftur. Nágrannarnir kvörtuðu við yfirvöld um að barn- ið væri barið og mjög liklega van- nært. Af einhverjum orsökum var aldrei athugað hvað væri til i þessum kvörtunum grannanna uns þar kom að allar athuganir urðu óþarfar. Einn daginn barði stjúpfaðir Mariu litlu barnið i hel. Þrjú þúsund barin börn Þessi atburður hefur hrint af stað miklum skýrslugerðum um aðferðir til að koma i veg fyrir að böm séu beitt ofbeldi, og i einni nýlegri skýrslu, sem gerð var sameiginlega fyrir þrjá borgar- hluta, er almenningur hvattur til að fylgjast vel með börnum og til- kynna þegar, ef grunur leikur á að illa sé með þau farið. Félags- ráðgjafar á vegum borgarinnar eiga siðan að vera skyldugir til að rannsaka þegar i stað öll tilfelli, sem tilkynnt eru, ræða þau við lækni og láta aðilann, sem upp- lýsingar gaf, vita strax og árang- ur er kunnur. Og það á umfram allt að taka barnið i gæslu strax og sterkur grunur leikur á of- beldi. Þvf Marla Colwell er ekki ein- stakt dæmi, þvi miður. Sam- kvæmt skýrslum er komið með um þrjú þúsund barin börn, eins og þau eru kölluð, til sjúkrahúsa og lækna hér árlega — og enginn veit hversu mörg börn komast ekki til læknis með meiðsli sin. 1 langflestum tilvikum eru það for- eldrarnir sem berja börnin. Um daginn kom hér fram i útvarps- þætti nafnlaus kona, sem hafði beðið yfirvöld að taka frá sér dóttur sina átta ára, vegna þess að hún var hrædd um að berja bamið einhvern tima of mikið. Hún sagði að það væri merkilegt hvað barnið væri sér trútt. „Þeg- ar hún kom öll örótt og marin i skólann sagði hún kennaranum að hún heföi dottið niður stig- ann”. Hún sagðist ekki treysta sér til að fá barnið til sin aftur þótt læknar segðu að hún væri orðin heil á taugum; hún sagðist halda að barnið væri ennþá i hættu fyrir sér. En það eru ekki allir eins skyn- samir og þessi kona að leita til fé- lagsfræðinga áður en skaðinn er skeöur. Arlega eru um 700 (sjö hundruð) börn drepin af foreldr- um sinum i þessu landi. Það eru nærri þvi tvö börn á dag. Þetta gerist meðal fólks af öllum stétt- um, en algengast er það meðal þeirra sem minnst mega sin, fólks sem er örsnautt, heimilis- laust, atvinnulaust, bjargarlaust i þessum mikla frumskógi heims- borgarinnar. Sumum finnst ef til vill að þeir geti ekki gert börnum sinum stærri greiða en binda endi á lif þeirra. Lopasokkar og föðurland Það væri hægt að bæta við þetta mörgum dæmum, en liklega er nóg komið af hörmulegum upp- talningum i bili og best að snúa sér að veðrinu. Um páskana kom vetur hingað til lands með hriðar- byljum um norðanvert landið og logndrifu hér syðra. Það var kalt og litiö skemmtilegt að sjá snjó- kornin setjast á nýútsprungin laufblöðin d trjánum og páskalilj- ur og túlipana i blóma. Og allir vesalings ferðamennirnir sem hingað komu frá Ameriku, Frakklandi og Þýskalandi, þeir fengu ekki mikið fyrir sinn snúð. Það var helst að þeir reyndu að nota sér leikhúsin, sem vissulega hafa upp á ýmislegt að bjóða hér nú sem endranær. Eftir páska- virkurnar hefur hlýnað i veðri og verið stundum eins og miðsumar á íslandi. Það er lika eins gott, þvi nú á að skipta hverfinu okkar yfir á jarbgas og meðan á skipt- ingunni stendur verður viða eng- inn hiti I húsum. Þá verður gott að eiga islenska lopasokka og föður- land. Silja Aðalsteinsdóttir SAGA FRÁ VÍETNAM Teikning: Ragnar Lár Laug Heine upp ástar- ævintýrum sínum? Heinrich Heine; var mjög varfærinn þegar á hólminn Mathilde Mirat; „sæta feita barnið mitt”. kom Heinrich Heine, það skáld sem flestir islendingar hafa reynt að þýða, orti mikið um ástir og holdsins lystisemd- ir i kvæðum sinum. Sjálfur hafði hann mjög gaman af að halda sig nálægt allskonar kvenfólki og lét bæði i samtöl- um og bréfum mikið af kvenhylli sinni: ,,Ég skrifa þér þessar linur i rúmi lendamikillar vinkonu minnar einn- ar”. Blaðamaður einn I Hamborg, Ru- dolf Leonhardt, hefur nú tekið sér það fyrir hendur að kanna ástalif Heines. Og hann hefur komist að þeirri einkennilegu niðurstöðu, að Heine hefði fundið upp sjálfur þessi ástarævintýri sin. 1 raun hafi sam- band hans við konur verið mjög stirt og Heine veriö mjög hlédrægur þeg- ar til alvöru holdsins kom. Leon- hardt tengir þetta m.a. við það að Heinehafi smitast af syfilis á ungum aldri. Ævisöguhöfundur telur að Heine hafi „elskaö” aðeins eina konu, sem reyndar var hvorki andrik né fögur. Hún hét Mathilde Mirat, þybbin bóndastúlka sem kunni varla að lesa eða skrifa. Hann kynntist henni á út- legðarárum sinum i Paris þegar hún var 19 ára og eftir sjö ára sambúð giftist hann „sinu sæta, feita barni”. En Mathildur reyndist honum mjög vel og hugsaði vel um hann, en hann var hálfblindur og mjög illa haldinn siðustu ár ævinnar. Hún leyfði hon- um að hafa hjá sér unga stúlku, Elise von Krinitz, siöustu ævidaga, en hana kallaöi hið sjúka skáld „siðasta blóm hausts mins”.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.