Þjóðviljinn - 27.04.1975, Blaðsíða 5
Sunnudagur 27. april 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
FORSÍÐU-
MYNDIN
Höfundur forsiöumyndar
Þjóðviljans i dag er Sigrún
Sverrisdóttir textilhönnuður og
kallar hún mynd
sina „Sjálfsákvörðunar-
rétturinn”. Þarf vist enginn að
fara i grafgötur með til hvaða
stórmáls hún þar höfðar.
Sigrún útskrifaðist úr
Myndlista- og handiðaskólanum
1973 og hefursiðan fyrst og fremst
starfað að myndvefnaði einsog
mynd hennar á forsiðunni ber
reyndar nokkurn vott um. Hún
hefur sýnt á sýningu hjá FÍM og
var ein þeirra sem sýndi pólitisk-
an myndvefnað sem vakti sem
mesta athygli á Listsýningu
kvenna i Norræna húsinu i vor i
tilefni kvennaárs.
Réöu sig á
póstinn til
aö stela
Nýlega komst upp um breskan
glæpaflokk, sem hafði fundið upp
aðferð til að komast yfir ránsfeng
að verðmæti um 250 þús. pund
(hátt í 91 milj. i'sl. kr.)
Tveir i flokknum réðu sig i
vinnu hjá póstinum undir
fölskum nöfnum og unnu þar við
sortéringu. Settu þeir nýjar utan-
áskriftir á alla pakka sem virtust
verðmætir. Á miðunum sem þeir
limdu yfir gömlu utanáskriftirnar
voru nöfn annarra i flokknum og
heimilisföngin voru á hús, þar
sem þeir höfðu leigt herbergi i
þessu skyni.
Á þennan hátt náðu þeir um 900
pökkum með fatnaði, stereótækj-
um, ritvélum og öðrum skrif-
stofuvélum áður en upp um þá
komst. Sex náðust og voru
dæmdir til fangelsisvistar i alltað
hálft þriðja ár, en eins er enn
leitað af lögreglunni.
Kaupa íslendingar
mest allra af
gúmístígvélum?
i blöðum frá Helsinki ingu á árinu 1974.
segir frá því, að finnska
fyrirtækið Nokia, sem
framleiðir ýmiskonar skó-
fatnað, hafi í fyrra sett
sölumet á gúmmístígvél-
um og selt alls 2.3 miljónir
para. Þakkaði talsmaður
fyrirtækisins söluaukning-
una, sem nam um 400 þús-
und pörum, mikilli rign-
Nokia flytur út gimmistigvél til
Danmerkur, Sviþjóðar,Noregs og
tslands. Er sérstaklega tekið til
þess i fréttinni, að bara til tslands
hafi útflutningur fyrirtækisins á
gúmmistigvélum numið 100 þús-
und pörum, sem svarar til þess,
að nær annaðhvert mannsbarn
hérlendis kaupi sér stigvél árlega
eða hver maður annaðhvert ár.
Og það finnsk stigvél en væntan
lega eru flutt inn gúmmistigvél
frá fleiri löndum lika?
Hjálpum
stríáshrjáöum
í Indókína
Giró
90002 20002
RAUÐI KROSS
ÍSLANDS
HJÁLPARSTOFNUN
KIRKJUNNAR
Félog með þjálfað starfslið í þjónustu við þig
Sjötíu sinnum
ivíku
Sjötíu sinnum í viku hefja þotur okkar sig til flugs í
áætlunarferð, samkvæmt sumaráætlun til 12 staða
í Evrópu og Bandaríkjunum.
Þessi mikli ferðafjöldi þýðir það, að þú getur ákveðið
ferð til útlanda og farið nær fyrirvaralaust.
En það þarf talsvert til að þetta sé mögulegt. Það
þarf traust starfsfólk og góðan flugvélakost.
Við höfum hvort tveggja. Við höfum 2 Boeing og
3 DC8 þotur, og 1600 starfsmenn, marga með
langa og gifturíka reynslu að baki, í þjónustu okkar,
Starfsfólk okkar hefur ekki aðeins aðsetur á íslandi.
500 þeirra starfa á flugstöðvum og skrifstofum
okkar í 30 stórborgum erlendis.
Hlutverk þess er að greiða götu þína erlendis.
Ætlir þú lengra en leiðanet okkar nær, þá er ekki
þar með sagt að við sleppum alveg af þér hendinni,
þá tekur ferðaþjónusta okkar við, og skipuleggur
framhaldið i samvinnu við flest flugfélög heims, sem
stunda reglubundiö flug, og fjölda hótela.
Þegar þú flýgur með vélum okkar, þar sem reyndir
og þjálfaðir flugmenn halda um stjórnvölinn, og þér
finnst að þú sért að ferðast á áhyggjulausan, þægi-
legan og öruggan hátt, þá veistu aö það er árangur
af samstarfi alls starfsfólks okkar, sem á einn eða
annan hátt hefur lagt hönd á plóginn til þess að svo
mætti verða.
FLUGFÉLAG LOFTLEIDIR
LSLAXDS