Þjóðviljinn - 10.10.1976, Qupperneq 2
2 StÐA — ÞJÓÐVIUINN Sunnudagur 10. október 1976
flf hnífs og skeiáar
Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir
Nýstárlegt
verkstæði
opnað
við Frakka
stíginn
Lita,
sníða
Ennþá er hægt að fá nýtt
grænmeti i verslynum, þótt
sumar tegundir séu nú að verða
fáséðar. En það eru til ýmsar
fleiri aðferðir við að geyma
grænmeti en að frysta það. Ein
aðferðin er að sjóða það niður.
U.K. lét okkur fá nokkrar upp-
skriftir að niðurlögðu grænmeti
og ávöxtum. Til dæmis er hægt
að búa til ágætis ávaxtamauk úr
appelsinum og þurrkuðum abri-
kósum. betta mauk er reyndar
alveg hrátt og geymist þvi ekki
lengi. 1 engri af þessum upp-
skriftum eru rotvarnarefni, og
er þvi nauðsynlegt að þessi mat-
væli séu geymd I góðum ilátum i
kulda — og þau geymast ekki
lengi. Hins vegar er hollara að
nota ekki rotvarnarefni, og séu
þau notuð þá sem minnst af
þeim. Ávaxtamaukið er sem
sagt gert úr hökkuðum appel-
sinum (með berki) aprikósum,
sem hakkaðar eru saman viö og
sykri. Hlutföllin eru u.þ.b. 1 kg
appelsinur á móti 1 pakka af
aprikósum og allt að 1 kg af
sykri (garnan minna). Best er
að geyma ávaxtamaukið I litl-
um ilátum með góðu loki, svo að
ekki þurfi að geyma maukið
nema stutt eftir að búið er að
opna flátið. Þetta er mjög
bragðgott, t.d. á kex. Þá er hægt
að gera svipað mauk úr hökkuð
um, snöggsoðnum tómötum,
sem eru sykraðir og etv. krydd-
aðir dálitið. Slikt tómatmauk er
gott með brauði og ef það er
kryddað og t.d. sett örlitið af
ediki út i er það gott með kjöti
eða fiski. Niðursoðið og súrsað
grænmeti er mjög dýrt i
verslunum, en mörgum finnst
steikin bragðdauf án þess. Hægt
er að snöggsjóða, t.d. gulrætur
og blómkál, brytja það niður
kalt saman við hráan lauk, sól-
selju, græna tómata eða annað
grænmeti. Út á þetta er settur
lögur af vatni, ediki og sykri,
kryddað með piparkornum og
öðru heilu kryddi eftir smekk
(t.d. lárviðarlauf, eða negul-
nöglum). Geymt i loftþéttu iláti
á köldum stað.
Ódýrar
diska-
þurrkur
í Hólagarði i Breiðholti er
verslunin Sigrún, en þar fást nú
ágætar diskaþurrkur („visku-
stykki”) sem Sparnaðarhornið
mælir með. Þær eru úr ind-
verskri bómull, köflóttar og
mjög mjúkar. Litirnir eru
hvitt/rautt, hvitt/gult og
hvítt/blátt og þær láta ekki lit.
Verðið er þó kannski þaö besta
við þær, en stykkið kostar að-
eins 125 krónur.
Og
sauma
Guðrún og Aðalbjörg við sauma.
eftir ósk kaupenda
Við Frakkastíg 12 hef ur
verið opnuð all nýstárleg
verslun, sem jafnframt
er verkstæði, en þar sitja
þær Guðrún Ægisdóttir og
Aðalbjörg Kristjánsdóttir
allan daginn og sauma.
Efnið sem þær nota er
óbleiað léreft og hveiti-
pokar, sem þær síðan lita
með batiklitum eftir ósk
kaupandans og sauma úr
þá flík sem kaupandinn
hefur óskað eftir.
„Ég hef fengist við þetta i
nokkur ár og selt i verslunina
Bimm Bamm og Kúnigúnd. Við
ætluðum reyndar að opna okkar
eigið verkstæði strax i vor en af
þvi gat eTiki orðið fyrr. Við
saumum næstum hvað sem er
eftir pöntun, en leggjum aðalá-
herslu á kjóla, mussur, svuntur,
barnakjóla, slár og pils. Við
munum einnig sauma mussur
fyrir karlmenn.”
„Og ég sé að þið „aplikerið” á
flikurnar?”
„Já, við gerum ýmsar myndir
á þær, ýmist úr sama efni eða úr
mynstruðum bómullarefnum,
Við höfum einnig hug á að vera
með ýmsar aðrar vörur, t.d.
náttserki úr flóneli, húfur, tau-
poka, veggpoka með vösum og
fleira. Við 'verðum eingöngu
með bómullarefni.“
Vöru-
merkingar
Hvernig er með reglugerðina
um merkingu unninnar kjöt-
vöru? Ennþá merkja stórar
verslanir unna kjötvöru með
verðinu einu saman og hvergi er
minnst á innihald, vigt eða dag-
setningu. Var ekki gefinn árs
aðlögunarfrestur sem rann út i
sumar? Þessarar spurningar
spyr 0. J. og við tökum undir.
Hér eru þær stöllur I tveimur kjólum sem þær hafa gert og bak við þær má sjá mussur, tösku, slár og
fleira.
Guörún. „Þó hef ég mikinn hug
á að flytja inn ensku „Liberty”
bómullarefnin og hef ég fengið
leyfi til þess. Þau eru til i ýms-
um mynstrum, smárósótt og
stórmyndstruð, og einnig með
plasthúö (I dúka). Eg ætla að
flytja þau inn strax og við höf-
um bolmagn til þess, en við
þurfum að kaupa inn töluvert
magn strax I fyrstu pöntun.
„Og þið eruö bjartsýnar með
verkstæðið?”
„Já, það hefur að minnsta
kosti verið nóg að gera siðan við
opnuðum, og það virðist vera
þörf fyrir verkstæði, þar sem
fólk getur pantað sér flikur, án
þess að það verði alltof dýrt.
Auðvitað hafa ekki allir smekk
fyrir þessum fötum, en þetta er
eina verkstæðiðsinnar tegundar
hér og það er ekki annað að sjá
en það sé nægur markaður fyrir
þessa vöru okkar” sagði Guðrún
að lokum.
Verkstæöið að Frakkastig 12
er opið frá 10-12 og 1-6 virka
daga og frá 10-12 á laugardög-
um.
„Saumið þið eingöngu eftir
pöntunum?”
„Að mestu. Afgreiöslufrest-
urinn er 1-2 vikur eftir þvi
hversu mikið er að gera og
hversu seinunnin flikin er. Við
litum öll efnin heima hjá okkur.
en það er býsna seinlegt. Litirn-
ir sem úr er að velja eru margir,
en mest er notað af svörtu,
brúnu, bláu og ljósbrúnu sem
grunnlitir. Litirnir þola 40-60 gr.
þvott.”
„Það má bæta þvi við” segir
Aðalbjörg ,3ð við vitum aldrei
nákvæmlega hvernig litirnir
koma út. Þess vegna er alltaf
mjög spennandi að lita. Þeir
dreifast misjafnlega I efninu og
það verður svolitið „skýjað”.
„Hvað kostar svo fllkurnar
hjá ykkur?”
„Við reynum að vera sann-
gjarnar i verðlagningunni og
reiknum okkur tímakaup fyrir
vinnuna til viðbótar við efnis-
kostnaðinn. En litirnir eru orðn-
ir mjög dýrir. Siöir kjólar kosta
flestir um 10 þúsund, mussurnar
6-8 þúsund, barnasvuntur 1200-
2000 svo aö dæmi séu nefnd, en
ef mikil „patchwork” vinna er á
flikinni verður hún heldur dýr-
ari.”
„Verðiö þið eingöngu með efni
sem þið litið sjálfar?”
„Já, ég býst viö þvi” svarar
SPARNAÐAR-
HORNIÐ
Úr
grænmeti
og
ávöxtum