Þjóðviljinn - 10.10.1976, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 10.10.1976, Blaðsíða 3
Sunnudagur 10. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Hvað eftir annað eru látnar i ljós áhyggjur af þeirri gifurlegu söfnun upplýsinga um einstakl- inga, sem á sér stað i opinberum stofnunum og svo i einkafyrirtækj- um. í samantekt i vesturþýska vikublað- inu Stern segir á þá leið að opinberir aðilar einir festi að meðaltali um 300 mismunandi upplýs- ingar um hvern borgara landsins á tölvuspólur. Og möguleikarnir eru miklir: i landinu eru nú i gangi um 22.000 meiri- háttár tölvur. Opinberir aðilar hafa upplýs- ingar um fjölskylduástæður (ibúaskrár), bólusetningar og veikindi (heilbrigðiseftirlitið), fjármál (skattstofur), menntun (skólayfirvöld), landeignir, um- ferðabrot osfrv. I tölvumiðstöðv- um dómsmálaráðuneytisins og lögreglunnar eru skráð öll afbrot og refsingar. Og einnig — og það er öllu lakara eru tölvuskráðar allar pólitiskar athafnir og sam- bönd hvers borgara, sem þykja koma nálægt starfsviði stjórn- lagadómstólsins. Hvort sem um er að ræða þátttöku i leyf ðum sem bönnuðum kröfugöngum, itrekað- ar ferðir til landa Austur-Evrópu, eða undirritun skjals gegn striði I Vietnam eða með hjálp til of- sóttra i Chile. Getur þú borgað? Einkafyrirtækin hafa og flækt svotil alla borgara i tölvunet sin. Bankar og sparisjóðir skrásetja tekjur og eignir viðskiptavina sinna. „Samband um aimenna tryggingu lánaviðskipta” i Wies- baden vakir með tölvum sinum yfir skuldasiðferði annars hvers þjóðverja. Og getur gefið lána- stofnunum á augabragði upplýs- ingar um það, hvort viðskiptavin- ur greiði reikninga sina á réttum tima, hvort hann geri sig sekan um yfirdrátt á hlaupareikningi Athugasemdir um tölvunotkun: Þú ert til á bandi.. eða hvort veð hvili á hiiseign hans. Einkastofnanir ýmiskonar safna upplýsingum um það, hver hafi viðskipti við hvern og hve al- varlegs eðlis þau séu. Þessar stofnanir selja og upplýsingar um einkalif og refsingar sem menn hafa sætt áður á lifsleiðinni, einn- ig um fyrnd afbrot Tryggingafélög skiptast á upp- lýsingum um veikindi, hrakföll og sérkenni þeirra sem eru að skipta um tryggingar. Vöruhús sem af- greiða eftir pöntunarskrám safna ekki aðeins heimilisföngum held- ur og upplýsingum um neyslu- venjur kúnnanna, og ferðaskrif- stofur skjóta inn i næstu tölvu ferðavenjum sinna viðskiptavina. I tölvum sem mala i sig upplýs- ingar um starfsfólk fyrirtækja má rekast á heimildir um sjúk- dóma, fóstureyðingar og um gáfnapróf eða hæfnispróf sem viðkomandi hefur gengið undir. Nýir möguleikar Aður fyrr voru slikar upplýs- ingar — að svo miklu leyti sem þeim var safnað — geymdar i hin- um ýmsu handunnu spjaldskrám. Það var ekki fyrr en tölvur komu til sögu að unnt varð að tengja all- ar þessar staðreyndir saman i heildarmynd af persónu, sem hver sá gat fengið á nokkrum sekúndum sem komst að tölvu og kunni með hana að fara. Og þar með er komin upp sú hætta, að upplýsingar um persónur séu not- aðar með allt öðrum hætti en til var ætlast En enda þótt ekki skorti aðvar- anir er verslun með upplýsingar um einstaklinga fullkomlega lög- leyfð. Mörg sveitafélög og ótaldar bæjarstjórnir reyna til að mynda að hressa upp á f járhaginn með þvi að selja ýmsum fyrirtækjum heimilisföng og fylgja með upp- lýsingar um aldur, eignir o.fl. sem t.d. tryggingafyrirtæki telja sér hag af að vita. En lakara er þó, að enginn sýnist tryggður fyr- ir upplýsingastuldi og annarri vafasamri meðhöndlan. Verða mörg dæmi undarleg af þvi, hvernig hægt er að nota tiltölu- lega saklausar upplýsingar tölvu ivafasömum tilgangi. Tölvustjóri einn i stórum þýskum banka hafði þann sið, að láta niður falla brot úr pfennig (eyri) þegar gerðir voru upp vextir við viðskiptavini — þessi brot sem koma i þriðju tölu fyrir aftan kommu þegar reiknað er i mörkum — t.d. 5,676 mörk — færði hann yfir á eigin reikning og kom sér með þessafi reikningskúnst upp hálfri miljón marka. Hver fer með tölvuna? Ekki einu sinni félagsfræðileg- ar kannanir og spurningaskrár eru friðhelgar — enda þótt sá sem þátt tekur i þeim gefi hvorki upp nafn né heimilisfang. Hann gefur hinsvegar upp aldur, kyn, náms- feril og atvinnustétt. Og tölvusér- fræðingar játa, að með þvi að hafa nægilegar samanburðar- staðreyndir við höndina sé hægt að komast að nafni og heimilis- fangi hvers manns sem hefur svarað spurningaskrám af þessu tagi — enda þótt þátttakendur séu fimmtiu þúsundir. Það er þvi ekki að undra þótt félagsfræðingar láti frá sér fara spakmæli sem þessi: tölvan er ekki hættuleg heldur sá sem með hana fer. Og hafa ærna ástæðu til ótta einmitt i þvi góða landi Þýskalandi á þessum tima: þar eru að ganga í gildi lög um ,,til- kynningaskyldu” sem breyta hverri persónu i tólf stafa iykil- tölu fyrir allar 22 þúsundir tölva hins opinbera og einkaaðila. Þetta númerakerfi gerir það tæknilega mögulegt að allar upp- lýsingar sem opinberir aðilar hafa saman safnað um hvern og einn komi saman á augabragði. Og það sem getur þýtt framfarir i leit að glæpamönnum eða hag- ræðingu i stjórnsýslu getur og breytt hverjum og einum i varn- arlausan bút á segulbandi. Þvi að enginn veit hverskonar upplýs- ingar það eru, sem læstar hafa verið i tölvu, né heldur hver gerir það. Enginn hefur minnstu mögu- leika á þvi að leiðrétta þær upp- lýsingar sem hafa verið festar á band um hann. Og enginn getur komið i veg fyrir, að þær upplýs- ingar skili sér áfram til annarra aðila. Og ef menn hafa enga sam- úð með þeim sem réttar upplýs- ingar eru um gefnar þá geta þeir að minnsta kosti grátið með þeim, sem hafa af misskilningi verið skráðir meðlimir i róttæk- um samtökum og komast ekki i sæmilegt starf upp frá þvi, hvorki hjá rikinu né heldur einkaaðilum. Frumvarp Þetta tölvumál var i raun eitt af þvi sem kosið var um i Vestur- Þýskalandi á dögunum. Stjórn sósialdemókrata og frjálslyndra hafði lagt fram frumvarp um verndun einkalifs fyrir tölvu- speglasjónum — i þvi fólst meðal annars að hver maður hefði rétt til að yfirfara þær upplýsingar um hann sem opinberir aðilar hafa fest á spólu, og svo það, að opinberir aðilar séu skuldbundnir til að greina mjög nákvæmlega frá þvi hvers eðlis þær upplýsing- ar eru sem þeir láta af hendi, og koma i veg fyrir endurumfjöllun þeirra til annarra hluta. En bank- ar, iðjuhöldar og vöruhús hafa veist mjög hart að þessum lögum, einmitt vegna þess að þau komi i veg fyrir eða torveldi viðskipti nokkur. VITIÐ ÞIÐ...? ..HVAÐ HÆGT ER AÐ GERA SVAKALEGA góö kaup á Föt m/vestl Stakar terelynebu frá kr. 12.000.— bæöi d-ömu og her Kjólar frá kr. 2.500.— frá kr. 3.000.— Peysur frá kr. 1.200.— Rifflaðar flauelsbu Herraskyrtur frá kr. 1.290.— fra kr. 2.500.— Kápur frá kr. 6.500.— Herra- og dömubc Pilsdragtir frá kr. 6.500.— ! ofsa,e8u urvali Buxna fínflauelspils frá kr' 600 — frá kr. 1.900.— Skór frá kr. 2.500 Allt mjög góöar og nýlegar vörur Látiö ekki happ úr hendi sleppa TÍSKUVERSLUN UNGA FÓLKSINS KARNABÆR Útsölumarkaðurinn, Laugavegi 66, sími 28155

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.