Þjóðviljinn - 10.10.1976, Page 15

Þjóðviljinn - 10.10.1976, Page 15
Sunnudagur 10. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 Umsjón: Þröstur Haraldsson og Freyr Þórarinsson Er ÞOKKABÓT frjáls og óháð? ina aftur og biöja þá að hoppa með pianóið niður. Þetta var i vikunni sem sólin skein og þarna æfðum við fram til 20. júli þegar við fórum i stúdióið. — Og þarna hefur efnið orðiö til? — Já, nema hvað við áttum nokkur lög frá þeim tima þegar við leituöum i ljóðabókum. — Þið hafið semsé leitað i ljóöabókum? — Já, við flettum i bókum og leituöum að fallegum ljóðum til að semja lög við, en sú tið er liðin. Að visu er kvæðið hennar Sollu á Brimnesi undantekning frá þeirri reglu. Leifur sá það hjá vinkonu sinni á Seyðisfirði og þá vildi svo til að gamalt lag sem hann átti féll alveg að þvi með endurtekn- ingum og öllu. Pælingar hefjast En þegar við vorum komnir i húsnæðið fórum við að velta þvi fyrir okkur hvað við ættum að taka fyrir. Menn áttu ýmsa lag- stúfa og hendingar I pokahorn- inu en þegar textagerðin hófst vorum viö óráðnir I hvað um skyldi fjalla. Þetta var á þeim tima sem umræðurnar um leigu fyrir herstöðina voru I algleym- ingi og við vorum flestir á þvi að taka fyrir menningarlegu hlið- ina á veru hersins hér. Við velt- um fyrir okkur áhrifum fjöl- miðla á fólk og jafnvel áhrifum enskrar tungu á islensku. En okkur blöskraði að horfa upp á fólk sem hafði sagt sem svo að við værum i Nató af hugsjóna- ástæðum og ættum þvi ekki að taka neitt fyrir hersetuna, þetta fólk hafði nú margt snúið við blaðinu eftir að landhelgismálið hafði sýnt fram á að bandariski herinn var ekki hér til að vernda okkur, og krafðist nú leigu- gjalds. Við ákváðum þvi að koma inn á hagsmunatengslin, efnahagstengslin, og þá varð textinn um SIS til. Einnig fannst okkur undarlegt þegar fólk tengdi ekkert saman herinn hér og herinn sem var að berjast úti i heimi. Fólk sem er á móti þessum her þegar hann á i striði úti i löndum en þykir voða- alega vænt um hann hérna, ger- ir sér ekki grein fyrir þvi að þetta er sami herinn. — Eruð þið þá að flytja áróð- ur? — Það er búiö að fara dálitiö leiðinlega með þetta orð, áróð- ur. Þetta eru okkar skoðanir. Það kom fram á blaðamanna- fundinum sem við héldum að fulltrúar vissra blaöa virtust fara i vörn af þvi þeir héldu að viö værum að ráðast á lifsskoö- anir þeirra og flytja einhvern eindreginn vinstri áróður. Við erum kannski að ráðast á þessa menn en þetta er engin pólitisk stefnuyfirlýsing islenskra vinstrimanna. Ef þeir eru sömu skoðunar og viö er ekkert nema gott eitt aö segja um þaö. — Sömduð þið við MM um að gefa út plötu gegn hernum? — Nei, viö sömdum bara um að gera plötu sem þeir gæfu út. Við vissum náttúrlega að þeir yrðu eflaust ekkert óhressir yfir þvi að við fjölluðum um herinn. — Beittu þeir ykkur einhverri ritskoðun? — Nei, við lögðum efnið fyrir þá þegar það var tilbúið og þeir gáfu okkur ýmis ráð varðandi hluti i textum sem betur máttu fara, ráö sem við fórum eftir að sumu leyti en ekki að öðru. En þessi ráðgjöf varðaði aðeins formið, ekki innihaldið. Hva, er sölulag á plötunni? — En ef við snúum okkur aö tónlistinni þá sver hún sig að mestu leyti i þjóðlagaættina en stöku sinnum bregður fyrir djassi og rokki. Nú langar okkur að spyrja: völduð þið þessa tón- list af þvi ykkur langaði sjálfa til að flytja hana eða höfðuð þið i huga aö þetta gæti selt plöt- una? — Þessi tónlist er ekki valin, þetta er sú tónlist sem blundar I okkur. Manni gæti skilist á sum- um að það væri hreinlega ekki hægtað semja tónlist án þess að hafa neytandann inni á boröi hjá sér. Þessi plata er orðin til al- gjörlega án tillits til þess hvort einhver vildi kaupa hana. Þetta er bara sú tónlist sem við höfum fram að færa, svo er það annaö mál hvort einhver vill kaupa hana. Við hugsuöum ekki sem svo aö hér væri gott að hafa svolitinn djass af þvi að þessi hópur vildi það eða rokk af þvi einhver annar vildi það. Og óskalagaþáttunum var alger- lega sleppt. Það kom okkur mjög á óvart þegar við vorum að pæla i niöurrööun laganna, þá spuröi Þröstur Ólafsson hvort þaö væri ekki rétt að hafa sölulagið fyrst. Viö urðum alveg gáttaðir, hva, er eitthvað sölu- lag á plötunni? Við erum með heila plötu sem við ætlum að selja, það er ekki meiningin að láta eitthvað eitt lag selja hana — Reynduð þið þá að ná fram einhverjum andblæ I tónlistinni sem fellur að efninu? — Ekki meðvitað. En þegar verið er að meðhöndla lögin i stúdióinu þá kemur alltaf ein- hver stemmning upp, þannig verða td. djasskaflarnir til. Eins þegar við syngjum um Búa og I siöasta laginu á plötunni þegar Eggert syngur um það hvort það sé einhver von, ein- hver glæta. í siðasta viðlaginu kom allt i einu einhver birta, hún kom bara upp meðan hann var aö syngja, varð til á augna- blikinu án þess að það hefði ver- iö hugsaö fyrirfram. Þannig er það meö mestan hluta af tónlist- inni, hún kom innanfrá en var ekki fyrirfram ákveðin. Þjóðlífsmynd — Þið notið ýmsa „effekta” (gott islenskt orð óskast) á plöt- unni? — Já, við fórum td. suður á Völl og ætluðum að ná I hljóðin úr Phantom-þotu, okkur var sagt aö þær hefðu alveg sérstök hljóð. En þær voru þá allar inni i skýli. Þaö höfðu borist fréttir af þvi að rússinn væri kominn iskyggilega nálægt einhverri linu i Norðaustur-Atlantshafinu og þær biðu allar eftir merki um að fara af stað til að reka úr tún- inu. En þarna var „Shooting Star” á flugi svo við fórum upp i flugturn og kváðumst vera kvikmyndatökumenn og værum að taka islenska þjóðlifsmynd, hvort hann vildi ekki fljúga nokkrum sinnum yfir turninn fyrir okkur. Hann tók þvi vel og flaug eftir öllum kúnstarinnar reglum og var bersýnilega mjög ánægöur með að komast á filmu. Svo fórum við i Kvartmilu- klúbbinn og létum spyrna fyrir okkur. Uppi i Aburðarverk- smiðju var okkur tekiö vel. Þeir leiddu okkur um allt hús og kveiktu á vélum sem ekki hafði Framhald á bls. 22 Ingólfur HAUST- KVÖLD í STAPA Klásúlur sjá ástæöu til að hvetja menn til að leggja leiö sina suður i Keflavik annað kvöld, mánudag. Þá efna her- stöðvaandstæðingar til „Haust- kvölds”, menningarvöku meö fjölbreyttri dagskrá. Er ætlunin með þessu að koma herstöðva- andstæöingum og öðrum i rétta stemmningu fyrir landsráð- stefnuna um næstu helgi. A Haustkvöldi kemur fram fjölskrúðugt lið leikara, ljóð- skálda og trúbadúra og les upp, leikur og syngur eigið efni og annarra. Af trúbadúrunum er Megas eflaust þekktastur en margir þekkja vafalaust örn Bjarna- son, Hans Jakob og Kristján Guðlaugsson og félagar hans i Október söngsveitinni hafa viða komið fram á samkomum her- stöðvaandstæðinga og róttækl- inga. Loks ber að nefna Þorlák Mortens sem fáir hafa sennilega heyrt i en klásúlur hafa verið svo lánsamar, og geta kinnroða laust gefiö honum bestu með- mæli. Þarna ætti við að gefast gott tækifæri til að kynna sér helstu frjóangana i islenzkri trúbadúralist. — ÞH Þokkabótarplatan er loksins komin út! NÝ HLJÓMPLATA Strengleikir Laugavegi 18 Símar: 2-42-40 og 1-51-99 Reykjavík. Félagsmenn Máls og menningar fá 15% afslátt af verði í Bókabúð Máls og menningar. Sent gegn póstkröfu um land allt.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.