Þjóðviljinn - 23.11.1976, Page 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 23. nóvember 1976
Armenskur
listiðnaður
Fyrir nokkrum dögum var opn-
uð i skápum kaffistofu Kjarvals-
staða sérkennileg sýning á list-
munum frá Armeniu og er sýning
þessi þáttur af Armeníukynningu
sem MÍR gengst fyrir i þessum
mánuði.
Gripirnir eru bæði eftir
áhugamenn og atvinnumenn á
ýmsum sviðum listrænnar iðju.
Þarna má sjá litlar helgimyndir á
tré, eða myndir i ikonastil, silf-
ursmiði ýmiskonar, keramik,
brúður i þjóðbúningum og tré-
brúður, eirskildi ágæta, sem
mjög eru hafðir á veggjum á
Kákasuslöndum. Þar eru og sér-
kennilegir hagnýtir hlutir eins og
ausur og brauðmót úr tré, enn-
fremur smávefnaður. En að lik-
indum munu mesta athygli vekja
nokkrar þjóðsagnapersónur, lik-
lega dvergakyns, sem Saakjan
hefur gert úr leir.
Fyrir var á veggjum stofunnar
sýning á fimmtán litsterkum ofn-
um myndum eftir armensk skóia-
börn. —áb.
Kjarvalsstaðir:
Kardemommubœrinn á Höjh
Siöastliðinn laugardag frum-
sýndi Leikfélag Hornafjarðar
(L.H.) Kardemommubæinn eftir
Thorbjörn Egner. Leikstjóri var
Sunna Borg, en Ingunn Jensdóttir
æfði dansana og aðstoðaði við
uppsetningu leikritsins. Stjórn-
andi lúðrasveitar var Gunnlaugur
Þ. Höskuldsson og undirleikari
Guðlaug Hestnes. Félagar úr
L.H. gerðu leikmynd.
A frumsýningu var Sindrabær
þéttskipaður eftirvæntingarfull-
um áhorfendum og þeir urðu svo
sannarlega ekki fyrir vonbrigð-
um þvi sýningin tókst vel i alla
staði. Um leiö og þetta er sagt
verður að hafa i huga að Karde-
mommubærinn er hreint ekki
auðvelt sviðsverk, heldur þvert á
móti dæmi um leikrit sem gerir
miklar kröfur i tæknilegu tilliti.
Minnugur sýningar Þjóðleik-
hússins á sama verki hefði undir-
ritaöur að óreyndu haldið að það
væri aðeins á færi atvinnuleik-
húss að mæta þessum kröfum, en
sýning L.H. sannaöi hið gagn-
stæða, skiptingar milli leikmynda
gengu greiölega, samstilling i leik
og söng var yfirleitt ágæt og hóp-
atriöi lifleg og sannfærandi. Þar
nutu yngstu leikendurnir sin i rik-
um mæli, frjálslegar hreyfingar
þeirra og hressilegur söngur setti
sinn svip á sýninguna sem heild.
— í söng og leik reynir ótvirætt
mest á Soffiu frænku, sem leikin
er af Sigrúnu Eiriksdóttur, og
ræningjana nafntoguöu, sem
leiknir eru af Hauki Þorvaldssyni
og bræðrunum Ara og Emil
Þorsteinssonum. Frá sjónarhóli
leikmanns skila þau hlutverkum
sinum með stakri prýði og sama
má yfirleitt segja um þá mörgu
eldri og yngri leikara sem koma
við sögu, en ekki verða taldir hér
upp.
I vandaðri leikskrá, sem gefin
hefur verið út i sambandi við sýn-
inguna, kemur fram að þetta er
22. viðfangsefni L.H., en leik-
félagið hóf göngu sina 1963.
Samkvæmt leikskránni eru aðal-
leikendur i Kardemommubænum
19 talsins, en samtals eru
flytjendur og aðstoðarfólk um 50
Sú tala gefur þó naumast rétta
mynd af þvi hve margir eiga
raunverulega hlut að máli þegar
verið eraðkoma jafn viðamikilli
sýningu á laggirnar hjá áhuga-
mannaleikhúsi i 1200 manna
plássi. 011 sú vinna sem hér er
lögö af mörkum við leik-, söng og
hljómsveitaræfingar, gerö leik-
myndra, búninga og leikskrár,
Gránufélagsgötu 4 • Ráðhústorgl 3
Ml l í: í
\' y- \' í V i'í 1 ]
í /i
Lj’ v % fT% ■’ : Wk í ! i /!
Ræningjarnir meö Ijóninu: F.v. Jesper: Emil Þorsteinsson,Kasper: Haukur Þorvaldsson, Jónatan: Ari
Þorsteinsson og ljónið: Anna Þorstcinsdóttir (systir Ara og Emils.)
verður naumast mæld i smærri
einingum en mannárum. —
Aðgöngumiðar á frumsýningu
seldust á liðlega hálftfma, þannig
að allt bendir til þess að Karde-
mommubærinn eigi eftir að njóta
mikilla vinsælda hér á Höfn i
vetur.
í stjórn L.H. eru nú: Haukur
Þorvaldsson (form.) Erla
Asgeirsdóttir, Kristbjörg Guð-
mundsdóttír, Sigriður
Guðmundsdóttir og Stefán Ólafs-
son. Höfn, 20.11.
Gunnar Guttormsson.
Örar ferðir
til Færeyja
Arið 1963 hóf Flugfélag Is-
lands áætlunarflug milli Islands
og Færeyja og þaðan áfram til
Norðurlanda. Einnig var flogið
milli Færeyja og Glasgow.
Félagið hafði þá i allmörg ár
reynt að fá leyfi danskra yfir-
valda til áætlunarflugs til Fær-
eyja, en án árangurs. Það var
fyrst eftir að Flofelag Föröya
var stofnað af þrem ungum og
áhugasömum færeyingum að
leyfi til flugsins fékkst. 1 fyrstu
var flogíð með Douglas DC-3
flugvélum en frá 1966 me<f
Friendship skrúfuþotum.
Undanfarin sumur hefur
ferðatiðni verið fjórar feröir á
viku milli Islands og Færeyja en
ein ferð yfir veturinn. Nú hefur
stjórn Flugleiða hinsvegar
ákveðið að tvöfalda Færeyja-
flugið yfir veturinn, þ.e. flognar
verða tvær ferðir i viku, á
fimmtudögum og sunnudögum.
Fluginu er þannig hagað að
flogið er frá Reykjavik kl. 10:30
lent á Egilsstöðum og flogið
þaðan til Færeyja. Til Reykja-
vikur er flogið sama dag, sömu-
leiðis með viðkomu á Egils-
stöðum. Flugtiminn milli Egils-
staða og Færeyja er um 1 klst.
og 20 minútur.
Þetta nýja fyrirkomulag gerir
stuttar heimsóknir til Færeyja
mögulegar og ódýrar vegna
þess að samiö hefur verið við
hótel i Færeyjum um sérlega
hagkvæmt gistiverð. Sömuleiöis
fá farþegar frá Færeyjum sem
hingað koma með skrúfuþotum
Flugfélagsins sérstakt gistiverð
i Reykjavik. Með þessum ráö-
stöfunum Flugleiða skapast ný-
ir möguleikar yfir veturinn til
gagnkvæmra heimsókna þess-
ara tveggja frændþjóða.
i i ^Jýr sími Þjóðviljans frá 1. nóvember er 81333