Þjóðviljinn - 23.11.1976, Síða 12

Þjóðviljinn - 23.11.1976, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 23. nóvember 1976 Armenskur listiðnaður Fyrir nokkrum dögum var opn- uð i skápum kaffistofu Kjarvals- staða sérkennileg sýning á list- munum frá Armeniu og er sýning þessi þáttur af Armeníukynningu sem MÍR gengst fyrir i þessum mánuði. Gripirnir eru bæði eftir áhugamenn og atvinnumenn á ýmsum sviðum listrænnar iðju. Þarna má sjá litlar helgimyndir á tré, eða myndir i ikonastil, silf- ursmiði ýmiskonar, keramik, brúður i þjóðbúningum og tré- brúður, eirskildi ágæta, sem mjög eru hafðir á veggjum á Kákasuslöndum. Þar eru og sér- kennilegir hagnýtir hlutir eins og ausur og brauðmót úr tré, enn- fremur smávefnaður. En að lik- indum munu mesta athygli vekja nokkrar þjóðsagnapersónur, lik- lega dvergakyns, sem Saakjan hefur gert úr leir. Fyrir var á veggjum stofunnar sýning á fimmtán litsterkum ofn- um myndum eftir armensk skóia- börn. —áb. Kjarvalsstaðir: Kardemommubœrinn á Höjh Siöastliðinn laugardag frum- sýndi Leikfélag Hornafjarðar (L.H.) Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner. Leikstjóri var Sunna Borg, en Ingunn Jensdóttir æfði dansana og aðstoðaði við uppsetningu leikritsins. Stjórn- andi lúðrasveitar var Gunnlaugur Þ. Höskuldsson og undirleikari Guðlaug Hestnes. Félagar úr L.H. gerðu leikmynd. A frumsýningu var Sindrabær þéttskipaður eftirvæntingarfull- um áhorfendum og þeir urðu svo sannarlega ekki fyrir vonbrigð- um þvi sýningin tókst vel i alla staði. Um leiö og þetta er sagt verður að hafa i huga að Karde- mommubærinn er hreint ekki auðvelt sviðsverk, heldur þvert á móti dæmi um leikrit sem gerir miklar kröfur i tæknilegu tilliti. Minnugur sýningar Þjóðleik- hússins á sama verki hefði undir- ritaöur að óreyndu haldið að það væri aðeins á færi atvinnuleik- húss að mæta þessum kröfum, en sýning L.H. sannaöi hið gagn- stæða, skiptingar milli leikmynda gengu greiölega, samstilling i leik og söng var yfirleitt ágæt og hóp- atriöi lifleg og sannfærandi. Þar nutu yngstu leikendurnir sin i rik- um mæli, frjálslegar hreyfingar þeirra og hressilegur söngur setti sinn svip á sýninguna sem heild. — í söng og leik reynir ótvirætt mest á Soffiu frænku, sem leikin er af Sigrúnu Eiriksdóttur, og ræningjana nafntoguöu, sem leiknir eru af Hauki Þorvaldssyni og bræðrunum Ara og Emil Þorsteinssonum. Frá sjónarhóli leikmanns skila þau hlutverkum sinum með stakri prýði og sama má yfirleitt segja um þá mörgu eldri og yngri leikara sem koma við sögu, en ekki verða taldir hér upp. I vandaðri leikskrá, sem gefin hefur verið út i sambandi við sýn- inguna, kemur fram að þetta er 22. viðfangsefni L.H., en leik- félagið hóf göngu sina 1963. Samkvæmt leikskránni eru aðal- leikendur i Kardemommubænum 19 talsins, en samtals eru flytjendur og aðstoðarfólk um 50 Sú tala gefur þó naumast rétta mynd af þvi hve margir eiga raunverulega hlut að máli þegar verið eraðkoma jafn viðamikilli sýningu á laggirnar hjá áhuga- mannaleikhúsi i 1200 manna plássi. 011 sú vinna sem hér er lögö af mörkum við leik-, söng og hljómsveitaræfingar, gerö leik- myndra, búninga og leikskrár, Gránufélagsgötu 4 • Ráðhústorgl 3 Ml l í: í \' y- \' í V i'í 1 ] í /i Lj’ v % fT% ■’ : Wk í ! i /! Ræningjarnir meö Ijóninu: F.v. Jesper: Emil Þorsteinsson,Kasper: Haukur Þorvaldsson, Jónatan: Ari Þorsteinsson og ljónið: Anna Þorstcinsdóttir (systir Ara og Emils.) verður naumast mæld i smærri einingum en mannárum. — Aðgöngumiðar á frumsýningu seldust á liðlega hálftfma, þannig að allt bendir til þess að Karde- mommubærinn eigi eftir að njóta mikilla vinsælda hér á Höfn i vetur. í stjórn L.H. eru nú: Haukur Þorvaldsson (form.) Erla Asgeirsdóttir, Kristbjörg Guð- mundsdóttír, Sigriður Guðmundsdóttir og Stefán Ólafs- son. Höfn, 20.11. Gunnar Guttormsson. Örar ferðir til Færeyja Arið 1963 hóf Flugfélag Is- lands áætlunarflug milli Islands og Færeyja og þaðan áfram til Norðurlanda. Einnig var flogið milli Færeyja og Glasgow. Félagið hafði þá i allmörg ár reynt að fá leyfi danskra yfir- valda til áætlunarflugs til Fær- eyja, en án árangurs. Það var fyrst eftir að Flofelag Föröya var stofnað af þrem ungum og áhugasömum færeyingum að leyfi til flugsins fékkst. 1 fyrstu var flogíð með Douglas DC-3 flugvélum en frá 1966 me<f Friendship skrúfuþotum. Undanfarin sumur hefur ferðatiðni verið fjórar feröir á viku milli Islands og Færeyja en ein ferð yfir veturinn. Nú hefur stjórn Flugleiða hinsvegar ákveðið að tvöfalda Færeyja- flugið yfir veturinn, þ.e. flognar verða tvær ferðir i viku, á fimmtudögum og sunnudögum. Fluginu er þannig hagað að flogið er frá Reykjavik kl. 10:30 lent á Egilsstöðum og flogið þaðan til Færeyja. Til Reykja- vikur er flogið sama dag, sömu- leiðis með viðkomu á Egils- stöðum. Flugtiminn milli Egils- staða og Færeyja er um 1 klst. og 20 minútur. Þetta nýja fyrirkomulag gerir stuttar heimsóknir til Færeyja mögulegar og ódýrar vegna þess að samiö hefur verið við hótel i Færeyjum um sérlega hagkvæmt gistiverð. Sömuleiöis fá farþegar frá Færeyjum sem hingað koma með skrúfuþotum Flugfélagsins sérstakt gistiverð i Reykjavik. Með þessum ráö- stöfunum Flugleiða skapast ný- ir möguleikar yfir veturinn til gagnkvæmra heimsókna þess- ara tveggja frændþjóða. i i ^Jýr sími Þjóðviljans frá 1. nóvember er 81333

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.