Þjóðviljinn - 13.02.1977, Síða 8

Þjóðviljinn - 13.02.1977, Síða 8
8 — SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. febrúar 1977 Sérstök- menningarmálastefna í nafni flokksins, öreiganna eöa byltingarinnar leiöir á háskalegar villigötur sem mundu væntanlega endaí einangr- andi flokkshyggju eöa bernskri verkalýösstefnu Verkalýðsbarátta Og menningarlrf í þjónustu sósíaIismans siná viðtækum grundvelli, sam- Við sósialistar köllum Al- þýðubandalagið verkalýðsflokk og teljum að hver flokksfélagi hafi skyldum að gegna við verkalýðshreyfinguna. Stund- um orðum við þetta þannig að verkalýðshreyfingin hafi Ivo arma, ..faglegan’’ og pólitiskan, hvorugur geti verið án hins. Þetta orðalag er frá þeim tima þegar samband verkalýðsfélag- anna var eitt með sinum sósial- iska flokki. Það skipulag h&fði ýmsa kosti umfram það sem við nú búum við, samgöngur milli armanna voru væntanlega greiðari þá en þær siðar t;rðu Að öðru leyti er þú goti að búa við sjálfboðaliðiö eitt i póliiisk- um félagsskap, enginn er þar nauðugur né til að leita sins eig- in. Klafi launavinnunnar Hvað felst i þvi að vera skuld- bundinn verkalýðshreyfing- unni? Þaö er skuldbinding um þátttöku i önn dagsins, að- gerðarlaus varaþjónusta við göfugan málstað sé ekki nóg. Það er að hlýða kalli stéttabar- áttunnar eftir þvi sem aóstaba hvers og eins gefur færi á. Þaö er fundvisi á aðalatriöin bakvið hagsmunaárekstra i auðyalds- þjóðfélagi, skilningur á þvi að striðið stendur á milli mann- gildis og peningagildis, mann- hyggju og auð'nyggju. Þaö er liðveisla við hvern þanr. sem auömagnið kúgar og spenn:r fyrir plóg sinn. Þeir aðdar et u margir og iðulega ber ýmislegt á milli um stundarhag. Hlut verk hvers verkalýðsfélags er að samhæfa hagsmunabaráttu þeirra launavinnumanna sem hafa áþekka aðstöðu. Samhæf- ingarhlutverk flokksins ér miklu viðtækara og hefur fleiri fleti, þvi að hann þarf að takast á við auðmagnið um sjálft eðli þjóðfélagsins og tilgang mann- lifsins. Launvinnan sem slik er and- stæða auðmagnsir.s og af þvi fædd, en skilyrt á þann veg aö hún hlýtur sjálf að eodurskapa auðmagnið i sifellu svo lengi sem kerfið stendur. I.aunavinn- an ein er þess megnug að gefa auðmagninu lif, en næringu fær auðmagnið úr miklu fleiri átt- um. Nauðug viljug verðum við öll að leggja fram okkar skerf til uppihalds auðmagninu, en þaö er svo margt sem glepur sýn á samhengið i arðráns- og yfir- ráöaferli þess. Sem vinnuréttarlegur samningsaðili eru verkalýðs samtökin tviátta gagnvart auð- magninu. Annarsvegar eru þau ósættandi byltingarafl sifellt fylkjandi liði til áhlaups á skatt- heimtumenn sins volduga herra. A hinn bóginn eru verka- lýðssamtökin um leiö sáttfús og kerfisþrælkuð vegna þess hvernig þau eru bundin sjálfu launavinnuforminu: frjalsum samningum milli seljenda og kaupenda vörunnar, vinnuaf!. Hvernig á aö vera hægt að ráða niðurlögum auðmagr.sins, sem einmitt lifir á launavinnu, ef hlutverkið er það eitt að nalda -.-..(St'V: fyrirkomulagi launavinnur.nar i horfinu? Hér þarf flokkurinn, hinr. sósialiski verkalýðsflokkur, að koma til skjalanna og ieysa vandann. Hans er aö gera stéttabaráttuna að alhliða sókn gegn auðmagninu og félagsfest- um þess. I þvi sambandi þarf að greina á milli svo margs sem sýnist og þess sem er. Yfirráð auðmagnsins 011 eign sýnist vera af einu og sama taginu, en i reynd hefur kapitalisk eign sérstöðu: hún undirokar vinnu margra i þágu fárra og sviptir fjöldann mögu- leikum til sjálfstæðrar tekju- myndunar. Þannig snýst þvi kapitalisk eign gegn sjálfstæði einstaklingins sem hún þó pris ar I orði. Yfirgnæfandi einstak- lingshagsmunir hvetja þvi til samvinnu og lýðrðislegrar stýr- ingar atvinnulifsins Andsvar auðmagnsins er að brjóta undir sig samvinnuformin og gera hinn „almenna hlut” (res publica) eða rikisvatd lýð- stjórnarinnar að verkfæri sinu til aukinnar drottnunar Ekki að ófyrirsynju er auðmagnið jafn- hliða kallað auðvald, enda er þaö drottnunarsinnað og valda- sjúkt. Hvern þann sem hefur sömu einkenni að þessu leyti á það auðvelt með að gera að þræli sinum. Gegn auðmagninu dugár aðeins hin sanna samvinnuhug- sjón og trú á þeirri sammiðjun lýðræðis sem almenningur hef- ur sifellt vakandi auga með. Ella tekst auðmagninu að snúa efnahagsathöfnum manna til þjónustusemi við sig. Það gerist fyrst og fremst gegnum vöru- formið, en við framrás þess verða æ fleiri þættir i samskipt- um manna ópersónulegir og likt sem væru háðir ófrávikjanlegri reglu náttúrulögmálanna. Meðan sifelldri þenslu markað- arins innávið og útávið þvingar auðmagnið lifsskoðun sinni, peningahyggjunni, uppá fólk, en hana má kalla undirrót allra lasta. t kapphlaupinu um markaðsbundin neyslugæöi vill þaö gleymast að mannlegur vilji getur brotið þá múra sem nú stia fólki sundur og gera menn að hálfum mönnum. Mennska gegn formúiu. Það er bót i máli aö enginn maður lifir auðmagninu einu, þvi þá væri hann ekki lengur maður, heldur vél eða formúla. Þvi skal það ekki fyrirlitið heldur umboriö með skdníngi þegar menn flýja járnaga hinna auðmögnuðu lengsla og leita hugsvölunar í gerviveröld sjálfbirginsskapar eða safn- aðarlifs. Þetta er nefnilega til vitnis um það, hvað fólk á að geta verið móttækilegt fyrir boðskapnum um lausn úr ánauð, sé hann rétt fram borinn og studdur rökum hins daglega lifs. Auðvaldsskipulagið hefur sjálft skapaö mönnum frelsis- þrá og uppreisnar- til að risa gegn þeirri nauðung sem auðmagnið hneppir þá i, hið ytra sem hið innra. Þetta er afdrifarik móthverfa sem svar- ar til andstæðunnar milli launa- vinnu og auðmagns. Sósialísk bylting hvilir á lausn beggja i senn. Af þessum sökum er byltingin okkar siðræn athöfn sem kapitalisminn knýr á um að menn framkvæmi til bjargai mennsku sinni. 011 þjóðfélags- umbrot kosta átök, en sósialisk bylting gerist þegar það kostar meira að sætta sig við þá stööugu byltingu, sem kapitalisminn þvingar upp á okkur, heldur en aö snuast gegn henni á róttækan hátt. Auðvitat sama sig hagsmunum alls al mennings og hafna öllu sérpoti. Þegar fólkið i landinu finnur að rödd flokksins er málsvari at- mannahagsmuna, formælandi þjóðarheildar, þá og þá fyrst tr flokkurinn á réttri leið i hverju máli. Þarmeð er auðvitað ekki sagt að hvert ölduhlé sé lag. Skyndiupphlaup segja litið, þvi hér er ekki tjaldað til einnar nætur. Augljóst er að flokkurinn þarf að vera i framsókn lengi til þess aö veröa eitt með þjóðinni, og má i þvi sambandi lita til for- dæmis frá Italiu. Verðmæta reynslu höfum við sjálf i ýmsum greinum, enginn sannorður vottur gæti borið annað, en að vel hafi tekist að kveikja saman flokksstefnu Alþýöubandalags- ins i landhelgismálum cg þjóðarheill islendinga. Annað dæmi um rétta pólitiska sKil- greiningu er að finna i meðferð flokksins á herstöðvamálinu: bæði alþýðu- og alþjóðarhags- munir krefjast þess að viö rek- um herinn af höndum okkar. Sósialiskur verkalýðsflokkur þarf mjög að varast freistingar flokkshyggjunnar: að verða sjálfur að einskor.ar ,,fag- félagi”. Slikt mundi bæði tor- velda heildstæða stefnumótun og einangra flokkinn frá samtið sinni eftilvill i fortlðardýrkun eða framtiðarórum. Mesta hættan er fólgin i fulinægju þess eru þetta ekki einber skilgrein- ingarvandamál. Siðgæöi sósialismans i framtiðinni fer eftir heilindum sósialista hér og nú. Ef sósialisk umbreyting þjóðfélgasins lýtur ekki vilja meirihlutans og gerist fyrir at- fylgi hans, þá er eitthvað annað á seyði en látið er i veðri vaka, sósialisminn er gufaður upp Flokkúrinn okkar á að vera sósialiskur verkalýðsflokkur. það er vist og satt. En af þvi sem á undan er sagt um eðli auðvaldsþjóðfélagsins og stéttabaráttunnar má ljóst vera að flokkurinn má ekki eltast við frumstætt hagsmunastreð hinna og þessara sérhópa þar sem öll kröfugerð er dæmd út frá óbreyttu þjóðfélagsmóti. Slikt mætti kalla bernska verkaíýðs- stefnu, en sósialismir.n gerð; hana úrelta og útlæga fyrir langa-löngu. Einmitt þess vegna erum við sósialistar að við skynjum, hvernig auðmagnið hefurundirokaðokkuröll og þar með verkalýðsstéttina sem slika Við höfum verið svipt möguleikum til þess þroska sem við eigum heimtingu á og við gætum náð við breyttar þjóöfélagsforsendur. Mælikvaröinn er þjóðin Hér er aðeins eitt til ráða: breyta samfélagsgerðinni i grundvallaratriðum og ekki siður óaflurkallanlega en kapitalisminn gerði á sinum tima. Til þess þarf flokkurinn aö skilgreina byltingarmarkmið viðsnúna eðlis að vera sjálfum sér nægur. Þetta gæti komið fram i viðhorfum til manna og einnig til málefna, svo og til menningarinnar yfirleitt. Vegarnestiö frá Kristni. Þvi hvað er menning annað en það að vera maður með manns eðli, andstætt auömagni og hlutadýrkun vöruformsins? Sérstök menningarmálastefna i nafni flokksins, öreiganna eöa byltingarinnar leiðir á háska- legar villigötur sem mundu væntanlega enda i einangrandi flokkshyggju eða bernskri verkalýðsstefnu. Vitaskuld eru flokksmenn þvi aðeins á réttri leið i þessum efnum að þeir hafi ekki aðra stefnu i menningar- málum en þá sem þjóöinni i heild er samboðin, byggjandi á menningararfinum bæði hér heima og erlendis. Sjónarmiðið hlýtur að vera þetta- menn- ingarverðmætin eru sammann- leg og þau skal gera að al- mannaeign. Var þaö ekki einmitt stefna Kristins Andrés- sonar að aöeins það besta væri nógu gott handa alþýðunni? Einnig á þessu sviöi býr flokk- urinn að góðu veganesti f rá und- anförnum áratugum. En auövit- að dugar ekki fortiöarhyggjan ein í þessu sambandi: menning- infelst ööru fremur í sambúöar- þáttum og i hugarheimi nútíöar- fólks. Allt það er skapar mann- inum sem tegund reisn og veitir Framhald á bls. 22

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.