Þjóðviljinn - 13.02.1977, Qupperneq 17
Sunnudagur 13. febrúar 1977 lJ.)»U\'ll.Jl\'i\ — SU)A — 17
hafa orðið að þola styrjaldir eiga
margar rústir. Þær þjóðir sem
hafa komist hjá ógæfu styrjalda,
hafa eignast rústir einkum vegna
vanmats, þekkingarleysis eða
„skipulagningar”. Þar sem ekki
þurfti að rifa prestsbústaðinn að
Kirkjubæ vegna annarra
bygginga þar á staðnum, verður
að telja að vanmat og þekkingar-
leysi hafi þar orðið örlagavaldar.
Gisli Hallgrimsson skólastjóri á
Hallfreðarstööum var i fyrstu
stjórn Safnastofnunar Austur-
lands 1972, og ætti Gisli að vera
sveitungum sinum til leiðbein-
ingar um að umgangast gamla
hluti og hús með nærfærni. Séra
Fjalar Sigurjónsson á Kálfafells-
stað var einnig i þessari stjórn. og
hefði Gisla þvi verið innan handar
að bjarga fæðingarstað og æsku-
heimili séra Fjalars frá eldinum.
En hvers skyldi vera að vænta af
öðrum, þegarmaðurúr stjórninni
er svo hlutlaus að horfa á prests-
setur sveitarinnar, á næsta bæ,
brennt? Óskiljanlegt er að
Tungumenn skyldu meta Kirku-
bæjarhúsið svo, að jörðin og
moldin geymdi þaö best.
Nú stendur húsgrunnurinn
eftir, með brunaleifum. Rétt væri
að fylla hústóftina með möl og
reisa þar minnismerki um þá
presta er á Kirkjubæ störfuðu og
þjónuðu sókn sinni. En varast ber
notkun jarðýtu á þessum stað, þvi
húsatættur eldri húsa eru þarna
við þar sem húsið stóð áður.
Hverjir ákvarða?
Frá og með heimastjórn 1904 er
yfirstjórn jarðeigna islenska
rikisins falin tveim af þrem ráöu-
neytum, kennslu- og dómsmála-
deild og atvinnu- og sam-
göngudeild. Þetta fyrirkomulag
var endurskoðað i samræmi við
breytingar á ráðuneytum 1936, og
aftur um áramótin 1940-41. Segja
má að jarðeignadeildin eins og
hún birtist okkur nú hafi verið
sett á stofn 1953; þó er gerð
nokkur breyting um fyrirkomu-
lag 1958.
Má nokkuö af þessu sjá aö jarð-
eignir kirkju og rikis hafi verið á
nokkrum þvælingi milli ráðu-
neyta, og hefur það varla leitt til
aukinnar festu i meðferð á þeim.
En hvernig hefur svo verið farið
með þær jarðeignir sem rikið
yfirtók frá kirkjunni? Húsum
margra þessara jaröa hefur verið
haldið illa við, svo húsakostur var
ekki lengur i samræmi við kröfur
timans. Þetta leiddi oft til þess að
þegar ungir prestar sóttu um
sveitaprestaköllin hættu þeir við
er þeim var ljóst hver aöstaða
þeirra yrði. Þetta gerðist á
Kirkjubæ og nú er þetta sama að
gerast i Vallanessókn. Ælta mætti
að ráðuneytið hefði þá stefnu að
láta prestsetrin grotna niður, svo
auðveldara sé að flytja prest-
setrið til næsta þéttbýlis. Þessi
flutningur hefur veikt stórlega
aðstöðu fólksins til búsetu i sveit-
inni, þar sem prestarnir voru
tengdastir fólkinu af embættis-
mönnum og börðust fyrir hags-
munum þess.
Hreinsunareidur
á helgum stað
Verk böðulsins sem vann á
þúfunum forðum var verk sem
leiddi til bóta fyrir ábúanda
jarðarinnar, en verk þess sem
stóð fyrir húsbrunanum er til
tjóns fyrir alda og óboma. Sú
meöferð sem margar kirkjujarðir
hafa fengið eftir að rfkið fékk
yfirráð þeirra, hefur verið fyrir
neðan allt velsæmi i sumum til-
fellum.
Þannig var til dæmis með þá
ágætu jörð Kirkjubæ, þar til
mann bar þar að garði, er vildi
búa þar. Var þá samið viö hinn
væntanlega ábúanda um ,,aö
sjálfur reisti hann útihús á jörð-
inni en leigjandinn — rikið —
kæmi upp ibúðarhúsi. Mátti það
heita vel sloppið fyrir þaö opin-
bera” segir umboðsmaður
kirkjujarða i Lesbók Morgun-
blaðsins 28. nóv. 1976 i grein.
Lagarfoss er fyrir landi Kirkju-
bæjar, og átti Kirkjubær hálfan
vatnsréttinn. Þegar samiö var
um vatnsréttinn viö hið opinbera
var þannig samiö að Kirkjubær
fékk ekki neitt. Kirkjubær er ekki
lengur prestssetur i miöri sókn
þar sem mál sveitarinnar eru
rædd og til lykta leidd. Staðurinn
hefur að vlsu risiö úr ösku og
hefur veriö byggt ibúöarhús úr
Framhald á bls. 22.
Okkur
vantar allar stærðir af
ibúðum og einbýlishús-
um.
Verðmetum
samdægurs.
Opið
alla daga til kl. 10 eftir
hádegi.
Fasteigna-
úrvalið
Silfurteig 1
Sölustjóri:
Auðunn Hermannsson.
Benedikt Björnsson.
Sími
llPP 83000
Kaupid bílmerki
Landverndar
Sagan af
Þuríði for-
manni og
Kambsráns-
mönnum
„Kambsránið er, það ég best
veit, alveg einstæður atburður i
islenskri glæpasögu, og mála-
reksturinn i sambandi við það
einhver hinn mesti og viðtæk-
asti i nokkru sakamáli hér á
landi fyrr og siðar. 1 málinu
voru haldin 52 réttarþing og
vitni leidd úr öllum hreppum
Arnessýslu milli Þjórsár og
Hvitár og þar að auki úr ölfusi.
Rannsóknin stóð yfir nær 11
mánuði og um 30 manns voru
dregnir fyrir dóm”
Þetta segir Guðni Jónsson i for-
mála fyrir sögu Brynjólfs Jóns-
sonar frá Minna-Núpi „Sagan af
Þuriði formanni og Kambs-
ránsmönnum”, sem Helgafell
gaf út árið 1975.
Útgefandi Helgafell
Trésmiöir
Þorraþr-elsskemmtun verður hjá Tré-
smiðafélagi Reykjavikur, laugardaginn
19. febrúar 1977 að Hallveigarstig 1 kl. 20
til 2.
Kalt borð
Kveðskapur
Kvartett
Leikir
Fjöldasöngur
Dans
Miðasala á skrifstofu félagsins þriðjudag-
inn 15. febrúar og miðvikudaginn 16. kl.
18-19. 30. Verð miðans er kr. 2.500.-
Trésmiðafélag Reykjavikur
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i ofna, hreinlætistæki, blöndunartæki,
vatnsiása og ræstivaska i göngudeild Borgarspitalans.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3,
R.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 9. mars
1977, kl. 11.00. fh.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frílcirkjuvegi 3 — Sími 25800
Gólfteppahreinsunin
Hjallabrekku 2
Tek í hreinsun og þurrkun allskonar teppi og
mottur. Fer í heimahús ef óskað er. Símar
41432 og 31044.
Þökkum af hjarta öllum þeim fjölmörgu sem á margvfs-
legan hátt hafa auðsýnt okkur samúð við andlát og útför
Kristjáns Ingólfssonar
fræðslustjóra
Elin óskarsdóttir
Ingólfur Kristjánsson
Ólafur Grimur Kristjánsson
Ingileif Steinunn Kristjánsdóttir
Þorsteinn Baldursson
systkini tengdaforeldrar og aörir vandamenn.
Star
klæðaskápar
Ný sending
Lægra verð
Ný sending af hinum vinsæiu Star klæðaskáp-
um er komin. Star klæðaskápana er auðvelt að
skipuleggja eftir þörfum hvers og eins. Star
skápum er einstaklega gott að halda hreinum
og þeir taka litið rúm um leið og þeir skapa
mikið geymslurými.
Athugið
Einstakir skápar seldir með lækkuðu verði.
Skápar úr viðarliki og viði. Skápar af öllum
stærðum í baðherbergi og þvottahús.
Komið og leitið upplýsinga
BÚSTOFN HF.
Söluskrifstofa í Aðalstræti 9,
Miðbæjarmarkaðinum — Simar 81663 — 81077
Stýrimannafélag
íslands
Heldur félagsfund að Hótel Esju mánu-
daginn 14. febrúar kl. 20.30.
Fundarefni: Kjaramál.
Stjórnin.