Þjóðviljinn - 24.12.1977, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 24.12.1977, Qupperneq 2
ítif . SU'.lt t, /••#.>! S v(i' i ,r 4i '/it'lk i'»' .'iWt. * 2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. desember 1977 AF JÓLAGÆÐUM Nú ríður á að vera voða góður við allt og alla í tilefni dagsins — jákvæður, eins og það er kallað. Ekki vera í f úlu skapi útaf síðustu ráð- stöfunum ríkisstjórnarinnar til að ná aurum í kassann — bjartsýnn, þó að meðölin hækki eitthvað. Hannske þarf ég ekkert á meðölum að halda yfir hátíðarnar. Reyna bara að slappa af og hugsa um jesúbarnið, sem var lagt í jötu lágt, en ríkir nú á himnum hátt, eins og segir í kvæðingu, bjóða hina kinnina, svo að hægt sé að gefa þér á kjaftinn þeim megin líka — í góðu — og ef búið er að löðrunga þig ræki- lega á báða vangana, þá eru þó alltaf rass- kinnarnar eftir. Fagna því að valdhafarnir eru búnir að gera helmingaskipti við félaga- samfök til styrktar vangefnum sem hingað til hafa setið einir að svolitlu tappagjaldi á hverja gosflösku sem selst á afmæli Jesúbarnsins. Þá er ekki úr vegi fyrir ríkis- stjórnina að fá svo sem eins og helminginn af þeim skerf, sem upphaf lega var ætlaður löm- uðum og fötluðum með því að leggja örlítið gjald á hvern eldspítustokk. Það er ástæðu- laust að þeir einir sitji að eldspitnatekjunum, sem búa við líkamleg örkuml, enda er það almannarómur að ríkisstjórnin sé það illa á sig komin núna, að hún sé vel að helminga- skiptum við lamaða og fatlaða komin. í kvöld eiga allir að vera góðir og jákvæðir. Dansa í kríngum jólatréð, syngja blessaða jólasálmana og rifja upp guðspjallið. Ekki fara vitlaust með sálmana og jólaguðspjallið, eins og Stjáni vinur minn baukur, sem var einn aðal heimspekikennari minn vestur i bæ þangað til ég fermdist. Hann söng á jólunum: „Hann var í jötu lagður, lagður lágt en reykir nú á himnum hátt og hellilúka já og já Hann var í jötu lagður, lagður lágt og hellilúka já og já og já". Stjáni baukur kenndi mér líka jólaguðspjall- ið svona: ,,Þá bar svo við, að þrír vitleysingar komu frá Austurlöndum með bull, ergelsi og pirru". Nú er Stjáni baukur dauður og kennir ekki lengur heimspeki, sálma og guðspjöll, en ég orðinn f ullorðinn og fer rétt með f ræðin, þó að mér finnist þau kannske skemmtilegri og skiljanlegri í búningi Stjána. Nú er líka kominn aðfangadagur, búið að loka búðunum, svo ástæðulaust er að vera að ergja sig yfir því hvað það hafi kostað að kaupa í jólamatinn. Ekki þarf að hafa áhyggjur af brennivínsprísunum. Allir brugga. En af því að menn eiga að vera svona ósegjanlega góðir á jólunum, þá er rétt að minna á að bannað er að stelast í bjór eða brennivin á aðfangadagskvöld. Þetta er fyrst og fremst hátíð barnanna, og munið umfram allt að gleyma ekki að muna eftir Jesúbarn- inu, sem fæddist til að f relsa heiminn austur í — eins og sagt er í útvarpinu — Miðjarðar- hafsbotnum fyrir tvöþúsund árum. Eftir því sem Hjálparstofnun kirkjunnar segir okkur, deyja um þessar mundir um áttatíuþúsund manns úr hungri á dag í heiminum bróður- parturinn vist saklaus börn. Vonandi gleymist þessi hryggilega staðreynd í jólagleði og glaumi okkar á afmælisdegi frelsarans. Sum- um finnst e.t.v. að hægt haf i gengið að frelsa heiminn, úr því hann iítur út eins og hann gerir i dag, en á jólunum eigum við öll að líta björt- um augum til framtiðarinnar, halda jólin hátíðleg, gefa gjaf ir, éta og drekka til hátíðar- brigða og fyrir alla muni, „slappa af". Og um leið og ég óska þjóðinni til hamingju með jólin „f yrir mína hönd og annarra vanda- manna", þá ætla ég að fara að sið prestanna og biðja skapara hinins og jarðar að blessa forsetann, fósturjörðina, ríkisstjórnina, lög- g jaf arsamkunduna, atvinnuvegina, en umfram allt mína nánustu. Hinir geta séð um sig. Blessun fósturjarðarinnar mun helgast af þeirri staðreynd að hún er varin af vinum sín- um fyrir óvinunum. Gæfan mun brosa við ríkisstjórninni, þegar hún er búin að ná öllu tappagjaldinu af vangefnum, og máttur mun færast í umsvif hennar þegar eldspítnatollin- um hefur verið náð til fullnustu af lömuðum og fötluðum, en sjúklingar fara að verða með- alaþurfi. Ef til vill mun það verða gæfa Alþingis í framtíðinni að komast til botns í þeim aðsteðjandi vanda, sem islensk réttritun virðist vera. Hallinn á rekstri atvinnuvega getur hvorki talist gæfa né ógæfa, heldur eðli- legt ástand. Að lokum óska ég mér og minum nánustu guðs blessunar og vona að ég persónulega hafi um hátíðarnar nóg að éta og drekka, bita og brenna. Það er þá einum færra í heiminum sem þarf að drepast úr hungri á jólunum. Hvað segir raunar ekki i trúboðssálminum: Ef hrjáir mannkyn garnagól er gott aö messa og messa. Þá mun herrann heims um ból hugga blessa og blessa. Flosi. Kýrin heitir Huppa og mjaltakonan Halla Mjólkurdagsnefnd aug- lýsti eftir tillögum frá börnum og unglingum um gott nafn á íslensku kúna og mjaltakonuna. Er hug- myndin að tengja þessi nöfn sérstöku vörumerki, sem notað hefur verið lítiis háttará mjólkurafurðir, en nú er gert ráð fyrir að nota það i ríkari mæli framveg- is. Samtals bárust 940 tillögur. 1 atkvæðagreiðslu Mjólkurdags- nefndar fékk tillaga með nöfnun- um Huppa og Halla flest atkvæði. Þrir seðlar voru með þessum nöfnum, svo að draga varð um vinningshafa. Upp kom nafn 11 ára stúlku Eydisar S. Einars- dóttur, Fýlshólum 1, Reykjavik. Verðlaun þau, er Eydis hlýtur, er ársnyt úr fyrsta kálfs kvigu á Brúnastöðum i Hraungerðis- hreppi. 1 fjósinu á Brúnastöðum eru þrjár kvigur, sem allar eiga að bera i febrúar. 1 dag, (21. des.), fékk Eydis að velja þá kvigu, sem henni leist best á og að sjálfsögðu var kvigan skirð á stundinni: Huppa. Vonandi reynist Huppa vel, enda varla við öðru að búast, þvi að henni standa miklir kynbóta- gripir. Eydis mun fá senda greiðslu frá Mjólkurbúi Flóamanna mánaðarlega eftir að Huppa ber. Það verður ekkert dregið frá, þótt verðjöfnunargjald verði tekið af mjólkinni, og flutningskostnaður eða sjóðagjöld koma heldur ekki til frádráttar. Þannig að Eydis fær greitt fyrir mjólkina verð- lagsgrundvallarverð, eins og það er á hverjum tima. Fram til 1. mars er það ákveðið kr. 111,16 á litra. Ef Huppa stendur sig vel,þá ætti hún að geta skilað Eydisi allt að 3000 litrum af mjólk yfir mjaltaskeiðið. Allir, sem sendu tillögur að nöfnum á kúna og mjaltakonuna hafa fengið senda gestaþraut frá Mjólkurdagsnefnd, sem þakk- lætisvott fyrir þátttökuna. Gesta- þrautin er með mynd af vöru- merkinu, það er Huppa og Halla, sem á aö raða rétt samaij.' Blaðið óskar Eydisi til ham- ingju með þessa nýstárlegu jóla Buxna tereline,tvibreið,kr. 985.-pr.m. Drillefni(Denin), tvibreið, kr. 695,-pr.m. Kjóla-og blússuefni ,kr. 495.-pr.m. Ullarkápuefni, tvibreið, kr. 1495,- pr.m. Dragtefni, pr jónasilki, Jersey, 20-50% afsláttur Bútar á hálfvirði. Notið tækifærið — Drýgið peningana — Ekki veitir af Metravörudeildin Miðbæjarmarkaðurinn — Aðalstræti 9. Eydfs og Huppa. Eydis og Agúst á Brúnastööum

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.