Þjóðviljinn - 24.12.1977, Síða 3
Sigurður Líndal
Laugardagur 24. desember 1977 I ÞJÓDVILJINN — 8!ÐA l
Víkur úr
BSRB
Eins og menn rekur minni til
skrifaði Siguröur L'indal prófessor
heldur óvinsamlegar greinar um
forystumenn BSRB meðan á
verkfalli opinberra starfsmanna
stóð i haust. Nú er BSRB meö
málarekstur fyrir félagsdómi en
einn af dómendum hans er ein-
mitt Sigurður Lindal prófessor.
Málið sem um ræðir höfðar BSRB
fyrir hönd Félags islenskra sima-
manna á hendur fjármálaráð-
herra vegna túlkunar á kjara
samningi sem varðar rúmfatnað
simamanna sem hafa aðsetur i
vinnuskúrum. Að kröfu BSRB
hefur Sigurður Lindal vikið úr
dómi vegna skrifa hans i haust
um forystumenn BSRB. -GFr
Siguröur Lindal
félagsdómi
að kröfu
BHM mótmælir
nýjum álögum
Bandalag haskólamanna hefúr
sent út eftirfarandi ályktun:
1) Siðustu dagana fyrir jó.li
meðan þjóðin var önnum kafin
við jólaundirbúning voru lögð
fram og samþykkt á alþingi nokk-
ur lagafrumvörp sem fólu i sér
verulega auknar álögur á lands-
menn.
M.a. voru samþykkt iög um
skyldusparnað og ráðstafanir i
rikisfjármálum og vill BHM mót-
mæla þessari nýju skattlagningu.
1 fyrsta lagi eru þessi lög aftur-
virk, þ.e.a.s. hér er um að ræða
skattlagningu á tekjur ársins
1977.
I öðru lagi er hér fyrst og
fremst um að ræða álögur á laun-
þega. Hér er þvi um vaxandi mis-
rétti að ræða meðan undandrátt-
ur tekna er jafnmikill og alkunna
er.
í þriðja lagi eru tekjumörkin of
lág. í þvi sambandi má nefna að
hjón með tvö börn þurfa að greiða
skyidusparnað af mánaðartekj-
um, sem voru hjá hvoru um sig
yfir 144 þús. á mán. og getur það
varla talist hátekjufólk. Hér er oft
um að ræða ungt íólk, sem er að
koma sér upp húsnæði og koma
þessar ráðstafanir illa við það.
í fjóröa lagi hefur nýlega verið
gengið frá kjarasamningum og
skeröa þessar ráöstafanir að
sjálfsögðu þá samninga verulega.
Þar sem hér er um að ræða
bindingu þessa fjár i svo langan
tima eða allt að 6 ár má segja að
þetta sé nær því að vera skattur
en skyldusparnaður. Þá eru ekki
greiddir vextir af þessu fé og
verðbætur eru ekki greiddar fyrir
allt tímabilið. Það fer ekki hjá
þvi að sá grunur læðist að mönn-
um að þetta verði i raun og veru
aldrei endurgreitt, sbr. það
að þegar endurgreiða á skyldu-
sparnaðinn frá 1974 eru sett ný lög
um skyldusaparnað, sem hafa
það I för með sér að flestir þurfa
að greiða margfalt meira I
skyldusparnað á árinu 1978, en
þeir fá endurgreitt.
Loks má benda á að jaðarskatt-
ur er með hækkun sjúkratrygg-
ingagjalda kominn upp I 63%.
Bandalag háskólamanna mót-
mælir einnig harðlega nýjum lög-
um um skyldu lifeyrissjóða til að
verja 40% af ráðstöfunarfé sinu
til kaupa á verðtryggðum skulda-
brefum. Gera má ráð fyrir að
þetta skeröi lánagetu sjóðanna
verulega og hefur þetta þvi óbein
áhrif á kjör launþega. Auk þess er
sllk skerðing á rétti lifeyrissjóð-
anna til aö ráðstafa eigin
fjármagni I meira lagi óeðlileg.
Lífeyris-
sjóður
sjómanna
Lagt hefur verið fram laga-
frumvarp um breytingu á lögum
um llfeyrissjóð sjómanna. Breyt-
ingin samkvæmt frumvarpinu frá
núgiidandi lögum er I þvi fóigin
að samkvæmt frumvarpinu er
heimilt að ávaxta fé sjóðsins mcð
skuldabréfum, tryggðum meö
veði I fasteignum, enda sé veð-
tryggingin innan við 50 hundraös-
hluta af brunabótamati viðkom-
andi fasteignar.
Samkvæmt núgildandi ákvæð-
um er kveðið á um, að skylt sé aö
tryggt sé með 1. veörétti I fast-
eignum, en það hefur haft i för
með sér óþægindi fyrir félaga
sjóðsins. Hafa þeir þurft m.a. að
afla sér ríkisábygðar, ef önnur
lán eru tryggð með 1. veðrétti.
Með þessari lagabreytingu eru
ákvæðin færð til samræmis við
gildandi reglur i flestum llfeyris-
sjóðum.
Flutningsmenn frumvarpsins
eru Pétur Sigurðsson, ólafur G.
Einarsson, Garðar Sigurðsson og
Þórarinn Þórarinsson.
WMIiK
Hefurðu séð MaUbu?
Malibu er nýjasti Chevrolet á markaðinum í minni stærðarflokkunum.
Hann er búinn öllum eftirsóttustu þægindum og aukabúnaði Chevrolets
- á einu verði. Enginn sjálfsagður aukahlutur og lúxusbúnaður undanskilinn
í „standard“ bílnum svo sem: sjálfskipting, aflhemlar, vökvastýri, veltistýri,
litaðar rúður, 8 strokka vél, mælar í stað ljósa, heil grind, styrkt fjöðrun.
f fyrra keyptu fleiri Chevrolet en allar aðrar gerðir amerískra bíla samanlagt:
-og enn kaupa flestir Chevrolet, sem fá sér amerískan þessa dagana.
m& Véladeild
M Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900
Útgerðarfélagið Þorbjörn hf.
sendir öliu sínu starfsfólki á sjó og landi
ásamt Grindvikingum og öllum landsmönnum
bestu jóla- og nýársóskir.
Þakka öll góð samskipti á liðnum árum.
Útgerðarfélagið Þorbjörn hf.
Grindavik
Sendum viðskiptavinum okkar
og lesendum Þjóðviljans
bestu óskir um
Gleðileg jól
og farsœld á komandi ári
VOÐVIIIINN
auglýsingadeild