Þjóðviljinn - 24.12.1977, Qupperneq 13
Laugardagur 24. desember 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Kolbrún les sögu I 3,ÞM
Frá barnaskólanum í Vestmannaeyjum
Hamarsbyggöin er vestast í kaupstaönum á Heimaey. Hér sjást nokkrar nýjar blokkir þar i byggöinni en t.v. er átibú fyrir
yngstu bekkibarnaskólans. Svo miklar eru fjarlægöir orönar eftir gos. í baksýn eru tvö eldfjöll: Eldfell og Helgafell. . /
JOLASTEMMNING
Blaðamaður Þjóðvilj-
ans skaust inn í Barna-
skólann i Vestmannaeyj-
um laugardaginn 17.
desember sl. og þá var
þar komin jólastemning
enda áttu Litlu jólin að
vera daginn eftir. Búið
var að skreyta skólann
háttog lágt og í leikfimis-
sal var Sigurður Rúnar
Jónsson með lokaæfingu
hjá Litla kórnum fyrir
jólin. Sigurður sagði að
tveir kórar væru í skólan-
um. Það væri Stóri kór-
inn/ sem i eru um 80
krakkar, og Litli kórinn
með um 20 krökkum.
1 bekkjunum er lika jóla-
stemning og i staöinn fyrir aö
fara yfir námsefni koma börnin
með gosdrykki og sælgæti, fariö
er i leiki, tendraö kertaljós,
sagöar sögur og sungiö. Viö lit-
um inn i kennslustofu hjá 3.
bekk þar sem Þórarinn
Magnússon kennari ræöur rikj-
um.
Upp á skrifstofu sinnir fræöir
Reynir Guðsteinsson skólastjóri
okkur á aö Litlu jólin á morgun
fari fram meö þeim hætti aö
fyrst sé dagskrá meö ýmsum
skemmtiatriðum, siöan gengiö I
kringum jólatré meö söng og
siðan fari hver bekkur inn i sina
kennslustofu þar sem útbýtaö er
eplum, afhent jólakort og
kvaðst fyrir jólin.
A dagskránni er m.a. leikritiö
Asa, þáttur úr Kardimommu-
bæ, brúðuleikhús og kór. Krakk-
arnir annast öll skemmtiatriöin
sjálf nema jólasveinarnir eru
auövitað fullorönir menn.
Litli kórinn fer lika á ýmsa
staöi i Eyjum svo sem elliheim-
ilið, á sjúkrahúsið og syngur
auk þess i kirkjunni.
Reynir ckólastjóri sagöi aö
Vestmannaeyjar væru nú hlut-
'fallslega miklu meiri barnabær
heldur en var fyrir gos. Aö með-
altali væru um 85 börn i eldri
árgöngum skólans en um 100 I
þeim yngri og i 6 ára deild væri
nú 106.
Annars er bærinn nú kominn
nánast i eölilegt jafnvægi eftir
gosiö en i næsta mánuöi verða 5
ár liöin frá þvi, Reynir sagöi aö
fyrstu tvö árin heföu f jölskyldur
veriö meira og minna tvistraöar
og fólk á faraldsfæti. Þetta heföi
haft sin áhrif á ótta viö nýtt eld-
gos i skólanum en nú væri hann
horfinn.
Vestmannaeyjakaupstaöur
hefur þanist út upp á siðkastið
og nú er starfrækt útibú frá
barnaskólanum fyrir 3 yngstu
aldursflokkanna i Hamars-
byggöinni vestast á eyjunni. Þá
fara aö hefjast byggingarfram-
kvæmdir við nýjan skóla þar i
hverfinu og er áætlað aö fyrsti
áfangi veröi tekinn I notkun áriö
1980. —GFr
Þó aö Ijósmyndarinn fetti sig og bretti lét Litli kórinn þaö engin áhrif Siguröur Rúnar Jónsson tónmenntakennari hefur 700 nemendur I Eyjum. Hér er hann aö æfa Litla
hafa á sig á æfingunni en söng andagtugur undir stjórn Siguröar Rún- kórinn fyrir litlu jólin (Myndir tók GFr).
ars.
Litlu jólin hafin 13.ÞM og eins og sjá má er glatt á hjalia.
Þegar búið er aö tendra kerta- Þrjár yngismeyjar I Litia kórnum.
ljósin og siökkva í loftinu kem-
ur háliðarblær.