Þjóðviljinn - 30.09.1979, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 30. september 1979
DIÚÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
l lgetandi: Otgáfufélag 1'jrtBviljans
f ramkva mdasljori: Eiöur Bergmann
Ititsljorar: Arni Bergmann. Einar Karl Haraldsson.
l'réttastjrtri: Vilborg Haröardrtttir
l msjrtnarmaöur Sunnudagsblaös: Ingrtlfur Margeirsson
Rekstrarstjrtri: Clfar Þormóðsson
Auglvsingastjrtri: Rúnar Skafphéöinsson
Afgreiöslustjrtri: Valþór Hlööversson
Blaöamenn: Alfheiður Ingadóttir. Einar Orn Stefánsson, Guöjrtn
Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdrtttir, Magnús H. Gislason, Sigurdrtr
Sigurdrtrsson.
Erlendar fréttir: Halldrtr Guömundsson.
Iþrrtttafréttamaöur: Ingrtlfur Hannesson.
I.jiismyndir: Einar Karlsson. Leifur Rögnvaldssop
i tlit og hönnun: Guöjrtn Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson.
Ilandrita- og prófarkalestur: Andrea Jrtnsdöttir, Elias Mar.
Saínvöröur: Eyjrtlfur Arnason
Auglýsingar: Sigrföur Hanna Sigurbjörnsdrtttir, Þorgeir Olafsson.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardrtttir, Jrtn Asgeir Sigurösson.
Afgreiösla: Guömundur Steinsson, Kristfn Pétursdrtttir.
Sfmavarsla: ölöf Halldrtrsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdrtttir.
Bflstjrtri: Sigrún Báröardúttir
Húsmrtöir: Jrtna Siguröardrtttir
Pökkun: Anney B Sveinsdrtttir, Halla Pálsdrtttir, Karen Jrtnsdrtttir.
ötkeyrsla:.Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjrtrn, afgreiösla og auglýsingar: Sföumúla 6, Reykjavlk, siml g 13S3.
Prentun: Blaöaprent hf.
r
Obundnar hendur
j
• í annað sinn á fáuni árum hefur dunið yfir miki! og
snögg hækkun á verði olíu. Þetta hef ur valdið all*miklum
búsif jum hjá okkur íslendingum, enda erum við að ýmsu
leyti háðari olíu í búskap okkar en aðrar þjóðir. Hins
vegar er ekki ástæða til að æðrast, og við eigum að geta
aðlagað okkur að núverandi verðlagsstigi, en vonandi
tekst að ná samningum um eitthvað hagstæðari olíukaup
til landsins á næstunni en þau haf a verið um sínn.
• Alkunna er að jarðolía var um nokkra áratugi tiltak-
anlega ódýr vara, og verðsprengingin 1973-74 var raunar
ekki furðuleg, heldur þvert á móti hitt hvað hún kom
seint. Furðulega lengi höfðu fátækar þjóðir Miðaustur-
landa horft á sitt svarta gull renna til auðugra Vestur-
landa án þess að fá það goldið í hlutfalli við verðmæti.
Það var orðin viðurkennd staðreynd að þessar auðlindir
gætu tæmst áður en olíuútf lutningsríkin fengju tækifæri
til að njóta þeirra að neinu leyti.
• OPEC-ríkin notfærðu sér aðstöðu í milliríkjadeilum
fyrir botni Miðjarðarhafs til að knýja á um hina miklu
þækkun fyrir 5-6 árum, og kaupendurnir, olfuhringar
Vesturlanda, sættu sig f Ijótt og vel við hið hækkaða verð-
lag. Þótt undarlegt megi virðast var hér í reynd um
nokkra hagsmunasamstöðu að ræða. Hringarnir höfðu
lengi makað krókinn á ódýrri olíu og notfært sér, bæði
til ágóða og til f járfestingar, hinn gífurlega mun sem
var á hráolíuverði og útsöluverði olíu, en hann var marg-
faldur. Jafnframt gerðu þeir iðnað og samgöngur Vest-
urlarida í æ ríkara mæli háðan olíu, en aðrir ágætir orku-
gjafar eins og kol hopuðu á hæli, og mundu ýmsir segja
nú að það haf i verið helst til snemma. Á meðan ódýra olí-
an ruddi öðrum orkugjöfum úr vegi, sáu hringarnir sér
leik á borði og klófestu ýmsar f ramtíðar orkulindir, svo
sem kolanámur og olíumettuð jarðlög, og fjárfestu í
ýmsum orkurannsóknum, einkum á sviði kjarnorku.
• Því var trúað um skeið að raforka framleidd með
kjarnaklofningi yrði ódýr, en reynslan sýnir annað og
þetta getur hæglega orðið eitt dýrasta orkuformið, amk.
ef öryggis og umhverf isverndar er gætt sem skyldi.
• Olíuhringarnir vissu f ullvel að jarðolían er þverrandi
auðlind, og ýmis olíurík svæði, svo sem á haf sbotni, gætu
ekki nýst nema olía og raunar öll orka hækkaði mjög
verulegá í verði. Hringarnir voru því að bíða eftir tæki-
færi til að skrifa eignir sínar og framleiðsluaðstöðu upp
til hækkunar. Viðskiptavinurinn borgar brúsann, þeas. í
síðasta lið hinn almenni neytandi. Ekkert bendir til ann-
árs én olíuhækkunin í ár hafi orðið við álíka samspil olíu-
útf lutningsríkja og olíuhringa og gerðist við fyrri hækk-
un.
• Við lifum á tímum þegar náttúrulegar tæmanlegar
auðlindir verða æ dýrari. Þetta kemur okkur reyndar til
góða í útf lutningsverðlagi, því að verð á matvælum virð-
ist hækka meir og hraðar en iðnvarningur. Orkuverð er
hátt og því er ekki spáð að það f ari lækkandi.
• Olíudreifingarkerfi Vesturlanda er að langmestu
leyti i höndum sjö auðhringa sem hafa náin innbyrðis
tengsl, og er Exxon (Esso) forystuaðilji þeirra. Meiri-
hluti hreinsunarstöðva eru á vegum þessara hringa, en á
því getur verið nokkur hætta, m.a. vegna hagsmuna-
tengsla við umboðsaðilja hérlendis (Olíufélagið fyrir
Esso, tengt Framsókn, Skeljungur fyrir Shell, tengdur
Sjálfstæðisflokki...). Þetta jöýðir vitanlega ekki að við
eigum að forðast öll olíuinnkaup utan Sovétríkjanna.
meginatriðið er að horft sé til allra átta og verða engum
háður.
• Ef (slendingar bera gæfu til að ástunda þokkalega
hlutleysispólitík gagnvart þeim mörgu og óskyldu aðilj-
um sem bjóða fram hráolíu á OPEC-verði, er ástæðu-
laust að kvíða olíuskorti, og ugglaust finnast utan auð-
hringanetsins ht einsunarstöðvar, sem ekki settu nein
skilyrði fyrir viðskiptum.
• Einhver fráleitasta hugmynd sem sést hef ur er sú að
ísíendingar hleypi erlendri stóriðju inn í landið og selji
henni okkar góða rafmagn, en eigendur hennar greiði
siðan fyrir þvfað við fáum keypta olíu. Við höf um dýra
reynslu af raf orkusölu til útlendinga, en þar að auki væri
þetta að selja sig á vald olíuhringum Vesturlanda ger-
samlega að óþörf u. Kostur okkar er vitanlega sá að nýta
öll ráð, og þau höf um við mörg, til að leysa af hólmi olíu í
búskap okkar, en hafa síðan óbundnar hendur um olíu-
kaup viðs vegar að úr veröldinni.
# úr aimanakinu
Þegar ritari erlendra frétta
litur á fjarritann og fer i gegn-
um fréttaskeytin til aö endur-
segja þau fyrir Isienska lesend-
ur, ber þaö stundum viö aö hann
sér þar fréttir sem snerta hann
á einhvern hátt en ekki er þó
hægt aö setja i blaöiö af þeirri
einföldu ástæöu aö um þetta mál
hefur aldrei veriö fjallaö, þaö er
lesendum alveg ókunnugt, og
þvi réttara aö nota á einhvern
annan hátt þann skika sem
verður afiögu, þegar búiö er aö
mæla út siöur fyrir fþróttafrétt-
ir og aöra lifsnauðsynlega upp-
lýsingastarfsemi af þvi tagi.
Þetta geröist einu sinni sem
oftar fyrir rúmri viku, þegar
Reuter kallinn skýröi frá þvi aö
franski rithöfundurinn Pierre
var hann loks látinn laus eftir
sex ára fangelsisvist.
Meöan Goldman var i fangelsi
skrifaöi hann ævisögu sina,
„Myrkar endurminningar
pólsks Gyðings, sem fæddur er i
Frakklandi”3em kom út 1975 og
vakti fyrst verulega eftirtekt á
honum. Sú bók er mjög heiðar-
legt uppgjör viö fortíöina og
hugleiöingar um stööu hans þá
(en hann haföi þá ekki enn verið
sýknaöur af moröunum). Eftir
aö hann var látinn laus varö
frami hans skjótur, og hann lét
mjög aö sér kveöa. Ariö 1977 gaf
hann út skáldsögu, sem fékk
mjög góöa dóma: „Hversdags-
legar hrakfarir Arkibalds
Rapoport”, og hann skrifaöi '
reglulegar greinar I dagblaöiö
haföi drýgt þann „glæp” í aug-
um fasista aö sleppa undan Aus-
chwitz.
En hver sem ástæöan er má
ekki gleyma þvi aö þessi at-
burður er þvf miöur ekki alveg
einstakur ísinniröð: fasistar af
þvi tagi sem uröu Goldman að
bana hafa aiioft látiö á sér kræla
I Frakklandi og viðar. Fyrir
Fréttir sem hverfa
Goldman heföi veriö myrtur og
væru moröingjarnir félagar i
leynisamtökum sem nefndu sig
„Heiöur lögreglunnar”. Stutt
samtöl viö vinnufélagana
leiddu i ljós aö þessi maöur
haföi aldrei veriö nefndur hér á
landi, og var þá ekki aö sökum
aö spyrja aö margar aðrar
fréttir, sem áttu meira erindi til
lesendanna, uröu aö sitja i fyrir-
rúmi.
Dauöi Pierre Goldmans er þó
mál sem vert er aö ihuga, ekki
sist vegna þess aö af þvi má sitt-
hvaö læra um ástandið i Vestur-
Evrópu nú á dögum og um þá
vitneskju sem tslendingum berst
af þvi. Ferill þessa rithöfundar
er aö mörgu leyti gott dæmi um
þróun róttæklinga af kynslóö-
inni kringum 1968: hann fékk aö
visu miklu meira en sinn skerf
af ruglingi og villuráfi en honum
tókst þó um siöir aö leysa þann
hnút meö miklum glæsibrag.
Pierre Goldman var af pólsk-
um Gyöingaættum, og áriö 1944,
þegar hann fæddist, var faöir
hans virkur félagi i andspyrnu-
hreyfingu Gyöinga i Lyon. Um
tvitugt hóf hann nám i Sorbonne
og gekk jafnframt i stúdenta-
samtök kommúnista, þar sem
hann tók einkum þátt I barátt-
unni gegn samtökum’ fasista,
sem þegar voru farin aö láta á
sér kræla. Hann hætti þó' fljót-
lega námi og lét sig dreyma um
að fara til Suður-Ameriku og
taka þar þátt i skæruliöahreyf-
ingu. Ariö 1968 tókst honum loks
aö komast til Venesúela, en þvi
ævintýri lyktaöi þó þannig aö
hann sat þar fjártán mánuöi i
fangelsi. Þegar hann kom aftur
til Evrópu fór mjög aö siga á
ógæfuhliöina. Hann kunni engan
veginn viö þaö ástand sem rikti i
Frakklandi eftir atburöina 1968
og honum tókst ekki aö fella sig
viö róttæklinga þar, þótt hann
væri eitthvaö i bland viö
trotskista. Siöan leiddist hann
smám saman út i glæpastarf-
semi og framdi þrjú bankarán,
án þess þó að til blóðsúthellinga
kæmi. Aö lokum var hann hand-
tekinn.
En þegar hann kom fyrir rétt I
Paris I desember 1974, var hann
ekki aðeins ákæröur fyrir þessi
rán, sem hann viöurkenndi,
heldur iika fyrir rán i lyfjabúö,
þar sem tvaer konur létu lifiö.
Þessu neitaöi hann harölega,
enda voru sakargiftir á hendur
honum mjög ótraustar, en hann
var samt fundinn sekur og
dæmdur i ævilangt fangelsi. Svo
fór þó aö lokum að máliö var
tekiö upp aftur, og var hann þá
dæmdur i tólf ára fangelsi fyrir
ránin þrjú en algerlega sýknaö-
ur af moröunum. 1 október 1976
„Libération”. Um sama leyti
tók hann sæti i ritnefnd tima-
ritsins „Les Temps Modernes”
sem Sartre gefur út, og þegar
hann var myrtur var hann aö
vinna aö heimspekiriti og jafn-
framt aö handriti aö kvikmynd
um þátt flóttamanna i and-
spyrnuhreyfingunni gegn Þjóð-
verjum.
Ekkí er auövelt aö sjá hvaö
stjórnaöi geröum moröingj-
anna. Samtökin „Heiöur lög-
reglunnar” hafa einu sinni áður
látiö til sin taka þegar þau komu
fyrir sprengju i bifreiö eins af
leiötogum stærstu verklýös-
samtaka Frakklands, CGT, sem
staöiö haföi uppi i hárinu á lög-
reglunni I óeiröum i sambandi
viö launabaráttu. Sagöi þá i
yfirlýsingu þessa leynihóps aö
ætlunin væri sú aö hefna lög-
reglunnar fyrst dómstólarnir
væru svo „huglausir” aö gera
þaö ekki. En hvaö Pierre Gold-
man snertir er erfitt aö sjá
hvort moröingarnir vildu hann
feigan af þvi hann haföi veriö
sýknaöur fyrir morö (sem heföi
getaö kostaö hann dauöadóm),
af þvl hann var róttækur rithöf-
undur, — eöa af þvi hann var
Gyðingur og fjölskylda hans
nokkrum árum var t.d. framið
„bankarán aldarinnar” i Nissa,
og vafðist þaö lengi fyrir lög-
reglunni. En þegar forsprakki
ránsins, Albert nokkur Spagg-
iari, var handtekinn, lýsti hann
þvi yfir aö hann ætti skiliö að fá
sérstaklega ljúfa meöferð, rániö
heföi nefnilega verið „pólitiskt”
og gert I þvi skyni aö afla fjár
fyrir alþjóöa samtökin
„Cátena”, sem væru leynifélag
manna yst til hægri. Spaggiari,
sem var gamall félagi fasista-
samtakanna OAS, slapp siöan
úr fangelsi á ævintýralegan hátt
og hefur ekki spurst til hans siö-
an, enda málið hálfvegis þaggað
niöur. Fleiri slik mál mætti
nefna, t.d. rániö á forstjóra
plötuútgáfu einnar, Fernand
Hazan.
Þessi mál hafa þó ekki vakiö
mikla athygli, vegna þess aö um
þau hefur litiö veriö skrifaö og
þau hafa sjaldan eöa aldrei ver-
iö tekin fyrir i réttu samhengi. I
hvert skipti sem upp koma
glæpamál sem rakin eru til ein-
hverra dularfullra „vinstri-
sinnaðra” samtaka, sem ekkert
er þó vitaö um meö nokkurri
vissu — sist þaö hver er raun-
verulegur litur samtakanna —
eru skrifaöar flennistórar
greinar I blööin, þar sem bland-
ast saman goöafræði og hreinn
skáldskapur. Hins vegar er
dregin hula yfir starfsemi virkra
fasista, jafnvel þótt lögreglan
gómi þá og þeir lýsi verkunum á
hendur sér. óljósar fréttir bár-
ust af þvi aö ránsfengnum frá
Nissa heföi veriö variö til þess
aö reka þjálfunarbúöir á Suöur-
Frakklandi, Italiu eöa Spáni
fyrir ný-fasista, og gætu morö-
ingjar Pierre Goldmans vel ver-
iö komnir úr sllkri útungunar-
stöö. En hætt er viö þvi að þetta
komi seint I ljós,: þaö er eins og
fréttirnar séu samdar I sam-
ræmi viö ákveöna heimsmynd,
sem hefur ekkert rúm fyrir
undirróöur nýfasista. Þessi
heimsmynd mótar viöhorf
manna aö verulegu leyti, þótt
þeir geri sér ekki grein fyrir þvi,
jg viö hana er aö etja þegar
skrifaöar eru erlendar fréttir
iyrir vinstri sinnaö blað.
— e.m.j.
Einar Már
Jónsson
skrifar
— h.