Þjóðviljinn - 27.04.1980, Side 3
Sunnudagur 27. apríl 4980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
FRÉTTASKÝRING
Hvad
er að
Kúbu?
Stjórn Fidels Castro nýtur stuönlngs alls þorra almennings á Kúbu viö framkvæmd byltingarslnnaörar
utanrikisstefnu sinnar.
Þeir atburðir sem
hafa verið að gerast i
Havana siðan i april-
byrjun og enn er ekki
séð fyrir endann á, hafa
valdið ýmsum góðum
vinstrimönnum heila-
brotum. Hvað er eigin-
lega að gerast á Kúbu?
— spyrja menn. íhaldið
er ekki i neinum vand-
ræðum með að útskýra
þetta mál: kommún-
isminn er svo vondur að
fólk flýr hann i stór-
hópum, segja þeir og
hlusta ekki á neinar
útskýringar. Þegar
Ólafur Gislason skrifaði
ágæta grein um þetta
mál i Morgunblaðið 17.
april prjónaði ritstjóri
aftanvið hana og sagði
að það væri „alltof
einföld skýring á fjölda-
flóttanum frá Kúbu að
,, auglýsingameistarar
kapitalismans” hafi
sigrað Fidel Castro og
sovéska rúblusjóðinn
hans.”
Ég tel hinsvegar aö þö sé alltof
einföld skýring að „meiniö sjdlft”
sé þjóðfélagsskipanin á eyjunni,
einsog ritstjóri Morgunblaösins
segir. Ekki er kommúnisma fyrir
aö fara í Mexico, og þó reynir
u.þ.b. ein miljón manns aö flýja
þaöan yfir landamærin til Banda-
rikjanna á hverju einasta ári. Þaö
er enginn kommúnismi á Haiti,
en þaöan flúöu hundruö manna á
bátum til Bandarikjanna rétt um
þaö leyti sem Kúbumennirnir
ruddust irtn á lóö penianska
sendiráösins I Havana. Og þaö er
enginn kommUnismi á Islandi;
samt flýja héöan nokkurhundruö
manns á ári til rikari landa.
NU ætla ég ekki aö halda þvi
framaö máliö séeinfaldlega þaö,
aö sum lönd séu fátækari en
önnur og aö fátækt fólk leiti
þangaö sem rikidæmiö er, þótt
vissulega sé þessi hliö á málinu
fyrir hendi. KUba er fátækt land,
þvi mega menn ekki gleyma, þótt
þar hafi oröiö gifurlegar fram-
fsrir á siöustu tuttugu árum og
landið sé nU óþekkjanlegt frá þvi
sem áöur var.
Stærra mál
En viö skulum byrja á byrjun-
inni. Mál fólksins á sendiráöslóö-
inni er aöeins einn þáttur I miklu
stærra máli. Upphaf þess má
rekja til þess ástands sem skap-
aöist á fyrstu byltingarárunum,
fyrir tæpum 20 árum. Þá tóku
Bandarlkjamenn glaöir og fegnir
viö fólki frá KUbu, enda var þaö
fólk sem þá flUöi efnaö og
menntaö.
Um svipaö leyti hófu Banda-
rikjamenn efnahagslegt striö
gegn KUbu, og var ætlun þeirra aö
svelta byltinguna I hel. Fyrstu
árin var þessi strlösrekstur næsta
opinskár: sendar voru liðssveitir
kúbanskra Utlaga, þjálfaöra af
CIA, til KUbu og varö af þvi bar-
daginn frægi viö Svinaflóa, þegar
kúbönsk alþyða tók hressilega á
móti innrásarliöinu og
gjörsigraöi þaö á tveimur sólar-
hringum. Þá voru teknar upp
aörar aöferöir: skemmdarverka-
starfsemi, sjórán, viðskiptabann
og siöast en ekki sist linnulaus
ártíöur. Þessi áróöur hefur duniö I
eyrum KUbumanna I tvo áratugi I
útvarpi og sjónvarpi og gengur
allur Ut á það, aö KUba sé fanga-
eyja þar sem öfl myrkursins ráöi
og Bandarinin séu gósenland
lýöræöis og frelsis. Komiö til
okkar I sæluna, er boöskapurinn
sem felst i þessum Utvarps- og
sjtínv arpssendingum.
Þótt allur þorri almennings á
KUbu hlæi aö þessum áróöri og
taki af ltfi og sál þátt I þeim rót-
tæku breytingum sem veriö er aö
framkvæma I landi þeirra, gefur
þaö auga leiö aö ekki eru allir
sammála þvi aö þessar breyt-
ingar séu þess viröi aö fórna sér
fyrir þær. Þó nokkuö stór hópur
fólks lætur sig dreyma um þá
„sælu tiö” þegar hægt var aö
valsa um f finum verslunum I
Havana og kaupa þaö sem
hugurinn girntist, ef maöur átti
peninga. Sumt af þessu fólki var
kannski I þeirri aöstööu fyrir
byltingu aö þaö varö aö láta sér
nægja aö dreyma um þessa hluti.
En slikt gleymist. NU hefur þetta
fólk peninga sem þaö getur ekki
eytt, vegna þess aö I verslununum
fást aöeins lífsnauösynjar.
Fari þeir sem fara
vilja
Komiö til okkar! — segir Voice
of America viö þetta ftílk. En
hvaö gerist ef fólkiö tekur
„röddina” alvarlega og sækir um
leyfi til aö fara til sælurikisins?
Þaö hefur frá upphafi veriö ein-
dregin stefna Kúbustjórnar aö
leyfa þeim aö fara Ur landi sem
fara vilja. Margir hafa lika farið.
En Bandaríkjamenn hleypa ekki
hverjum sem er inn I ..sæluna” til
sin. Og þar hefur einmitt
hm'furinn staöiö i kúnni. Fólk
hefur einfaldlega ekki fengiö
vegabréfsáritanir. Hvaö eftir
annaö hafa bandarisk yfirvöld
lokaö algjörlega landamærum
slnum fyrir þeim sem „kjósa
frelsiö”. Þau hafa notaö vega-
bréfsáritanirnar sem vopn i striö-
inu gegn Kúbu. Á sama tima hafa
þau básúnaö út og suöur i nafni
„mannréttinda” aö þaö séu
kúbönsk yfirvöld sem ekki vilji
hleypa fólkinu Ur landi.
Eitt nærtækasta dæmiö um
þetta er mál fanganna, sem
leystir voru Ur haldi á KUbu i
fyrra. Fyrir milligöngu
kúbanskra Utlaga i Bandarikjun-
um var þá geröur samningur
milli KUbu og Bandarikjanna um
aö þeim Ur hópi fanganna sem
þess tískuöu yröi leyft aö fara til
Bandarfkjanna ásamt fjölskyld-
um sinum. KUbumenn stóöu viö
sina hlið samningsins og leystu
3000 fanga Ur haldi. En frammi-
staöa bandariskra yfirvalda var
ekki aö sama skapi drengileg.
Þaö gekk afar treglega aö koma
þessu fólki til „sælurikisins” og
enn stranda öi á þvi sa ma: ba nda-
riskum vegabréfsáritunum. Og
enn léku Bandarikjamenn þann
leik, aö kenna kúbönskum stjórn-
völdum um allt saman.
Þannig mætti lengi telja; dæm-
in um hrokafulla og fjandsam-
lega afstöðu bandarfskra stjórn-
valda til Kúbumanna eru mörg.
Ætti engum aö koma þaö á óvart,
þvl vitaskuld er ástæöan sú aö
ráöamenn I Washington vilja
kúbönsku byltinguna feiga. Þeir
vita sem er, aö fátækar og kúgaö-
ar þjóöir Rómönsku Ameriku lita
á Kúbu sem fordæmi: Kúba tákn-
ar sigur hinna kúguöu og snauöu.
Og þar sem hinir kúguöu og
snauöu sigra, þar eru „banda-
riskir hagsmunir” I hættu.
Ýmsir fréttaskýrendur hafa
haldiö því fram, aö fólksflóttinn
frá Kúbu nU stafaöi af efnahags-
öröugleikum og óánægju meö
utanrikisstefnu KUbustjtírnar.
Þetta má til sanns vegar færa, en
þó varla á þann hátt sem þessir
fréttaskyrendur vilja vera láta.
Efnahagsöröugleikar eru engin
nýjung á KUbu. Hvernig ætti lika
annaö aö vera? Efnahagslif KUbu
var í hrikalegu ástandi fyrir 20
árum, þegar byltingarstjórnin
tók viö völdum. A þessum tveim-
uráratugum hefur landiö veriö aö
risa uppúr eymd og vanþróun. At-
vinnulifiö er orðiö miklu stööugra
og fjölbreyttara en þaö var, um-
talsvérð iönvæöing hefur átt sér
staö, og þtítt sykur sé enn helsta
tekjulind KUbumanna hefur út-
flutningurinn margfaldast á ótal
sviöum.
Mestum og bestum árangri
hafa Kúbumenn þó náö á sviöi
heilbrigöis- og menntamála.
Mætti þar nefna mörg dæmi: tí-
keypis og góö læknisþjónusta
fyriralla, ókeypis menntunfyrir
alla — hvaöa annaö land i
Rómönsku Amerlku getur státaö
af sllku? Vitanlega hefur þetta
ekki veriö mögulegt án mikils
átaks. Þetta hefur m.a. gerst á
kostnaö einkaneyslunnar.
A sama tima og fólkiö sem lifir I
„ameriska draumnum” veröur
aö sætta sig viö aö hafa ekki aö-
gang aö ymsu sem þaö telur eftir-
sóknarvert og veit aö er til i vest-
rænum neysluþjóöfélögum, horfir
þaö upp á stjórnvöld — meö
stuöningi alls þorra 'almennings
— framkvæma byltingarsinnaöa
utanrikisstefnu sina. Þaö horfir
upp á tugi þúsunda landa sinna
bjóöa sig fram sem sjálfboöaliða
til aö berjast viö hliö þjóöfrelsis-
sinna I fátækum löndum Afrfku,
kenna bændum i Nicaragua aö
lesa, lækna sjúka og byggja skóla
I Vietnam svo eitthvaö sé nefnt.
Samtímis veit þetta fólk, aö þessi
stefna KUbumanna er hinum
volduga nágranna þeirra i noröri
mjög á móti skapi og veldur þvi
aö hann heröir enn á efnahags-
strföi sínu gegn Kúbu.
Fólkið á sendiráöslóðinni hefur
vafalaust haft hinar fjölbreytileg-
ustu ástæöur fyrir þvi aö vilja
flytjast úr landi, og vafalaust
hafa sumir þeirra fariö þangaö
vegna þess aö þeir voru hræddir
viö afleiöingarnar af utanrikis-
stefnu Kúbu, og vildu komast
þangaö sem skjólbetra var.
„Byltingin er ekkert teboö” eins-
og kerlingin sagöi. —ih
Norsk húsgagnasýning
Sýnd verða húsgögn frá:
HOVE
M0BLER AS
Opið kl. 2
Skoðið falleg og vönduð húsgögn
Verið velkomin
utgárd
5 í dag
SMIÐJUVEGI6 SIMI44544