Þjóðviljinn - 27.04.1980, Blaðsíða 24
DJODVIUm
Sunnudagur 27. aprfl 1980
Xftalsínii Þjoftviljans er H1333 kl. 9-20 mánudaga til föstudaga.
1 tan þess tlma er hœgt aft ná í blaftamenn og aöra starfsmenn blaösins f þessum símum : Hitstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81285, ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hcgt aö ná f afgreiöslu blaösins islma 81663. Biaöaprent hefur sfma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öli kvöld. 81333 81348 afgreiðslu 81663
naf n *
X
g
3
þ
m
Ingdifur Margeirsson,
rítsjdri Sunnudagsblaösins um
tveggja ára skeiö lætur meö
þessu tölublaöi af störfum
fyrir Þjdöviljann og hverfur til
Noregs. Ingólfur er nafn
vikunnar aö þessu sinni og
hann var fyrst spuröur hvort
hann vaeri aö fiýja landiö,
Þjoöviljann eöa biaöa-
mennskuna!
„Þetta er ekki spurning um
flótta frd einu eöa ööru. Sam-
býliskona mín hyggur á nám I
heimaiandi sinu og þaö þýöir
óhjákvæmilega landflutninga.
Aö sumu leyti er þetta kær-
komiö tækifæri til aö hvfla sig
frá blaöamennskunni, sem er
mjög krefjandi starf. Þil hefur
litinn ti'ma til aö sinna fjöl-
skyldunni og börnunum, hvaö
þá öörum áhugamálum. Nú
tek ég viö heimilinu og sný
mér um leiö aö ýmsum öörum
verkum, sem hafa oröiö
útundan á þessu timabili.”
— Hvernig er aö stýra Ut-
komu biaös eins og Sunnu-
dagsblaösins?
„Þetta er mjög þakklátt
starf, —-ritstjörn vikulegrar
helgarútgáfu er eins konar
draumastarf blaöamannsins.
Þetta ersjálfstæö útgáfa, óháö
ritstjórnarlínu Þjóöviljans,-
útgáfa sem byggir á persónu-
legum vilja og stefnu
ritstjórans. Honum er I sjálfs-
vald sett, hverjir skrifa I
blaöiö og hvaö fer þar inn.
Hins vegar er mikil ábyrgö
þvi samfara aö gefa út slikt
blaö. Sunnudagsblaöiö veröur
aö vera samnefnari fyrir alla
þá sem aöhyllast sósfaliska lifs-
skoöun, en jafnframt aö vera
aögengilegt, — einnig fyrir
pólitiska andstæöinga okkar.
Blaöiö á aö vera upp-
byggjandi, skemmtilegt og
tnlveröugt, þaö á aö vera
gagnrýniö og fjölbreytt.
Hins vegar er sú hefö á
Þjóöviljanum, aö aöeins einn
maöur, ritstjórinn, sinnir
þessari Utgáfu. Þessi hefö
felur I sér hættur, — m.a. þá
hættu aö blaöiö veröi einhæft,
þvi betur sjá augu en auga.
Þessu þarf aö breyta og
ritstjórínn þarf aö fá fasta
samstarfsmenn til aö vinna
blaöiö meö.”
— Hefuröu veriö ánægður
meöbiaöiö þanntlma.sem þú
hefur ritstýrt þvi?
„Ein hættulegasta gildran,
sem einn ritstjóri getur falliö
i, er aö hugsa sem svo, aö nú
sé maöur meö gott Dlaö I
höndunum — sannleikurinn er
sá aö maöur getur alltaf gert
betur, — blaöiö getur alltaf
oröiö skemmtilegra, alltaf
oröiö fjölbreyttara, alltaf
oröiö betra. Slikt hugarfar
verður alltaf aö vera aöal-
atriöi á stefnuskrá
ritstjóra.Þess vegna verö ég
aö svara spurningunni
neitandi.
—AI
Félag isienskra sjúkraþjálfara
á 40 ára afmæli á þessu ári og eru
um 60 sjúkraþjálfarar I féiaginu.
Féiagafjöldinn hefur allt aö þvi
tvöfaldast á s.l. 5 árum. Auk þess
eru starfandi hér á landi I kring-
um 20 erlendir sjúkraþjálfarar.
Flestir munu vera starfandi hér á
höfuöborgarsvæöinu, á Borgar-
spitaianum, Landspftalanum,
Landakotsspitala, hjá Styrktar-
féiagi lamaöra og fatlaöra,
Sjálfsbjörg, Vlfiisstaöaspitala,
Reykjalundi. Einnig er starfandi
sjúkraþjálfari viö öskjuhilöar-
skóla, HHöarskdia og i Kjarvals-
húsi svo eitthvaö sé nefnt. Þá eru
heilsugæslustöðvarnar farnar aö
ráöa til sln sjúkraþjálfara eins og
t.d. Heilsugæslustööin I Arbæ.og
núna um daginn opnaöi einn
sjúkraþjálfari stofu hér I borginni
ása mt endurhæfingalækni, en þaö
er þó ekki mikiö um einkarekstur
hjá sjúkraþjálfurum hér á landi
a.m.k. ekki enn sem komiö er.
Anna Kristín Kristjánsdóttir er
sjúkraþjálfari á Endurhæfingar-
deild LandspitalanS og segir hún
nú frá starfi sjúkraþjálfara þar,
námi og launum, og hún byrjar á
náminu:
— Þangaö til fyrir fjórum ár-
um uröu sjúkraþjáifarar aö sækja
menntun sina út fyrir landstein-
ana. Flestir læröu á Noröurlönd-
um.
Ariö 1976 var stofnuö viö
Háskóla Islands námsbraut i
sjúkraþjálfun. Námiö tekur 4 ár
og lýkur meö BS gráöu I faginu.
Og núna I vor munu fyrstu
sjúkraþjálfararnir útskrifast
þaöan, þaö veröa 15 manns. í
þetta nám komast færri en vilja,
og er um aö ræöa Numerus
clausus ekki þó vegna þess aö
viö viljum ekki aö fjölgi i stétt-
inni, heldur af þvi aö kennsluað-
staöa á þeim stööum sem nemar
hafa veriö teknir er af afar skorn-
um skammti og raunar alls ófull-
nægjandi.
Bíðum úrskurðar
kjaradóms
— Um launin er þaö a ö segja aö
viö rikisstarfsmenn erum i
launafl. 105 hjá BHM og komumst
ekki hærra nema veröa deildar-
og yfirsjúkraþjálfarar en þeir eru
i 106., 107. og 108. fl. Mánaöar-
launin i 105. flokki eru nú kr.
437.740 i 5. þrepi og I fyrsta þrepi
eru þau kr. 381.463. Nokkrir
sjúkraþjálfarar vinna sjálfstætt
og semur Félag fslenskra sjúkra-
þjálfara fyrir þeirra hönd viö
Tryggingastofnun rikisins um
greiöslur.
— Þegar laun okkar voru
ákvöröuö I öndveröu var ætlunin
aö miöa okkur viö aörar háskóla-
menntaöar stéttir meö álíka langt
nám aö baki. Viö lentum i 104.
flokki sem er þremur launaflokk-
um lægra en aörar stéttir meö
sambærilega menntun hafa. Viö
höfum lengi krafist leiöréttingar
á þessu. Fyrir tveimur árum
fengum viö leiöréttingu um einn
flokk og nú biöum viö úrskuröar
kjaradóms en hann fellur
einhvern næstu daga.
Enn meira
niðurgrafm
— Nú segir þú aö kennslu-
aöstaöa sé slæm og þrengsli mikil
á þinum vinnustaö, á þaö viö um
vinnuaöstööu ykkar almennt?
— Hvernig sem á þvi stendur
viröist vera lenska aö koma
endurhæfingardeildum fyrir I
kjöllurum. Þessar vistarverur
eru allajafna of litlar, óhentugar
og standast jafnvel ekki kröfur
heilbr igöiseftirlits um
hollustuhætti á vinnustaö. Hérna
á deildinni er loftræsting t.d. ekki
fullnægjandi og aö mati tækni-
manna er ekki hægt aö gera þar á
bragarbót. Samkvæmt Weeks
áætluninni um endurskipulagn-
ingu á Landspítalalóö er gert ráö
fyrir endurhæfingardeild i nýrri
byggingu sem er sist stærri en sú
aöstaöasem viö höfum hér og enn
meira niöurgrafin og allt aö þvi
gluggalaus.
„Vid þyrftum
naudsynlega
að geta haft í
eftirmeöferd
sjúklinga sem
búið er ad
útskrifa en til
þess þyrfti að
koma á fót
göngudeild og
hún er áreiðan-
lega ekki á
áaetlun
ríkisspítalanna
á þessari öld”
Að fleygja
krónunni
— Bitna þessi þrengsli á
starfinu?
— Mikiö vantar uppá aö
þjónusta endurhæfingardeildar-
innar sé sem skyldi vegna mann-
fæöar og lélegrar vinnuaöstööu.
•- Viö þyrftum nauösynlega aö
geta haft I eftirmeöferö sjúklinga
sem búiö er aö útskrifa,en til þess
þyrfti aö koma á fót göngudeild
oghún er áreiöanlega ekki á áætl-
un rikisspitalanna á þessari öld.
Þó held ég aö þaö sé beinlinis aö
kasta krónunni en spara eyrinn
aö starfrækja ekki göngudeild,
þvi aö viö núverandi aöstæöur
veröum viö iöulega aö halda
sjúklingum lengur á spitala en
þörf væri á ef um eftirmeðferö er
aö ræöa og dagurinn á spítala er
óhemjudýr.
Starfsfólkið
illa haldið
— Hvaöa sjúklingar eru þaö
sem eru i sjúkraþjálfun?
— Endurhæfingardeildin starf-
ar sem þjónustudeild viö all-
ar legudeildir spitalans og þvi er
starf okkar afar margþætt. Viö
sinnum m.a. lungnasjúklingum,
liöagiktarsjúklingum, bæklunar-
sjúklingum, hjartasjúklingum,
langlegusjúklingum, sjúklingum
meö vefræna taugasjúkdóma,
brunasjúklingum og sjúklingum
af barnadeildum spitalans og
fyrirburum og nýburum á vöku-
deild.
— En þaö eru ekki aöeins
sjúklingar i hinni venjulegustu
merkingu orösins sem þurfa á
þjálfun aö halda. Undanfariö hef
ég sinnt starfsfólki spitalans sem
hefur fariömeö sig I hálsi, öxlum
eöa baki.
Eftirspurnin er alveg gifurleg.
Ég heföi aldrei aö óreyndu trúaö
aö starfsfólk spitalans væri
margt svona illa haldiö.
Algengast er aö fólk kvarti um
þaö sem kallaö er vöövabólga en
það er ekki réttnefni; vðövaverk
vil ég frekur kalla þaö.
Sökum langvarandi spennu, oft
vegna rangrar llkamsbeitingar
og/eöa streitu, fær fólk vööva-
verk. Þaö er oft komiö inn I vlta-
hring — og leitar til okkar vegna
verkja sem þaö ekki nær aö losa
sigviösjálft. Algengasteraö gefa
þvl hitameöferð i einhverju formi
og nudd til aö byrja meö^einnig
akti'fa slökun meö viöeigandi æf-
ingum og siöast en ekki sist kenna
því rétta llkamsbeitingu og
starfshreyfingar til þess aö reyna
aö fyrirbyggja frekari óþægindi
af sama tagi.
— Margir halda aö nudd sé
allra meina bót, en þaö getur
aldrei veriö annaö en hluti af
meöferö. Þeir sem fara eingöngu
I hita og nudd útaf vöðvaverkjum
fara fljótt I gamla vitahringinn
sinn aftur. Annars er fólki gjarnt
aö segjast hafa verið i nuddi hjá
sjúkraþjálfaranum þó aö allur
timinn hafi fariö í stifar æfingar.
Fleiri
veikindadagar?
— Hvaöa starfsstéttir flnnst
þér verst farnar?
— Af starfsfólki spitalans leita
ritararnir mest til okkar, svo og
gangastúlkurnar eftir aö álagiö á
þær jókst aö mun I vetur þegar
fariö var aö spara I mannahaldi.
Satt aö segja þætti mér fróölegt
aö vita hvort um sparnað veröi aö
ræöa til langframa ef þaö kostar
fleiri veikindadaga eins og mér
sýnist aö muni veröa meö
óbreytti vinnuálagi.
— Helduröu aö einhverjii- af
núverandi sjúklingum þinum
væru heilir heilsu heföu þeir
kunnaö réttar starfsstellingar?
— Já, alveg tvlmælalaust. Fólk
hefur almennt ekki tilfinningu
fyrir skrokknum á sér og kann þvi
ekki aö beita honum rétt. Það er
gaman aö athuga litla krakka;
þeir beita skrokknum á sér alveg
rétt, beygja sig I mjöðmum og
hnjám þegar þeir taka upp hlut af
gólfi o.s.frv. Ég veit ekki, hvenær
fólk týnir þessu niöur. En ég held
aö þaö þurfi aö byrja, jafnvel i
grunnskólanum aö kenna krökk-
unum rétta llkamsbeitingu og
starfsstööur til þess mögulega aö
fyrirbyggja atvinnusjúkdóma af
þeirri gerö sem viö höfum veriö
aö ræöa um.
— Mönnum er þó aö veröa æ
ljósari nauösyn þessa þáttar
likamsræktar og er i siauknum
mæli leitaö til sjúkraþjálfara til
aö fá leiöbeiningar um starfs-
stööur og likamsbeitingu. 1 dag
kenna sjúkraþjálfarar m.a. I
Hjúkrunarskólanum, Hjúkrunar-
brautinni viö HI, Sjúkraliðaskól-
anum, F ó s t u r s k ól a n u m ,
Fjölbrautarskólanum — þetta er
þaö sem ég man eftir i svipinn.
Einnig liggur fyrir beiöni frá
Iönskólanum um sams konar
kennslu, og ýmsir vinnustaöir
hafa leitað til sjúkraþjálfara til
þess aö leiöbeina fólkinu meö
rétta hæö á boröum og stillingu á
stólum. Þannig bendir allt til aö
starf okkar i framtíðinni beinist
meira og meira aö fyrirbyggjandi
aögeröum. _ hs