Þjóðviljinn - 24.05.1980, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. mai 1980
Af rithæfni sálfræðinga
Þorsteinn Gylfason limrusmiður og Andri
fsaksson f rá Grænuborg virðast vera komnir í
ritdeilu í Morgunblaðinu um það, sem Þor-
steinn kallar „f imbulfamb, sem heitir félags-
fræði, sálarfræði og uppeldisfræði".
Andri svaraði greinum Þorsteins í Moggan-
um á f immtudaginn og var þar margt hrakið í
mörgum orðum, eins og sagt er.
Eitt af því sem ég hjó eftir í grein Andra
voru talsverð sárindi yfir því að Þorsteinn
heldur því fram að félagsfræðingar, sálfræð-
ingar og uppeldisf ræðingar séu ekki skrifandi
uppá íslensku og bendir þetta til þess að sál-
fræðingum geti sárnað.
Núég verð að segja að mér f innst Þorsteinn
fella all þungan dóm á stóran hóp fslenskra
hug og atferlisumf jallara, því allir vita að það
hefur löngum verið stolt hins menntaða
manns á (slandi að kunna að draga til stafs.
Ég gerði mér því lítið f yrir og hringdi í mæt-
an sálfræðing og bað hann að segja mér skoð-
un sína á þessum orðum Þorsteins og hvort
hann teldi sálfræðinga vera iila skrifandi.
Þessi ágæti sálfræðingur óskaði eftir að fá
aðsvara þessari spurningu skriflega. Mér var
sem sagt að berast bréfið og birti ég það hér
með:
„Okkur geðlæknirum og sálfræðingum
vantar ekki að vita hvernig á að skrifa fs-
lensku. Hins vegar hafa geðhvarfaviðbrögð
andstæðinga okkar oft lýst sér í alhæfingu
áreitis, afsjálfgun og haldvillu. Ef til vill eru
boðmynstur bliktíðnimarka þessara manna
háð vissu ásýndargildi, sem er skortur á þeirri
skinhreifisjá, sem þarf til að bera skinkennsl
á eltinám sem er verkhústilraun þar sem til-
raunapersónan lærir að halda hengsluðum
stíl.
Máliðer bara ekki svona augljóst og einfalt.
Það er ekki hægt að taka okkur geðlæknirana
og sálfræðingana undir einum hatti.
Undirrrituðum vantar ekki ritstol f þeirri
félagstengslakönnun sem ríður nú húsum um
þverbak.
Við hljótum að varpa upp þeirri spurningu,
hvort ekki sé hægt að fara að hrinda bráðum
bug að því að stemma stig við þeim sálardofa
og sálarnauðhyggju, sem herjað hefur á ís-
lensku þjóðinni um árabil.
Mér langar l þessu sambandi að benda á
það, að þeir, sem hvað hraðast hafa deilt á
okkur geðlæknira og sáltæknira verða að telj-
ast meinvottar í andlegt þroskaferli þjóðar-
innar. En þó keyrir úr hófi fram, þegar við
löfum undir því ámæli að hafa legið í lama-
slysi og aðgerðarleysi um aldur fram.
Sannleikurinn er nefnilega sá, og það langar
mér undirrituðum að benda á að við höf um um
árabil legiðá öllu liði okkar til að losa þennan
aðsteðjandi afsjálfgunarvanda og það virðist
sattað segja engum lengur Ijóst, hvernig snúa
skal andspænis þessum ófagnaði.
I sálarfræðinni þarf nefnilega meira en að
standa aðgerðarlaus og telja á sér fingurnar,
það þarf líka að standa í báðar fæturnar.
Og hvað viðvíkur það að við sálkönnuðir
kunnum ekki að skrif a íslenskt mál, þá held ég
að Þorsteinn Gylfason og f leiri af hans sauða-
gæru ættu að reyna að hafa vitið fyrir neðan
sigog ráðastekki á þá, sem minnst hafa undir
sér, þvi það er nefnilega rétt, sem Hannes
Hafstein sagði forðum: „Það er til lítils að
veifa gamallri konu en sleppa hópnum."
Mér undirrituðum hefði langað til að fá að
vita hvaða eðlishvatir liggja til grundvallar í
þá staðhæfingu að ég hafi ekki verið á sál-
fræðiþinginu á Loftleiðum á pálmasunnudag,
þegar haldið var uppá 101 ára afmæli Wilhelm
Wundt.
Ástæðan að því að ég var ekki þar nærstadd-
ur var einf aldlega aðég var aðtaka saman við
konuna mína þann dag eftir langvarandi al-
hæfingu sálræns áreitis.
Að síðustu vil ég segja við þá sem hraðast
hafa deilt á okkur, að sálfræðingum og geð-
læknirum vantar ekki rithæfnina. Hins vegar
er það vöntun á úrræðaleysi að leiða skipið
ekki heilt í höfn með sameiginlegu átaki allra
þeirra sem vita betur. Því betri er hálf ur skaði
en enginn.
Og að lokum get ég ekki látið hjá líða að
þakka lögreglunni fyrir ómetanlega aðstoð í
gerð sálgreinihnítar um atferli gleðimanna og
kvenna höfuðstaðarins, sem neita áfengis úr
hópi fram.
Já þessi limra varðstjórans góða er sannar-
lega í tíma talin:
I sálkönnun svallarana
við setjum í kjallarana,
þar fá þeir í næði
að fá sitt brjálæði
fyrir atferlisumf jallarana."
Flosi.
200 Borgnesingar tóku
þátt í að klæða landið
13 þúsund
trjáplöntur
settar niður
Borgnesingar hafa gert
stórfellt átak til fegrunar
bæjarlandsins í Borgarnesi
með trjágróðri í vor og
plantað hvorki meira né
minna en 13 þúsund
trjáplöntum, sem svarar
til liðlega 8 plantna á
mannsbarn í byggðarlag -
ínu.
Fyrir þessu hefur stahiB Fram-
kvæmdanefnd árs trésins i
Borgarnesi og unniö i nánu og
góöu samstarfi viö sveitarstjóra,
hreppsnefnd og hin ýmsu félaga-
samtök I bænum. Nefndin var
skipuB á liBnum vetri fyrir milli-
göngu Skógræktarfélags ísiands
og fyrir milligöngu hrepps-
nefndarinnar. FormaBur er Jón
Magnús Thorvaldsen plantar I
Hamarsvöli.
Finnsson mjólkurfræBingur og
meB honum i nefndinni GuB-
mundur Finnsson, Þorbjörg
ÞórBardóttir, Karl Olafsson og
Hjörtur Helgason.
Blikkiðjan
Ásgarði 7, Garðabæ
onnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
Valin voru 14 svæBi I bæjar-
landinu, sem trjám og öBrum
gróBri var plantaB i, og tóku 12
félög og samtök i Borgarnesi aB
sér framkvæmdina. SvæBin, sem
plantaB var i eru viBsvegar um
bæinn og I nágrenni hans. Lang-
stærst þeirra er Golfvöllurinn aB
Hamri, en i hann fóru um 6000
plöntur. Til marks um stærö
þessa átaks má geta þess, aö til
plöntukaupanna einna var variö
um 5 milljónum króna.
Kostnaöurinn er aö stærstum
hluta greiddur af Borgarnes-
hreppi og sjóöum á vegum hans,
en einnig leggja ýmis félagasam-
tök svo sem Rotary, Lion, Kaup-
félag Borgfiröinga og fleiri fram
fé, auk ómældrar vinnu.
Um helgina 10. og 11. mai hófst
verklegur undirbúningur svæB-
anna 14 af fullum krafti og var
unniB aö honum flest kvöld vik-
unnar, sem i hönd fór. Laugar-
daginn 17. og sunnudaginn 18. mai
fór svo meginhluti plöntunar-
innar fram, og unnu nálægt 200
Borgnesingar aö verkinu þessa
daga.
Þetta átak hefur greinilega
smitaö frá sér, þvi um allt
Borgames hefur einnig mátt sjá
fólk önnum kafiö viB aB snyrta
lóöir sinar og planta I þær, en 1
framhaldi af þvi starfi, sem nú er
aö baki, mun Framkvæmda-
nefndin útvega Borgnesingum
trjáplöntur og runna á hagstæBu
verBi.
Hin ýmsu félög i Borgarnesi
ætla framvegis aB halda áfram aö
sinna þeim afmörkuöu svæöum,
sem þau tóku aö sér aB gróöur-
setja i þessa daga. 1 sumar
veröur einnig tekiö rösklega til
hendinni i skógræktargirBingu
Aspar. Þar veröur boriö vel á, en
einnig plantaÐ, auk þess sem
mikiB átak veröur gert I grisjun
og i þvi sambandi undirbúinn
flutningur fjölda lifandi trjáa inn I
þéttbýliB á næsta sumrLEinnig er
PlantaB viö Kveldúlfsgötu.
taliö aB af þessu svæöi megi full-
nægja allri þörf Borgnesinga
fyrir jólatré á næsta vetri.
Vonast er til, aö þetta veröi aö-
eins upphafiB aö þvi aö færa skóg-
rækt inni og aö þéttbýlinu i
Borgarnesi, en meö þvi er stefnt
aB þvi aB gera umhverfi bæjarbúa
fegurra og hlýlegra og efla um
leiö tilfinningu almennings fyrir
þessu merkilega málefni.
Véltækni beitt á Hamarsvelli,