Þjóðviljinn - 24.05.1980, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 24.05.1980, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. mal 1980 Umræður um örtölvu- byltinguna: Fyrir skömmu voru f luttir í sjónvarp þættir um örtölvubyltinguna svo- nefndu: hvernig þau tíð- indi að tölvubúnaður verður smágerður, meðfærilegur og ódýr, geta breytt firna- miklu í daglegu lífi manna og starfi innan tiðar. Á fundi sérfróðra manna um þessi mál, sem haldinn var í Norræna húsinu, kom það einkum fram að margt mundi verða til þess að tef ja þessa þróun, hún yrði ekki eins hröð og altæk og sjónvarpsþættirnir virtust gefa tilefni til að ætla. Ennfremur var fjallað um nauðsyn þess að hef ja nú þegar umræður um þessa þróun til að fyrir- byggja sem mest, að hún hefði neikvæðar félags- Sum störf verða lygilega einföld, önnur þeim mun flóknari.... stjóm á henni eða mun hún stjórna okkur? legar afleiðingar (með því að gera mörg störf ,,óþörf" og hrekja fólk út í atvinnuleysi í stórum stíl). Einnig komu fram all- harðar ásakanir I garð skólakerfisins fyrir að hafa seint tekið við sér I þessum málum. Það var álit þeirra sem höfðu stutt framsöguerindi á fundin- um og tóku þátt í umræð- um, að fslendingar gætu vel verið með í þessari þróun með virkum hætti — og þá með því að leggja undir sig eitthvert ákveðið horn tölvumarkaðarins, til dæmis framleiðslu á ör- tölvubúnaði fyrir fisk- iðnað. Sitthvað tefur fyrir Páll Jensson, forstööumaBur sagöi m.a. I slnu framsöguerindi, aö þaö væri ógjörningur aö spá um hraöa örtölvubyltingar. Vél- búnaöur gæti þróast mjög ört. En annaö mundi tefja fyrir. Til aö mynda tiltölulega mikill kostn- aöur viö gerö hugbúnaöar. All- mikil skortur á sérmenntuöu fólki. Mikill kostnaöur viö leiö- réttingar og endurbætur á tölvu- kerfum. Þá væri stöölun mjög f ólestriog sumt væri f þeim efnum — Hvernig myndi yöur Ifka aö koma i staöinn fyrir vél? af ásettu ráöi: framleiöendur f haröri samkeppni vildu ekki aö framleiösla keppinautanna sam- nýttist þeirra eigin vöru. Þá taldi Páll, aö ef þær kröfur sem margir vilja gera til þess aö takmarka meö lögum notkun tölvu til aö safna og dreifa upplýsingum um einstaklinga (t.d. „keyra saman” upplýsingar um heilsufar og f jár- hag einstaklinga) væru teknar alvarlega þá mundi nauösynlegu eftirliti meö tölvunotkun fylgja mikil skriffinnska, sem f sjálfu sér myndi tefja tölvubyltinguna. Hinn mannlegi þáttur Jón Zóphóniasson deildarstjóri lagöi nokkra áherslu á hinn „mannlega þátt” I tregöulögmál- um þeim sem hamla gegn ör- tölvubyltingu. Hann nefndi dæmi um stjórnendur stofnana sem heföu ákveöna vantrú á tölvum og vannýttu þær til gagnasöfnunar. Björn Friöfinnson fjármála- stjóri ræddi um ótta almennings viö tölvubyltinguna, sem hann rakti til ótta viö hiö óþekkta, viö þaö sem ógnar lífsstff manna meö ófyrirsjáanlegum afleiöingum. 1 þvi samhengi lögöu hann og aörir áherslu á nauösyn þess aö hefja sem virkasta umræöu um þessa þróun, svo aö hún „æddi ekki stjórnlaust yfir okkur” og til aö „auka getu mannlegs samféfags til aö taka viö breytingum” án stórslysa. Björgvin Guömundsson verk- fræöingur lagöi áherslu á aö ör- tölvubyltingin væri ekki fólgin i þvi, aö slikar tölvur gætu gert fleira en fyrri kynslóöir tölva, heldur fælist hún I mikilli verö- lækkun. 1 umræöu um stööu þess- ara mála á Islandi nú kom fram, aö landiö er tiltölulega vel tölvum búiö nú þegar, en notkun er i minna lagi. Björgvin taldi aö is- lendingar væru alllangt á eftir öörum I aö nota tölvur til aö stjórna tækjabúnaöi viö fram- leiöslu. Jakob Sigurösson for- stööumaöur taldi aö allmikillar tregöu gætti viö aö nota tölvu- notkun viö gagnasöfnun. Hann giskaöi t.d. á aö flugfélög 1 ná- grannarikjum væru 5—10 ár á undan islenskum I tölvunotkun á sinu sviöi. Umræöendum bar saman um aö þaö færi aö mjög verulegu leyti eftir frammistööu islensks skólakerfis hvort lslend- ingar yröu samstiga öörum þjóö- um i þessum efnum. islensk framleiðsla Páll Jensson og fleiri auglýstu eftir stefnumótun, einkum aö þvi er varöar Islenskan iönaö. Hann og Björgvin Guömundsson töldu, aö vissulega gætu Islendingar sem aörir tekiö þátt i aö fram- leiöa tölvubúnaö, en ef menn ætluöu á útflutningsmarkaö meö slikan búnaö þyrftu menn aö gera sér grein fyrir þvi, aö þaö væri gifurlegt fjárhagslegt átak aö koma slikri vöru á markaö meö árangri. Helst leist mönnum væn- legt, eins og fyrr var getiö, aö taka fyrir ákveöiö „markaös- horn” sem íslendingar heföu besta þekkingu á — og þá er átt viö tölvubúnaö fyrir fiskiönaö. ótti við atvinnuleysi Oft komu upp i umræöunni spurningar sem lúta aö þvi, hvernig vinna mætti gegn nei- kvæöri afstööu almennings til ör- tölvuþróunarinnar, sem byggöi á ótta fólks viö atvinnuleysi (m.a. fyrirspurn frá Eliasi Daviössyni). Svör frummælenda voru nokkuö misjöfn. Þeir sögöu yfir- leitt aö þetta væri erfitt mál sem engin auöveld lausn væri á. Best væri aö mæta þv|, aö tölvur út- rýma starfstækifærum, meö þvi aö endurhæfa fólk til annarra starfa sem tæknin ýtir til hliöar. Sumir aöhylltust einskonar ör- lagahyggju: þetta kemur yfir okkur hvort okkur likar betur eöa verr. I þessum efnum er margt ósagt. Viöa i Evrópu berjast verkalýössamtök nú fyrir þvi, aö fá rétt til aö játa eöa neita ákvöröunum um tölvuvæöingu og hraöa hennar — og munu Norö- menn hafa náö einna mestum árangri I þessum efnum. Þá er eitt félagslegt vandamál mjög stórt I sambandi viö örtölvubylt- ingu: Hún gerir sum störf afar einföld en önnur mjög flókin og skapar þar meö mjög breitt bil milli einstakra hópa sem aöild eiga aö margnefndri byltingu. Elias Daviösson minnti á þátt, sem margir láta sér sjást yfir: örtölvubyltingin er ekki aöeins ódýr vegna tæknilegra framfara. Hún byggir aö verulegu leyti á ódýru vinnuafli um þaö bil miljón ungra kvenna i Suöaustur-Asiu (Hong Kong, Singapore ofl), sem rýna úr sér augun viö aö setja saman örtölvubúnaö — fyrir svo- sem 500 krónur á dag. Þaö var Skýrslutæknafélag ls- lands og örtölvufélagiö sem efndi til þessa fundar. Dr. Jón Þór Þór- hallsson, formaöur Skýrslu- tæknafélagsins, stjórnaöi umræö- um. Húsfyllir var á fundinum. áb.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.