Þjóðviljinn - 24.05.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 24.05.1980, Blaðsíða 3
Laugardagur 24. mal 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Rudolf Serkin í heimsókn Hinn heimsfrægi píanó- snillingur Rudolf Serkin heldur tónleika i Þjóðleik- húsinu kl. 15 í dag. Serkin er hingað kominn á vegum Tónlistarfélags Reykja- víkur i tilefni af 50 ára af- mæli Tónlistarskólans. Með honum í ferðinni er fríður hópur bandarískra tónlistarmanna, þ.á m. eiginkona Serkins, dóttir hans og tengdasonur, og munu þau öll koma f ram á tónleikum í Háskólabíói n.k. þriðjudag kl. 21. Rudolf Serkin er Islenskum tón- listarunnendum a6 góðu kunnur, þvi hann hefur komið hingað áður til tónleikahalds, og lengi haft gott samband við Tónlistar- félagið. Þegar hann hélt hér tón- leika árið 1972 ritaði Páll Isólfs- son m.a. um hann: „Rudolf Serkin er tröllaukinn pianóleikari og stórkostlegur túlkari. En hann er meira. Hann er sannarlega einn af brautryðjendum Evrópu og Ameriku i skóla- og uppeldis- málum tónlistarinnar á þessari öld”. Tónlistarskólinn má þvi vel við una að halda upp á fimmtugsaf- mæli sitt með heimsókn snillings- ins. Þess má einnig geta, að hagnaður af tónleikunum verður notaður til stofnunar sjóðs til styrktar ungu efnilegu tónlistar- fólki til framhaldsnáms erlendis. A tónleikunum i dag leikur Ru- dolf Serkin þrjú verk: italskan konsert eftir J.S.Bach, Tilbrigði og fúgu um stef eftir Bach, op. 81 eftir Max Reger, og Waldstein - sónötuna eftir Beethoven. A tónleikunum i Háskólabiói á þriðjudagskvöldið koma fram, auk Rudolfs Serkins, Mitchell Stern (1. fiðla), Irene Stern (2. fiðla), Sarah Clarke (lágfiöla), Judith Serkin (selló) og Rudolph Vrbsky (óbó).A e>fnisskránni þá verða einnig þrjú verk: Strengja- kvartetteftir J.Haydn, óbókvart- ett eftir Mozart og Pianókvintett eftir R.Schumann. — ih Blaðaútgáfa til stuðnings frambjódendum: Blað stuðnings- manna Vigdísar: Ot er komiö fyrsta töiublaö stuöningsmannablaös Vigdlsar Finnbogadóttur viö forsetakjör. Blaöiö nefnist Þjóöin kýs, er gefiö út I sjötiu og fimm þúsund ein- tökum og verður dreift um land allt. A forsfðu er birt ávarp til lands- manna, undirritaö af áttatlu og fimm körlum og konum vfðs- vegar um land. Þá er I blaöinu vtarle_gt viðtal við Vigdisi, þar sem Hjörtur Pálsson ræöir viö hana um llf hennar og störf, að- draganda framboðs hennar og viðhorf hennar til forsetaem- bættisins og kosningabaráttunnar sem yfir stendur. Ennfremur eru 1 blaöinu ýmsar frásagnir af kosningarundirbúningi, upp- lýsingar og ábendingar til kjós- enda. Þá er þar greinin „Af hverju kjósum við Vigdlsi Finn- bogadóttur forseta Islands” eftir Guðrúnu L. Asgeirsdóttur I Mæli- felli. 1 ritnefnd blaösins Þjóöin kýs eru Gunnar Stefánsson (ábm.), Guðrlður Þorsteinsdóttir, Helgi Pétursson, Sigriður Erlendsdóttir og Sveinn Skorri Höskulds- son. — Fyrirhugað er að gefa út 3-4 tölublöö fram að kosningum og kemur næsta blaö út skömmu eftir bvltasunnu. Blað stuðnings- manna Guðlaugs: „Fram- boð” FRAMBOÐ Guölaugs Þor- valdssonar nefnist blaö stuöningsmanna hans og er ný- komiöút 2. tölublaöið. t þvi er for- siöu viötal viö frambjóöandann um embætti forseta islands, frá- sagnir af framboösfundum og heimsóknum á vinnustaöi. Rætt er viö konu Guölaugs, Kristinu Kristinsdóttur, birtur kafli úr ávarpi hans til stúdenta meðan hann var rektor Há- skólans og greinar og yfirlýsingar nokkurra stuðningsmanna: Tryggva Gislasonar skólameist- ara, Sigurðar E. Guðmundssonar framkvæmdastjóra, Geirs Gunnarssonar alþm., Asgeirs RAUMSÆTT TfíAUST SAMST/LLT ’FRAMBOD. GUOLAUGS ÞORVALDSSONAJ Mikilvæg- astað sameina þjóðina B»!i við Guðlaug ÞarvaUsjon jm mbxtti fotseiá blanós Péturssonar bæjarfógeta, Ey- steins Jónssonar fv. ráöherra og Sigurlaugar Bjarnadóttur menntaskólakennara. Ritnefnd blaðsins skipa Guð- bjartur Gunnarsson (áb.), Magn- ús Bjarnfreösson og Stefán Halldórsson. DÁLÍTM) DEKUR DREGUR ÚREYÐSLU [1 Margt, sem á þátt í að draga úr bensíneyðslu, geta menn gert sjálfir: Skipt um kerti áður en þau eru orðin slitin, hreinsað loftsíuna og athugað ástand kveikju og kveikjuþráða o. fl. Hafir þú ekki gert þetta er ráð að fletta upp í handbókinni sem fylgir bílnum. Fylgstu með bensíneyðslunni. Skráðu alltaf hjá þér þegar þú setur bensín á bílinn. Leitaðu reglulega til verkstæðis. Láttu stilla þar blöndung, kveikju, ventla og yfirfara bremsur. UMHYGGJA DREGUR ÚR EYÐSLU. ORKUSPARNADUR ÞINN HAGUR MÓÐARHAGUR Starfshópur um eldsneytisspamað í bílum: Orkuspamaðamefnd iðnadarráðuneytisins Bílgreinasambandið Félag íslenskra bifreiðaeigenda Olíufélögin Strætisvagnar Reykjavíkur Umferðarráð Stúdentagarðar — Hjónagarðar Félagsstofnun stúdenta auglýsir: 1. Laus herbergi á Gamla og Nýja garöi fyrir stúdenta viö nám I Háskóla islands. 2. 2ja herbergja ibúðir á Hjónagörðum við Suðurgötu. Mánaðarleiga Ibúðar er nú kr. 42.000 en mun hækka 1. september. Kostnaður vegna rafmagns oghita er ekki innifalinn. Leiga og áætlaður kostnaður vegna rafmagsnog hita, a.m.k kr. 15.000 greiðist fyrirfram fyrir 10. hvers mánaðar, mánuð I senn. Við undirskrift leigusamnings ber að greiða leigutryggingu sem samsvarar mánaðarleigu. Tryggingin endurgreiöist við lok leigu- tlma. Umsóknarfrestur er til 25. júni n.k. tJthlutaö veröur fyrir 15. júll n.k. en úthlutun gildir frá og meö 1. september eöa 1. október. — Umsóknareyöublöö liggja frammi á skrifstofu Félagsstofnunar stúdenta, sem jafnframt veitir frekari upplýsingar. Félagsstofnun stúdenta, Stúdentaheimilinu viö Hringbraut, simi 16482

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.