Þjóðviljinn - 24.05.1980, Side 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. mal 1980
MOWIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyf ingar og þjódf relsis
L tgefandi: Útgáfufélag t»jóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eióur Bergmann
Hitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Kjartan Olafsson
Fréttastjóri: Vilborg Haróardóttir.
Auglysingastjóri: Þorgeir Olaísson.
Hekstrarstjóri: Úlfar ÞormóÖsson
Afgreiftslustjóri : Valþór Hlööversson
Blaöamenn: AlfheiÖur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón Fnöriks-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús'H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson.
Þingfréttir: Þorsteinn Magnússon.
Iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmvndir: Einar Karlsson. Gunnar EHsson
Ctlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson,
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar.
Safnvöröur:Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar : Sigríöur Hanna Sigurbjornsdóttir,
Skrifstofa :Guörún GuÖvarÖardóttir.
Afgreiösla : Kristin Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára Siguröardótt ir
Simavarsla: Olöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Bánöardóttir.
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
útkevrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Hitstjórn, afgreiösia og auglýsingar: Siöumúia 6, Reykjavík, slmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Góð verkalok
á þingi
• Merkt löggjafarstarf hef ur verið unnið á Alþingi síð-
ustu vikurnar enda þótt umræður um þingstörfin snúist
að mestu um málþóf og sprell þingmanna Alþýðuf lokks-
ins og Geirs-armsins í Sjálfstæðisflokknum. Undan-
gengna tvo vetur hafa þingmenn og þrjár ríkisstjórnir
unnið að ýmsum lagasetningum er varða félagsleg rétt-
indi launafólks. Mörg þessara mála eiga rætur sínar að
rekja til fyrirheita vinstri stjórnarinnar í tengslum við
ráðstafanir í kaupgjaldsmálum 1. desember 1978, en
önnur eiga sér lengri sögu. Þess þings sem nú er að Ijúka
mun í f ramtíðinni fyrst og f remst verða minnst f yrir að
hafa komið í höf n margvíslegum umbótamálum á þessu
sviði.
C Sjómannastéttinni hefur þótt það súrt í borti hve
seint hef ur gengið að ef na þau f yrirheit sem henni voru
gef in fyrir einu og hálf u ári. En þótt seint sé er nauðsyn-
legt að hafa í huga að þau auknu réttindi sem sjómenn
hafa öðlast með lagasetningu frá Alþingi nú á síðustu
dögum eru þess eðlis að þau brenna ekki á báli verðbólg-
unnar. Vert er og að minnast þess að ef Alþýðuf lokkur-
inn hefði ekki hlaupist úr ríkisstjórn síðastliðið haust
myndu réttindamál sjómannastéttarinnar hafa verið af-
greidd á haustmánuðum.
• í síðustu viku samþykkti Alþingi lög sem eiga að
koma í veg fyrir ótímabærar og vafasamar lögskráning-
ar úr skiprúmi. f þessari viku var svo afgreidd breyting
á sjómannalögum sem stóreykur rétt sjómanna í veik-
inda- og slysatilfellum og jafnar að fullu réttindamun
milli undir- og yf irmanna á skipum. Sjómenn fá nú meiri
rétt en landverkafólk og eru vel að því komnir vegna
sinnar sérstöðu. Þá er lögunum nú einnig ætlað að
tryggja sjómönnum réttmætar kaupgreiðslur eftir að af-
skráning hefur farið fram,en á því hefur verið nokkur
misbrestur.
• Með þessum breytingum á iögskráningarákvæðum
og á sjómannalögum er „félagsmálapakki" sjómanna til
þeirra kominn af hálfu löggjafans. Áður hafði Ragnar
Arnalds, samgönguráðherra í tíð vinstri stjórnar, af-
greitt flest þau mál sem að honum sneru og tengdust
réttindamálum sjómanna. Áður en vinstri stjórnin fór
frá í haust hafði verið gengið frá bættri veðurfregna-
þjónustu viðskip, reglugerð um öryggisbúnað við línu og
netaspil og öryggi á hringnótaskipum, svo og ákvæðum
um öryggisbúnað í skut loðnuskipa. Með breytingum á
reglugerð um fjarskipti voru einnig sett um það skýr
ákvæði á hvaða skipum loftskeytamenn skuli starfa og
lögð á kvöð um örbylgjusenda í gúmbjörgunarbátum.
• Af þeim málum sem hafa átt sér lengri aðdraganda
en hafa mikla þýðingu fyrir verkalýðshreyfinguna eru
tvöviðamest. Lögin um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi
á vinnustöðum sem samþykkt voru á Alþingi í síðustu
viku marka þáttaskil í öryggislöggjöf hérlendis. Þá er
það mikið kappsmál fyrir verkalýðshreyf inguna að hús-
næðismálafrumvarpið nái fram að ganga fyrir þinglok.
• Miðstjórn Alþýðusambands íslands hef ur minnt á að
með nýrri löggjöf um húsnæðislán séu stjórnvöld aðeins
að efna ítrekuð loforð í húsnæðismálum allt frá árinu
1974. Nái frumvarpið ekki fram að ganga fyrir þinglok
geti slíkar vanefndir torveldið mjög lausn vinnudeilna.
Hætter við að þá verði ekki teknar gildar lengur af sam-
tökum launafólks yf irlýsingar á borð við þær sem gefnar
haf a verið oftar en einu sinni á undanf örnum árum.
• Tilraunir þingmanna Geirs-armsins í Sjálfstæðis-
flokknum til þess að koma í veg fyrir að húsnæðismála-
frumvarpið hljóti afgreiðslu hafa aðeins stappað stálinu
i stjórnarliða. Það er nú orðið þeim metnaðarmál og
spurning um innri styrk að koma málinu fram. Takist
það, einsog allar horf ur eru á, verður ekki annað sagt en
að miðað við aðstæður séu verkalok stjórnarliða á þingi
til sóma.
— ekh
klippt
n
Nenntu ekki að
vinna fyrir sér
Vísir tók sig til nú i vikunni og
reiknaöi saman allar greiöslur
úr opinberum sjóöum til rithöf-
unda og yfirfæröi i mánaöar-
laun kennara til aö sjá hverjir
væru „ sjóöakóngar”.Þetta var
afleitt tiltæki: fjölmiöill gerir
litiö annaö meö þessu en ýta
undir algenga fordóma i garö
rithöfunda og annarra lista-
manna, fordóma sem gera ráö
fyrir aö þetta sé betlandi pakk
sem ekki nenni aö vinna og sé
litils góös maklegt. Sú stefna aö
ýta undir slika fordóma hefur
lengi verib rekin i Svarthöfða-
dálkum og heföu menn mátt
ætla aö það væri meira en nóg
fyrir eitt blaö.
Semsagt: eina feröina enn er
komin upp sú staöa sem Halldór
Laxness lýsir á þessa leið I
Heimsljósi: í margar aldir
haföi islenska þjóöin átt I striöi
viö menn sem ekki nenntu aö
á ferli peningar, þó i litlu sé,
sem eiga aö heita greiösla fyrir
afnot af bókum i almennings-
bókasöfnum. Fleiri eru dæmi I
þessa veru: þetta eru peningar
rithöfundanna sjálfra.
Flokkspólitík
begar Visir haföi lagt saman
og deilt kom það út, aö eftirtald-
ir höfundar höföu fengiö flest
mánaöarlaun undanfarin fimm
ár: Guðbergur Bergsson, Guð-
mundur G. Hagalin, Guömund-
ur Danielsson, Thor Vilhjálms-
son, Indriði G. Þorsteinsson,
Þorsteinn frá Hamri, Þorgeir
Þorgeirsson, Vésteinn Lúðviks-
son, Kristmann Guömundsson,
Jón Óskar. Hvað sem annars
má um slika útkomu segja þá er
eitt ljóst: þessi tiu nöfn gera
mjög undarlega þá hjátrú, sem
reynt er aö breiða út meö fjöl-
miðlastriöi aö flokkspólitisk af-
staöa til Alþýðubandalagsins
ráöi fjárhagslegri velgengni rit-
höfunda.
Vér þingmenn...
En það var sú ákæra sem 45
rithöfundar höföu bitiö i sig sem
stjórnarmenn, þrjá talsins. Til "
launasjóösins var stofnaö með I
lögum frá Alþingi og sjóðurinn ■
nýtur árlega framlaga af al- |
mannafé. I ár nemur sú upphæö ■
á fjárlögum fyrir 1980 114 mil- |
jónum króna. Alþingi getur þvi J|
ekki leitt hjá sér svo alvarlega ■
misklið sem nú er upp komin I
um ráöstöfun þessara fjár- JJ
muna.
Þaö er skoðun flutnings- ■
manna, aö sú tilhögun á úthlut- I
un starfslaunanna, sem hér er 5
bent á, væri liklegt til aö skapa |
meira jafnvægi og friö um út- ■
hlutunina... 1
Gera verður ráöfyrir, aö þing- m
flokkarnir munu vanda svo sem ■
kostur er til útnefningar á full- J
trúum sinum i sjóbsstjórnina.” .
Móðgun
Þaö var meö öðrum orðum ■
þetta sem vakti fyrir þeim |
Baldri Óskarssyni og Ingimari J
Erlendi Sigurössyni þegar þeir _
voru aö safna undirskriftum I
undir skjaliö ömurlega. Þaö átti ■
aö lýsa rithöfunda vanhæfa til |
að skipa stjórn sjóös, sem er ■
byggöur upp af þeirrafé en ekki |
---■ iimiihi—>i ; i —■■ ~ —
Laun 09 styrkir til rithðfunda úr opínherum sjóðum síðustu fimm arin: |
„Slóðaköngurfnn” er á
launum 9,5 mánuði á ári!
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MAÍ1980
Þingmenn úr þremur flokkum:
ENDURSKOÐUN LAGA UM
LAUNASJÓÐ RITHÖFUNDA
■■■=■■•■ ■ rn nuiiaiiul.
vinna fyrir sér og þóttust vera
skáld.dvitnaö eftir minni).
Hvaða peningar?
Þegar menn renna augum yf-
ir samantekt eins og þá sem
Visir birtir er hætt við, aö menn
átti sig ekki á þvi hvaðan þeir
peningar eru komnir sem hér
um ræöir. Obbinn af rithöfunda-
fé er eins og menn ættu aö vita,
til kominn af þvi, aö þaö fékkst
einskonar viöurkenning á þvi
hjá áhrifamönnum að það væri
undarleg staða, að rikiö hefði
meö margskonar skattheimtu
af bókagerö og bóksölu (einkum
söluskatti) meiri tekjur af is-
lenskum bókum en rit-
höfundarnir sjálfir ættu yfirleitt
minnstu von i. 1 annan staö eru
undirrituöu margumtalaö skjal
á dögunum gegn stjórn Launa-
sjóös rithöíunda. Það er reynd-
ar komiö mjög vel I ljós, hvers
vegna reynt var að sveigja
óánægju meö úthlutun rithöf-
undafjár, sem viröist óum-
flýjanleg reyndar, inn i svo
fáránlegan farveg. Ctskýringin
birtist i tillögu frá tiu þing-
mönnum um endurskoðun laga
um launasjóö rithöfunda: Þar
segir m.a.:
,,Þá bæri einnig aö skoöa þá
hugmynd, hvort ekki væri far-
sælast, þegar öll kurl koma til
grafar, aö stjórn launasjóösins
yröi skipuð af Alþingi, en
samkv. núverandi skipan er þaö
stjórn Rithöfundasambands Is-
lands, sem tilnefnir alla
„aimannafé” eins og þing-
mennirnir segja. Visa málinu
aftur til stjórnmálaflokkanna,
sem eiga, eins og i tillögunni
segir, aö hafa til aö bera miklu
meiri sálarþroska en rithöfund-
ar sjálfir til að velja menn til aö
stjórna slikum málum.
Við höfum langa reynslu af
sllkri tilhögun þar sem er út-
hlutun Listamannalauna, sem I
reynd hefur oröiö eitthvert von-
lausasta, heimskulegasta og
gagnslausasta kerfi sem um get
ur. Þaö verður ekki skiliö ööru-
visi en sem meiriháttar móögun
við rithöfunda þegar tiu þing-
menn gerast svo sjálfumglaöir
aö bjóöa þeim forsjá sina eftir
svipaöri formúlu.
— AB
09 sHorié
Kver um sögu Kommúnista-
flokks íslands
út er komið kver meö heitinu
ÚR SÖGU KOMMÚNISTA-
FLOKKS ISLANDS. Innihald
þess eru 2 námsritgeröir i sagn-
fræöi úr Háskóla íslands, samdar
af Ingólfi Á. J^hannessyni. Kver-
iö er 64 bls. Lbrotinu A5, offset-
prentaö og gefiö út af höfundi.
í fyrri ritgeröinni er sagt frá
klofningi hreyfingar ungra jafn-
aöarmanna og atburöum á Siglu-
firöi i september 1930 þegar sú
hreyfing klofnaöi. Sagt er frá
skipulagi, starfsháttum og stefnu-
mótun Sambands ungra
kommúnista. Ennfremur er lýst
starfi Félags ungra kommúnista I
Reykjavik sem var blómiegast
meðal iönnema og sendisveina en
sendisveinar voru þá mjög fjöl-
mennir. Þá er I ritgerðinni sér-
stakur kafli um sjálfsgagnrýni.
1 siðari ritgeröinni er f jallaö um
harkaleg átök i KFI á árunum
1932 - 4 sem snerust aö verulegu
Ieyti um hvort hafa mætti sam-
starf við foringja Alþýöuflokks-
ins. Kemur fram i ritgeröinni
nokkuð annaö viöhorf en hjá þeim
sagnfræöingum sem hingaö til
hafa fjallaö um þetta. Einnig er
sett fram tilgáta um hváö helst
olli hningnuni' flokksins.
Bæklingurinn fæst hjá Sögu-
félaginu, Fischersundi. I nokkr-
um bókabúöum og hjá höfundi.