Þjóðviljinn - 24.05.1980, Síða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. mal 1980
uiTi helaína
Leikhús
Sumarið
t fyrradag var opnuð 1
Sýningahöllinni á Artúnshöföa
alþjóðleg vörusýning sem ber
heitið „Sumarið 80”. Þar eru
sýndar „allar hugsanlegar
sumarvörur allt frá sólgler-
augum upp i sumarbústaði”.
Hartnær 50 fyrirtæki og félög
sýna þar framleiðslu sina og
starfsemi. Sýningin verður opin
til 2. júni.
Alla daga sýningarinnar verða
matvæla- og sælgætiskynningar
á vegum nokkurra islenskra
fyrirtækja, fjölbreytt skemmti-
dagskrá verður á skemmtipalli
tvisvar á dag, teikni- og
fræðslumyndir verða sýndar
viðstöðulaust I kvikmyndasal
meðan opið er daglega og fleira
verður til skemmtunar.
’80
Kaffiteria verður opin meðan
á sýningunni stendur. Ókeypis
barnagæsla verður á sérstöku
leiksvæði inn af kaffiteriu á efri
hæð hússins. Á þeirri hæð verða
einnig tiskusýningar tvisvar á
dag.
Efnt verður til gestahapp-
drættis meðan á sýningunni
stendur og vinningar dregnir út
daglega. Aðalvinningurinn er
Camp Tourist tjaldvagn frá
Gisla Jónssyni h.f. i Sundaborg.
Sýningin er opin daglega kl.
16-22, en laugardaga og sunnu-
daga kl. 14-22. Opið verður alla
Hvitasunnuhelgina. Skemmti-
atriði, kynningar og tiskusýn-
ingar eru daglega kl. 17:30 og
20:30.
Hér eru krakkar úr Hvassaleitis- og Mýrarhúsaskóla að æfa fyrir
tónieikana undir stjórn Herdisar Oddsdóttur. Ljósm.: —gel.
150 krakkar
syngja í
Háskólabíói
KI. 14 i dag halda þrir barna-
og unglingakórar samsöng i Há-
skólabiói. Kórarnir eru Kór
Hvassaleitisskóla, stjórnandi
Herdis Oddsdóttir, Kór Mýrar-
húsaskóla, stjórnandi Hlin
Torfadóttir og Skólakór Garða-
bæjar, stjórnandi Guðfinna
Dóra ólafsdóttir. Um það bil 150
börn og unglingar á aldrinum 7-
16 ára koma fram á tónleikun-
um. Pianóleikari verður Jónina
Gisladóttir.
Með samsöng þessum er verið
að koma á kynnum milli hluta
þeirra ungmenna sem leggja á
sig mikla vinnu við að þjálfa
söngraddir sinar við iðkun fag-
urrar tónlistar. Til þess að
tengjast betur syngja kórarnir
stóran hluta efnisskrárinnar
saman. Kórarnir dvöldu i æf-
ingabúðum austur að Flúðum i
Gnúpverjahreppi helgina 2.-4.
mai s.l.
Aðgöngumiðar á tónleikana
fást við innganginn og kosta
2000 krónur.
— ih
Miles Parnell opnar i dag sýn-
ingu á verkum sinum i Galleri
Djúpinu við Hafnarstræti.
Sýningin verður opin daglega til
4. júni frá kl. 10 til 23.30.
Þetta er þriðja sýningin sem
Parnell heldur hér á landi og að
þessu sinni sýnir hann eingöngu
myndir úr dýrarikinu, unnar
með blandaðri tækni.
Miles Parnell er frá Windsor á
Englandi og stundaði nám við
listaskólana St. Martins og
Leicester. Hann kenndi við
listaskóla i Nottingham að námi
loknu og vann einnig sem sjálf-
stæður teiknari I London. Hér
hefur hann dvalist i f jögur ár og
unnið á auglýsingastofum.
Leikfélag Reykjavikur:
Ofvitinn, sýning mánudags-
kvöld ki. 20.30. Uppselt.
Þjóðleikhúsið:
Smalastúlkan og útlagarnir,
sýning mánudagskvöld kl. 20. 1
öruggri borg, sýning á litla sviði
mánudagskvöld kl. 20.30.
Leikfélag Kópavogs:
Þorlákur þreytti, aukasýning
mánudagskvöld kl. 20.30.
Sýningar
Asmundarsalur:
Fræðslusýning Greenpeace -
samtakanna um hvali og hval-
vernd. Opin til mánaðamóta.
Listasafn alþýðu:
Sýning á verkum Gisla Jóns-
sonar. Lýkur annað kvöld.
FtM-salurinn:
Málverkasýning Mattheu Jóns-
dóttur.
Sænskur
jasspíanisti
í heimsókn
Sænski pianóleikarinn Per
Henrik Wallin heidur þrenna
tónleika I Reykjavlk i næstu
viku. Hann kemur hingað á
vegum Galleris Suðurgötu 7 og
sænsk-islenska félagsins.
Wallin er fæddur 1946 og er
talinn vera eitt stærsta nafnið i
sænskum nútimadjassi, og tón-
listarmaður á heimsmæli-
kvarða. 1 fréttatilkynningu frá
aðstandendum tónleikanna er
m.a. að finna eftirfarandi um-
sögn um hann: „Wallin er hljóð-
færaleikari gæddur stór-
brotnum hæfileikum og frum-
leika. Tjáning hans er öflug og
hann er trúr og samkvæmur
sjálfum sér i sköpun sinni. Hann
er lika örlát sál og gefur frá sér
einlæga hlýju og gneistandi
húmor”.
Fyrstu tónleikarnir verða að
Hótel Borg kl. 15.00 á mánu-
daginn (kaffiveitingar), þeir
næstu I Djúpinu miðvikudaginn
28. mai kl. 21.00 og þeir siðustu i
Norræna húsinu kl. 16.00
laugardagínn 31. mal. Aðgangs-
eyrir verður aöeins 2500 krónur.
— ih
Tryggvi á sýningunni: Hefur gengið stórvel. Ljósm.: — gel.
Sýning Tryggva:
„Bara eftir að halda
upp á fertugsafmælið”
„Jú þetta hefur gengið alveg
stórvel. Ég hef selt vel og ég
held að gestirnir séu orðnir yfir
2000 talsins. Nú lýkur þessu um
helgina og þá er ekkert eftir
annað en að halda upp á
fertugsafmælið.
Það verður 1. júni og þá ætla
ég að búa til 20 fiskrétti.” sagði
Tryggvi Ólafsson, listmálari, en
um þessa helgi lýkur sýningu
hans i Listmunahúsinu við
Lækjargötu. Tryggvi sýnir þar
myndir frá siðustu árum, bæði
málverk og minni myndir. Að-
spurður hvort myndin af Megasi
væri seld sagði Tryggvi það
rétt, en hann hefði lofað að segja
ekki frá þvi hver keypti hana og
væri það i fyrsta sinn sem hann
þyrfti að þegja yfir sliku
leyndarmáli.
Tryggvi sagðist fara út til
Kaupmannahafnar strax og
fyrri hálfleik fertugsafmælisins
lyki, en siðari hálfleikur verður
háður á danskri grund fyrir þar-
lenda. Sýning Tryggva verður
opin frá 2-6 á Hvitasunnudag og
annan i Hvitasunnu.
— þs
Nemandi úr handavinnudeild KHl ásamt smiðisgripum á sýning-
unni. Rugguhestinn hefur hún sjálf smiðað. Ljósm.i —gel.
H andavinnu sýning
I dag verður opnuð I gamla Kennaraskólanum við Laufásveg sýn-
ing á handavinnu nemenda Kennaraháskólans og stendur hún yfir i
þrjá daga. — Sýningin verður opin kl. 4-101 dag og kl. 2-8 á morgun
og á mánudaginn. — ih
Bach í Háteigskirkju
Dr. Orthulf Prunner endurtekur orgeltónleika sina i Háteigs-
kirkju á annan i hvitasunnu kl. 20.30.
Á efnisskránni eru eingöngu orgelverk eftir J.S.Bach: Toccata,
Adagio og Fúga i C-dúr, Choralfantasia: I dauðans böndum drott-
inn lá, Triosonata I C-dúr, Sálmforleikur: Guö miskunni nú öllum
oss, Passacaglia og fúga i c-moll. Allur ágóði tónleikanna rennur
til styrktar kaupum á altaristöflu I Háteigskirkju.
Miles Parnell sýnir dýramyndir I Djúpinu. Ljósm.: —gel.
Dýrin í Djúpinu
Jón Hermannsson með nokkrar
mynda sinna.
Ljósmynda-
sýning
á Isafirði
Jón Hermannsson opnar ljós-
myndasyningu i bókasafninu á
Isafirði kl. 14 i dag. Hann sýnir
þar um 40 stækkaðar litmyndir,
sem hann hefur tekið og unnið
sjálfur. Myndirnar eru
númeraðar og áritaðar á svip-
aðan hátt og grafikverk.
Sýningin verður opin á hvita-
sunnu og annan i hvitasunnu kl.
2-6 og siðan á opnunartima
bókasafnsins. Siðasti sýningar-
dagur verður 1. júni og verður
þá opið kl. 2-7.
— ih