Þjóðviljinn - 06.09.1980, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 06.09.1980, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓDVÍLJINN Helgin 6.-7. sept. 1980 AF SJ ON VARPSÞÆTTI ALDARTNNAR Það er eins og mig minni að einhvers staðar standi í helgri bók, að vegir guðs séu órann- sakanlegir. Og það veit sá sem allt veit að þetta hef ég frá blautu barnsbeini tekið sem heilagan sannleika og meira að segja margoft þóst f á f yrir þessari speki óygg jandi sannanir. Núna uppá síðkastið hef ég þó verið í mjög þungum skólaspekilegum þönkum ígrundandi það, hvort hér sé átt við nokkurn sérstakan guð, öðrum fremur. Á þriðjudaginn var komst ég svo endanlega að þeirri niðurstöðu að það væru vegir Mammons, sem væru órannsakan- legir og að umræddir vegir væru f lugleiðirnar yfir Atlandshafið. Það var sem sagt á þriðjudaginn eftir að börn voru gengin til náða,að fimm gegnir og góðir menn komu í beinni útsendingu fram fyrir alþjóð í sjónvarpinu til að varpa Ijósi á orsakir og afleiðingar þess vanda, sem nú steðjar að Flugleiðum. Og nú var ég sem sagt að vona, að hinir órannsakanlegu vegir framangreinds guðs, yrðu rannsakaðir svo maður þyrfti ekki sífellt að vera (eins og bóndinn orðaði það forðum) „sírambandi inná einhverjar andskotans rolluslóðir". Samræðurnar hófust á því að allir þátttak- endur urðu sammála um það að ógurlegur frumskógahernaður geysaði nú á Atlandshafi og er þá væntanlega fengin skýring á því hvers vegna Móbútú og Múgabe haf a tekið sér hvíld f rá önnum heima f yrir um stundarsakir. Á spjöldum sögunnar verðu.r þetta síðan væntanlega nefnt „Síðari orrustan um Atlandshafið". Næst óskaði stjórnandi þáttarins eftir að fá að vita, hvort það væri skemmtileg dægradvöl að (orðrétt) „skera niður starfsfólk", og var helst að skilja á þeim sem fyrir svörum varð, að aldrei gæti orðið eins gaman að „skera niður starfsfólk ," eins og til dæmis að stunda útivist og náttúruskoðun. Hins vegar var það tekið skýrt fram að þegar „skera þyrfti niður flugmenn", væri augljóst að líka þyrfti að „skera niður f lugfreyjur og vélamenn því það gæfi augaleið að flugfreyjur og vélamenn gætu ekki f logið yf ir Atlandshaf ið, þegar búið væri að „skera flugmennina niður", síst af öllu þegar frumskógarhernaðarástand væri á Atlandshafi. Hitt er svo auðvitað annað mál að allir vita að nú er rétti tíminn til niðurskurðar á mönn- um og málleysingjum einmitt þegar sjálf sláturtíðin fer í hönd. Hinsvegar kom það fram að f lugmenn hafa engan starfsaldur, en það hafa flugfreyjur afturámóti og sumar að því er næst verður komist líka aldur að árum, en það er víst helsti lösturinn á þeim. Allir gátu þeir, sem þarna sátu fyrir svörum í sjónvarpssal fallist á eina skarplega athugasemd. Þær ófarir, skipbrot og aðrar hörmungar, sem hafa dunið yfir okkar heittelskaða flug- félag, eiga sér eina orsök. Þessi orsök er fyrirbrigði sem allir marktækir hagspeking- ar, góðir og grandvarir kaupsýslumenn og aðrir, sem bera heill og hamingju fólks og félags fyrir brjósti, já skæðasta leiðar- stjarnan í öllum rekstri, ekki hvað síst flug- rekstri sem sagt óskadraumur allra frjálsra og hugsandi manna. Og vitið þið nú... Nú kemur það... Það sem varð Flugleiðum að falli, var „FRJÁLST FRAMTAK OG HEIÐARLEG SAMKEPPNI" — endurtek „FRJÁLST FRAMTAK" !!!!, og sökudólgurinn enginn annar en Carter möndlusali. Þessi unaðslegi sjónvarpsþáttur leiddi okk- ur öll í þann sannleika að það er forseti Band- ríkjanna, en ekki forstjóri Flugleiða, sem er „boðberi válegra tíðinda", þess vegna er óþarfi fyrir Sigurð að vera svona voða sak- bitinn útaf boðberahlutverkinu. Nú fóru fimmmenningarnir í sjónvarpinu að velta því f yrir sér hvort hugsanlegt væri að færri farþegar kæmu til (slands þegar flug- ferðum til landsins væri fækkað úr tuttugu á viku niður í tvær á á viku en eftir drykklangar og uppbyggilegar umræður, komust viðræð- endur að þeirri niðurstöðu að engin hætta væri á farþegafækkun og var í því sambandi bent á, að það væri ekki ágiskun ein heldur staðreynd að þeir sem stoppuðu hér á íslandi eina nótt, hefðuskemri viðdvöl en þeir sem dveldust hér í hálfan mánuð. Þá var komið að því atriðinu, sem ef til vill er viðkvæmast í öllu þessu máli, en það er í hvaða þjóðlandi, eða löndum best sé að hafa viðhald. Haft var orð á því að flugleiða- mönnum hefði til skamms tíma þótt hentugast ódýrast og hagkvæmast að hafa viðhald í Bandaríkjunum, en þó hefðu þeir lika viðhald í Luxemburg. Sumir vilja eftir því sem næst verður komist, fá viðhaldið f rá Luxemburg og hingað til Reykjavíkur, en það er ýmsum vandkvæðum bundið meðal annars vegna þess hvað erfitt er að athafna sig hér heima með viðhald en Ijóst var að flugleiðamenn hafa viðhald í a.m.k. þrem þjóðlöndum. Lúxem- borgarmenn heimta hins vegar meira viðhald. Og nú var eins og sagt er „tíminn hlaupinn frá okkur og nokkur orð í lokin". Og þá var það að þessi vísdómsorð komu frá einum af viðræðendum: „Ef allir settust niður og ein- beittu sér að lausn májsins í bróðerni, þá væri vandalaust að afstýra þessum stórvand- ræðum og stofna nýtt flugfélag sem ekki að- einsflygi yfir Atlandshaf heldur væri og rekið með vinsemd og virðingu og bullandi stórtapi til heilla, hamingju og hagsældar fyrir ís- lensku þjóðina. Nú ríður á að halda þotunum í loftinu, eða eins og skáldið sagði: Sagt er að það sé æði oft sem almenningur blæði til að allt fari uppi loft og auðkýfingar græði. Flosi. Alþýðuleikhúsið hefur nil endanlega gefist upp á aö fá gamla SigtUn viö Austurvöll undir leikstarfsemi þó aö húsiö sé „ideal” fyrir slika starfsemi, bæöi vegna staösetningar og hússins sjálfs. Póstur og simi ber fyrir sig aö auk mötuneytis sem rekiö sé f hádeginu i þessu húsi fari fram félagsstarfsemi starfs- fólksins i þvi á kvöldin. Þetta mun þó fyrirsláttur aö mestu þvi aö umrædd félagsstarfsemi er sára- litil. Númun Alþýöuleikhúsiö hins vegarhafa fengiö augastaö á ööru húsi, nefnilega Hafnarbiói, og mun eigandi þess ekki fráhverfur þeirri hugmynd aö leigja húsiö. Eins og kunnugt er reka sömu aö- ilar Hafnarbió og Regnbogann og eru kunnir fyrir aö vera hliöhollir menningarstarfsemi og hafa tiö- um léö Regnbogann undir kvik- myndavikur og klúbba þó aö aö- sókn hafi ekki alltaf veriö mikil að einstökum sýningum. Ellert Schram, formaður Knattspyrnu- sambands Islands, hefur látiö mörg stór orö falla um ,,em- bættismenn” innan veggja Rikis- útvarpsins. Hann hefur m.a. sagt aö þeir hafi virt rétt fjöldásam- taka aö vettugi án þess aö hafa til þess umboð. Nú bregöur svo viö aö embættismennirnir eiga aö sækja umboö sitt til útvarpsráös og i' þvi ráöi situr einmitt ritstjór- inn EllertSchram. betta minnir á það þegar Ingólfur Jónsson, kaupfélagsstjóri höföaöi mál gegn Ingólfi Jónssyni, samgöngu- ráöherra.... Máliö Ellert B. Schram formaöur Knattspyrnusambandsins gegn EllertSchram litvarpsráðsmanni bbbbbv Störf ganga stundum i ættir og þaö viröist eiga við um blaöamennsk- una á köflum. Tvö börn Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaöamanns á Morgunblaöinu, eru nú komin á fullt i blaöamennskunni. Illugi Jökulsson er blaöamaöur á Visi og skrifar aöallega i Helgarblaö Visis — viö góöan oröstir. Og nú hefur Elisabet Jökulsdóttir veriö ráöin sem blaðamaöur á Timan- um. Þess má geta i framhjá- hlaupi aö Jökull heitinn Jakobs- son, faöir þeirratvar blaöamaöur, bæði á Tfmanum og Vikunni á sinum tima. Elisabet á aö sjá um Byggöa-Timann, sérkennilegt fyrirbæri i islenskri blaöa- mennsku, ásamt Friörik Indriöa- syni. Og meöal annarra oröa, Friörik er sonur Indriöa G. Þor- steinssonar sem um mörg ár var ritstjóriTimans en er nú aöallega þekktur af blaöaskrifum sem Svarthöföi VIsis. Sparnaður var gefinn ástæöa fyrir uppsögn- um toppmanna hjá Flugleiöum um daginn. Ekki er þó allt sem sýnist. Innanlandsflugiö var sett undir svokallaö markaössviö og Einar Helgason framkvæmda- stjóri þess þar meö geröur aö undirmanni Björns Theódórsson- arog sjá fáir spamaöinn i þessari ráöstöfun. Hinar réttu ástæöur munu hins vegar vera þær aö I sumar neitaöi Einar Helgason aö skrifa undir bréf til stjómvalda þar sem þvi var hótaö aö innan- landsflug yröi lagt niöur ef ekki fengist 18% hækkun á fargjöld- um. Varö Siguröur Helgason þvi sjálfur aö skrifa undir bréfiö en Einar var lækkaöur i tign. Ekki er einskær grátur vegna ófara Flugleiöa iþessa dagana. Eigend- ur skipafélaganna, sem sjá fram á aukna flutninga meö fækkun flugferöa, gráta t.d. þurrum tár- um. Þannigmun vist hlakka held- ur I Albert Guömundssyni, einum stærsta eiganda og stjórnarfor- manni Hafskips h.f. sem nú telur sig geta slegið tvær flugur I einu höggi: aukið vöruflutninga Hafskips og jafnframt velgt Geirsliöinu I Flugleiöum undir uggum. Albert grætur þurrum tárum yfir óförum Fiugleiöa. Stofnun nýs flugfélags var aöalfrétt á baksiöu Morgunblaösins einn góöan veöurdag fyrir skömmu. Var þvi slegiö upp aö Svavar Gestsson félagsmálaráöherra ætti I viöræöum viö starfsfólk Flugleiöaum stofnun sliks félags. Gárungarnir fóru strax á staö og gáfu félaginu heiti. Sumir vildu nefna þaö Alþýöuflugleiöir h.f., aörir Flugfélag Alþýöubanda- lagsins. h.f. aörir og enn aörir A1 Stofnar Svavar Gestsson Alþýöu- flugleiöir h.f.? Islandia. Og einkennisstafir flug- vélanna yröu auövitaö á þessa leiö: TF-ÓRG. Tf-MAO, TF-CHE, TF-HO o.s.frv. Þeir sem illgjarn- astir voru töldu aö flugfélagiö ætti aðeins aö fljúga á einni leiö nefni- lega Keflavik-Moskva — aöra leiö. Heyrst hefur á gróustigum borgarinnar aö I uppsiglingu sé ný hljómsveit sem þykir liklega til nokkurra af- reka á tónlistarsviöinu. Hana skipa Tómas Einarsson sem þen- ur harmoniku og stýkur strengi bassafiölu, Sigurbjörn Einarsson sem blæs i saxafón og gripur I tvi- rööung, Jóhann G. Jóhannsson (nei, ekki sá) sem leikur á slag- hörpu, Sveinbjörn I. Baldvinsson sem spilar á gitar og Siguröur Guöni Valgeirsson slær taktinn fyrir piltana á trommur. Ekki vit- um viö hvaö hljómsveitin á aö heita.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.