Þjóðviljinn - 06.09.1980, Page 29
Frábær mánudagsmynd
Tíska og
töfrar
Sýningarfólk úr Karon-samtök-
unum kemur fram ásamt Baldri
Brjánssyni töframanni á
skemmtikvöldi i veitingahúsinu
Artúni I kvöld, laugardagskvöld.
Hljómsveitin Aria leikur sföan
fyrir dansi, i gömlum og nýjum
stil, til kl. þrjú eftir miðnætti.
Ártún er nýr veitingastaöur, til
húsa að Vagnhöfða 11. Þar hafa
verið haldnir almennir dansleikir
að undanförnu, en nú er ætlunin
að breyta til, að því er segir i
fréttatilkynningu, og kemur til -
greina að framhald verði á
skemmtikvöldunum fram eftir
haustinu. Aðgangseyrir verður sá
sami og að veitingahúsum I borg-
inni.
ih
Ortodoxa-
messa í
Dómkirkjunni
A morgun, sunnudag, verður
sungin nýstárleg siðdegismessa i
Dómkirkjunni i Reykjavik. Sið-
skeggjaðir ortodoxir prestar frá
A-Evrópu og viðar munu syngja
messuna, og er hún kennd við
heilagan Jóhannes Chrysosto-
mus.
Metropolitan Emilianos pré-
dikar og mun þar fjalla um trú og
hefð ortodoxra. Guðsþjónustan er •
öllum opin, og hafa gestirnir lagt
áherzlu á að Islendingar gætu
fengiönokkra innsýn i hefð og siði
ortodoxu kirkjunnar. Stuðnings-
lesefni verður fáanlegt við kirkju-
dyr.
Messan hefst kl. 13:30, sem er
óvenjulegur timi, en hún tekur
a.m.k. tvo tima.
Hinir ortodoxu kirkjuleiötogar
munu halda I Skálholt slðdegis á
sunnudag að lokinni móttöku
biskups aö Hótel Borg. Meðan
þeir þinga eystra verða morgun
og kvöldbænir sem öllum er vel-
komið að sækja i Skálholtskirkju.
Full ástæða er tii að vekja at-
hygli á mánudagsmynd Háskóia-
biós um þessar mundir,
svissnesku myndinni Knipplinga-
stúlkan (La Dentelliére) eftir
Claude Goretta.
Svissneskar kvikmyndir hafa á
siöustu árum komist i annála, og
er það einkum tveimur mönnum
að þakka: Goretta og Alain Tann-
er. Báðir hafa þeir gert myndir
sem eru i senn listrænar og upp-
fullar af þörfum og góðum boð-
skap. Viðfangsefni þeirra beggja
eru mannleg samskipti og þær
hömlur sem þjóðfélagið setur
þeim. t Knipplingastúlkunni er
sagt frá sambandi ungrar stúlku
áf verkalýösstétt, við stúdent af
borgaralegu slekti.
Hér verður efni myndarinnar
ekki rakiö, en lesendum bent á að
láta sig ekki vanta I Háskólabió á
mánudaginn. Myndin er fagur-
lega tekin, afbragðsvel leikin — i
aðalhlutverkunum, tveimur eru
Isabelle Huppert og Yves Beney-
ton — og lætur engan mann
ósnortinn. Öhætt er að fullyrða að
hér er komin ein af áhrifamestu
ástarsögum hvita tjaldsins um
árabil. —ih
Yves Neneyton og Isabelle Huppert f Knipplingastúlkunni.
Paul Zukofsky stjórnar 90 manna
hljómsveitinni á æfingu I Há-
skólabiói. Ljósm. _gel—
Zukofskí
90 manna hljómsveit
Sinfóniuhljómsveit tslands og
hljómsveit Tónlistarskólans I
Reykjavik halda sameiginlega
tónleika I Háskólabiói kl. 14 I dag,
laugardag. Stjórnandi á þessum
tónleikum verður bandariski
fiðluleikarinn og hljómsveita*-
stjórinn Paul Zukofsky.
A tónleikunum verða flutt þrjú
verk: Greeting Prelude eftir
Stravinsky, Vor i Appalachiaeftir
Aaron Copland og Sinfónia nr. 4
eftir Tsjækovsky.
Samtals eru hljóðfæraleik-
ararnir sem flytja þessi verk um
90 talsins, og er ekki oft sem tæki-
færi gefast til aö hlýða á jafnfjöl-
menna hljómsveit hér á landi.
Öhætt er að fullyrða að aldrei hafi
jafnmargir tslendingar leikiö
saman og á þessum tónleikum.
stjórnar
r Háskólabíói
Paul Zukofsky hefur dvalist hér
á landi undanfarnar vikur og
stjórnað alþjóölegu námskeiði er
Tónlistarskólinn i Reykjavik
gekkst fyrir. Var þaö i þriðja sinn
sem hann stjórnar námskeiöi hér
á landi. Zukofsky er mjög eftir-
sóttur sem einleikari, stjórnandi
og kennari, einkum þó við flutn-
ing nýrra tönverka. Hann er
fæddur i New York 1943 og hóf
nám i fiðluleik fjögurra ára gam-
all. Hann kom fram opinberlega I
fyrsta sinn átta ára aö aldri, er
hann lék meö Sinfóniuhljómsveit-
inni i New Haven. Tvitugur hlaut
hann meistaragráöu frá Juiliard-
tónlistarháskólanum og i dag er
hann talinn fremstur meðal
þeirra fiðluleikara sem flytja
samtimatónlist.
—ih
Una Dóra Copley í Norrænahúsinu
1 dag, laugardag, verður opnuð á málverkum grafik ofl. eftir Unu anna Ninu Tryggvadóttur og
I anddyri Norræna hússins sýning Dóru Copley, dóttur listamann- Alcopley.
Una Dóra fæddist I Reykjavik
1951, en ólst upp i Paris, London
og New York. Hún lærði listasögu
við háskólann I New York og lauk
þaðan námi 1972. Einnig hefur
hún lært málun undir handleiðslu
nokkurra listamanna i New York
en aö þvi er hún hefur sjálf sagt I
blaðaviðtali hefur hun fengist viö
málun alla tið og alist upp innan
um marga góða listamenn. Sýn-
ingin i Norræna húsinu er fyrsta
einkasýning Unu Dóru. Þar sýnir
hún verk sem hún hefur unniö s.l.
fimm ár.
Sýningin er opin kl. 9—19 dag-
lega. Henni lýkur 28. september.
—ih
’Helgin 6.-7' seþi. Í980 bjóÐVÍLjlNN — SH)A 29
Ein af myndum finnska listamannsins sem sýnir I Suðurgötu 7.
Mannslíkaminn
í Suðurgötu 7
Finnski listamaðurinn Ilkka
Juhani Takalo-Eskola opnar
sýningu i Galleri Suðurgöhi 7 kl. 4
i dag, laugardag. Myndir hans
eru unnar meö blandaðri tækni.
Dkka Juanani hefur áður sýnt á
tslandi, á sýningu finnska hópsins
„Uppskerumennirnir” I Norræna
húsinu 1976. 1 fréttatilkynningu
frá galleriinu segir m.a.:
„Athygli vekur hversu fjölbreyti-
lega listamaöurinn teflir fram
formum mannslikamans viö ólik-
legustu skilyröi og i fjörlegu sam-
spili viö mismunandi aöstæður.”
Sýningin verður opin frá 4-6
virka daga og 4-8 um helgar. -íh
Septem ’80
Sjöunda sýningin
— Við sýndum fyrst saman
1974, — sagði Valtýr Pétursson,
einn af félögum Septem-hópsins,
sem opnar sina sjöundu mynd-
listarsýningu að Kjarvalsstöðum
kl. 2 I dag, laugardag. Blaða-
maður leit inn til þeirra I fyrra-
dag, þegar listaverkunum hafði
verið komið fyrir I Kjarvals-
salnum.
— Við höfðum öll sýnt á
september-sýningunum, en þessi
hópur okkar er sjálfstætt fyrir-
bæri, og ber ekki að rugla þessu
tvennu saman, — sagði Valtýr
ennfremur. — A sýningum okkar
eru yfirleitt nýunnin verk, og svo
er einnig nú. Flest verkin hafa
verið unnin á þessu ári sem liðið
er frá þvi við sýndum hér að
Kjarvalsstöðum i fyrra. Áður
sýndum við I Norræna húsinu, en i
fyrra bauð borgin okkur aðstöðu
hér.
1 hópnum eru, auk Valtýs,
Guðmunda Andrésdóttir, Jóhann-
es Jóhannesson, Karl Kvaran,
Kristján Daviðsson, Sigurjón
Ólafsson og Þorvaldur Skúlason.
I ráöi er að sýningin, eða hluti
hennar, verði sett upp á Akureyri
þegar henni lýkur hér syöra. t
Kjarvalssalnum eru til synis 60
oliumálverk og fimm skúlptúrar,
sem allir eru eftir Sigurjón ólafs-
son. Flest verkin eru til sölu.
— En við erum ekki aö sýna
peninganna vegna, — sagði Þor-
valdur Skúlason, — heldur ber að
lita á þessa sýningu sem eins-
konar játningu. Maður leggur
fram þaö sem maöur er i dag.
— Já, og svo reynum við aö
halda uppi menningarfronti á
þessu sviði, — bætti Kristján
Daviösson við.
Guðmunda Andrésdóttir gekk
með blaöamanni um salinn og
sýndi verkin. Hún sagðist álita að
þetta væri þeirra besta sýning til
þessa. Sýningin veröur opin til 21.
september, kl. 2—10 daglega.
—ih
Septem-hópurinn, f.v. Jóhannes, Karl, Kristján, Guðmunda, Þorvaldur
og Valtýr. Sigurjón Ólafsson mætti ekki I myndatökuna. — Ljósm.
—eik—
30 fötluð börn í
dagsferð til Eyja
1 dag, laugardag, fara 30 fötluð
börn frá Reykjavík I dagsferð til
Vestmannaeyja. Slikar ferðir
hafa verið farnar árlega undan-
farin ár, en venjulega hefur verið
fariö til Akureyrar.
Kristinn Guðmundsson er aöal-
hvatamaður og fararstjóri i
þessum ferðum, og sagöi hann aö
bæjarstjórinn i Eyjum heföi boöið
hópnum i mat, auk þess sem farið
yröi I bátsferð ef veður leyfði. Þá
verða bömunum sýndar kvik-
myndir sem sýna Vestmanna-
eyjar fyrir og eftir gos. Flogið
veröur til Reykjavikur I kvöld.
—ih