Þjóðviljinn - 21.03.1981, Side 3
Helgin 21,—22. mars 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
® ÚTBOЮ
Til sölu
Tilboö óskast i verkstæðis- og geymsluhús að Selásbletti 3.
Um er að ræða múrsteins- og timburhús, sem eru u.þ.b.
493 ferm að grunnfleti og u.þ.b. 1571 rúmmetrar. Kaup-
andi skal rifa og/cða fjarlægja húsin að öllu leyti fyrir 14.
mai n.k..
titboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri og verða tilboö
opnuðá sama stað þriðjudaginn 31. mars n.k. kl. 11 f.h..
Ávarp frá félagsmálaráðuneytinu
framkvæmdir og skipulag að-
stoðar og þjónustu. Félagsmála-
ráðuneytið hvetur þvi samtök
fatlaðra til aö efla samvinnu og
samstarfsvilja sinn,þrátt fyrir að
hagsmunir geti i einstökum til-
vikum stangast á. Arangur af
sameiginlegu átaki samtaka fatl-
aðra, stjórnvalda og almennings
er háður þvi að samtök fatlaðra
standi saman án tillits til hvers
eðlis fötlunin er.
Félagsmálaráðuneytið óskar
fötluðum alls góðs i tilefni dagsins
og hvetur almenning allan til ao
gera ár fatlaöra sem árangurs-
rikast þannig að enn meira vinn-
ist i réttindamálum þeirra i kom-
andi framtiö.
HURÐARAS
■■UMJtefe
f
OXL?
Því miður hafa ófáir reist sér hurðarás um öxl við að eignast eigið húsnæði. Til að forðast slíkt er
um aö gera aö athuga mjög vel sinn gang áður en hafist er handa. Kynna sér alla valkosti og meta
þá rétt. Lestu hér um nokkur atriði sem máli skipta.
EINKENNI ELDRA KERFIS:
Útborgun oftast um 75% heildarverðs og
greiðslubyrði því þung i upphafi. Eftirstöðvar
söluverðsins til 4 eða 5 ára á 18-20% vöxtum,
þótt verðbólgan æði áfram 50-60% á ári.
Rýrnun eftirstöðvanna veldur hinni háu út-
borgun. Þetta gerir íbúðarkaup oft óviðráðan-
leg fyrir ungt fólk.'Og veldur óöryggi hjá eldra
fólki, sem vill minnka við sig.
Leitið nánari upplýsinga um verðtryggingu í
fasteignaviðskiptum. — Sanngjarna leið,
sem auðveldar fólki jafnt kaup sem sölu.
NYR VALKOSTUR:
Fasteignamarkaður Fjárfestingarfélagsins
Fjölbreytilegir og sveigjanlegir skilmálar.
Verðtryggðar eftirstöðvar sem rýrna ekki.
Þannig opnast möguleikar á lægri útborgun.
Þetta auðveldar t. d. ungu fólki Ibúöarkaup
eða skipti og skapar seljanda vissu um fjár-
hagslega stöðu sína í framtíðinni.
Fasteignamarkaöur
m
WR“S Fjárfestingarfélagsinshf
(HÚS SPARISJÓÐS REYKJAVÍKUR) Lögfræöingur: Pétur Pór Sigurðsson
UTBOÐ
Skipalyfta i Vestmannaeyjum
Hafnamálastofnun rikisins og Hafnar-
stjórn Vestmannaeyja óska eftir tilboðum
i smíði 1. áfanga skipalyftu i Vestmanna-
eyjum.
í þessum áfanga skal steypa kanta á stál-
þil og undirstöður lyftuspila og færslu-
teina, koma fyrir brunnum og lögnum svo
og steypa þekju. Jafnframt er óskað eftir
tilboðum i smiði stjórnstöðvar- og spennu-
stöðvarhúss.
Útboðsgögn eru til sýnis og afhendingar á
skrifstofu Vita- og hafnamálastofnunar,
Seljavegi 32 Reykjavik, og i Ráðhúsi Vest-
mannaeyja frá og með 23. mars 1981.
Útboðsgögn eru afhent gegn 1000 kr. skila-
tryggingu.
Frestur til að skila tilboði er til kl. 11, 6.
apríl 1981. Lokaskilafrestur verks er 15.
sept. 1981.
Reykjavík, 21. mars 1981.
Y firs júkraþ jálfari
óskast
sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur yfirlæknir i sima
99-4201 milli kl. 2 og 3.
H.N.L.F.Í. Hveragerði
í tilefni af alþjóða-
degi fatlaðra
I tilefni af alþjóöaári fatlaðra
1981 vill félagsmálaráðuneytiö
vekja sérstaka athygli á deginum
i dag, 22. mars, en sá dagur hefur
verið ákveðinn alþjóðlegur dagur
hreyfihamlaðra mörg undanfarin
ár.
1 tilefni af þessum degi er
ástæða til að staldra við og rif ja
upp það sem áunnist hefur i mál-
efnum fatlaðra á Islandi án tillits
til hvers eðlis fötlunin er, en jafn-
framt horfa fram á veginn og
gera sér grein fyrir þvi hvaða
verkefni eru brynust á komandi
árum.
Á siðustu árum hefur átt sér
stað mikil viðhorfsbreyting hjá
almenningi og stjórnvöldum til
málefna fatlaðra eftir áratuga
baráttu ýmissa öryrkjafélaga
fyrir viöurkenningarrétti. Sett
hefur verið margvisleg löggjöf
þar sem markmiðið hefur verið
að tryggja fullkomna þátttöku og
jafnrétti fatlaðra við aðra þjóð-
félagsþegna. Má i þvi sambandi
nefna lög um ráðstöfun erfðafjár-
skatts sem hefur haft i för með
sér að unnt hefur verið að fjár-
magna mikið af þeim dvalar- og
vinnustöðum fatlaðra sem starf-
ræktir eru á Islandi i dag. Þá má
minnast á lög um endurhæfingu
sem komu skipulagi á endurhæf-
ingarmál og loks lögin um aðstoö
við þroskahefta, sem tóku gildi 1.
jan 1980 og hafa reynst eitthvert
stærsta framfaraspor til þessa
við að tryggja jöfnuð og viður-
kenningu á réttindum hóps fatl-
aðra sem litill gaumur hafði verið
gefinn að til þessa.
bessi lagasetning svo og annar
árangur sem hefur náðst i þá átt
að tryggja fötluðu fólki jafnstöðu
við aðra þjóðfélagsþegna er fyrst
og fremst afleiðing þrotlausrar
baráttu hagsmunasamtaka fatl-
aðra i þessu landi. Án hins fórn-
fúsa starfs, sem fatlaðir, að-
standendur þeirra og fjöldinn
allur af áhugamönnum i þessu
landi hefur lagt af mörkum, hefði
ekki sá árangur náðst sem allir
tslendingar sjá i dag sem veru-
leika. Draumur fatlaðra um full-
komna viðurkenningu, þátttöku
og jafnrétti hefur þó ekki ræst
enn. Mörg áratog.þarf aö taka
enn til að ná landi.
Stærsta vandamál fatlaðra eru
atvinnumál. Alveg án tillits til
þess hver fötlunin er þá eru fatl-
aðir sammála um að þetta vanda-
mál sé brýnast úrlausnar. 1 þeirri
heildarendurskoöun sem félags-
málaráðuneytiðlætur nú vinna aö
á gildandi lögum og reglugerðum
um málefni fatlaöra er sérstak-
lega gert ráð fyrir verulegu átaki
i bessum málaflokki.
Ferlimál, eða umferðarmál
fatlaðra eru gjarnan nefnd i sömu
andránni og atvinnumál, þar sem
aðgangur fatlaðra að byggingum
og möguleikar til umferðar er oft
talinn forsenda þátttöku þeirra i
atvinnulifinu. Ferlimál er ef til
vill sá málaflokkur sem er best
kynntur meðal almennings, enda
er hér um alvarlegt vandamál að
ræða þrátt fyrir að þaö er fyrst og
fremst bundið við likamlega
fötlun, hreyfihömlun, sjón- og
heyrnarskerðingu. Unnið er nú
að úttekt á opinberum byggingum
með það fyrir augum að gera til-
lögur um breytingar á þeim til að
auðvelda fötluðum aðgang, jafn-
framt þvi að i undirbúningi er
sérstakt frumvarp sem á að auð-
velda breytingar á ýmsum bygg-
ingum á vegum rikis og sveitar-
félaga.
bó svo að hér hafi aðeins verið
drepiö á tvo málaflokka er snerta
fatlaöa þá eru vandamál fatlaðra
miklu fleiri. Má i þvi sambandi
t.d. minna á skort á aðstöðu til
sérkennslu, tryggingamál og
tollamál svo eitthvað sé nefnt. A
siðustu misserum hefur orðið
ljóst að mikil þörf er að koma á
heildarsamræmingu og skipulagi
á þjónustu til handa fötluðum. t
þvi skyni lætur nú félagsmála-
ráöuneytið vinna að stefnumótun
til langs tima i málefnum fatl-
aðra, sem ætti aö geta orðið
leiðarljós við ákvörðunartöku i
þessum viðamikla málaflokki i
framtiðinni.
brátt fyrir að mikið hafi áunn-
ist á siðustu árum, augu almenn-
ings hafi opnast og skilningur
aukist á vandamálum fatlaðra er
ekki hjá þvi komist að minnast
þess á alþjóöadegi fatlaðra _að
stundum hefur skort á að tekist
hafi nægileg samvinna samtaka
fatlaðra sjálfra i sambandi við