Þjóðviljinn - 21.03.1981, Side 6

Þjóðviljinn - 21.03.1981, Side 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 21,—22. mars 1981. MOOVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýds- hreyfingar og þjódfrelsis Otgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Olafsson. Auglýsingastjóri: Þorgeir Ólafsson. Umsjónarmaður sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Afgreiöslustjóri: Valþór Hlöðversson Blaöamenn: Álfheiður Ingadóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórs- son. tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttaritari: Þorsteinn Magnússon. Útlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Sævar Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Eliasson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir. Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgreiðsla: Kristin Pétursdóttir, Bára Sigurðardóttir. Simavarsla: ölöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir. Bilstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns- dóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Siðumúla 6, Reykjavik, simi 8 13 33. Prentun: Biaðaprent hf.. ríisijornarsrcirn 22. mars Fölna stjörnur • Hægribylgjan, sem svokallaðir nýfrjálshyggjumenn hérlendis sem annarsstaðar hafa f leytt sér á, hef ur ekki staðið lengi, en það er engu líkara en hún sé þegar á niðurleið. Að minnsta kosti er af aðdáendum hennar allur hrifningarljómi og grámóska vonbrigðanna er tekin við. Þetta sést glöggt þegar skoðuð eru hin og þessi skrif sem birtast um þessar mundir i háborgaralegum blöðum um frammistöðu þeirra tveggja stjórnmálafor- ingja, sem hafa verið holdtekning glæstustu vona hægri- sinna, Reagans forseta og Thatcher forsætisráðherra Bretlands. • Reagan virðist ekki eiga nema eitt svar við flestum spurningum: að vígbúast sem mest og senda þeim sem hollir eru Bandaríkjunum sem mest af vopnum, hvað sem viðtakendur kunna annars að hafa á samviskunni. Þessistefna krystallast rækilega í El Salvador — og sæt- ir furðulega samstilltri gagnrýni, einnig af hálfu háborgaralegra fréttaskýrenda. Til dæmis varar stórblaðið New York Times við því í nýlegum leiðara, að sé haldið áfram að ausa vopnum í stjórn El Salvador „getur það aðeins eflt hægriöfgamenn innan hennar, þá sem hafa brugðið fæti fyrir félagslegt réttlæti og skipt- ingu jarða og hafa þar með breytt bændum í uppreisnar- menn... Versta hugsanlega baráttuaðferðin gegn vinstri- öflunum, segir blaðið ennfremur, er að gera málstað ofbeldisfullra erindreka hnignandi fámennisklíku að sínum". • Fréttaskýrendur Washington Post hafa einnig verið lítið hrifnir af frammistöðu Reagans í öðrum alþjóðamálum. Til dæmis líst þeim bölvanlega á þann sérgóða þjósnaskap sem kemur fram í því, að Reaganstjórnin gerir sig líklega til að afturkalla stuðning sinn við alþjóðlegt samkomulag um skiptinguj auðæfa á hafsbotni. Þá þykir því blaði það heldur ekki' viturlegt, að Reaganstjórnin snýr bæði með þessari af- stöðu og niðurskurði á ýmislegri þróunaraðstoð baki við ýmsum hinum fátækustu ríkjum, meðan aukin er her- gagnaaustur í ýmsar þær stjórnir ’sem illræmdastar eru. I gær bárust einmitt f regnir um að áf ram er fetað á þessari braut: Reaganstjórnin bað þingið um að leyfa sér að selja aftur bandarísk vopn til stjórnar Argentínu, sem hef ur átt beinan og óbeinan þátt í f leiri pólitískum morðum og víðtækari pyntingum en nokkur önnur stjórn sem nú er við lýði. • Margrét Thatcher var sjálf vonin blíð í augum þeirra sem vildu klára og kvifta nýkapítalíska stefnu í efnahagsmálum. Nú hefur stjórn hennar sett f ram nýtt f járlagaf umvarp, sem fær hina verstu einkunnir. Walter Goldsmith, formaður breska atvinnurekendasambands- ins, segir í nýlegri grein í Sunday Times, að nú séu allar þær fögru sýnir sem glöddu gömul augu bisnessmanna við valdatöku járnf rúarinnar roknar út i veður og vind. Þeir hefðu verið reiðubúnir að ganga í gegnum ýmsa erfiðleika ef fylgt væri fast eftir nýfrjálshyggjunni, en nú væri allt í ringulreið og atvinnurekendur í uppnámi. Blaðið Guardian segir í leiðara, að f járlögin muni engum koma að haldi, en gera alla fátækari en þeir nú eru, og koma þó harðast niður á þeim sem verst eru settir fyrir. Þau eru, segir blaðið, minnisvarði yfir þá tegund steinaldarhagfræði, sem flestir héldu að hefði verið husluð á f jórða áratugnum — og spáir blaðið því með nokkrum trega, að miljónir manna sem kusu Ihaldsflokkinn 1979 hafi verið hraktir á brott frá þeim f lokki, kannski fyrir f ullt og allt! • Hér er ekki vikið orði að neinskonar vinstrigagnrýni, en aðeins minnt á nokkur dæmi um megna óánægju með átrúnaðargoð leiftursóknarmanna í háborgaralegum málgögnum. Helsta málgagn leiftursóknar hérlendis, Morgunblaðið, hefur áður látið uppi lítilþæga hrifningu af þessum hægriforingjum tveim, en hefur nú um stund verið næsta fátalað um þá. Það væri nú ekki úr vegi að blaðið ræki upp smátíst um þessi mál — þó kannski kæmi þá ekki annað fram en það sem oft gerist áður, að trú- festa blaðsins reynist dæmafá, þegar hægrisinnaðir leiðtogar Bretlands og þó einkum Bandaríkjanna eiga í hlut. — áb. Þegar ég, á elleftu stundu og óvænt, fékk tilmæli um að skrifa almanaksgrein að þessu sinni, vegna þess, að sá, sem það átti að annast það samkvæmt „landslögum” á blaðinu, reynd- ist hafa öörum, og sjálfsagt þýðingarmeiri hnöppum aö hneppa, þá varð mér á að hugsa upphátt: Um hvað skal þá skrifa i þetta skiptið? Nær- staddur greip á lofti spurn- inguna, sem engum var raunar ætlað að heyra, og sagöi: Skrif- aðu bara um Búnaðarþingið. Og þó að alvaran að baki uppá- stungunni hafi e.t.v. verið I minna lagi og óskin um að fræðast um Búnaðarþing kannski ekki alveg fölskvalaus Búnaðarþing þá ákvað égsamstundis aö nota hana. Mér er heldur ekki grun- laust um að ýmsir, og kannski ekki sist sumir Reykvíkingar, geri sér rangar hugmyndir um Búnaðarþing og hafi takmarkaðan skilning á eðli þess, uppbyggingu og hlutverki. Og hverskonar stofnun er þá Búnaðarþing? Kannski er þá fyrst að því að vikja, að islensk búnaðarsamtök eiga sér langa sögu. En óhætt mun að segja, aö stofnun allsherjar búnaðar- félags á Islandihafi i fyrsta sinn verið hreyft opinberlega I rit- gerð, sem birtist i Norðra á Akureyri árið 1853. Höfundur hennar var ekki ómerkari maður en Einar Asmundsson, bóndi i Nesi i Höfðahverfi. Um sama leyti og Einar skrifaði þessa grein, var nokkur hreyf- ing að komast á stofnun búnaðarfélaga i einstökum sveitum. Uppbyggingu þessa „allsherjar búnaðarfélags” hugsaði Einar sér meö þeim hætti, að fyrst yrðu stofnuð félög i' hverri sveit, siðan stofni þau með sér samband i hverri sýslu er loks myndi landssam- band. Fimm meginþættir skyldu tengja saman lands- félagið: 1. ein höfuðlög, 2. yfir- stjórn, 3. ársfundur, 4. sam- eiginlegur sjóður, 5. timarit. Arsfundinn vildi Einar halda á Þingvöllum. Framsýni Einars i Nesi má af þvi marka, aö þarna lagði hann megin linurnar að þeirri félagsm álabyggingu búnaðarsamtakanna, sem siðan reis, að afstöðnum nokkuð lang- vinnum fæðingarhriðum að visu. Má þvi með réttu kalla Einar forgöngumann um stofn- un Búnaðarfélags íslands og Búnaðarþings. En þó að Einar í Nesi hefði nú hreyft þessu merka máli þurfti þó enn æði mörg áratog til þess að koma þvi' i' höfn. En hug- myndin haföi fæðst og hún hélt lífi, þótt Einar reyndist vera ærinn spöl á undan samtiðinni. Næst gerðist það, að að af- stöðnu Alþingi 1875 héldu nokkr- ir menn fund með sér i Reykjavfk og fól fundurinn Einari i Nesi að semja frum- varp til laga handa „almennu búnaðarfélagi”. Einar samdi frumvarpið en þaö sigldi i strand hjá amtmanni Vestur- amtsins, BergiThorberg ogá þvi skeri sat hugmyndin um hrið. Hreyfing komst svo aftur á máliö 1893 og þá fyrir tilstiili Búnaðarfélags Suðuramtsins. A fundi þess var kosin 5 manna nefnd til þess að semja nýtt frumvarp. Um frumvarpið náðist þó ekki samkomulag með ömtunum. Loks gekk saman með þeim og var þá samiö nýtt frumvarp. Þar með má segja, að stofnun Búnaðarfélags Islands hafiendanleganáð höfn, — hálfum fimmta áratug eftir að Einar i' Nesi hafði fyrst hreyft hugmyndinni, — þó að til fulls hafi ekki veriö gengið frá félagsstofnun fyrr en 1899. Fyrsti fundur Búnaðarþings var haldinn i barnaskólahúsinu i Reykjavik 7. júli 1899, og mættu þar 10 fulltrúar. Var þá kosin hin fyrsta stjórn Búnaðarfélags Islands og skipuðu hana: Forseti Halldór Kr. Friðriksson, varaformaður Július Havsteen, Eirikur Briem og Þórhallur Bjarnason. Varamenn voru Tryggvi Gunnarsson og Þorlákur Guðmundsson. Lög félagsins, þau er samþykkt voru við upphaf þess, stóðu óbreytt að kalla i aldarfjórðung, en var litils- háttar breytt á Búnaðarþingi 1923. I lögum frá 1931 er svo nánar skilgreindur tilgangur félagsins, og er þar raunar aðeins um að ræða nákvæmari útfærslu á því, sem gilt hafði i 30 ár, eða þannig: 1. að veita aðalforgöngu i starfandi iélagsskap bænda til efiingar landbúnaðinum, 2. að vera ráðgefandi tengiliöur á milli rikisvaldsins og bænda. 3. að vinna að þessu með rannsóknum, fjárstyrk og leiðbeinandi eftirliti. Til að byrja með voru það amtsráðin, sem kusu Búnaðarþingsfulltrúana, enda félagsmál landbúnaöarins meira og minna i molum og mótun. Þetta breyttist þó smátt og smátt er búnaðarfélögunum fjölgaði, búnaðarsamböndin voru mynduð og samtökin fengu á sig fastara form. Lögin frá 1899 kváðu svo á, að Búnaðarþing skyldi halda annað hvort ár, eða þaö ár, sem Alþingi sætiaðstörfum. Var það upphaflega skipað 12 fulltrúum, kosnum til fjögurra ára. Fyr- irkomulagið á kosningu fulltrúanna reyndist lengi mikið vandamál, sem hér verður ekki rætt. En með stofn- un búnaðarsambandanna, sem nú spanna landið allt, leystist þaö mál farsællega og kosn- ingarnar fara nú fram á þeirra vegum. Árið 1923 var svo ákveðið, að ráðinn skyldi sér- stakur framkvæmdastjóri fyrir félagið, búnaðarmáiastjóri, og hefur sú skipan haldist siöan. Þarkom að þvi að ákveðið var að Búnaðarþing skyldi haldiö árlega. Til þess bar sú nauðsyn, aðekki mátti biða um skör fram að afgreiöa ýmis þau mál, sem skotið var til þingsins, m.a. af „æðri máttarvöldum” eða m.ö.o. Alþingi. Fulltrúum á Búnaðarþingi hefur og fjölgað og eru þeir nú 25. Hér hefur i mjög grófum og ófullkomnum dráttum verið rakinn aðdragandinn að stofnun Búnaðarfélags Islands og Búnaðarþings og drepið á skipulag þessara stofnana. Þvi er ekki að neita, að Búnaðarþing hefur sætt nokk- urri gagnrýni stundum að undanförnu. Það er talið of kostnaðarsamt, standa of lengi og afsumum jafnvel talið óþarft með öllu. Þar mun þó enn ásannast að þeir tala mest um Ölaf konung, sem hvorki hafa heyrt hann né séð. Fyrir siðasta Búnaðarþingi lágu milli 50 og 60 mál, misjafn- lega þýðingarmikil að sjálf- sögðu en ýmis þeirra stórmerk. Þingið stóð i hálfan mánuð. Búnaðarþing hafði i athugun að stytta þingtimann enn. Ég fæ raunar ekki komið auga á að það sé unnt ef hægt á að vera að afgreiða slikan málafjölda meö sómasamlegum hætti. Vönduð afgreiðsla mála er þýðingarmeiri en það, hvort þingið stendur einum til tveim- ur dögum lengur eða skemur. A Búnaðarþingi er mikið unniðen minna talað. Kannski gæti Alþingi, þar sem allter að kafna i utandagskrármálæði, fundið sér fyrirmynd um vinnubrögð þar sem Búnaðarþing er. Sú venja hefur skapast að öll þau meiri háttar mál sem fyrir Alþingi koma og snerta bænda- stéttina, er visað til umsagnar Búnaðarþings og beðið um álit þess. I þeim efnum hefur það orðið að einskonar ráð- gjafarstofnun fyrir Alþingi og mun , stundum a.m.k., ekki af veita. Gagnrýnin á Búnaðarþing er einkum runnin af tveimur rót- um: Annarsvegar af vanþekk- ingu og hirðuleysi um þaö að kynna sér þingiö og störf þess. Þeir, sem þannig er ástatt um, eiga sér batavon. Hinsvegar stafar hún af einhverskonar eðlislægri og rótgróinni andúð á ölluþvf, sem við kemur islensk- um landbúnaði og bænda- stéttinni. Það aumingja fólk er ólæknandi. Arið 1853 sá Einar i Nesi hvaða þýöingu Búnaðarfélagið og Búnaðarþing gætu haft fyrir islenska bændastétt. Sú þýöing er engu minni nú, en fyrir 130 árum. Magnús H.Gislaso skrifar

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.