Þjóðviljinn - 26.09.1981, Qupperneq 2
f
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 26. — 27. september 1981
Afsál- og félagsfræöi-
legri atvinnubótavinnu
Þess var getið í Vikuskammtinum um síð-
ustu helgi, að nú hefðu endanlega verið leidd
að því haldgóð rök, að áfengisbölið í landinu
yrði aðeins leyst eftir félags-sál-atferlis og
þjóðfélagsfræðilegum leiðum og í samvinnu
við textílhönnuði, terapista og geðlækna.
Atferlismálaráð hef ur að undanförnu unnið
hör im höndum að því að uppræta brenni-
.> -! jlið i landinu, og eru allir aðilar félags-
^íi.Janna á einu máli um það að því um-
fai ineiri upplýsingar sem liggi fyrir um
tíðri.. magnog staði neyslunnar, sem og fjölda
neyftnda í landinu, þeim mun meiri líkur séu á
því að hægt sé að ná því háleita marki að
„BREYTA DRYKKJUVENJUM TIL HINS
BETRA".
„Það verður ekki fyrr en að gaumgæfilega
hef ur verið farið ofan í saumana á f ylleríinu á
fslandi eftir vísindalegum leiðum og niður-
stöður birtar, að hægt er að gera sér von um að
menn hætti að neyta áfengis í óhófi", er haft
eftir einum af höfuðpaurum félagsvís-
indanna.
Þessi gamli húsgangur á nef nilega ekki allt-
af við:
Ef að betur að er gáð
ætla ég megi sannast
að vísindin efla enga dáð
ættu því að bannast.
I raun og veru er ekki hægt að f inna áfeng-
inu og þeim sem hafa ánetjast því neitt til
málsbóta, nema ef til vill það að aðeins tíu
prósentaf umferðaróhöppum er hægtað rekja
til áfengisog þá má ef til vill segja að úr því að
níutíu prósent umferðaslysa séu af völdum
ódrukkinna manna, þá séu þeir ólíkt háska-
legri í umferðinni helduren þeir fullu.
Þá er og haft f yrir satt að aðeins eitt prómill
af skattsvikum sé f ramið í ölæði, svo ekki fer
milli mála að vænlegra væri fyrir ríkissjóð að
hafa skattgreiðendur pissf ulla, heldur en alls-
gáða þegar þeir telja fram.
En hvað um það. Nú hefur Atferlismálaráð
loksins birt niðurstöður rannsókna á „áfengis-
málastefnu" landsmanna.
Meginuppistaða skýrslunnar fjallar um
hópefli nokkurra kunnra félags-sál-atferlis og
þjóðfélagsfræðinga, textílhönnuða, terapista
og geðlækna.
Niðurstöðurnar eru ávöxturinn af intímri
punktanalýsu á drykkjumynstri Meyvants
nokkurs Pálssonar, sem gegnið hefur undir
nafninu „Mebbi Morgunslurkur" eða bara
„Morgunslurkurinn".
l upphafi var ákveðið að beita vísindunum
til að gera Meyvant frábitinn áfengi.
í fyrsta hópeflinu var hann ekki nægilega
jákvæður, enda kófdrukkinn. Hann var strax
varaður við „Skynmynstrun" (Perceptual
pattering), sem er tilhneiging til að taka við
áreitum, eins og þau eru skipulögð í mynstrum
eða myndum.
Viðbrögð Meyvants við þessum aðvörunum
voru athyglisverð.
Hann heimtaði kókosbollur.
Allir í hópef linu voru á eitt sáttir um það að í
neyslu kókosbollanna gætti alcoholiskrar til-
hneigingar.
,Félags sál og atferlisfræðingarnir í hópefl-
inu bentu Meyvanti á, að skynheildar-lögmál-
in væru tilraun til að gera grein fyrir reglum
skipulagningarinnar.
Ljóst var að Meyvant hafði enn ekki aðlag-
ast aðferðum félagsvísindamannanna og þeg-
ar hér var komið sögu óskaði hann eftir að fá
að bregða sér fram á afvikinn stað.
Næstu þrjár vikurnar var Mebbi Morgun-
slukur gersamlega týndur, svo farið var að
óttast um hann. En þá kom í Ijós að hann hafði
ráðið sig í vinnu í Stjórnarráðinu, svo ekki var
von hann týndist.
Hann var þegar kallaður á fund í hópeflinu
og honum kynnt kúlurit súlurit, Ifnurit og
kúrfur um drykkjumunstur karla á aldrinum
45—55 ára á Stórreykjavíkursvæðinu.
Einu viðbrögð Meyvants voru þau að hann
óskaði eftir kókosbollum til snæðings, enda
kófdrukkinn sem fyrr.
Hér komst Grúbban að þeirri niðurstöðu, að
skapast hefði „hugarmisræmi" (cognetive
dissonance) milli Mebba Morgunslurks og
hópeflishópsins. Þessi niðurstaða var raunar
byggðá yfirlýsingu Meyvatns um það að hann
botnaði hvorki upp né niður í hálærðu félags-
vísindamönnunum í hópeflinu.
Þá var brugðiðá það ráð, sem oft hef ur gef-
ist vel til að fá menn til að hætta að drekka.
Honum var kynnt tölvísinda-sálf ræðileg hnít
(Psycometric function), sem tilgreinir af-
stöðu megindlegra tilbrigða tiltekins áreitis til
umsagnar tilraunamanns, sem skýrir frá
áreitinu að sérstökum fyrirmælum.
Og viti menn. Þetta var þaðsem hreif. Síðan
hefur margnefndur Meyvant — öðru nafni
Mebbi Morgunslurkur ekki smakkað deigan
dropa. Ekki einusinni f vinnunni, nema þá
kannske fyrst á morgnana.
Félags-sál-atferlis og þjóðfélagsfræðingum
hafði f samvinnu við textílhönnuði, terapista
og aðra sál og sérfræðinga tekist að stemma
stigu við áfengisbölinu.
Niðurstöðurnar hafa þegar verið birtar, en
þó er sérstök ástæða til að vekja hér athygli á
séráliti Jóhönnu Guðbrandsdóttur sérþarfa-
sérfræðings, með hliðsjón af hófdrykkju-
mönnum:
Sérfræðinga sjónarmið
sýnist verða að kynna:
Hættið við að hætta við
að hætta að drekka minna.
Flosi.
sKráargatiö
Nýtt
land Vilmundar Gylfasonar spyr
um þaö hvaöan Þjóöviljinn hafi
upplýsingar um rekstrarafkomu
þess en hér i skráargatinu fyrir
viku sfðan var sagt aö blaöiö
hreyfðist varla I lausasölu. Sá
sem gægist á skráargatiö getur
hér meö upplýst aö hann gerir sér
þaö sér til dundurs i hvert sinn
hann kemur inn i sjoppu á
Stór-Reykjavíkursvæöinu aö
spyrja afgreiöslufólkiö hvernig
Nýtt land seljist. Og svarið er
alltaf á einn veg. Það hreyfist
ekki. Og þá er nærtækt aö draga
ályktanir. Hins vegar erum viö
ekkert aö ofsækja blaöiö, viljum
þvi meira aö segja mjög vel.
Fréttastofa
útvarpsins hefur veriö nokkuö i
sviösljósinu aö undanförnu. Fyrir
skömmu voru ráðnir þangað þrir
nýir fréttamenn og er ekkert
nema gott um þá aö segja. Hins
vegar var staöiö aö ráöningu
þeirra meö dularfullum hætti.
Auglýst var aö laus væri ein
staöa og voru þessir þrir fyrr-
greindu menn umsækjendur um
hana. Svo kom i ljós aö tvær
stööur voru lausar til viöbótar en i
staö þess aö auglýsa þær voru
bara allir umsækjendurnir um
fyrstu stööuna ráðnir á einu
bretti. Þetta heitir vist að fara
aftan aö lögum og reglum.
Björn
Friöfinnsson fjármálastjóri
Reykjavikurborgar sagöi af sér
öllum trúnaöarstörfum innan Al-
þýðuflokksins um daginn i Vil-
mundarlátunum miklu. Nú virð-
ist svo sem hann hafi snúiö sér
heill og óskiptur að svepparækt.
Blaðamaður Þjóöviljans hringdi I
hann til aö spyrjast fyrir um Lifs-
hlaup Kjarvals og svaraöi Björn
þvi til aö hann vissi ekkert um
þaö en gæti hins vegar frætt Þjóö-
viljann um allt varöandi sveppa-
rækt og visaöi i nýútkomna álits-
gerö frá Orkustofnun. Varö sam-
talið ekki öllu lengra, en sveppa-
ræktendum er hér meö bent á
Björn sem sérfræöing I faginu.
Og
úr þvi aö minnst er á Lifshiaup
Kjarvals. Guðmundur Axelsson i
Klausturhólum seldi innganginn
aö sýningunni um daginn á 35
krónur og hafa menn ekki dæmi
um annaö eins okur inn á eina
sýningu. Uröu ýmsir frá að
hverfa vegna þess aö þeir töldu
sig einfaldlega ekki hafa efni á aö
borga sig inn. Guömundur neitar
aö gefa upp hversu margir komu
á sýninguna en þar var örtröö oft
aö þvi er kunnugir herma og
giska menn á aö allt aö 10 þúsund
manns hafi séð hana. Þaö gefur
350 þúsund krónur I inngangseyri
eöa 35 miljónir gamalla króna og
ætti þaö fé aö vera allt aö helm-
ingur viögeröarkostnaöar.
Fregnir herma aö Guömundur
hafi svo fengiö tilboö uppi aö allt
aö 300 miljónum gamalla króna i
verkiö svo að hann kemur liklega
örlitiö betur en sléttur út úr þess-
um viöskiptum. En reyndar hefur
hann fariö fram á undanþágu frá
söluskatti til þess aö vera alveg
öruggur.
Villta
vinstriö kölluöu gárungarnir
menningarráöstefnu sem haldin
var um verslunarmannahelgina i
sumar. Þar var saman komiö rót-
tækt baráttufólk, ýmist úr vinstra
kanti Alþýöubandalagsins eða til
vinstri við þaö, hópur sem ekki
hefur skipulagt sig hingaö til.
Rætt var um ýmsar hliöar á
menningarbaráttunni og hvaö
mætti til varnar veröa vorum
sóma. Nú er útlit fyrir aö eitthvaö
ætli aö koma út úr þessum sam-
ræðum og nýtt timarit sé jafnvel
að fæöast.
Staða
kvenna var umræöuefni á al-
mennum fundi i Alþýöubandalag-
inu i Reykjavik á fimmtudaginn
og voru yfir 100 manns á fundin-
um og mjög liflegar umræður.
Tóku þar 15 manns þátt i umræö-
um, þar af 1 karlmaður og er
einsdæmi aö karlkyniö láti svo lit-
iö aö sér kveöa á Alþýöubanda-
lagsfundum. Nokkrir karlar voru
þó meðal fundarmanna, þ.á m.
ólafur Ragnar Grimsson. Um
leiö og hann kom á fundinn greip
Margrét Björnsdóttir fundar-
stjóri til þess ráös aö kyrrsetja
hann meö þvi aö gera hann að
fundarritara. Eini karlmaðurinn
sem tók til máls var nú reyndar
samt sem áöur ólafur Ragnar
Grimsson.
Fundur
stjórnmálamanna og guöfræö-
inga um „Friö á jörö” sem hald-
inn var i Skálholti um sl. helgi
hefur veriö talsvert milli tann-
anna á fjölmiðlum. Sérstaklega
hafa beömál Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar og ólafs
Ragnars Grimssonar veriö til
umfjöllunar, en kristilegt um-
buröarlyndi þeirra mun ekki hafa
enst þeim til þess aö deila her-
bergi.
Hannes
Hólmsteinn haföi forsögu og var
greinilegur oddviti þeirra ihalds-
manna á friöarfundinum, þótt
með honum væru ekki minni
menn en Halldór Blöndal og
Björn Bjarnason. Hverjum sem
heyra vildi kvaö hann allan vig-
búnaö vestan megin viö þaö miö-
aöan aö verja frelsiö og lýöræöiö,
og þá ekki sist nifteindasprengj-
an, sem sérstaklega er hentug til
þeirra nota aö sögn Hannesar
Hólmsteins.
Svo
bar til aö nokkrum dögum eftir
Skálholtsráöstefnuna héldu
stjörnmálamenn enn austur fyrir
fjall og nú á námsstefnu MFA um
verkalýöshreyfinguna i útnoröri.
Þar tjáöi Ólafur Ragnar Grims-
son viðstöddum aö Morgunblaöiö
og helstu talsmenn Sjálfstæöis-
flokksins væru fylgjandi smiöi og
notkun nifteindasprengjunnar.
— Þaö er rétt ein kommalýgin,
kvaö þá við úr horni Sverris Her-
mannssonar, Sjálfstæöismenn
vilja ekki sjá öll þessi vopn.
— En Hannes Hólmsteinn styö-
ur nifteindasprengjuna, segir
Ólafur Ragnar á móti.
— Já, segir Sverrir á sinn stutt-
aralega hátt, þaö eru idjótar I öll-
um flokkum.
— Munurinn er bara sá, aö þeir
eru svo miklu fleiri i þinum flokki
en öörum, svaraöi Ólafur Ragn-
ar.
Engum sögum fer af þvi hvort
Færeyingar og Grænlendingar i
Olfusborgum uröu nokkru nær af
þessum oröaskiptum.