Þjóðviljinn - 26.09.1981, Qupperneq 7
Helgin 26. — 27. september 1981 ÞJÓÐVIL.IINN — StÐA 7
fréttir '
Fundur Alþýðubandalagsins i Reykjavik um stöðu kvenna innan flokksins var bæöi fjöisótturog hressilegur. Þar var skipst á sko&unum
og f jöldi kvenna tók til máls, en abeins einn karl. — Ljósm.: eik.
Leitað samkomulags í Kópavogi
Skólamáinu frestað
Dalvík
Mannekla
og hús-
næðis-
skortur
Á Dalvik vantar nú bæði fólk I
atvinnu og húsnæði fyrir þetta
fólk. Til álita hefur komið að nýta
heimavistarhúsnæði gagnfræða-
skólans fyrir verbúðir. Mann-
eklan gerir vart við sig I mörgum
atvinnugreinum og þá helst i fisk-
vinnslunni.
Nú er hafin sildarsöltun til við-
bótar við gott atvinnuástand og
það vantar fólk til fleiri starfa.
Astandið er svona viðar við Eyja-
fjörð, svo vel gæti verið að ef
saman væri tekið hvað vantar af
fólki til ýmissa starfa hér i Eyja-
firði þá kæmi i ljós að vantaöi um
eitt þúsund manns. Það er helst á
Akureyri sem ekki vantar vinnu-
afl. Ef þessi kenning reynist rétt,
finnst ýmsum að álver i Eyjafirði
sé ekki bráðnauðsynlegt fyrir
ibúana.
Húsnæöisskortur hefur gert
vart við sig á Dalvik en samt eru
mörg hús i byggingu. Nýleg
heimavist gagnfræðaskólans
hefur ekki nýst einsog ætlað var,
þvi færri nemendur koma til
heimavistar úr nágrannabyggðar
lögum en menn hugðu. Það
húsnæði hefur þvi staðið illa nýtt
og er hugsanleg nýting þess undir
verbúðir fyrir verkafólk á um-
ræðustigi. Svanfr./óg.
A bæjarstjórnarfundi I Kópa-
vogi i gær var samþykkt að fresta
afgreiðslu á tillögu um fram-
haldsskólamálið til næsta fundar.
i umræddri tillögu er gert ráð
fyrir þvi að Þingholtsskóli verði
afhentur undir menntaskóla.
Frestunin var samþykkt með sex
atkvæðum gegn einu, en fjórir
sátu hjá.
Með frestunartillögunni
greiddu atkvæði 3 fulltrúar
Alþýðubandalagsins, 2 fulltnlar
Alþýðuflokksins og einn fulltrUi
Borgaralistans. A möti greiddi
einn fulltrúi ihaldsins, en þeir
sem sátu hjá voru frá ihaldinu og
Framsókn. Þarmeð leggur
bæjarstjórnin á það áherslu að
málið verði leyst með viðtækri
samstöðu. Nú freista Kópavogs-
búar þess að reyna að leysa
málið. Alþýðubandalagið i Kópa-
vogi leggur á það áherslu að
málið verði leyst með sem við-
tækustu samkomulagi — og stóð
það einhuga að baki framkom-
innar frestunartillögu.
Undir lok fundarins i gær stóð
upp utan dagskrár Jóhann H.
Jónsson framsóknarmaður og
lagði til að málinu yrði enn einn
ganginn visað i nefnd til umfjöll
unar. Eftir nokkurt málþóf of
stapp varsamþykktað visa þeirr
tillögu Jóhanns tilbæjarráðs.
—ó|
Hallgrímstum sem
endurvarpsstöð?
Hugmyndir um þráðlausar beinar útsendingar hjá útvarpi
„Þaö hafa verið uppi hug-
myiidir um að koma á beinu loft-
sambandi á FM bylgju i stað þess
að nota simalinur, þegar út-
varpað er beint hóðan af höfuð-
borgarsvæðinu, utan útvarps-
hússins. Þá hefur m.a. annars
komið til greina að koma fyrir
móttakara og sendibúnaði i Hall-
grimskirkjuturni”, sagði Jón
Sigurbjörnsson yfirmaður tækni-
deildar útvarps i gær.
Jón tók fram að þessar hug-
myndir hefðu aldrei komist inn á
framkvæmdaáætlun* áhugi væri
fyrir þessu en fé væri ekki við
höndina.
Slfkt endurvarpskerfi er i notk-
un alls staöar i nágrannalönd-
unum. Jón sagðist ekki geta sagt
til um hvenær þessum tækjabún-
aöi yröi komið upp hér á landi.
Vonandi verður Útvarpshúsið
tilbúið eftir 3—4 ár. Það stendur
ansi hátt og þvi mögulegt að
koma tækjabúnaðinum fyrir þar.
Við að taka upp beinar útvarps-
sendingar gegnum FM bylgju i
stað simalina eins og nú er gert,
opnast ýmsir möguleikar, eink-
um varðandi fréttatengd efni.
Hægter að senda þá beint hvaðan
sem er af öllu Faxaflóasvæðinu,
og-jafnvel frá sunnanverðu Snæ-
fellsnesi, en FM sendirinn dregur
allan sjóndeildarhringinn. Þá
yrði og hægt að koma upp endur-
varpsstöðvum fyrir aðra lands-
hluta.
Þótt bið sé eftir þessum tækja-
búnaði eitthvað lengur, er út-
varpið nýlega búið að endurnýja
þráðlausu sendistöðvar sínar. 6
nýjar komu nýlega frá Noregi, en
þessar stöðvar eru ekki lang-
drægar en heppilegar við lýs-
ingar á kappleikjum, þar sem
ekki er hægt að komast i beint
samband við simalinur.
-lg-
Golflandsliðið heim
í gær
Banaslys
í Lúx
íslendingur beið bana i bilslysi i
Luxemborg í fyrrinótt. Þrir aðrir
islendingar voru i bilnum, auk
ökumanns sem cr frá Luxemborg
og slösuðust þeir nokkuð. Hinn
látni hét Július R. Júliusson, 49
ára landsliðsmaður i golfi. Þeir
félagar voru ytra til að taka þátt i
landskeppni islendinga og
Luxemborgarmanna, en henni
hefurnú verið aflýst vegna þessa
atburðar.
Slysið varð með þeim hætti að
ménnirnir voru að koma frá veit-
ingastað og óku i sportbil af Ford
Mustang gerð i eigu landsliðs-
manns i Luxemborg, Alex Graaz
að nafni. Billinn ók á ljósastaur
og siðan á vegg, með þeim afleið-
ingum að Július sem sat i far-
þegasætinu við hlið ökumanns,
lést þegar i stað.
Astarsaga aldarinnar, leikverk byggt á Ijóðaflokki eftir finnsku skáldkonuna Mörtu Tikkanen verður
frumsýnt á Litla sviðinu I Þjóöleikhúsinu nk. miðvikudag. Kristln Bjarnadóttir þýðir verkið og fer með
eina hlutverkið og Guðrún Svava Svavarsdóttir gerir leikmynd. — sjá siðu 9. (Gel)
Verkakonur
bera saman
ráð sín
Nú um helgina halda konur úr
verkalýðsfélögum á Suður- og
Vesturlandi óformlega ráðstefnu
um kjaramál og stöðu kvenna i
verkalýðshreyfingunni. Ráð-
stefnan er haldin i ölfusborgum.
Um helmingur af launþegum
landsins eru konur. Þær eru i
meirihluta innan Verkamanna-
sambandsins. Mörgum þeirra
þykir hlutur kvenna innan verka-
lýðshreyfingarinnar fyrir borð
borinn. t fréttabréfi Kjararann-
sóknarnefndar kemur fram að
kjör verkakvenna hafi rýrnað um
2,4% á sama tima og kjör verka-
karla hafi skánað um 1% og
iðnaðarmanna um 1.4%. Verka-
konur telja að sjálfsögðu að við
þessa þróun verbi ekki unað og
munu ræða þessi mál i viötæku
samhengi við önnur félagsmál
verkakvenna á ráðstefnunni i
ölfusborgum. Til ráðstefnunnar
er boðað óformlega af virkum
konum verkalýðsfélögum á
svæðinu i kringum Faxaflóla. —óg