Þjóðviljinn - 06.02.1982, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 06.02.1982, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 6.— 7. febrúar 1982. UODVIUINN Málgagn sósfalisma, verkalýds- hreyfingar og þjódfrelsis titgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Kitstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Fréttastjóri: Álfheiður Ingadóttir. úmsjónarmaður sunnudagsblaös: Guðjón Friöriksson. Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir. Afgreiðslustjóri: Valþór Hlööversson. Klaöamenn: Auður Styrkarsdóttir, Magnús H. Gislason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson. fþrótta- og skákfréttamaður: Helgi Ólafsson. Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir Guöjón Sveinbjörnsson. I.jósmyndir :Einar Karlsson, Gunnar Elisson. Handrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson. Auglýsingar: Hildur Ragnars, Sigriður Hanna Sigurbjörns- dóttir. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgreiösla: Bára Siguröardóttir, Kristin Pétursdóttir. Simavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Bergljót Guöjónsdóttir. Bilstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Viihjálmsson, Gunnar Sigurmunds- son. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns- dóttir. Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Siðumúla 6, Reykjavik, simi 81333 Prentun: Blaðaprent hf. r itst Jór nargr ci n Viö hvað á aö miöa? • Þórir Danielsson framkvæmdastjóri Verka- mannasambandsins ritar fróðlega grein i Þjóðvilj- ann sl. miðvikudag um aðdragandann að bráða- birgðasamkomulagi ASÍ og VSÍ i haust og þá dag- vinnutekjutryggingu sem i þeim fólst. t greininni minnir hann á að undanfarin ár hafi verið um það rætt af miklum áhuga og notaður i þvi sambandi meginþorri kraftmestu lýsingarorða tungunnar, að bæta þyrfti kjör þeirra lægst launuðu. Á það hafi hinsvegar skort verulega i þessari umræðu að gera grein fyrir við hvað væri átt, og hvernig ætti að fara að þessu. • Um það hafa lengi staðið deilur við hvað eigi að miða þegar talað er um láglaunafólk og sérstakar úrbætur i launamálum fyrir þann hóp umfram aðra. Á siðasta áratug höfðu margir horn i siðu ákvæðisvinnukeríis hjá iðnðarmönnum, sem færði fólki á besta aldri i iðnaðarmannastétt oft dávænar tekjur. Iðnaðarmenn bentu hinsvegar á að tima- kaup þeirra væri lágt, og akkorðið skilaði sist of miklu miðað við aukin afköst, álag og áhættu. Siðastneínda atriðið ber ekki að vanmeta þvi að allt sem hamlar verkinu, veður, áföll og ófyrirsjáan- legar tafir, fellur á tima akkorðsmanna sjálfra en ekki atvinnurekenda. Bónusvinnufólk notar oft á tiðum svipuð rök og iðnaðarmenn gerðu og vill að láglaunabætur séu miðaðar við lágan taxta, en ekki heildartekjur sem eru tilkomnar vegna aukinna af- kasta og erfiðis. Fastlaunafólk er aftur á móti ekki reiðubúið til að fallast á rök af þessu tagi og bendir á að þau séu i meginatriðum svipaðs eðlis og rökin sem færð eru fyrir röðum i launaflokka eftir álagi, ábyrgð o.s.frv. Þessvegna beri að miða láglauna- bætur við dagvinnutekjur hvernig sem þær séu til- komnar. • Þórir Danielsson segir að mikilvægt sé að kalla hlutina réttum nöfnum og fá betri upplýsingar en nú um raunverulega greidd laun i landinu. Geti hinir betur settu fallist á að hinir lægstlaunuðu fái meira i sinn hlut en þeir, sé vandinn þó ekki leystur, þvi þá sé eftir að ná samkomulagi um viðmiðun. Engin ein leið sé i sjálfu sér rétt eða röng þegar sé um lág- launamark, en ef umræða og samningar um bætur til þeirra lægstlaunuðu eigi að bera áþreifanlegan árangur, þurfi skýr afstaða verkalýðshreyfing- arinnar að liggja fyrir. • Á að miða við heildarlaunatekjur; grundvallar- taxta eingöngu; eða tekjur manna af dagvinnu án vaktaálags, þegar verið er að fjalla i samningum um úrbætur fyrir lægst launaða fólkið? Þetta eru mikilvægar spurningar og svörin við þeim verða mikils ráðandi um sundrung eða samstöðu i komandi kjarasamningum. Sú leið sem ASí fór i haust kom til góða þeim sem lægstar hafa dag- vinnutekjur i raun, en er samt sem áður ekki óum- deild. í umræðum um launamálin má heldur ekki gleyma þvi að afkoma heimilanna á íslandi i dag fer að verulegu leyti eftir þvi hvort fyrirvinnur þeirra eru ein eða tvær, og sá afkomumunur sem i þvi felst verður ekki jafnaður nema með aðgerðum hins opinbera. —ekh úr aimanakínu Eitter að taka hlutunum meö karlmennsku og annað af raun- sæi. Hér áður fyrr þótti það hinn mesti garpskapur að æðr- ast hvergi þótt váleg tiðindi geröust, hrökkva ekkieinu sinni við, en láta i' þess stað eins og ekkert hefði gerst. Mér virðist sem þetta garpa-sjónarmið ríki enn hjá þjóðinni, ráðamönnum jafnt sem almenningi. Þetta kom all-vel i' ljós, þegar þau vá- legu tiðindi bárust að loks heföi okkur tekist að svo gott sem Ut- rýma loðnustofninum, eins og sildinni forðum. Aðvörunum fiskifræðinga um langan tima var ekki ansað. enda taka garpar ekki mark á kvaki fræðinga. Afram var haldið að ausa upp uns eftir stendur 150 þús. lestahrygningarstofná móti 600 þús. lestum fyrir 3 árum. Og hám ark garpskaparins voru orð sjávarútvegsráöherra á þingi sl. mánudag, þegar hann i um- ræðu um þetta málsagði: Óttist ekki, af litlum stofni getur kom- ið góður árgangur! Ef þetta er ekki karlmannlega mælt af Sigurdór SigurdorssorT, manni sem hefur stjórnað þess- um veiöum, þá veit ég ekki hvað það orð þýðir. Við skulum ekki hafa hátt Viðbrögð fjölmiðla og al- mennings við þeim hroðalegu tiðindum að loðnustofninn væri kominn niður í 150 þúsund lesta hrygningarstofn, var með þeim hætti að segja sem minnst. Frægust er sennilega fréttin i Mogganum, þar sem sagði i að- al fyrirsögn „Loðna i Kolkuál” en undirfyrirsögn „Hjálmar Vilhjálmsson segir hrygningar- stofninn kominn niður i 150 þús- und lestir”. Smá frétt i öðrum fjölmiðlum en Þjóðviljanum og alger þögn ráðamanna. En svo gerist það að Arni Gunnarsson alþingismaður ris loks upp utan dagskrár á Alþingi og vekur at- hygli á þeim voða sem boðar að verið er að eyða loðnustofnin- um. Þaö er ekki bara sú eyða i útflutningi sem eyðing stofnsins skilur eftir, heldur og sú hætta sem þorskstofninum er búin, þegar þessi aöalfæða hans er horfin úr sjónum. Eg hygg að þarna hafi gamalt frétta- mannsnef Árna komið til frek- ar ai nokkuð annað, og hann á heiður skilinn fyrir framtakið. Og það var einmitt í þessum umræðum, sem Steingrimur Hermannsson sjá varútvegs- ráöherra mælti þessi frægu orð með litla stgfninn og stóra ár- ganginn. Verst að ná ekki fullum kvóta Og þegar nU fjölmiðlar loks tóku við sér, hver voru þá við- brögð þeirra hagsmunaaðila sem leitað var tií?" Jú^ "hvað fáum við mikið úr Aflatrygg- ingasjóði? Verst að hafa ekki náð að fylla veiðikvótann áður en sagt var frá þessu, eða að ekkert væri að marka þetta, sjórinn væri fullur af loðnu. Hreint út sagt furðuleg við- brögð. bKipstjórar loðnuskipanna hafa alla tið siðan Hjálmar Vil- hjálmsson gaf fyrstu aövörun- ina um að ekki væri allt með felldu varðandi loðnustofninn hamast gegn honum og Haf- rannsóknarstofnuninni. Þeir hafa sagt aövaranir Hjálmars lofar tómthjóm,sjórinn væri svartur af loðnu. Jafnvel að aldrei hafi veriðannað eins magn af loðnu i sjónum. Siðan hafa þeir þrýst á sjávarútvegsráðuneytið og það alltaf leyft að veiða meira en Hafrannsóknarstofnunin lagði til. Afleiðingarnar blasa nú við. Og þegar stofninn hefur verið svo gott sem þurrkaður upp, þá er fyrsta spurningin — hvað fá- um við úr Aflatryggingasjóöi? Brotalöm En ræðandi um sjómenn og fiskveiðar, þá er ástæða til að minnast á þá sjómanna- samninga og ákvörðun fisk- verðs, sem mestum átökum olli á dögunum. 1 kjarasamningun- um kom greinilega fram ákveðinn ótti hjá forystumönn- um sjómanna um að samstaða þeirra brysti. Hvers vegna var þessi ótti til staðar? Hvers- vegna er meiri hætta á að sam- staða sjómanna bresti en ann- arra launþega? Svarið virðist einfalt, svo langt bil er á milli tekna sjómanna með lægst og hæst laun að engin stétt í land- inu kemst þar neitt nærri og i raun er vart hægt að tala um sjómenn sem eina stétt. í samningunum var verið að semja um laun sjómanna með um 100 þúsund kr. árslaun og upp i 625 þúsund kr. Hér er átt við lægstu háseta og hæstu skip- stjóra. Hvernig geta hagsmunir þessara manna fariö saman? Svariö hlýtur að vera: með eng- um hætti. Þarna er atriöi sem hin ýmsu félög sjómanna hljóta að verða aö taka fyrir, enda hef- ur biliö á milli þeirra hæst og lægstu aldrei verið neitt svipað og undanfarin ár eftir að litlu skuttogararnirkomu til sögunn- arog gáfu sjómönnum kost á að mala sér gull með óskaplegri vinnu. En áfram eru gerðir út litlir og gamlir bátar á linu og net, og hlutur sjómanna sem á þeim vinna aðeins brot af laun- um sjómanna á skuttogurunum litlu. Þarna er brotalöm, sem þarf að lagfæra. Fiskverðið Það sama verður aö sjálf- sögðu upp á teningnum, þegar að ákvörðun fiskverðs kemur. A fjölmennum fundi sjómanna i verkfallinu var Ingólfi Ingólfs- syni, fulltrúa sjómanna i yfir- nefnd Verðlagsráðs sjávarút- vegsins, gefið fullt umboð sjó- manna til að taka ákvörðun um fiskverð fyrir þeirra hönd. Þarna þótti mér mikið lagt á herðar eins manns, þótt harður af sér sé, enda kynjaður af Skaga. Siðastur manna myndi ég gera li'tið Ur Ingólfi Ingólfs- syni,en samthygg ég að honum jafnt sem öllum öðrum reynist erfitt að ákveða fiskverð fyrir menn sem spanna i launum frá 100 þús. kr. i árslaun og uppi rúmlega 600 þúsund kr. ef ein- hver sanngirni á að vera i mál- inu. Og hvernig er svo yfirnefnd samansett? Jú, þar er talað um fulltrúa seljenda, þ.e. sjómenn og Utgerðarmenn, og svo hins- vegar kaupendur, fiskverkun- ina. Með þessari samsetningu er hreinlega veriö að spila með sjómenn vegna þess aö sannað er að á milli 85% og 90% fiski- skipaflotans er i eigu fiskverk- enda. Þeir sitja þvi beggja vegna borðsins gegn fulltrúa sjómanna. Þegar svo er komið. að nær allir fiskverkendur eiga skipin sjálfir, þá er aðeins um millifærslur milli vasa að ræöa hjá þeim þegar verið er aö ákveða fiskverðið. útgerðar- maðurinn Jón Jónsson selur sjálfum sér fiskverkandanum Jóni Jónssyni. fiskinn og veröið skiptir engu máli. Ef verðið er lágt er tap á útgerð, en gróði af fiskvinnslunni eða öfugt. Þarna á milli veröur svo fulltrúi sjó- manna að standa og vinna sem best og réttlátast fyrir hinn launabreiöa hóp sjómanna. —S.dór

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.