Þjóðviljinn - 06.02.1982, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 06.02.1982, Blaðsíða 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 6.— 7. febrúar 1982. Bíll viö bil viö bil. Aökoman var „notaleg” þessa dagsstund aö sögn þeirra Gérards og Snorra. Menn leggja þarna yfirleitt þvers og kurs og spekúlera ekkert i íbúunum, sem oft þurfa aö klofa yfir bilana til aö komast inn til sin. (Ljósm. — eik —) „Miklar bossasýningar um helgma” Gérard Lemarquis hefur búiö i Grjótaþorpinu i 7 ár, nánar tiltekið að Bröttu- götu 3, og hefur látið mál- efni þorpsíns mikið til sín taka á umliðnum árum. Snorri örn Snorrason, tón- listarkennari, flutti inn i Mjóstræti 10 fyrir einu og hálfu ári. Við fengum þá til að ganga með okkur um þorpið og skýra sjónarmið ibúanna. „Við hjónin erum enn að tina upp glerbrot úr garðinum,” segir Snorri þegar við göngum frá hús- inu hans. „Við verðum sennilega að svo lengi sem við búum hér — það bætast tiu brot viö fyrir hvert eitt sem viö hirðum.” Snorri og Gérard búa báðir spölkorn frá Grjótagötunni, en þar er salerni, sem siðan i fyrra- haust hefur verið opið um helgar og fram eftir nóttu. „Félagsmið- stöð miðbæjarins” kalla félag- arnir þetta almenningsnáðhús. Þeir segja okkur, að ónæðið ffá umræddu húsi sé alveg hreint ótrúlegt. Unglingarnir frá Hallærisplaninu og miðbænum flykkjast að til aö svala bráðkall- andi þörfum og eiga ekki i önnur hús að venda. Eitt litiö náðhús annar þó hvergi nærri eftirspurn- inni og þvi vilja oft veröa miklar bossasýningar viö nærliggjandi hús þegar ekki er hægt að hemja sig lengur. Frá hverfinu leggur oft mikinn fnyk eftir helgar, segja þeir Snorri og Gérard. Ekki er öll sagan sögð, friskum unglingum fylgir gjarnan nokkur fyrir- gangur, og þegar þeir koma hundruðum og jafnvel þúsundum saman, eins og gerist á vorin og haustin, er ekki svefnfriður i þorpinu. Þá er Grjótaþorpið einnig miöstöð rúntsins — Stóri rúnturinn liggur upp Túngötu, eftir Garðastræti, þaðan niður Vesturgötu, eftir Hafnarstræti, Lækjargötu, Skólabrú, Kirkju- stræti, Túngötu o.s.frv. Ef menn vilja einhverja tilbreytingu er litli rúnturinn farinn: Firschers- sund, Mjóstræti, Brattagata og Grjótagata. . iiávaðinn i bilunum er ótrú- legur. Menn hamast á flautunni um miðja nótt eins og ekkert sé — spila jafnvel dúetta og upphefja konserta. Þetta liöist hvergi nema akkúrat hér i þessu þorpi,” segja Snorri og Gérard. Svo eru þaö flöskubrotin. Hvar sem litiö er. „Það virðist fara eftir þvi hvaða varðstjóri er á vakt hjá lögreglunni, þegar viö hringjum. Stundum er Mjóstrætinu lokað, en allt eins ekki. Mér er sem ég sjái lögregluna sinna ibúum Arnar- ness jafn slaklega og okkur.” — En hvað er til ráða? Hvaö á að gera við unglingana? „Það mætti banna þeim að vera úti eftir klukkan 11—12 á kvöldin — en þeir koma aldrei hingaö fyrr en um miðnætti. Þaö leysir auð- vitað engan vanda og ekki er heldur hægt aö ætlast til þess að þjóöfélagið sjái þeim fyrir skemmtunum til klukkan 3—4 á nóttunni. Þvi ber að viðurkenna vandann og takast á viö hann þar sem hann er. Frumskilyrði i þeim aðgeröum á auövitaö aö vera aö losa ibúana við þetta ónæði.” íbúar Grjótaþorps skrifuðu borgaryfirvöldum bréf sl. haust Gérard Lemarquis, Sandra Snorradóttir og Snorri örn Snorrason við Bröttugötu 6, en það fræga hús stendur á horni Bröttugötu og Mjóstræt- is. Húsiðer vægast sagthrörlegt utan frá séð a.m.k. — (Ljósm. — eik — „Félagsmiðstöð miðbæjarins” — náðhúsið I Grjótagötu. Um og eftir helgar stigur mikill fnykur upp af Grjótaþorpi. — (Ljósm. — eik —) og sendu umferðarráði og borgarráði. Þar var gert að til- lögu, að hindranir yrðu settar i Garðastræti þannig aö drægi úr ökuhraða, tillaga um að loka Mjó- stræti, tillaga um leiksvæöi fyrir börn þar sem nú er bilastæði i Grjótagötu, en barnafjöldi fer vaxandi i þorpinu. Þetta leik- svæði hugsa ibúarnir sér sem kjarna þorpsins. Leikvöllurinn á horni Garðastrætis og Túngötu er nær ekkert sóttur: hann er ein- faldlega á hættulegum staö, þvi þarna er mikil og hröð umferð. 1 miöju þorpsins yðru börnin hins vegarvel vernduð, einkum ef göt- urnar verða gerðar að göngu- götum. íbúum list nokkuð vel á skipu- lagstillögur Hjörleifs Stefáns- Börnin í Grjótaþorpinu eiga ekki marga sælureiti. Þvi er þó auð- velt að breyta, segja ibúarnir, gerið göturnar að göngugötum og þá verður þorpið eins og vin i eyðimörk. — (Ljósm. — eik — ). sonar, en þeir Snorri og Gérard segja hann hafa tekið allt of mikið mið af tvenns konar sjónar- miðum, þ.e. umhverfisverndar- sjónarmiði og sjónarmiði bila- manna. „Þau eru einfaldlega ósættanleg og þar við situr,” segja þeir. I tillögunum er gert ráð fyrir bilastæðum hér og þar — alls staðar þar sem nokkur smuga er. „Okkar krafa er, að Mjóstræti og Brattagata verði göngugötur — stæðin sem koma út úr þessum tillögum eru hvort eð er svo fá, að þau leysa engan vanda. Bilum er lagt hér út um allt og liggur við að maður verði að klofa yfir þá til að komast heim til sin.” Gérard kemur með skemmti- lega samlikingu: fyrir 50 árum átti að fórna ibúum fyrir stór- borgardrauminn — umferðar- götur, bilastæði og glæst hús. Fyrir 20 árum átti að fórna þeim á altari verslunarinnar. Núna — núna á að fórna ibúum þessa hverfis fyrir menntamanna- drauminn um „manneskjuleg hús”. Þessi hugleiðing kom i kjöl- far samtals um Bröttugötu 6, en eins og kunnugt er bauð Reykja- vikurborg þessa heldur óhrjálegu eign sina út til kaups. Hæsta til- boðið hljóðaði uppá eina miljón króna (hundrað miljónir i göml- um krónum — sagt er, að það kosti annað eins að gera húsið upp). Það tilboð kom frá mennta- manni. Borgin á um 20% ibúðanna i Grjótaþorpinu. Stéttasamsetn- ingin i þorpinu er margbreytileg, en eins og góðum grönnum sæmir lifa ibúarnir i sátt og samlyndi og þykir þrátt fyrir marga van- kanta vænt um hverfið sitt. Þeir fylgjast lika grannt með kaupum og sölum og búferlaflutningum. „Þannig viljum við hafa þetta,” segja Snorri og Gérard. „Hvaða vit er i þvi aö hrúga sömu þjóðfélagshópunum i sömu blokk- ina eða sama hverfið? Ef borgin ætlar að halda þessari stefnu, munu i framtiðinni aðeins vel- efnaðir menntamenn hafa efni á þvi að búa hér. Er þetta virkilega vilji vinstri meirihluta? Og hvað verður um hann Aðalstein?” Og þeir félagar lita út um stofu- gluggann að Mjóstræti 10 yfir að Bröttugötu 6. Þar hefur Aðal- steinn Hansson, öryrki, búið i 22 ár, en skal nú vikja fyrir einni miljón króna. — ast.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.