Þjóðviljinn - 06.02.1982, Blaðsíða 10
1« SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 6 — 7. febrúar 1982.
notað og nýtt
Eitt blaö —tvöföid áhrif. Ritstjórnarfundur á rauövinspressunni.
Guömundur Arni Stefánsson beitir öllum sinum
persónutöfrum til aö plokka fé.
Aöal-ritstjóraefniö ber hugmyndina i gegn.
GLÆSILEaR VINNINGAR:
5 CITROEN GSA PALLAS
KOR
1ANCH0LTSKIRKJU
Ekki bólar enn á nýja siödegis-
blaöinu þrátt fyrir stóra hugsjón
og uppboðshald i Súðumúla og
viöar. Dagblaöið og Visir, eitt
blað — tvöföld áhrif, hefur verið
duglegt að skýra frá gangi mála
og sagði t.d. frá þvi fyrir nokkru
að „hitt” ritstjórasætið væri á
uppboði og bitust einkum um það
Alþýðubandalagið, StS og Gunnar
Thoroddsen. Var þvi jafnvel sleg-
ið upp að „hitt” ritstjórasætið
yrði eins konar þrihöfða þurs
þeirra Einars Karls Haralds-
sonar, Hauks Ingibergssonar og
Jóns Orms Halldórssonar.
Ritstjórar yrðu þá Guðmundur
Arni Stefánsson (þó það nú væri)
og Karlhauksormur Harbergs-
dórson. Annars trúum við á Þjóð-
viljanum þessu tæplega upp á
hann Einar okkar Karl þó við
séum reiöubúnir að trúa hverju
sem er upp á hina og vel það.
í raun og veru ríkir hið mesta
ófremdarástand á siðdegisblaða-
markaðnum. Er sagt að blaða-
menn rauðvinspressunnar detti i
stórum stil út af ritstjórn og
Jónas (og Ellert) hafi vart við að
ráða nýja, frjálsa og óháða menn
i þeirra stað. Er jafnvel óttast að
Indriði G. Þorsteinsson verði at-
vinnulaus áður en lýkur. Er hann
þó bæði ófrjáls og óháður og undir
tvöföldum áhrifum.
Notað og nýtt óskar þess af al-
efli að Guðmundur Árni þurfi ekki
að ganga mikið lengur með
margar hendur á lofti og fái nú
það fé sem á vantar til þess að
nýja siðdegisblaðið megi út
koma. Betri eru tvö blöð — einföld
áhrif heldur en eitt blað — tvöföld
áhrif. Verst væri þó ekkert blað —
deaddrunk. Nema þá að siður sé.
ii :
Biaðamenn þola illa hin tvöföldu áhrif til lengdar og hrynja af Dag-
blaðinu & Visi. Ellert Schram reynir aö teija einum hughvarf.
Fjórhöföa ritstjóraefni