Þjóðviljinn - 06.02.1982, Side 11

Þjóðviljinn - 06.02.1982, Side 11
Helgin 6 — 7. febrúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 Guðbergur Bergsson skrifar frá Madrid: Engin leyndarmál, Thor Vilhjálmsson Listamaöurinn og skáldiö spyrja en sagnfræöingurinn heldur oft aö hann hafi fundiö sannleikann og þess vegna staö- hæfir hann. Skáldiö efast, en trúmaöurinn trúir. Ritdólgurinn er vist hins vegar alltaf meö dólgslæti. Thor og ég erum skáld og viö vitum að flest sem skáldiö skrifar er i ætt viö skrök sem eru þó oftast meiri sann- leikur en sannleikurinn sjálfur, enda er óvissan og óskapnaður- inn undirrót allra hluta. Sköpun vex aöeins af óskapnaöi. Og ætlun mín með greininni um Guernikumynd Picasso var ekki að staöhæfa neitt, enda var fyrirsögnin borin fram sem spurning. Skáldiö spyr en sagn- fræðingurinn ber fram „sann- leikann”. Algengt er i listasögunni aö verk séu talin vera eftir málara þótt þau séu máluð af læri- sveinum hans eöa á vinnustofu málarans. Þannig færast verkin, einkum ef þau eru góð, yfir á þann sem frægöina ber, en hinn óþekkti sem vann verkið fellur i gleymsku og oft úr hor. Eins er þetta i efnahagslifinu: verkamaðurinn sem skapar auðinn nýtur hans ekki, hins vegar nýtur auðmaðurinn hans þótt hann hafi alls ekki unniö fyrir honum. Hið broslega við vit okkar á list er hins vegar það, að verk sem við dáumst að, og sögð eru vera eftir fræga meistara, eru að mestu verk viðgerðarmanna safnanna sem hafa breytt verkunum, ekki aðeins formum þeirra heldur einkum litnum. Allt er afar ein- kennilegt og hvar er vissan? Hjá hinum trúaða og einnig hjá flóninu og þeim sem fylgir i stað þess að ganga á skjön. Alberti hefur skapað hann i sinni mynd, eins og andalúsiu- búum er tamt, enda frá Anda- lúsiu. Um Olgu og skilnað hennar og Picasso er það að segja, að ef- laust átti hann ótal ástkonur áður en hann skildi við Olgu samkvæmt lögum. Lögin eru jafnan langt á eftir lönguninni — og réttlætinu lika. Hjóna- skilnaður getur leikið fólk grátt þótt það sé löngu skilið tilfinn- ingalega séð. Sist efast ég um hæfileika Picasso ti'l ásta. Eflaust er rétt það sem ætt- maður hans skrifaði nýlega, að Picasso hafi þurft að lina prikið tvisvar á dag i æsku og gilti hann einu hvort hann linaði það með karli eða konu. Hent getur að gamalmennið sem skrifaði þetta hafi rangt fyrir sér, en greinar Thors virðast þó renna styrkum stoðum undir umsögn- ina um hið harða prik á Picasso — þó brást það vist á örlaga- stundinni eins og krosstréð. Þvi miður bregður Thor sér i barnakennaragervi og vitnar i réttritunarbækur sinar og kveður Renau hafa heitið réttu nafni Renan — „samkvæmt minum heimildum vélrituðum”. Renau kann að vera nefndur Renan i fræðibókum á sviði myndlistar, en hann heitir samt Josep Renau. A francotimanum hefur nafn hans veriö ritað José Renau, eða Renan á frönsku. Tunga valensiubúa var bönnuð á francotimanum, mannanöfn urðu þvi að vera rituö á kastil- lanskan máta, Thor virðist ekki gera sér grein fyrir þessu. Þannig breytast stafsetningar- reglurnar og „sannleikurinn” um leið og einræðisherrar deyja. Hið barnslega sakleysi og hrekkleysi þess sem hefur búið við lýðræði og matfrelsi gerir sér ekki grein fyrir hrekkjum einræðisherranna. En saklaust barn sem hefði ritað Josep Renau i staðinn fyrir José Renan hefði ekki aðeins fengið núll i réttritun á timum Francos, heldur lika hýðingu. A timum Stalins hefur kannski hent eitthvað svipað réttritunarreglurnar, þannig að dóttir E1 campesino var á opin- berum fæðingarvottorðum nefnd Valentina þótt hún héti i höfuðið á föður sinum, Valer- iano; Valerina. Munurinn er sá að r fellur niður en i staðinn kemur nt. Annaö eins og þetta gat vist hent á sælutima sann- leikans. Allir einræðisherrar heimta rétta stafsetningu og rétt réttarfar hins rétta rétt- trúnaðar. Það má ekki henda okkur hinar frjálsu vitsmuna- verur að heimta hið sama af hinum spöku fræðibókum sem eru i troðfulla bókaskápnum okkar og gæða okkur liprum gáfum en heldur gagnslitlum. Þvi miður get ég ekki borið fram óhrekjandi rök fyrir máli minu, en hendingin stendur ævinlega við hlið heimsk- ingjans, þvi i dag þegar mér bárust greinar Thors var birt i dagblaði sú frétt að Josep Renau, sá sem fékk Picasso til að mála myndina Guernica hafi verið heiðraður. Hinn sannleikurinn i grein minni kemur i ljós smám saman. Ég sendi úrklippuna úr dagblaðinu orðum minum til staðfestingar, og svo segi ég bara i lokin eins og Fidel Castro „sagan mun sanna...” Madrid, 28. janúar 1982. Guðbergur Bergsson. • Þvi miður bárust mér greinar Thors Vilhjálmssonar ekki fvrr en i dag. Ritaðar heimildir hans virðast vera þannig vaxnar að þeim ber einvörð- ungu saman við misminni mitt, þegar ég skrifaði greinina: Er málverkið Guernica eftir Picasso? Mig minnti þqr að skáldið Alberti hefði verið for- stjóri Pradosafnsins, en það er vist rangminni. Heiðursfor- maður safnsins var Picasso, og bið ég lesendur Þjóðviljans vel- virðingar á misminni minu en Thor að fleygja fræðibókum sin- um. Aldrei var myndhöggvarinn Alberto kenndur við Valencia, eins og Thor hefur eftir mér, heldur var hann fyrrverandi bakari frá borginni Toledo, eins og stendur i grein minni. Aðeins er stigsmunur á þvi að hnoða deig eða leir. Hinn snauði verðurhins vegar oft að láta sér nægja deigið i staðinn fyrir dýran marmara. Alberto bakaði deigmyndir eins og enn tiökast meðal bakara i Toledo, en hann mun oft hafa fundið spýtu til að tálga nema á striðsárunum i Moskvu. Slikar voru hörmungar rússnesku þjóðarinnar og eldi- viðarskortur. Lýsingar skálds- ins Alberti á myndhöggvar- anum hafa verið alrangar. Þær eiga fremur skylt við lýsingar á andalúsiubúa eða katalana, en fráleitt við kastilibúa, sist ef hann er i þokkabót snauöur. Þegar hugað er að bifreiðakaupum þá er mikilvægt að velja rétt. BMW 315 er fyrsta skrefið inn í BMW fjölskylduna. Hann er búinn öryggi og styrkleika stærri gerða BMW bifreiða og er það mikilvægt á okkar erfiðu vegum. Sjálfstæð fjöðrun á hverju hjóli gerir BMW stöðugri á vegi, enda þekktur fyrir einstaklega góða aksturseiginleika. Endursala BMW er auðveld og hægt er að reiða sig á gott endursöluverð. BMW er valkostur sem vert er að kanna rækilega og ekki skaðar hið hagstæða verð sem gerir flestum mögulegt að aka um á BMW. BMW ánægja í akstri. KRISTINN GUONASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20 - SÍMI 86633 PROGRAMAS DE TELEVISiON 8 ’ente Josep Renau, pintor y carte- lista que encargó el Guernica a Pablo Picasso cuando ocupaba la Dirección Gencral de Bellas Artes. durante la II República, ha recibido el Premto Alfons Roig de pintura, dolado por la Diputación de Valencia con me- dio millón de pese* «^,Renau, que cuenta en ' ,(»,%^^".ad 74 ~ ^ - el ga- e su ’ "Nunca .as cosas vie- el pintor a Jaime Millas<"dS conocer el fallo del ju- rado. Es la primera vez, desde su juventud, que Renau recibe un premio en la ciudad donde nació. afios de ed lardó'* es v nen

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.