Þjóðviljinn - 06.02.1982, Page 14

Þjóðviljinn - 06.02.1982, Page 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 6 — 7. febrúar 1982. bókmenntir „Hún beinlínis naut þess að búa til mat 55 Dagný KristjánsdJ skrifar Það kemur fyrir hjá vesælum gagnrýnanda aft þolinmæði hans þrýtur, sundurgreinandi hugsun rýkur úti veður og vind og geð- vonskan ein situr eftir. Nákvæm- lega þetta gerðist þegar ég las bðkina Sumarblóm i Paradis eftir Snjóiaugu Bragadóttur. Frá Mokka til Paradísar 1 þessari bók er sagt frá Lenu, 22 ára sveitastúlku að austan. Hún hefur komið til Rvk. til að læra hjúkrun, orðið ástíangin, „kauði fær sér aöra” (8), Lena fær sér annan en sá reynist hinn versti skúrkur: ,,... notaði is- skápinnn, bilinn og sparipening- ana hennar eins og sitt eigið, þangað til hún uppgötvaði að hann hafði ekki i hyggju að endurgjalda það á nokkurn hátt”. (8, les;hann ætlaði ekki að giftast Lenu). Þessióþokki i mannsmynd um- gengst „listamenn og náms- menn” og tælir Lenu til að sitja á Mokka og halda partý. Hún fer mjög illa útúr þessu sambandi sem vonlegt er, og stendur uppi slypp og snauð eftir það, en kynn- ist þá fyrir lukkulega tilviljun Lóu, óöalsbóndadóttur frá Breiðafirði. Þar byrjar bókin — hitt var forsaga. Stúlkurnar fara vestur og reka þar sumarhótel i Lónsey, eyði- eyju á Breiðaíirði sem brátt hlýt- ur nafnið Paradis. Hótelrekstur- inn annast þær Lena og Lóa en auk þeirra eru Halli, bróöir Lóu, stórglæsilegur rafmagnstækni- fræðingur, trúlofaður fallegri stúlku sem heitir Stina en hún hefur illu heilli dregiö vestur með sér fegurðardrottninguna Maju sem er „höggormurinn i Paradis- inni” af þvi að hún svifst einskis til að krækja i Dóra, stórglæsileg- an „vélstjóra á sjó eða vélsmiö i landi” (12). 1 Lónsey gerast svo þeir atburöir sem sagt er frá á hundrað tuttugu og tveimur blað- siðum i þessari bók. Þegar einn gesturinn segir að hann „fari héðan með kransæða- stiflu eða eitthvað slikt af þessu mataræði” (53) — þá verður Lena uppnumin af gleði. En stundum verður söguhetja okkar ofurlitið þreytt á elda- mennskunni og þvi að sjá ekkert af fegurð Breiðafjarðareyja, komast aldrei af bæ og þurfa aö gæta allra barna og gæludýra sem koma i eyjuna. Hún vikur þó ekki frá eldavél sinni nema þris- var þetta sumar þ.e. til að bjarga tveimur mannslifum og verða fárveik — þó ekki lengi i hvert sinn. Fyrir hverja steik, hvern rjómais, hverja feita sósu fær hún nefnilega prik hjá sjarmörnum Dóra. Og veitir ekki af, þvi að samkeppnin er hörð. Samt er það svolitið mótdrægt fyrir svona unga stúlku aö horfa á útilif og kátinu hinna krakkana og bætir litið úr skák þó að vinnu- borðið i eldhúsinu sé undir glugganum svo að hún getur horft á ærslin i sólinni á meöan hún undirbýr næstu kransæðastiflu. Við vitum jú öllaðleiðin að hjarta mannsins... Matur Lena tekur að sér að sjá um mat á hótelinu og gerir það með sliku ofíorsi að hún stendur kóf- sveitt yfir pottunum, ofni, hræri- vél og frystikistu allt sumarið og litur eiginlega mjög sjaldan upp. Ást Lena elskar Dóra. Maja er staðráðin i að giftast Dóra. Lena heldur að þau sofi saman. Lóa var einu sinni trúloíuð Dóra og Lena heldur að hún elski hann enn og það ekki að ástæðulausu. Þess vegna hættir hún að tala við Lóu og fer varlega. Hins vegar hatast þær Maja leynt og ljóst og eitur- skeytin ganga á vixl. Þar sem þetta er augljóslega meira framboð á tilvonandi eigin- konum en eftirspurn — rikja lög- mál frumskógarins i „Paradis- inni” i Lónsey. Konurnar læðast hvor i kringum aöra með hnifinn á milli tannanna i myrkri for- dóma samkeppni og kvenhaturs — alla bókina. Dóri „filar sig i botn” og hefur gaman af fiflalát- unum i kvenfólkinu sem vonlegt er. Það er hins vegar meira en hægt var að segja um mig. Paradísarmissir? Lena og Dóri trúlofast i bókar- lok eftir það eymdarlegasta til- dragelsi sem ég hef lesið um. Lena fer á fylliri (i fyrsta sinn i meira en hálft ár) og reynist þá skyndilega svo áfengissjúk morguninn eftir að hún er tilbúin til að henda allri sinni feimni úti hafsauga ef hún aðeins fær glas af vini hjá Dóra og það strax! Enda æran glötuð hvort eð er: „Almáttugur, hvað er ég búin aö gera? hugsaöi hún. Sit hér, blindfull að morgni dags, þegar hann kemur... og allur matur frosinn” (152-153). Þar fór það — og eftir smá- spaug með glasið trúlofast þau Dóri. Og þar með lýkur bókinni. Skömm er að... Nánast alla bókina er Lena að elda og þess á milli hatar hún hin- ar konurnar i eyjunni. Það gefur auga leið að sagan er mjög kyrr- stæð. Þar að auki hanga upp- lýsingar um lif persóna ekki saman af þvi að þeim er til skiptis ætlað að vera „lifsreynt fólk” eða fullkomlega óreynt. Og þetta eru bara tæknileg atriði og ekki sagt orð um hugmyndafræði Sumar- blóms i Paradis. Eg get ekki annað sagt um þetta: Fyrr má nú aldeilis vera andsk... metnaðarleysið!!! Það hlýtur að vera hægt að skrifa hressari og betri og metnaðar- meiri afþreyingarbækur fyrir is- lenskar konur! Dagný LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER - LITAVER — LlTAVER - LITAVER dP LITAVER Auglýsir Ertuað byggja vittu hreyta þarftu að bSBtS Qt \ STÓRÚTSALAN í FULLUM GANGI i Veggfóður — Verð frá kr. 30.00rúiian i Veggdúkar — Breidd 53 cm, 65 cm og 1 m. i Veggstrigi — Verðfrákr. 10.00 m. i Veggkorkur — Breidd 89 cm. \ Stök gótfteppi, 100% uii. i Góifteppi — Breidd 3,66 og4m. * Gótfdreglar — Breidd 80 cm ogl m. > Gótfdúkar, allargerðir. Líttu við í Litaver því það hefur ávaltt borgað sig. V£\ li miniv' Grensásveg 18 Hreyfilshúsinu aaa Sími 0^444 LITAVER — LITAVER - LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER - LITAVER —' LlTAVER -

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.