Þjóðviljinn - 06.02.1982, Blaðsíða 31
< í V .. rtS \ J\' 1 ?
Helgin 6.— 7. febrúar 1982. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 31
nafn
víkunnar
Örnólfur
Árnason
Undanfarna viku hefur
staðið yfir hér i Reykjavi'k
svokölluð Kvikmyndahátið og
er þar um að ræða fyrsta þátt
Listahátiðar sem að öðru leyti
hefst i sumar. Við slógum á
þráðinn til ömölfs Arnasonar,
framkvæmdastjóra Lista-
hátiðar og spurðum hann um
tilurð Kvikmyndahátiðar að
þessu sinni:
,Hér er um að ræða 4.
alþjóðlegu kvikmynda-
hátiðina i Reykjavik sem
Listaháti'ð gengst fyrir. Fyrst
var bryddað upp á þessu 1978
og ætlunin að efna til svona
átaks annað hvert ár. En strax
1980 kom i ljós hinn gifurlegi
áhugi almennings fyrir þess-
ari nýbreytni og var þá
ákveðið að hafa hátið á hver ju
ári. Ýmsir Utlendingar voru
svartsýnirá að fólklegði á sig
að fara mikið i kvikmyndahús
á þessum árstima, en við
töldum hins vegar að einmitt i
skammdeginu væri þörf á
upplyftingu af þessu tagi.
— Er áhugi fyrir listrænum
kvikmyndum mikill hér?
„Hann hefur sýnt sig að
vera gifurlegur hér á landi og
okkur hefur tekist að fá tiunda
hvern Islending til okkar á
þeirri viku sem hátiðin stend-
ur. Aðþessu sinnivoru 6kvik-
myndir með isl. texta og þarf
þvi vonandi ekki alfarið að
treysta á tungumálakunnáttu
landsmanna i framtiðinni.”
— Hvenær hefst svo sjálf
Listahátiðin i sumar?
„Hún hefst 5. júni' og stendur
i 16 daga. Það virðist æ auð-
veldara að fá hingað vel
þekkta listamenn og virðist
hátiðin afar vel kynnt út á við.
Markið var setthátt i upphafi
og við höfum reynt að slá
hvergi af þeim kröfum sem
gera þarf til hátiðar af þessu
tagi”.
— Hefur verið gengið frá
einhverjum dagskrárliðum?
„Helst er það á tdnlistar-
sviðinu sem dagskrárliðir eru
ákveðnir. Þar skal t.d. nefna
komuhins fræga irska flautu-
leikara James Galwy, en hann
leikur með Sinfóniuhljóm-
sveitinni 9. júni. Þá heimsækir
okkur búlgarski bassasöngv-
arinn Boris Christoff en
hátiðinni lýkur einmitt með
söng hans á sérstökum tón-
leikum með Sinfóniuhljóm-
sveitinni.
Af islenskum viðburðum má
nefna frumflutning óperu eftir
Atla Heimi Sveinsson, sem
nefnist Silkitromman. Einnig
erum við stoltir að hafa
stuðlað að myndun hljóm-
sveitar ungra isl. tónlistar
manna, sem skipa Kammer
sveitundir stjórn Guðmundar
Emilssonar.”
__ Að lokum, örnólfur?
,,Mér finnst sérstaklega
ánægjulegt að undirbúa svona
hátið vegna þess hve við verð-
um áþreifanlega vör við hlýju
0g velvilja almennins til svona
listræns átaks. Einmitt þessi
staðreynd hefur helst áhrif á
þá sem ráða fjárveitingum til
okkar og örvar okkur um leið
til dáða.”
—v
Myndin er tekin af útifundinum fyrir utan Bandariska sendiráðið við Laufásveg. Ljósm. —eik
Útifundur við bandariska sendirádið í gær:
Fordæmum stuðning við
herforingjastjórn E1 Salvador
A útifundi, sem haldinn var i
gær við bandariska sendiráðið i
Reykjavik var samþykkt eftirfar-
andi mótmælaorðsending til
Bandarikjastjórnar:
„Fundurinn lýsir yfir megnustu
andúð sinni á ofbeldisverkum
herforingjastjórnarinnar i E1
Salvador gegn alþýðu landsins.
Ennfremur fordæmir fundurinn
harðlega stuðning Bandarikja-
stjórnar við herforingjastjórnina.
Efnahags- og hernaðaraðstoð
Reagnas gerir hernum og fasista-
hópum mögulegt að standa fyrir
þjóðarmorði á ibúum E1 Salva-
dor.
Sú yfirlýsing „Hvita hússins”
að til greina komi að senda
bandariska hermenn til E1 Salva-
dor, hefur enn aukið á reiöi
heimsins og mun koma
Bandarikjunum sjálfum i koll.
Alþýða heimsins mun risa upp og
kollvarpa heimsvaldastefnunni.”
Ályktun stjórnar Al-
þýðubandalagsins I
Reykjavik
Svohljóðandi ályktun var send
útifundi til stuðnings alþýðu E1
Salvador, fyrir utan bandariska
sendiráðið:
„Stjórn Alþýðubandalagsins i
Reykjavik sendir alþýðu E1
Salvador baráttukveðju sina. Við
tökum heilshugar undir þá
ineginskoðun að alþýða E1 Salva-
dor þurfi á stuðningi allra þeirra
að halda, sem i raun og veru
berjast fyrir auknum mannrétt-
indum um heim allan, en nota
ekki aðeins hörmungar annarra
til framdráttar eigin stjórnmála-
skoðunum. 1 þvi sambandi
hvetjum við til breiðrar samfylk-
ingar stjórnmálaflokka, verka-
lýðshreyfingar og annarra fjölda-
samtaka i baráttunni fyrir
auknum mannréttindum i Mið- og
Suður-Ameriku.
Við minnum á, að á sama tima
og stjórn Bandarikjanna grætur
krókódilstárum yfir örlögum
óháðrar verkalýðshreyfingar i
Póllandi og herstjórninni þar,
stendur hún heilshugar að baki
fjöldamorðum á alþýðu landa i
Rómönsku-Ameriku. Siðferði-
legur stuðningur Bandarikj-
astjórnar við morðstjórnir i
þessum heimshluta, vopnasend-
ingar fyrir miljóna hundruð doll-
ara og tæknileg ráðgjöf i meðferð
drápstólanna, gerir stjórn
Bandarikjanna samseka i fjölda-
morðunum frammi fyrir augum
heimsins.
Við hljótum þvi ab krefjast
þess, að bandarikjastjórn láti af
stuðningi sinum við herforingja-
stjórnirnar i E1 Salvador og
öðrum löndum Rómönsku-
Ameriku. Við krefjumst þess að
alþýða þessara landa fái frelsi til
að byggja upp það þjóðfélag rétt-
lætis og jöfnuðar sem hún óskar
sér.
Við kreíjumst frelsis fyrir
þjáða þjóð E1 Salvador.
Við krefjumst frelsis allra
þjóða Mið- og Suður-Ameriku”.
Þessi ályktun var samþykkt á
stjórnarfundi Alþýðubandalags-
ins i Reykjavik 4. febrúar s.l. og
send útifundinum til stuðnings al-
þýðunnar i E1 Salvador.
17%
verðlækkun
á B 90, B-900 og B 1900
tölvukerfunum frá
Stjórnendur fyrirtækja og stofnana, tölvuráðgjafar.
Kynnið ykkur þetta tilboð.
Það munar um minna.
Sölumenn okkar og sérfræðingar veita allar upplýsingar
um B 90, B 900 ogB 1900.
í
i K'-jfanm
m
a
I
i 5 3
1
IV-----
acohf
Laugavegi 168
105 Reykjavik
Sími 27333